Fréttablaðið - 10.01.2004, Síða 21

Fréttablaðið - 10.01.2004, Síða 21
LAUGARDAGUR 10. janúar 2004 21 HERRAR Áður Nú Ullarjakkar 24.990 12.495 Leðurjakkar 37.490 22.494 Dúnúlpur 24.990 14.994 Vetrarjakkar 22.990 13.794 Peysur 06.190 3.714 Stakir jakkar 24.990 14.994 Skyrtur 03.690 2.214 Leðurbelti 03.790 2.274 DÖMUR Áður Nú Mokkakápur 27.990 16.795 Ullarkápur 22.490 12.245 Vaxjakkar 24.990 14.994 Fleecepeysur 06.190 3.714 Peysur 06.190 3.714 Loðskinn 07.490 4.494 Blússur 06.190 3.095 Stakir jakkar 16.790 5.037 40-70% afsláttur DRANGEY Smáralind og Laugavegi ÚTSALA - ÚTSALA • 30-50% afsl.á töskum • 50% afsl. í gjafavöruhorni • 15% afsl.af öðrum vörum en útsöluvörum. Gríptu tækifærið! fjölmiðlamarkaði og það hvort nauðsynlegt væri að setja lög gegn henni. Sú nefnd var skipuð af Sjálfstæðisráðherra og hún komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri þörf á neinum lögum: Sjálfstæðis- menn mættu alveg halda áfram að eignast fjölmiðla. Í nefndinni sat meðal annarra Tómas Ingi Olrich, sá hinn sami og hætti sem mennta- málaráðherra nú um áramótin eft- ir að hafa skipað nýja nefnd sem skoða á hvort ekki þurfi að setja lög gegn samþjöppun á fjölmiðla- markaði. Á sama tíma blés Davíð í herlúður sinn: Nú skyldi tekið á hverskyns hringamyndun, og Mogginn lék undir á slagverk. „Sérstakt fagnaðarefni“ var ákvörðun foringjans kölluð í leið- ara blaðsins um leið og ritstjórinn sýndi sitt landsfræga lítillæti og notaði tækifærið til að setja ofan í við forseta Íslands fyrir ummæli í nýársávarpi þar sem forsetinn varaði við því að fyrirtækjum yrðu settar of þröngar skorður hér heima; þá flyttu þau bara úr landi. Stuttu síðar birtist svo við- skiptaráðherra skjálfandi skelkuð á svip, líkt og hún væri nýstigin af teppinu hjá forsætisráðherra, og tilkynnti að líka hún ætlaði skipa nefnd. Skoða þyrfti hvort laga væri þörf gegn samþjöppun í viðskiptalífinu. Og enn og aftur tók Mogginn undir í þeim herskáa tóni sem einkennir leiðara blaðsins þessa dagana: „Íslend- ingar hafa eng- an áhuga á því að tvær til þrjár við- s k i p t a - s a m - steyp- u r l e g g i u n d i r sig all- a r h e l z t u eignir í l a n d i n u “ . Þarna var rit- stjórinn ekki al- veg nógu ná- kvæmur. Hann átti auðvitað að segja: „Íslendingar hafa engan áhuga á því að tvær til þrjár viðskiptasamsteypur, sem hvorki tilheyra Sjálfstæðisflokki né Framsókn, leggi undir sig allar helztu eignir í l a n d - i n u “ . Flestir eru blindir á eigin stöðu og sumir fljótir að gleyma hvar þeir sátu í fjörutíu ár. Um allan þann pirring og alla þá heift sem nú rennur af tungum og tölvuskjám gömlu herranna má nota þrjú orð: Fjörbrot deyj- andi valds. Offorsætisráðherra Enn á ný rugla Sjálfstæðis- menn saman eigin hag við þjóðar- hag. Og allt hljómar það mjög ósannfærandi. Málflutningur þeirra er ekki marktækur. Hræsnin ljómar af hverju orði. Þegar Mogginn vill eignast DV og stofna sjónvarpsstöð er engin hætta á ferðum, en þegar „and- stæðingur“ hans vill gera hið sama ber að setja lög gegn því. Eftir að hafa misnotað málgagn sitt í hálfa öld fyllast Sjálfstæðis- menn heilagri hneykslun yfir því að einhver annar geti hugsanlega gert það sama. Engu er líkara en að Sjálfstæð- ismenn séu komnir í stríð við hálfa þjóðina. Nú skal verja síðustu víg- in: Moggann, Efstaleitið og Gljúfrastein. Og umkringja síðan óvinavirkin, í Skaftahlíð og á Lynghálsi. Allt er það víl þó ættað úr kollinum á einum manni: Offor- sætisráðherra. Allt er þetta liður í lokabardaga Jónastríðsins sem hann hefur linnulaust háð síðustu tíu árin eða svo. Jónalaust Ísland Davíð hefur nefnilega lengi ver- ið með Jóna á heilanum. Fyrst var það Jón Baldvin: Mað- urinn sem gerði Davíð að forsætis- ráðherra og bjó það til handa honum sem best hann hefur gert (EES- samninginn). Frá því að Davíð sveik Jón Baldvin fyrir kvótakurfana í Framsókn hefur Jóninn sá og minn- ingin um störf hans truflað forsæt- isráðherrann. Enginn þolir lífgjaf- ara sinn, og Davíð tókst að lokum að lokka Jón Baldvin út af þingi og úr landi með feitu brauði í Ameríku. Þá kom Jón Ólafsson. Stór- athafnamaður sem ekki var í flokknum. Hinn svarti sonur einstak- lingsframtaks- ins sem aldrei lét a ð stjórn en náði samt að eignast sjón- varpsstöð. Óþolandi. En hann gróf sína eigin gröf; borgaði aldrei meira en vinnukonuskatt og með aðstoð skattrannsóknarstjóra var því frem- ur auðvelt að flæma Jón II af landi brott. En þá var kominn Jón hinn þriðji. Jón Ásgeir. Og þriðji hluti Jóna- stríðsins var hafinn. Og því mun ekki ljúka fyrr en Davíð hættir eða honum hefur tekist að flæma Jón Ásgeir úr landi eins og fyrri Jónana tvo. Á sex mánaða fresti hljómar herkvaðningin úr Stjórnarráðinu: „Okur á vínberjum! Þrjú hundruð milljónir! Götustrákar! Samsæri! Flop Shop! Þýfi! Baugstíðindi!“ Og úti um allan bæ, á stofnunum og miðlum flokksins, taka menn bláum höndum saman. Flokkur einstak- lingsfrelsisins snýst gjörvallur gegn frjálsasta einstaklingi landsins. Í bakgrunninum gelta svo gömlu grá- hærðu heildsalarnir upp úr lazyboy- stólunum sínum í Garðabæ og huldufólkið kinkar sínum tinandi kolli á bakvið stórisana í Vesturbæn- um. Vínberin eru ekki bara dýr, heldur líka súr Átökin um Ísland eru því í raun engin átök lengur. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur þegar tapað áhrifum sínum í viðskiptalífinu. „Átökin“ eru bara ramakvein. Fjörbrot deyjandi valds. Þetta snýst ekki um pólitík held- ur pirring, ekki um hugmyndir held- ur hefndarhug. Götustrákur er ekk- ert án óvinar. Og nú hefur hann dundað sér við það í heilt ár að búa hann til. Og kallar hann sínu eigin nafni í von um slag. Því slagur er hans líf og yndi. Eftir að Solla fór á námslán og Davíð tókst að vana stjórnarandstöðuhundana tvo fyrir litlar tvö hundruð þúsund krónur á hann sér enga pólitíska andstæðinga lengur. Kannski er það fremur þess vegna sem hann er með Baug á heil- anum. Í útvarpsþætti á Sögu beinlín- is gargaði Davíð á andstöðu. Jón Ás- geir er greinilega eini maðurinn sem getur bjargað forsætisráðherra frá þeim leiðindum sem landstjórn- in er orðin honum. Og nú hlakkar í kóngsa. Nú blæs hann til bardaga. Nú skal jafnað um Jóninn þriðja áður en völdin eru úti. Úrslitaorrust- an er framundan. „Lögin koma í vor“. Herförin gæti heitið: Jónalaust Ísland árið 2005. Djöflar og dánumenn Líkt og öðrum stríðum fylgja Jónastríðinu þeir ókostir að í því er aðeins um tvær afstöður að ræða, tvö lið. Annaðhvort ertu með Baugi og á móti Davíð eða öfugt. Friðelsk- andi mönnum er vandi á höndum. En þegar við höfum fengið að hugsa aðeins lengur en í fimm sek- úndur verður niðurstaðan sú: Þótt ást okkar á auðhringum sé lítil er andúð okkar á valdníðslunni meiri. „Flokkur allra landsmanna“ getur ekki stólað á okkur öll í baráttu sinni fyrir algerum yfirráðum yfir öllum fjölmiðlum landsins. Kæru Sjálfstæðismenn. Slakið nú aðeins á. Gerið ekki prívatpirr- ing að landslögum. Davíð er alveg að fara að hætta. Um leið og hann gerir það breytast óvinir hans úr djöflum í dánumenn. ■ DAVÍÐ ODDSSON „Jón Ásgeir er greinilega eini maðurinn sem getur bjargað forsætisráðherra frá þeim leiðindum sem landstjórnin er orðin honum. Og nú hlakkar í kóngsa. Nú blæs hann til bardaga. Nú skal jafnað um Jóninn þriðja áður en völdin eru úti. Úrslitaorrustan er framundan. „Lögin koma í vor“. Herförin gæti heitið: Jónalaust Ísland árið 2005.“ Engu er líkara en að Sjálfstæðismenn séu komnir í stríð við hálfa þjóðina. Nú skal verja síð- ustu vígin: Moggann, Efsta- leitið og Gljúfrastein. Og umkringja síðan óvinavirk- in, í Skaftahlíð og á Lyng- hálsi. Allt er það víl þó ætt- að úr kollinum á einum manni: Offorsætisráðherra. Allt er þetta liður í lokabar- daga Jónastríðsins sem hann hefur linnulaust háð síðustu tíu árin eða svo. ,, FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.