Fréttablaðið - 02.10.2003, Qupperneq 34
2. október 2003 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
29 30 1 2 3 4 5
OKTÓBER
Fimmtudagur
Það er afskaplega mikilvægt aðþeir sem hafa áhuga á djasstón-
list hafi einhvern fastan stað þar
sem þeir geta gengið að djassmús-
ík vísri,“ segir Sigurður Flosason
saxófónleikari, sem skipuleggur
nýja djasstónleikaröð á Kaffi List
við Laugaveginn.
Í vetur verða tónleikar þar á
hverjum fimmtudegi klukkan hálf-
tíu og standa þeir hverju sinni til
miðnættis eða þar um bil.
Tríó Ragnheiðar Gröndal ríður
á vaðið í kvöld. Þessi unga söng-
kona hefur fengið til liðs við sig þá
Jón Pál Bjarnason gítarleikara og
Tómas R. Einarsson bassaleikara.
„Þetta verða því þrjár mismun-
andi kynslóðir íslenskra djasstón-
listarmanna, sem við fáum að
heyra í,“ segir Sigurður.
Þegar er ákveðið hverjir koma
fram næstu þrjá fimmtudaga. Í
næstu viku verður það Kvartett
Ómars Guðjónssonar, þar á eftir
tríóið B3 og loks Tríó Sigurðar
Flosasonar.
„Síðan stefnum við á að halda
þessu áfram í allan vetur,“ segir
Sigurður, sem hefur undanfarin ár
skipulagt tónleikadagskrá veit-
ingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu. Eins og á Jómfrúnni
verður ókeypis aðgangur að tón-
leikunum á Kaffi List. ■
■ TÓNLIST
■ MÁLÞING
Þrjár kynslóðir
íslenskra djassara
GUÐMUNDUR ÞORVALDSSON
Mér þykir vænst um rafmagns-gítarinn sem ég keypti þegar
ég var 17 ára,“ segir Guðmundur
Ingi Þorvaldsson, söngvari hljóm-
sveitarinnar Tvö dónalegu haust.
„Þetta er Aria Pro Mad Axe sem
öllum finnst ljótur nema mér. Svo
finnst mér líka mjög töff að eiga
sítt að aftan hljómborðið sem
Magnús Kjartansson spilaði Sól-
arsömbu á í undankeppni
Eurovision,“ segir leikarinn, sem
fer á kostum í Hafnarfjarðarleik-
húsinu um þessar mundir í sýn-
ingunni Vinur minn heimsendir.
Hljóðfæriðmitt
SELLÓFON
sjá nánari upplýsingar á www.sellofon.is
Miðasala í Iðnó í
síma 562 9700
www.idno.is
Frumsýning á Ólafíu
8 október
Í kvöld 2. okt kl. 21, UPPSELT
lau 11. okt kl. 21, UPPSELT
mið 15. okt kl. 21, örfá sæti
sun 19. okt kl. 21, nokkur sæti
TENÓRINN
FRUMSÝNING 5 október
2 sýning 9 október
3 sýning 10 október
4 sýning 18 október
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Erling Blöndal Bengtsson
sellóleikari leikur einleik með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í Háskólabíói. Flutt
verða verk eftir Georges Enesco, Aram
Khatsjatúrjan og Johannes Brahms.
Hljómsveitarstjóri er Lawrence Foster.
21.30 Nýrri jazztónleikaröð verður
hleypt af stokkunum á Kaffi List, Lauga-
vegi 20a. Tríó söngkonunnar Ragnheið-
ar Gröndal kemur fram á þessum fyrstu
tónleikum. Með henni leika þeir Jón
Páll Bjarnason á gítar og Tómas R. Ein-
arsson á kontrabassa. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill, meðan hús-
rúm leyfir.
Stórtónleikar Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur, Gunnars Guðbjörnssonar,
Kristins Sigmundssonar og Jónasar
Ingimundarsonar verða í Reykholts-
kirkju.
