Fréttablaðið - 02.10.2003, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Út yfir gröf
og dauða
Fyrir nokkrum árum varð EiríkurJónsson blaðamaður fyrstur
manna á Íslandi að skrifa ævisögu í
blóra við umfjöllunarefni ævisög-
unnar. Eiríkur skrifaði bók um Davíð
Oddsson og fór fram á heimild Dav-
íðs til að vinna verkið, en var synjað
um heimildina. Eiríkur lét synjunina
ekki á sig fá og skrifaði bókina sem
síðan kom út eins og lög gera ráð
fyrir. Í ljósi þessarar reynslu er því
grátbroslegt að fylgjast með upp-
hlaupinu út af fyrirhugaðri ævisögu
Hannesar Hólmsteins um ævi Hall-
dórs Laxness. Í sjálfu sér er þetta
sáraeinfalt mál: Hannes Hólmsteinn
hefur fullt ritfrelsi til að skrifa ævi-
sögu hvers sem er, og erfingjar að
höfundarrétti Halldórs Laxness geta
að sjálfsögðu neitað hverjum sem er
um heimild til að notfæra sér texta
sem skáldið skrifaði.
ERLENDIS er stór hópur rithöf-
unda sem reynir að draga fram lífið
á því að skrifa ævisögur í heimildar-
leysi og jafnvel fullkominni and-
stöðu við umfjöllunarefni sín. Um-
fram allt eru það hæfileikar höfund-
anna sjálfra sem skipta máli varð-
andi lokaútkomuna, ekki ágæti þess
sem bókin fjallar um. Það er hægt að
skrifa góðar bækur um vonda menn
og vondar bækur um góða menn. Það
sem máli skiptir er hvort höfundur-
inn er vondur eða góður.
ÞVÍ MIÐUR er lífið svo miskunn-
arlaust að jafnvel auðugustu menn
verða að skilja við eigur sínar á
dauðastundinni. Þessi missir kemur
þó sjaldan illa við listamenn, enda
dugir þeim sjaldnast ævin til að
eignast þak yfir höfuðið, annað en
kistulokið. Hins vegar fylgir starfi
listamannsins sá bónus að hon-
um/henni og erfingjum er ætlað að
njóta yfirráða yfir höfundarverkum
sínum út yfir gröf og dauða í heila
sjö áratugi eftir að jarðvistinni lýk-
ur. Að sjötíu árum liðnum verða höf-
undarverk eign almennings.
HANNESI er að sjálfsögðu heimilt
að skrifa bækur um Halldór Lax-
ness. Eins og allar bækur munu þær
fyrst og fremst verða heimild um
það hvern mann höfundur þeirra
hefur að geyma. Eins og bækur Hall-
dórs Laxness. ■