Fréttablaðið - 16.01.2004, Qupperneq 8
8 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Öruggur staður
„Við hérna á Akureyri höfum
álitið okkur nokkuð örugg í
þessum efnum, með þennan
mikla kvóta...“.
Oktavía Jóhannesdóttir, oddviti Samfylkingar á
Akureyri, í Morgunblaðinu 15. janúar um söluna
á Útgerðarfélagi Akureyringa til feðga á Rifi.
Guggan gul
„Vestfirðingum fannst það sárt
þegar útgerð Guðbjargar fluttist
til Akureyrar. Ég man ekki eftir
neinum samúðartóni þaðan þá.“
Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður í Frétta-
blaðinu 15. janúar um sama mál.
Handrukkaður?
„Ég hef enga skýringu en hallast
helst að því að þeir hafi farið
mannavillt...“.
Íbúi við Kársnesbraut í samtali við DV 15. janú-
ar. Hann kærði „innrás“ nokkurra manna,
vopnuðum bareflum og sveðju, á heimili sitt en
DV segir að hann hafi logið til um árásina.
Orðrétt
Töluvert tjón á Skagaströnd:
Þak féll niður
vegna snjóþunga
SKAGASTRÖND Hluti þaks á véla-
verkstæði Karls Berndsen á
Skagaströnd hrundi undan snjó-
þunga aðfaranótt fimmtudags.
„Húsið er nánast ónýtt sýnist
mér við fyrstu sýn,“ segir Gísli
Snorrason, verkstjóri á vélaverk-
stæðinu, en segir erfitt að gera
sér grein fyrir því í veðrinu sem
hefur verið á Skagaströnd. „Þetta
eru tvö hús, 300 fermetrar hvort.
Þakið á öðru húsinu féll bara nið-
ur. Snjórinn er svo þungur og mik-
ið rok búið að vera. Tjónið er
verulegt en þrír bílar eru í húsinu
auk tækja og búnaðar og það
skemmdist allt töluvert.’’
Fimm bátar hafa sokkið í höfn-
inni við Skagaströnd síðustu daga.
Snjór hefur hlaðist upp og þyngt
bátana auk þess sem sjór komst
um borð í þá. ■
Maður lést þegar
snjóflóð féll á bæ
Ofviðrið sem gekk yfir norðanvert landið kostaði einn mann lífið þegar snjó-
flóð féll á bæinn Bakka í innanverðum Ólafsfirði. Fjölmennt björgunarlið fór
á vettvang þegar nágrannar náðu ekki lengur símasambandi við ábúandann.
SNJÓFLÓÐ Tæplega fimmtugur
maður, Kári Ástvaldsson, lést
þegar snjóflóð féll á bæinn Bakka
í innanverðum Ólafsfirði. Snjó-
flóðið kom úr gili fyrir ofan bæ-
inn og hreif íbúðarhúsið með sér.
Veggir hússins féllu og þakið lá í
heilu lagi um tíu til fimmtán metr-
um fyrir neðan bæjarstæðið. Kári
var einn á bænum þegar flóðið
féll. Hann var fæddur árið 1956,
ókvæntur og barnslaus.
Flóðið rann um hundrað metra
niður fyrir húsið og alveg að fjár-
húsunum, sem í voru um 300 kind-
ur. Snjóflóðið var mjög stórt og
rann eina 700–800 metra niður
fjallið áður en það stöðvaðist fyr-
ir neðan íbúðarhúsið á Bakka.
Flóðið var allt að því 350 metra
breitt og nokkra metra á þykkt.
Íbúar á svæðinu höfðu varann
á vegna viðvarandi snjóflóða-
hættu og fylgdust með nágrönn-
um sínum. Þegar ekki náðist í
Kára voru lögreglumaður og tveir
björgunarsveitarmenn frá Ólafs-
firði sendir á staðinn til að huga
að aðstæðum. Þeir sáu að snjóflóð
hafði fallið og voru björgunar-
sveitarmenn frá Ólafsfirði, Akur-
eyri, Árskógaströnd, Dalvík og
Skagafirði kallaðar út.
Björgunarsveitarmenn lögðu
af stað upp úr miðnætti aðfara-
nótt fimmtudags en aftakaveður
var á leiðinni og menn ekki komn-
ir á staðinn fyrr en um hálf fimm
um morguninn. Annar hópur
björgunarsveitarmanna beið við
bóndabæ utar í dalnum í öryggis-
skyni, ef annað snjóflóð skyldi
falla þar sem björgunarsveitar-
menn voru að störfum og til að
leysa björgunarmenn af þegar liði
á morguninn. Um 30 mínútum eft-
ir að leit hófst fannst bóndinn á
bænum, látinn.
300 kindur voru í fjárhúsinu að
Bakka. Þak fjárhúsanna var farið
að síga undan snjóþunga og var
kindunum því komið í öruggt
skjól annars staðar.
Jón Konráðsson stjórnaði að-
gerðum. Hann segir að snjóflóðið
hafi líklega fallið rétt eftir klukk-
an fjögur á þriðjudag. Þá var mik-
ill vindur og kuldi. Talið er að
bóndinn hafi látist samstundis.
eb@frettabladid.is
Forsætisráðherra:
Snjóflóð kannað
ÚTSALA - ÚTSALA
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030
Verðdæmi:
Áður kr. Nú kr.
Kápur 19.800 9.900
Skyrtur 15.900 1.990
Langermabolir 13.900 1.000
Allt nýjar vörur
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N
Tryggvagata 8, sími: 552-3870. Fax: 562-3820.
hefjast 19. janúar.
Innritun í síma
552 3870
• Námskeið fyrir byrjendur
og lengra komna.
• Einkatímar - Taltímar.
• Námskeið fyrir börn
BÁTAR SUKKU
Fimm bátar sukku við Skagaströnd þegar
sjór gekk um borð og snjó kyngdi niður.
SNJÓFLÓÐ Forsætisráðherra hef-
ur ákveðið að skipa sérstaka
nefnd til að rannsaka orsakir og
afleiðingar snjóflóðsins, er féll
á bæinn Bakka í Ólafsfirði.
Formaður nefndarinnar er
Björn Friðfinnsson ráðuneytis-
stjóri, en ásamt honum eiga
sæti í nefndinni Arnar Guð-
mundsson, skólastjóri Lög-
regluskóla ríkisins, tilnefndur
af dóms- og kirkjumálaráð-
herra, og Smári Þorvaldsson,
deildarstjóri í umhverfisráðu-
neytinu, tilnefndur af umhverf-
isráðherra. ■
BJÖRGUNARSVEITARMENN Á VETTVANGI
Aftakaveður var á slysstað og tók það björgunarsveitarmenn hátt í fimm tíma að komast
á staðinn.
M
YN
D
/Ó
LA
FU
R
Ó
LA
FS
SO
N