Fréttablaðið - 03.11.2003, Page 14

Fréttablaðið - 03.11.2003, Page 14
Miklar breytingar á atvinnu-háttum hafa orðið til þess að mörg byggðarlög eiga verulega í vök að verjast. Í viku hverri eru sagðar fréttir af bágu ástandi fyr- irtækja víða um land. Nú hafa augu okkar beinst að Seyðisfirði og Siglufirði. Til skamms tíma var vandi Húsavíkur illviðráðanlegur en hefur verið færður til og verður vandi Sigl- firðinga. Allt vegna þess að eig- endur kvótans hafa ákveðið breyt- ingar. Nóg um það. Framtíð byggðanna er í veru- legri óvissu og til að mynda lýsir forsvarsmaður austfirskra verka- manna yfir þungum áhyggjum. Margar byggðir búa við að heilu aldurshóparnir eru ekki lengur til staðar. Yngra fólk fer og meðalald- ur hækkar. Allt kallar þetta á að horft verði á vandann og ekki gefnar fleiri falsvonir. Fyrir um áratug opnaði Davíð Oddsson, þá tiltölulega nýr í embætti forsætis- ráðherra, á umræðu um framtíð byggðanna og hvort ekki væri rétt að gefa fólki færi á að flytja frá byggðunum. Umræðan dó og svo virðist sem enginn vilji taka hana upp. Samt virðist einsýnt að fram- tíð fjölda byggðarlaga er engin eða í besta falli takmörkuð. Stjórnmálamenn úr flestum flokkum hafa sagt síðustu daga að enginn flokkanna hafi viljað ræða heilbrigðismál í kosningabarátt- unni vegna þess hversu viðkvæm þau mál eru. Enginn flokkanna ræddi heldur hvort komið sé að því að sættast á að eyðibyggðir verði staðreyndir. Flestir eru til- búnir að ræða áhrif kvótakerfis á byggðir, áhrif sauðfjárbúskapar á byggðir, áhrif menntunar og svo framvegis. Minna var talað um hvaða byggðir eiga ekki framtíð og hvað beri að gera. Þetta var ekki rætt af alvöru. Íbúunum er ekki gert gott með því að horfa á veifur skyndilausna. Betra er að horfa á staðreyndir þó þær séu sárar. Þetta er rætt manna á meðal en ekki meðal þeirra sem mesta ábyrgðina bera. Nútímasamfélag þarf að sinna mörgum þörfum. Ekki bara vinnu. Það þarf menntun, verslun og aðra þjónustu, samgöngur, menningu, íþróttir og aðra afþreyingu. Ef þetta er ekki til staðar fer yngra fólkið. Án þess er engin framtíð. Það segir sig sjálft.  Er Evrópa á skallanum? er spurtí fyrirsögn í Fréttablaðinu og í kjölfarið fylgir ítarleg umfjöllun byggð á grein í Newsweek um skuggalegu þróun í áfengismálum Evrópulanda. Þar er að mörgu al- varlegu vikið og ekki að ástæðu- lausu að því er samantektin leiðir í ljós. Það er ekki oft sem fjölmiðlar taka þann pól í hæðina að kynna staðreyndir varðandi áfengis- neyzlu og umfjöll- unin því þakkarefni. Það er býsna hollt fyrir okkur hér að skyggnast þarna um gættir grannt, svo mjög sem öll þróun hjá okkur er á sama veg og þarna er lýst að orðið hafi. Ekki vantar áróðurinn hér fyr- ir því að fólk neyti áfengis og byrji sem allra yngst einnig, áfengisaug- lýsingar tröllríða fjölmiðlunum, þó bannaðar séu með lögum, kynning er hið fagra nafn þessa oft á tíðum og ekki sízt er þessu beint að hinum ungu og óreyndu. Þarna er líka sá ofurauður að baki að engan skyldi undra þó fjölmiðlar freistist, því bærilega er borgað fyrir þessa þjónkun við áfengisauðvaldið utan alls efa. Drykkja ungs fólks eykst Rétt gripið niður í samantekt Fréttablaðsins úr Newsweek þá skal hér vitnað orðrétt til nokkurra þeirra staðreynda sem