Fréttablaðið - 08.10.2003, Blaðsíða 12
12 8. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
FORSETI TSÉTSNÍU
Nýkjörinn forseti, Akhmad Kadyrov, var
brosmildur eftir að úrslit kosninganna lágu
fyrir. Landar hans voru ekki eins brosmildir
en þeir saka Kadyrov um stórfellt kosn-
ingasvindl. Kadyrovs bíður það erfiða verk-
efni að reisa Tsétsníu úr rústum eftir nærri
áratuga styrjöld.
Áhyggjur nágranna vegna fyrirhugaðrar háhýsabyggðar í Fossvogsdal:
Krefjast fundar vegna Lundar
SKIPULAG Íbúar í nágrenni Lundar í
Kópavogi krefjast kynningarfund-
ar með bæjaryfirvöldum vegna fyr-
irhugaðra byggingarframkvæmda
á svæðinu.
Reisa á átta íbúðablokkir á lóð
Lundar, þá hæstu 14 hæða. Íbúðir
verða á bilinu 480 til 500 og íbúar
um 1300 talsins. Deiliskipulag
vegna Lundar er nú í kynningu.
Frestur til að skila inn athugasemd-
um rennur út 10. nóvember. Þetta
þykir nágrönnum ekki vera nóg.
Gengið hefur verið í hús í nágrenni
Lundar beggja vegna Hafnarfjarð-
arvegar til að safna undirskriftum:
„Við undirrituð teljum miklu
máli skipta að vel takist til við upp-
byggingu svæðisins, enda eigum
við þar mikilla hagsmuna að gæta.
Þær skipulagstillögur sem auglýst-
ar hafa verið kalla á fjölmargar
spurningar, meðal annars um skóla-
mál og umferðarmál á svæðinu og
ásjónu þess. Við óskum eftir því að
Kópavogur boði til opins fundar
með bæjarráði, skipulagsnefnd og
skipulagsstjóra Kópavogs, þar sem
íbúar og aðrir, sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta, geta rætt þessi
mál við viðkomandi aðila. Þess er
óskað að slíkur fundur verði hald-
inn sem fyrst,“ segir í bréfi ná-
granna Lundar. Búist er við að bréf-
ið verði tekið fyrir á fundi bæjar-
ráðs í dag. ■
DÓMSMÁL Aðalmeðferð tveggja lög-
reglumanna, sem ákærðir hafa
verið af ríkissaksóknara fyrir
ólöglegar handtökur, ranga
skýrslugerð og brot í opinberu
starfi, hófst í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær.
Annar lögregluþjónninn er einn
ákærður fyrir aðra handtökuna.
Hann er sakaður um að hafa hand-
tekið rúmlega tvítugan mann á
veitingastað í Hafnarstræti og
fært hann á lögreglustöð án nægi-
legra ástæðna eða tilefnis. Upphaf
samskipta lögregluþjónsins og
mannsins voru vegna ljósmyndar
sem maðurinn tók af lögreglu-
manninum inn á
Nonnabita í Hafn-
arstræti. Lögreglu-
þjónninn segir
manninn hafa verið
að angra sig með
því að biðja ítrekað
um að fá að taka
mynd af honum
með ölvaðri stúlku
sem var stödd á
matsölustaðnum, þrátt fyrir neit-
un. Ástæðurnar fyrir því að lög-
regluþjónninn vildi ekki láta
mynda sig sagði vera að hann væri
húfulaus. Auk þess þótti honum
ekki við hæfi að vera einkennis-
klæddur haldandi um ölvaða
stúlku. Því hafi hann leitt manninn
til hliðar inn á staðnum eftir að
maðurinn tók myndina af honum
og þar á eftir út í lögreglubíl. Þar
hafi maðurinn ekki vilja gefa upp
persónuupplýsingar og hafi neitað
að tala við hann nema að um hand-
töku væri að ræða. Hann hafi því
verið handtekinn og færður á lög-
reglustöðina. Á stöðinni hafi mis-
skilningur á milli hans og sam-
starfsmanns valdið því að varð-
stjóri hafi ekki verið viðstaddur.
