Fréttablaðið - 03.11.2003, Síða 2

Fréttablaðið - 03.11.2003, Síða 2
2 3. nóvember 2003 MÁNUDAGUR Ókeypis, opinn og frjáls. Silfur Egils, þáttur Egils Helgasonar, gekk í endur- nýjun lífdaga í opinni dagskrá á Stöð tvö á laugar- daginn. Skjár einn lagði þáttinn af síðasta vor vegna mismunandi áherslna þáttastjórnanda og eigenda stöðvarinnar. Spurningdagsins Egill, ertu alltaf ókeypis?  Lögreglufréttir Yfirvöld snúa sér að Abramóvits Margt bendir til þess að rússnesk stjórnvöld ætli að láta til skarar skríða gegn rússneska auðkýfingnum Róman Abramóvits í kjölfar opinberrar rannsóknar á einkavæðingu olíufyrirtækisins Sibneft. BRETLAND Rússneski auðkýfingur- inn Róman Abramóvits, eigandi breska úrvalsdeildarliðsins Chel- sea, verður næsta fórnarlamb rússneskra ráðamanna sem hafa horn í síðu viðskiptajöfra sem auðgast hafa á einkavæðingu ríkis- fyrirtækja. Þetta er niðurstaða breska vikublaðsins The Observer sem fengið hefur í hendurnar gögn frá rússneskum stjórnvöldum. Abramóvits er einn af stærstu hluthöfum rússneska olíufyrir- tækisins Sibneft, sem með sam- einingu við Yukos varð fjórða stærsta olíufyrirtæki heims. For- stjóri Yukos, Mikhaíl Khodorkov- skí, hefur verið ákærður fyrir skattsvik og skjalafals og er emb- ætti ríkissaksóknara nú undir þrýstingi að hrinda af stað rann- sókn á því hvernig staðið var að einkavæðingu olíufyrirtækisins í lok níunda áratugarins. Um helgina lagði rússneskur þingmaður fram formlega kvör- tun vegna meintrar spillingar meðal rússneskra auðkýfinga, þeirra á meðal Abramóvits. Vla- dimír Júdín, varaformaður við- skiptanefndar rússneska þings- ins, sendi bréf til ríkissaksókn- ara í síðustu viku þar sem hann fór fram á opinbera rannsókn á því hvernig staðið var að einka- væðingu Sibneft árið 1995. Í bréfinu er því haldið fram að uppboð ríkisins á hlutabréfum í Sibneft árið 1995 hafi verið svið- sett og það hafi verið ákveðið fyrir fram hverjir myndu hreppa hnossið. Í samtali við The Obser- ver sagði Júdín að hann vildi að þeir sem fengju að kaupa fyrir- tæki í eigu ríkisins undir mark- aðsverði eftir fall Sovétríkjanna greiddu ríkinu bætur. Ásakanirnar á hendur Sibneft benda til þess að Abramóvits sé ekki lengur í náðinni hjá rússnesk- um ráðamönnum, að mati The Observer. Kaup hans á knatt- spyrnuliðinu Chelsea voru mjög umdeild enda eru yfirvöld almennt ósátt við það að rússneskir auðkýf- ingar fjárfesti í erlendum fyrir- tækjum. Talsmaður Abramóvits, John Mann, bendir á að Sibneft hafi breyst verulega frá því að það var selt. „Þetta er vandamálið þeg- ar rætt er um einkavæðingu. Ef ég kaupi fræ fyrir fimm dollara og það vex og verður að tré sem ég sel fyrir fimmtíu dollara, var ég þá að svindla á einhverjum?“ segir Mann.  