Jazzkvartett Andreu flytur vel valda
jazz-standarda á Central café, Pósthús-
stræti 17.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Vinur minn heimsendir, nýtt
leikrit eftir Kristínu Ómarsdóttur, verður
sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
21.00 Björk Jakobsdóttir flytur
einleik sinn, Sellófon, í Iðnó.
■ ■ LISTOPNANIR
17.00 Sýning á myndum eftir Gísla
Steindór Þórðarson, Sigurð Þór Elías-
son og Simun Poulsen verður opnuð í
norðursal Kjarvalsstaða, nýjum sal
Listasafns Reykjavíkur. Þetta er önnur
sýningin í röð myndlistarsýninga listahá-
tíðarinnar List án landamæra og að
þessu sinni eru listamennirnir allir ein-
hverfir. Sýningunni lýkur 12. október.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Stefnumót Undirtóna á
Grand Rokk með Móra, Forgotten
Lores, Chosen Ground og MC Mezzías.
22.00 Fyrsta undanúrslitakvöldið í
keppninni Fyndnasti maður Íslands
2003 verður haldið á Kaffi Akureyri.
Kynnir er Bjarni Töframaður, næstfyndn-
asti maður Íslands 1999.
22.00 Vestur-Íslendingurinn og
trúbadorinn Bill Bourne heldur tónleika
á veitingastaðnum Paddý’s í Keflavík.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Breakbeat.is (Drum and Bass) á
Vídalín.
Tónleikar með hljómsveitinni
Centaur á Gauknum.
KK og Maggi Eiríks verða með tón-
leika í Hafnarborg, Hafnarfirði.
Hljómsveitirnar Pan, Sein og Inn-
vortis spila á skemmtistaðnum de
Boomkikker í Hafnarstræti.
Hljómsveitin Smokie, sem í eina tíð
gerði það gott, verður með tónleika á
Broadway.
■ ■ FUNDIR
12.05 Guðrún H. Eyþórsdóttir
mannfræðingur flytur fyrirlestur á
Rabbfundi Rannsóknarstofu í
kvenna- og kynjafræðum í stofu 301 í
Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist: For-
sendur breytuvals í krabbameinsrann-
sóknum: Hin kynbundna nálgun í skjóli
hlutleysis.
20.00 Í tilefni af frumsýningu
heimildarmyndarinnar „Rannsókn á
huliðsheimum“ eftir Jean Michel Roux
í Háskólabíói skipuleggur Alliance
Française spjallfund og umræður með
leikstjóranum og nokkrum þátttakenda
myndarinnar: Erlu Stefánsdóttur, Þór-
unni Kristínu Emilsdóttur, Brynjólfi
Snorrasyni, Guðjóni Sigmundssyni,
Lárusi Thorlacius og Ragnari Stefáns-
syni. Leiðandi umræðna verður Gérard
Lemarquis. Fundurinn fer fram á ís-
lensku og ensku í nýjum húsakynnum
Alliance Française á Tryggvagötu 8, 2.
hæð. Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
21.30 Dagný Kristjánsdóttir pró-
fessor, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri
og Ingibjörg Magnadóttir leikmynda-
hönnuður taka þátt í leikhúsumræðum
í Hafnarfjarðarleikhúsinu um leikritið
Vinur minn heimsendir eftir Kristínu
Ómarsdóttur. Umræðurnar hefjast að
lokinni sýningu. Allir velkomnir.
RAGNHEIÐUR
GRÖNDAL
Syngur djass á
Kaffi List í kvöld í
nýrri tónleikaröð,
sem Sigurður
Flosason hefur
skipulagt.
Spjallað um drauga
Í gær var frumsýnd hér á landifrönsk heimildarmynd um land-
læga trú Íslendinga á hulin fyrir-
bæri á borð við drauga.
Í myndinni, sem heitir Rann-
sókn á hulinsheimum, er rætt við
marga Íslendinga sem telja sig
hafa séð fyrirbæri af ýmsu tagi,
sem jafnan eru hulin öðru fólki.