þar eru dregnar fram. Drykkja ungs fólks hefur fjórfaldast í Litháen. Í Ung- verjalandi tíðkast að börn byrji að drekka áfengi 12 til 13 ára í stað 17 eða 18 ára áður, þar hafa tölur um áfengissýki þrefaldast á fáeinum árum. 70 % telpna og 80 % drengja í Frakklandi neytir fyrst áfengis við 11 ára aldur. Svona mætti halda áfram váleg- um tilvitnunum og svo er spurt hver ástæðan sé fyrir þessum vax- andi drykkjuskap. Og aftur orðrétt: Í Austur-Evrópu benda menn gjarna á að áfengisauglýsingum hafi fjölgað til muna. Í Vestur-Evr- ópu benda menn á svipaðar orsakir. Umfram allt benda menn á að áfengisframleiðendur hafi sett á markaðinn áfenga drykki sem gagngert er ætlað að höfða til unga fólksins. Þessir drykkir eru að hálfu leyti gosdrykkir, en að hálfu leyti sterkt áfengi. Gífurlegu fjár- magni er jafnframt varið í áfengis- auglýsingar og áfengisframleið- endur sækja fast fram við að auka aðgengi almennings að áfengi með því að hafa áfengi á boðstólum sem allra víðast. Aukinn kostnaður samfé- lagsins Og enn skal vitnað til umfjöllun- arinnar því um kostnað samfélags- ins segir: Kostnaður samfélagsins vex í samræmi við aukna áfengis- neyzlu. Þar er svo vitnað til Suður- Ítalíu þar sem fjöldi ungra drykkju- manna hefur aukist um 80% á síð- astliðnum áratug, þar sem menn tala um „hina vikulegu sláturtíð“, þegar ölvaðir ökumenn slasa eða drepa sjálfa sig og aðra. Á Írlandi hefur fjöldi áfengistengdra krabba- meina aukist gífurlega og í Bret- landi hefur fjöldi dauðsfalla sem tengjast áfengisneyzlu ungs fólks þrefaldast á síðustu 20 árum og 40 % allra heimsókna á bráðadeildir sjúkrahúsa tengjast áfengisneyzlu. „Það verður enginn skemmtilegur með víni“ Þetta er skelfilegur lestur og ætti að vera þeim til ærinnar um- hugsunar sem vilja lækka áfengis- kaupaaldur, auka aðgengi að áfengi og leyfa óheftar áfengisauglýsing- ar, allt undir yfirskini frelsisins. Það annars fallega orð er óvíða mis- notað jafn herfilega og í tengslum við áfengið, sem einmitt verður allt of mörgum þungbært ok ógæfu og eyðileggingar. Þetta fólk ætti ekki að þurfa að láta sem svo að það þekki ekki þessar skuggahliðar sem Newsweek er þarna að greina frá, blákaldar staðreyndir dauðans alvöru. Þær liggja ljósar fyrir og vítin eru til að varast. En gulla- snarnir eru margir og þeirra er oft- ar en ekki mátturinn og dýrðin. Það er því þungur róður fyrir samtök bindindismanna að berjast gegn ærandi áróðrinum sem kostaður er af þeim sem græða ótæpilega á annarra ógæfu. Samt skal það gjört og vænt þótti mér um að heyra Lilju Margeirsdóttur segja á sinn hógværa og ákveðna hátt í sjónvarpsþætti á dögunum: Það verður enginn skemmtilegur með víni. En enn og aftur ber að þakka vandaða umfjöllun Fréttablaðsins.  Mál manna SIGURJÓN M. EGILSSON  skrifar um vanda byggðarlaga. 14 3. nóvember 2003 MÁNUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871  Bréf til blaðsins Lokaflautið Margt var gott í ræðu Össur-ar á landfundi Samfylking- arinnar eins og vænta mátti og þar voru líka nokkrar skringi- legar líkingar – eins og vænta mátti frá þessum litríka ræðu- manni; til dæmis þegar hann líkti formannstíð sinni við hjóna- band, þar sem Samfylkingin er eiginkonan, eilíflega að suða um stærra húsnæði „til að eyða ell- inni í“, en hann, Össur, eiginmað- urinn, sem stritar til að gera þennan draum að veruleika. Og ætl- ar þá væntanlega að vera í þessu eiginmannshlut- verki til elliára beggja aðila... Össur talaði skörulega um al- þjóðamál, tók ein- urðar afstöðu gegn innrás Bandaríkjanna og fylgiríkja í Írak og hvatning hans til að reyndar verði markaðslausnir í heil- brigðismálum var athyglisverð. Það tal stakk að vísu örlítið í stúf við að hann fagnaði afdrifum þeirrar tilraunar til einkarek- inna grunnskóla sem farið var að stað með í Hafnarfirði, sem að sínu leyti var ein merkileg- asta tilraun seinni ára til að brjótast úr viðjum staðnaðrar hugsunar í KHÍ. Össur sagði margt gott um velferðarmál og Evrópumál, boðaði klassískan kratisma sem frá því á 19. öld hefur verið „markaðssinnaður“ og vísaði lipurlega til sameigin- legrar sögu þeirra flokka sem runnu saman við tilurð Samfylk- ingarinnar með því að vitna skemmtilega til „pabba hennar Öddu Báru“ Sigfúsar Sigurhjart- arsonar, sem fór með Héðni úr Alþýðuflokknum til samstarfs við kommana. Og almennt virð- ist manni sem honum hafi tekist að gefa fólki þá tilfinningu að það sé í flokki með merka arf- leifð, þrátt fyrir ungan aldur. Sem er vel af sér vikið. En hann minntist ekkert á umhverfismál. Mikilvægasti málaflokkurinn Hann minntist ekki einu orði á mikilvægasta málaflokk heimsins: umgengnina við nátt- úruna og auðlindirnar, mála- flokkinn sem ræður úrslitum um það hver framtíð mannkyns verður og raunar alls lífs á jörð- inni. Þögnin um þennan mála- flokk er þeim mun furðulegri í ljósi þess að eitt sinn var Össur Skarphéðinsson röskur og áhugasamur umhverfisráð- herra. Segja má að tvisvar hafi hann vikið óbeinlínis að umhverfis- málum: í fyrra skiptið þegar hann segir að verkamenn við Kárahnjúka séu „að breyta jök- ulvötnum í beinhörð verðmæti fyrir okkur Íslendinga“ og í seinna skiptið þegar hann er að deila á frammistöðu Framsókn- armanna í velferðarmálum og segir: „Það er skrýtinn flokkur sem tekur bakföll til að vernda rjúpuna en ræðst að kjörum þeirra sem minnst hafa í mann- heimum“, rétt eins og kjör fá- tæks fólks og verndun rjúpunn- ar séu andstæður, eða þessi tvö aðskildu mál tengist yfirleitt á nokkurn máta. Sjálfur reyndi Össur á sínum tíma að vernda rjúpuna í ráðherratíð sinni og væri nær að styðja Siv Friðleifs- dóttur í baráttu hennar við byssueigendafélagið og önnur sterk pólitísk öfl – hvers eiga þær fáu rjúpur sem enn tóra í ís- lenskri náttúru „ylji húsa fjær“ að gjalda að verða fyrir slíku skensi? Nema hann sé að skerpa and- stæðurnar á vinstri væng ís- lenskra stjórnmála, skilja sig enn frekar frá Vinstri grænum? Það er vissulega sjónarmið, eins og góður maður myndi orða það: því fólki sem aðhyllist kratisma í þjóðfélagsmálum – blandað hagkerfi að norrænum hætti – og hefur áhuga á umhverfismál- um er þar með vísað til Vinstri grænna sem er að vísu prýðileg- ur flokkur um margt með marga snjalla talsmenn en er andvígari markaðshyggju en almennt ger- ist og því fjær miðju viðtekinna viðhorfa en til dæmis Samfylk- ingin, auk þess sem meira gætir þjóðernishyggju í stefnu Vinstri grænna en góðu hófi gegnir. Hefur Samfylkingin stefnu í umhverfismálum? Eigum við að trúa því að Össur og félagar að- hyllist þá kennisetningu Davíðs Oddssonar að ekki sé til neitt sem heiti gróðurhúsaáhrif? Áhugi á umhverfismálum virðist að minnsta kosti vera talinn sér- viska hjá formanni Samfylking- arinnar – sem er miður, því að umhverfismálin eiga heima nær miðju stjórnmálanna. Meira að segja Tony Blair, hinn kunni taglhnýtingur öfgasinnaðra bandarískra trúfífla, leggur áherslu á umhverfismál og hef- ur mun viðfelldnari stefnu í þeim en félagar hans í banda- ríska repúblikanaflokknum. Hið sama er að segja um þýsku kratana og raunar um alla Evr- ópu. Einungis hér á landi óttast leiðtogi jafnaðarmanna að tengj- ast slíkum „öfgahópum“ sem umhverfisverndarsinnar eru. Við munum hvernig það end- aði þegar íslenskir jafnaðar- menn reyndu að skilja sig sem mest frá öðrum vinstri mönnum og reyndu að gera sig gjald- genga sem enn trúverðugri hægri menn en sjálfstæðismenn væru: slíkt endar í Alþýðu- flokknum.  Tröllablokk- ir á Lundar- túninu Jón Ármann Héðinsson skrifar: Græðgin ríður ekki við einteym-ing. Komin er fram hugmynd um átta tröllablokkir á Lundartún- inu í Kópavogi. Þetta tún er því sem næst miðsvæðis á öllu Reykjavíkursvæðinu. Vegna þeirra, sem tekið hafa búsetu í Kópavogi umhverfis túnið, hafa „gervirétthafar“ blekkt meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs til þess að heimila byggingu á átta 55 metra háum tröllablokkum. Þetta er sagt nauðsynlegt vegna „verð- mætis“ túnsins. En hverjir sköp- uðu verðmætið? Ekki voru það svokallaðir „eigendur“, sem stað- festa með herfilegum sóðaskap á landinu virðingarleysi fyrir hollu og fögru umhverfi. Hugmynd „rétthafa“ um byggingar er 481 íbúð og gróði þeirra gæti nálgast 600-700 milljónir. Þessu fagnar bæjarstjórinn ótæpilega. Skipulagsstjórinn í Kópavogi segir blokkirnar veita mikið og fagurt útsýni og í þeim verði því gott að búa. En þær taka útsýni frá tugum húsa í stórum hring bæði Kópavogsmegin og frá Reykjavík í Fossvogsdalnum. Verði af þessum tröllablokkum verðfalla eignir húsa á stóru svæði. Það finnst skipulagsstjóra Kópavogs og meirihluta bæjarstjórnar gott mál. Ég tel, að langflestir vilji fá byggð á túninu. En áður þarf að gefa vísbendingu um samkeppni. Vel má hugsa sér allt að 250-300 íbúðir og þá staðsetningu með- fram Nýbýlaveginum. Þarna er hreint kjörið tækifæri fyrir snjalla húsagerðarmenn að reyna með sér og Kópavogsbúar kjósi um tillögurnar. Það yrði óheyrilegt slys og aldrei bætanlegt ef „tröllablokk- irnar“ kæmust upp. Höldum vöku okkar íbúar Kópavogs og mót- mælum allir sem einn. Það þarf fjöldi íbúa í Reykjavík einnig að gera.   Hefur Samfylk- ingin stefnu í umhverfismál- um? Eigum við að trúa því að Össur og félag- ar aðhyllist þá kennisetningu Davíðs Odds- sonar að ekki sé til neitt sem heiti gróður- húsaáhrif?  Það er því þungur róður fyrir samtök bindindis- manna að berj- ast gegn ær- andi áróðrinum sem kostnaður er af þeim sem græða ótæpi- lega á annarra ógæfu. Um daginnog veginn GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON  skrifar um ræðu Össurar Skarphéðinssonar á landsfundi Sam- fylkingarinnar. Umræðan HELGI SELJAN  formaður fjöl- miðlanefndar IOGT skrifar um áfengismál. Víti að varast Ræða Össurar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.