VIÐSKIPTI Björgólfur Guðmunds- son, formaður stjórnar Lands- banka Íslands, var sérstakur gest- ur á landsfundi Samfylkingarinn- ar sem fram fór í Hafnarfirði um helgina. Var hann ásamt Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgun- blaðsins, fenginn til að ræða um- breytingar í íslensku athafnalífi. Í máli Björgólfs kom fram að hann og viðskiptafélagar hans líti svo á að þeir séu alþjóðlegir fjár- festar og hafi ákveðið að stunda viðskipti á Íslandi fyrst og fremst vegna þess að hér séu aðstæður fjárfesta góðar. Hann sagði að vel gæti verið að þegar erlend fyrir- tæki hæfu þátttöku á innlendum samkeppnismarkaði yrði það til þess að umfjöllun um íslensk fyr- irtæki yrði eðlilegri. Um Eimskipafélag Íslands sagði hann að félagið hafi verið allt of stórt og að það hafi ekki haft frumkvæði að neinu í starfi sínu. Bar hann saman rekstur Samskipa og Eimskips, þar sem fyrrnefnda fyrirtækið hefur um helming tekna sinna af viðskipt- um erlendis en Eimskip hefur tak- markað starfsemi sína fyrst og fremst við innlendan markað. Kvaðst Björgólfur telja að þörf væri á meiri dirfsku í stjórn Eim- skipafélagsins.  Hópslagsmál í Breiðholti: Skorinn með dúka- hníf LÖGREGLUFRÉTTIR Unglingur var skorinn 10 sentímetra löngum skurði í sköflunginn í fyrrinótt. Líkamsárásin varð eftir að hóp- slagsmál brutust út við bensín- stöðina Select við Norðurfell í Efra Breiðholti. Hópur 17 til 18 ára unglinga hafði safnast saman og tók einn þeirra upp dúkahníf með fyrrgreindum afleiðingum. Farið var með drenginn sem varð fyrir árásinni á slysadeild en árásarmaðurinn var fluttur í fangageymslur. Lögreglan segir að fljótlega hafi tekist að skakka leikinn eft- ir að átök brutust út. Ekki hafi verið um átök Íslendinga af ólík- um uppruna að ræða heldur ein- angrað tilvik.  ÞRJÁR LÍKAMSÁRÁSIR Þrjár lík- amsárásir voru kærðar til lög- reglunnar í Reykjavík í fyrrinótt. Lögreglan segir fjölmenni hafa verið á skemmtistöðum og mik- inn eril. Þrír voru kærðir fyrir ölvunarakstur. TÓBAKI STOLIÐ Brotist var inn í söluturn í Árbænum í fyrrinótt. Að sögn lögreglu höfðu þjófarnir á brott með sér tóbak en ekki var ljóst hversu miklu var stolið. HÆTT KOMINN VEGNA KULDA Ökumaður missti stjórn á bílnum sínum við Kljáfoss í Borgarfirði um níuleytið í gær- morgun. Maðurinn, sem var einn á ferð, kastaðist út úr bíln- um og að sögn lögreglu var hann hætt kominn vegna kulda. Lá hann úti í klukkutíma áður en komið var að honum. Hann er grunaður um ölvun. Sjónarhóll: Kerfið er of flókið FÉLAGSMÁL „Velferðarkerfið er ágætt á mörgum sviðum en það er bara svo flókið,“ segir Sig- mundur Ernir Rúnarsson, tals- maður söfnunar Sjónarhóls. Söfnunin, sem hefst í dag, er til styrktar ráðgjafar- stofu samtakanna, sem vinna að hags- munum barna með sérþarfir. Sigmundur Ern- ir á sjálfur 18 ára þroskahefta dóttur. „Það er rosalega erfitt fyrir venju- legt foreldri að ná saman upplýsing- um um hvað er hægt að gera fyrir barnið. Flestir týn- ast bara í kerfinu, villast á leið eða gefast upp. Menn átta sig ekki á því hvað þeir hefðu getað gert fyrr en það er orðið of seint.“ Sigmundur segir slíka þjón- ustumiðstöð hafa sárvantað. „Foreldrar fatlaðra eða þroska- heftra barna hafa til þessa ekki getað leitað á einn stað til þess að fá allar upplýsingar,“ segir Sig- mundur Ernir og líkir Sjónarhóli við umboðsmann fyrir foreldra barna með sérþarfir eða ljósið sem lýsir veginn að aðstoðinni. Dorrit Moussaieff forsetafrú verður verndari fjársöfnunar samtakanna.  VIÐURKENNING TIL MÁLNINGAR- FYRIRTÆKJA Árni Magnússon fé- lagsmálaráðherra afhenti fyrir- tækjunum Hörpu Sjöfn, Máln- ingu og Slippfélaginu í Reykjavík viðurkenningu Vinnumálastofn- unnar fyrir útgáfu á öryggisleið- beiningum með varasömum efn- um sem fyrirtækin framleiða. edda.is HÖFUÐSTÖÐVAR YUKOS Rússneska olíufyrirtækið Yukos er á meðal þeirra fyrirtækja sem ríkið seldi eftir fall Sovétríkjanna. Æðstu yfirmenn fyrirtækis- ins hafa verið ákærðir fyrir skattsvik, þjófn- að og skjalafals. AUÐKÝFINGUR Í VANDA Svo virðist sem Róman Abramóvits sé ekki lengur í náðinni hjá rússneskum ráða- mönnum. Mál Gunnars Örlygssonar: Mál Gunnars og yfirvalda STJÓRNMÁL Forsvarsmenn Frjáls- lynda flokksins vilja ekki tjá sig sérstaklega um misbresti á af- plánun dóms sem Gunnar Örlygs- son, þingmaður flokksins, varð uppvís að. Fréttablaðið hafði samband við Guðjón Arnar Kristjánsson, for- mann flokksins, og Magnús Þór Hafsteinsson, varaformann flokks- ins. Þeir höfðu báðir fregnt af broti Gunnars þegar Fréttablaðið hafði samband við þá í gær. Þeir sögðu báðir að málefni sem varði afplán- un Gunnars á fangelsisdómi sínum væru fyrst og fremst milli Gunnars sjálfs og yfirvalda fangelsismála.  DÓMSMÁL Jón Magnússon lögmað- ur telur að ríkissaksóknara beri að fyrirskipa rannsókn á meintum brotum einstaklinga í grænmetis- samráðsmálinu að eigin frum- kvæði. Hann segir það fráleitt ef ríkissaksóknari ákveði að rann- saka ekki meint brot einstaklinga. Bogi Nilsson ríkissaksóknari lýsti því í Fréttablaðinu á laugar- daginn að hann væri ófús til að fyrirskipa rannsókn í samráðs- máli grænmetisfyrirtækja, þar sem nýfallinn dómur Hæstaréttar gæfi ekki tilefni til þess. Bogi sagði að Samkeppnisstofnun hefði átt að leita formlega til lögreglu vegna málsins, hefði hún talið að um brot einstaklinga væri að ræða. Jón segir þetta fráleitt. „Menn geta ekki verið í sandkassaleik, kastandi hlutunum fram og til baka, og segja að einhverjar aðrar stofnanir ættu að nálgast málið með öðrum hætti. Mér finnst það gjörsamlega fráleitt miðað við niðurstöðu Hæstarréttar ef sak- sóknari fyrirskipar ekki rann- sókn. Þarna er um að ræða gríðar- legt brot gagnvart hagsmunum al- mennings og það á ekki síður að rannsaka mál þeirra sem stela verulegum fjármunum frá al- menningi, en þegar einhver brýt- ur rúðu eða stelur súkkulaði- stykki.“  Jón Magnússon telur að rannsaka beri grænmetissamráð: Afstaða ríkissaksóknara fráleit JÓN MAGNÚSSON Fyrrum lögmaður Neytendasamtakanna segir það í verkahring ríkissaksóknara að fyrir- skipa rannsókn á einstaklingsbrotum í samráðsmáli grænmetisfyrirtækjanna, sem voru sakfelld í Hæstarétti á dögunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T  Viðurkenning SIGMUNDUR ERNIR Veitir forstöðu samtökunum Sjónarhóli, sem vinna að hagsmunum barna með sérþarfir. Björgólfur um Eimskip: Hafði ekkert frumkvæði BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Eimskip var duglegra við að drepa niður frumkvæði en hafa það. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.