Í tilefni af frumsýningu mynd-
arinnar efnir Alliance Francaise,
sem er félag áhugamanna hér á
landi um Frakkland og franska
menningu, til spjallþings með
leikstjóra myndarinnar, Jean
Michael Roux, í nýjum húsakynn-
um félagsins að Tryggvagötu 8.
Í spjallinu, sem verður á léttu
nótunum, taka þátt auk leikstjór-
ans nokkrir þeirra Íslendinga sem
rætt var við í myndinni, þar á
meðal miðlar, sjáendur og vís-
indamenn. Þetta eru þau Erla
Stefánsdóttir, Þórunn Kristín Em-
ilsdóttir, Brynjólfur Snorrason,
Guðjón Sigmundsson, Lárus Thor-
lacius og Ragnar Stefánsson.
Stjórnandi umræðnanna verður
Gerard Lemarquis.
Myndin vakti töluverða athygli
í Frakklandi þegar hún var sýnd
þar síðastliðinn vetur og ætti að
gera það ekki síður hér á landi. ■
SJÁANDINN
Erla Stefánsdóttir verður ein þeirra sem
taka þátt í spjalli um frönsku heimildar-
myndina Rannsókn á hulinsheimum.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Magnús Ólafsson ljósmyndari
27. sept. - 1.des. 2003
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnreykjavikur.is
Sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Úr byggingarlistarsafni, Yfir bjartsýnisbrúna,
Vögguvísur, Erró - Stríð.
Leiðsögn alla sunnudaga kl. 15.00.
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Eyjólfur Einarsson, Sæmundur Valdimarsson, Kjarval.
Tréskurðanámskeið sunnudag 10-17
Leiðsögn alla sunnudaga kl. 15.00.
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn.
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
s: 577-1111
Árbæjarsafn:
Safnhúsin eru lokuð en boðið er upp á
leiðsögn um safnsvæðið á mán., mið. og fös.
kl. 13. Skrifstofan er opin virka daga kl. 8.30-16.
Móttaka hópa eftir samkomulagi.
Viðey:
Upplýsingar um leiðsögn í Viðey
í síma 568-0535 og 693-1440
Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík.
Kogga á Sjónþingi
lau. 27. sept. kl. 13.30
Félagsstarf: Steinlaug Sigurjónsdóttir
Á döfinni: Ljóðatónleikar 19.okt.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
www.gerduberg.is
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma
s. 552 7545 og á heimasíðu
www.borgarbokasafn.is
SUNNUDAGAR ERU BARNADAGAR
Í AÐALSAFNI, TRYGGVAGÖTU 15
... og næsta sunnudag
5. október kl. 15
verður danska fjölskyldumyndin Krummarnir
sýnd á Reykjavíkurtorgi.
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir
Minjasafn Orkuveitunnar
Breyttur opnunartími hjá
Minjasafni Orkuveitunnar
Nýju tímarnir eru:
mán.-fös. 13-16
sun. 15-17
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn, sími: 563 1770
Langar þig að vita sögu
hússins þíns?
Borgarskjalasafn Reykjavíkur varðveitir
sögu húsa í Reykjavík
Opið alla virka daga kl. 10-16.
34
Laugardagur 04.10. kl. 20 örfá sæti laus
Fimmtudagur 09.10. kl 20:30 uppselt
Föstudagur 10.10. kl. 20 uppselt
Fimmtudagur 16.10. kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 24.10 kl. 20 laus sæti
Föstudagur 31.10. kl. 20 laus sæti
BYRJAÐIR AFTUR
sýning 2. okt. kl 20
og 4. okt. kl 20
LAUGARDAGUR 4. OKT kl. 14.30
STÓRTÓNLEIKAR -ENDURFLUTTIR
Diddú, Snorri Wium, Kristinn Sigmunds
og Jónas Ingimundarson.
SUNNUDAGUR 5. OKT kl. 20
TÍBRÁ: SELLÓ OG PÍANÓ
Erling Blöndal Bengtsson og Nina Kavt-
aradze leika.
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKT kl. 20
TÍBRÁ: Söngkvartettinn Rúdolf
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR