Fréttablaðið - 02.10.2003, Síða 19
19FIMMTUDAGUR 2. október 2003
Það virðist vera mikill áhugifyrir þessu þó sumir segi að
það sé djöfulgangur í mér en svo
er ekki,“ segir fjölmiðillinn Þór-
hallur Guðmundsson, sem hefur í
nógu að snúast þessa dagana.
Í gær var nýr sjónvarpsþáttur
með kappanum frumsýndur á
Stöð 2 en þar miðlar Þórhallur
hæfileikum sínum: „Við munum
líka koma til með að fjalla um
ýmis málefni tengd dauðanum.
Við spjöllum við tarotspilara og
heyrum sögur af fólki sem hefur
lent í óútskýranlegum hlutum. Í
næsta þætti fáum við meðal ann-
ars til okkar breska konu sem
starfar sem miðill.“
Þórhallur er þekktur fyrir að
sjá meira en margir, en hvernig
er lífinu háttað hjá honum dags
daglega? „Ég geng ekki Lauga-
veginn og sé fullt af framliðnu
fólki. Ég passa mig á að vera lok-
aður utan vinnu því þá vil ég að
sjálfsögðu lifa eðlilegu lífi. En
þegar fólk gefur sig á tal við
mann opnast alltaf fyrir eitt-
hvað.“
Þáttur Þórhalls ku marka
tímamót þar sem þetta er í fyrsta
skipti á Íslandi sem sjónvarpað
er af skyggnilýsingafundum. ■
Sjónvarp
ÞÓRHALLUR MIÐILL
■ Er löngu orðinn frægur fyrir störf sín.
Þórhallur hefur starfað í útvarpi í 13 ár.
Nú reynir hann fyrir sér í sjónvarpinu en
þáttur hans, Lífsaugað, hóf göngu sína á
Stöð 2 í gær.
??? Hver?
Margrét Gauja Magnúsdóttir. Er að klára
uppeldis-, menntunar- og atvinnulífs-
fræði uppi í Háskóla og starfa í Hinu
húsinu með tótalráðgjöf og lestina.
??? Hvar?
Er stödd í kjallaranum heima hjá for-
eldrunum mínum en ég bý þar meðan
ég er að bíða eftir húsinu mínu.
??? Hvaðan?
Er kokkteill úr Keflavík og Selfossi en
hjartað er hafnfirskt.
??? Hvað?
Er að bjóða mig fram til formanns
Ungra jafnaðarmanna.
??? Hvernig?
Með því að vinna með öðrum ungum
jafnaðarmönnum um land allt og hvetja
og styðja við þá til að raddir ungs fólks
heyrist sem hæst.
??? Hvers vegna?
Til að styrkja innra starf Ungra jafnaðar-
manna, því það er það sem skilar sér út
á við.
??? Hver?
Andrés Jónsson. Ég er sjálfstætt starf-
andi ráðgjafi í markaðs og kynningar-
málum og formaður ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík.
??? Hvar?
Ég er í bílnum á leiðinni í vinnuna.
??? Hvaðan?
Ég er úr vesturbænum en hef sótt sjó
og verið vinnumaður í sveit úti um allt
land.
??? Hvað?
Ég er að gefa kost á mér til að vera for-
maður Ungra jafnaðarmanna.
??? Hvernig?
Með því að halda áfram að opna starf
Samfylkingarinnar fyrir ungu fólki.
??? Hvers vegna?
Mér finnst þetta bara svo skemmtilegt.
Pólitík er mínar ær og kýr og get ekki
ímyndað mér neitt mikilvægara en að
vinna að bættu samfélagi nær og fjær.
■ Formannsslagur
UNGIR JAFNAÐARMENN
Andrés Jónsson og Margrét Gauja Magnúsdóttir bjóða sig fram til formanns
Ungra jafnaðarmanna en kosningin fer fram á föstudaginn.
Júlíus Hafstein hefur verið ráð-inn til að annast undirbúning
vegna hátíðahalda í tilefni af 100
ára afmæli heimastjórnarinnar hér
á landi.
„Það var 1. febr-
úar 1904 sem fram-
k v æ m d a v a l d i ð
fluttist hingað til
lands frá Danmörku
og fyrsti forsætis-
ráðherrann tók við
störfum,“ segir Júlíus en það var
einmitt frændi hans, Hannes Haf-
stein, sem gegndi ráðherrastarfinu
fyrstur manna. „Síðan hafa 24 for-
sætisráðherrar verið í landinu,“
segir Júlíus, sem mun vinna að
þessu verkefni fyrir forsætisráðu-
neytið fram á næsta ár.
Bæjarstjóri
í hjólastól
SELTJARNARNES Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi, sleit hásin í góðgerðarleik
í knattspyrnu á dögunum. Hann
hefur verið bundinn við hjólastól
síðan en er nú farinn að ganga við
hækjur. En enn á hann nokkrar
vikur eftir í gifsi.
Bæjarstjórinn ætlar að nota
tækifærið og kynna sér aðgengi
fatlaðra í bæjarfélagi sínu á
meðan svo er ástatt um hann sjálf-
an. Dregur hann ekki dul á að þau
mál öll brenna á honum heitar á
meðan hann er ekki betur
gangfær en raun ber vitni. Hefur
reynsla Jónmundar í þessu efni
komið honum veruleg á óvart og
verið lærdómsrík. ■
Enginn djöfulgangur
ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON
Starfar sem miðill en fyrsti skyggni-
lýsingaþáttur hans var sýndur á Stöð 2 í
gærkveldi.
JÓNMUNDUR GUÐMARSSON
Bæjarstjórinn í vinnunni. Yfir honum er
málverk af fyrrum bæarstjóra, Sigurgeiri
Sigurðsyni.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Fréttiraf fólki