Maðurinn segir hann hafa verið
handtekinn um leið og hann hafi
smellt af myndavélinni. Hann seg-
ist hafa boðist til að eyða myndinni
en það hafi ekki komið í veg fyrir
handtökuna. Á lögreglustöðinni
hafi þeir rætt saman án varðstjóra
og skilið sáttir. Hann segist hafa
verið hvattur, til að kæra eða legg-
ja fram kvörtun vegna handtök-
unnar, af yfirlögregluþjóni í
Reykjavík
Umdeild handtaka
Báðir lögregluþjónarnir eru
sakaðir um að hafa handtekið
mann um þrítugt fyrir framan
veitingastað í Tryggvagötu og fært
hann á lögreglustöð án þess að
ástæður eða tilefni væri til.
Lögreglumennirnir höfðu af-
skipti af pari sem var statt á
Tryggvagötu aðfaranótt sunnu-
dagsins níunda apríl. Þeir kölluðu
út um glugga bílsins og sögðu fólk-
inu að færa sig af götunni og upp á
gangstétt. Varð maðurinn ósáttur
við þessi afskipti og lét dónaleg
orð falla í garð lögreglumannanna
sem snéru við bílnum og tóku tal af
manninum. Maðurinn, kærasta
hans og lögregluþjónarnir eru að
mestu ósammála um framvindu
málsins þar á eftir. Lögreglumenn-
irnir vilja meina að hann hafi ekki
viljað gefa upp persónuupplýsing-
ar sem þeim er skylt að hafa vegna
skráningar í dagbók. Segja hann
hafa verið í annarlegu ástandi og
hugsanlega hættulegan sjálfum
sér og öðrum. Því hafi ekki verið
um annað en handtöku að ræða.
Hins vegar hafi þeir átt fullt í
fangi með að hafa hemil á kærustu
mannsins sem lét öllum illum lát-
um. Maðurinn var fluttur á brott
öðrum lögreglubíl og þeir hafi
þurft að handjárna kærustuna
vegna óspekta. Maðurinn og
kærastan segja handtöku hans
engan veginn hafa átt rétt á sér
þar sem þau hafi farið upp á gang-
stétt við fyrstu athugasemd og
telja slæmt orðbragð ónæga
ástæðu til handtöku, því annað hafi
hann ekki gert. Hins vegar fallast
þau á handtöku hennar en segja
reiði hennar sem var upphaf hand-
tökunnar hafa verið réttlætanlega.
Glotti og sprautaði
Lögregluþjóninum, sem stóð að
fyrstu handtökunni, er einnig gef-
ið að sök að hafa beitt úðavopni
gegn þrítugum manni án ástæðna
eða tilefnis.
Lögreglumennirnir sem unnu
að því að yfirbuga kærustu
mannsins sem þegar hafði verið
fluttur á brott þegar hávaxinn
maður sýndi óánægju með mjög
harkalega handtöku lögreglu-
mannanna í orðum og atgervi.
Vitnin vilja flest meina að maður-
inn hafi ekki verið það ógnandi að
lögreglumennirnir hefðu annað að
óttast en fúkyrði og því hafi notk-
un úðavopns verið með öllu óþörf.
Þrjú vitni segja lögregluþjóninn
hafa verið glottandi þegar hann
notaði úðann.
Þá eru báðir lögregluþjónarnir
ákærðir fyrir ranga skýrslugerð,
til skýringar notkun á úðavopninu.
Var skráð að múgæsingur, um og
yfir tíu manna, hafi brotist út eftir
handtökurnar í Tryggvagötu. Þar
hafi þeir haldið að maður hafi ætl-
að að ráðast að lögreglubílnum.
Því hafi verið nauðsynlegt að nota
úðavopn til að lögregla kæmist af
vettvangi án frekari átaka. Frá-
sögn lögreglumannanna um múg-
æsing fékk engan byr vitna þegar
frá er talin ein lögreglukona.
hrs@frettabladid.is
■
Hann segist
hafa verið
hvattur, til að
kæra eða legg-
ja fram kvörtun
vegna handtök-
unnar, af yfir-
lögregluþjóni í
Reykjavík
Austurland:
Umferð eykst
SAMGÖNGUR Samkvæmt gögnum
frá Vegagerðinni hefur umferð
aukist umtalsvert um Fagradal á
Austurlandi. Um hann verður að
fara ef komast á frá Reyðarfirði
til Egilsstaða. Fyrst og fremst er
um aukna umferð vegna stór-
framkvæmda við Kárahnjúka en
mikið af nauðsynlegum búnaði
Ítalanna til framkvæmdanna
kemur að landi á Eskifirði.
Bæði um Fagradal og Fjarðar-
heiði hefur umferð aukist um tals-
vert frá fyrra ári en til saman-
burðar má geta þess að meðalum-
ferð um Öxnadalsheiði í júlí sl.
1.585 bílar. ■
BÍLAUMFERÐ FYRIR AUSTAN
MEÐALUMFERÐ UM FAGRADAL:
Júlí 2001 827 bílar
Júlí 2002 864 bílar
Júlí 2003 980 bílar
MEÐALUMFERÐ UM FJARÐARHEIÐI:
Júlí 2001 485 bílar
Júlí 2002 514 bílar
Júlí 2003 618 bílar
Sprengjuárásir í Írak:
Þrír féllu
BAGDAD, AP Þrír bandarískir her-
menn, írakskur túlkur og þrír
óbreyttir borgarar fórust í
sprengjuárás skammt suður af
Bagdad, höfuðborg Íraks í gær.
Þetta eru fyrstu mannskæðu árás-
irnar á hernámsliðið frá því sl.
föstudag. Þar með hafa 320 banda-
rískir hermenn fallið í Íraksstríð-
inu, þar af hefur 91 fallið frá því
Bush Bandaríkjaforseti lýsti yfir
stríðslokum í landinu, 1. maí síð-
astliðinn. ■
Þreyttir Írar:
Njóta ekki
frítímans
ATVINNUMÁL Einn af hverjum fjór-
um Írum finnur fyrir meiri álagi í
vinnu nú en fyrir fjórum árum.
Mest virðist álagið vera meðal 25-
39 ára starfsmanna. Fjórir af
hverjum tíu Írum eru dauðþreytt-
ir eftir vinnudaginn og þriðjungur
er of þreyttur til að njóta þess
sem eftir lifir dags að vinnudegi
loknum.
Þetta kemur fram í nýlegri
skýrslum National Centre for
Partnership and Performance.
Úrtakið voru fimm þúsund
manns. Í skýrslunni kemur fram
að starfsánægja er mikil meðal
Íra, níu af hverjum tíu sögðust
ánægðir í vinnu. ■
LUNDUR
Svona verður útsýnið frá vestustu íbúðar-
húsunum neðan Nýbýlavegs þegar Lundar-
svæðið er byggt. Myndin er gerð af Onno
ehf. og er ásamt fleiri tölvumyndum á vef
Kópavogsbæjar
Mannanafnanefnd:
Alexander
Jónas
SAMFÉLAGIÐ Þeir útlendingar sem
komið hafa hingað til lands og
ákveðið að setjast að hafa þurft að
þola ýmsar breytingar, m.a.
nafnabreytingar. Þegar Alexand-
er Jónas flutti hingað frá Grikk-
landi hét hann Alexander Ionas.
Þá þurfti þeir Frode, Iljas og Jac-
obo að breyta nöfnum sínum og
heita nú Fróði, Elías og Jakob.
Fleiri nöfnum hefur verið snar-
að yfir á íslensku og má nefna;
kvenmannsnöfnin Marie Aurelia -
María Árelía, Anzhela - Angela og
karlmannsnöfnin Knud - Knútur
og Rune - Rúnar. ■
Dómsmál
HJÖRDÍS SIGURJÓNSDÓTTIR
■ skrifar um réttarhöld yfir
lögreglumönnum
AÐALMEÐFERÐ Í MÁLI TVEGGJA LÖGREGLUMANNA Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR
Vitni segja notkun úðavopns hafa verið óþarfa. Maðurinn hafi ekki verið það ógnandi að lögreglumennirnir hefðu mikið að óttast.
Segja lögreglumenn
hafa beitt fantaskap
Aðalmeðferð tveggja lögreglumanna, sem ákærðir hafa verið af ríkissaksóknara fyrir ólöglegar
handtökur, ranga skýrslugerð og brot í opinberu starfi, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M