Fréttablaðið - 16.01.2004, Side 32
IDOL Í kvöld færir þjóðin sér gjöf
þegar hún kýs sér nýja popp-
stjörnu. Þetta verða líklega súr-
sæt sögulok þar sem lítið hefur
verið rætt um annað manna á
milli síðustu mánuðina. Eftir
næstu helgi neyðist landinn því að
snúa sér aftur að veðrinu þegar
kemur að því að skálda upp
áhugavert umræðuefni.
„Þetta er svipað eins og þegar
maður hætti í framhaldsskóla og
verður örugglega svolítið skrýtið
en maður bíður bara spenntur eft-
ir næstu seríu,“ segir Jói, annar
kynna Idol, um það að þátturinn
sé að enda.
Það ætti
ekki að
koma nein-
um á óvart
að Stöð 2
er búin að
ákveða að
gera aðra
seríu en
Jói segir
enn eftir að ganga frá samningum
við sig og Simma vegna hennar og
veit því ekki hvort þeir verða
með.
Þeirra yrði þó eflaust sárt
saknað. Meira að segja Bubbi
myndi fella tár í laumi, enda við-
urkennir Jói að togstreitan þeirra
á milli eigi sér aðeins stoð í sýnd-
arveruleikanum. „Þessu skot eru
öll í mesta bróðerni. Maður fær
þó oft högg í öxlina frá honum,
óundirbúið, enda er hann mikill
boxari. Samt allt í góðu,“ segir Jói
og hlær. Stoppar svo og bendir á
að Bubbi hafi reynst ótrúlega
sannspár hingað til hvað varðar
úrslit, spáði bæði Kalla Bjarna og
Önnu Katrínu í úrslit. „Hann hef-
ur þó ekki verið mikill Jóns mað-
ur, en gefur honum þó sanngjörn
ummæli. Hann fer þetta alveg á
eðlishvötinni og leyfir sér að hríf-
ast í augnablikinu. Stundum
finnst fólki hann ósam-
kvæmur sjálfum sér.
Mér finnst það ekki.
Hann hefur yfirleitt
mjög mikið til síns
máls.“
Umtalið í kringum þáttinn er
gífurlegt og auðvitað eru nokkr-
ar samsæriskenningar komnar á
kreik. „Það kom svolítið flatt
upp á okkur en við höfum verið
spurð hvort þetta sé ekki bara
allt ákveðið fyrir fram. Sumir
kaupa það ekki að þetta sé kosn-
ing þjóðarinnar. Það er algjör fá-
sinna, þetta fer allt í gegnum
kerfi Símans og við fáum tölurn-
ar um leið og þær berast. Þetta
er algjörlega eins heiðarlegt og
það getur verið,“ fullyrðir Jói og
segist að lokum vonast eftir því
að eldri áhorfsmet á Stöð 2 falli í
kvöld.
Sigurvegari Idol fær tækifæri
til þess að hljóðrita breiðskífu
með Þorvaldi Bjarna dómara.
Ekki er búið að ákveða hvort hún
muni innihalda tökulög eða
hversu miklu sigurvegarinn fái að
ráða á plötunni. ■
32 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Kalli Bjarni, Anna
Katrín eða Jón?
Pondus eftir Frode Øverli
Fréttiraf fólki
MÍNUS
Segja að auðvelt sé að fá ríku stúlkurnar á
Vegamótum til samræðis við sig inn á
klósetti fyrir eina línu af kókaíni.
Kynlíf fyrir
kókaín á
Vegamótum
TÓNLIST Rokksveitin Mínus, sem
fékk íslensku tónlistarverðlaunin
fyrir plötu ársins á miðvikudag,
fetar ekki í sömu spor og aðrar ís-
lenskar sveitir þegar kemur að
því að tala um land og þjóð í er-
lendum blöðum. Þeir eru lítið fyr-
ir það að fegra heimkynni sín.
Tala ekki um álfa, né hversu mikil
áhrif íslenskt landslag hafi á tón-
listarsköpun þeirra.
Í opnuviðtali við breska rokk-
tímaritið Bang telja Mínusmenn
upp 15 uppáhaldsstaðina sína í
Reykjavík.
Þar tala þeir frjálslega um
kynsvall í Öskjuhlíð. Einnig
greina þeir frá því að á Vegamót-
um hangi allar ríku íslensku
„posh“-stelpurnar og segja að
auðvelt sé að fá þær til samræðis
við sig inni á klósetti fyrir eina
línu af kókaíni.
Fyrsta smáskífa Mínus á er-
lendri grundu, Angel In Disguise,
kemur út í Evrópu 19. janúar. Þar
verður einnig að finna útgáfu
piltanna á laginu Nice Boys eftir
Guns ‘n’ Roses og órafmagnaða
útgáfu af laginu Insomniac. ■
Leikarinn Wesley Snipes á aðhafa barið leikkonuna Halle
Berry það illa að
hún missti mest-
an hluta heyrnar
sinnar á hægra
eyra. Þessu hélt
fyrrum kærasti
hennar,
Christopher
Williams, fram í
blaðaviðtali á
dögunum. Hann
ákvað að greina frá þessu þar
sem hann var orðinn þreyttur á
því að fólk héldi að hann hefði
barið Berry svona illa. Christoph-
er gaf það líka í skyn að Halle
Berry væri erfið í samskiptum
og að hún glímdi við alvarlega
persónuleikabresti.
Framleiðendur Friends erumjög varkárir og hafa gert
miklar ráðstaf-
anir til þess að
tryggja að loka-
þáttur þáttarins
komi áhorfend-
um á óvart.
Búið er að
banna alla
áhorfendur að
lokaþættinum,
til þess að
tryggja að fólk kjafti ekki frá
sögulokum. Leikarahópurinn á að
vera mjög sáttur við það hvernig
fer fyrir persónum sínum. Á
sama tíma finnst þeim erfitt að
kveðja seríuna.
Sjónvarpstökuvélar hafa veriðbannaðar í réttarsalnum þar
sem Michael Jackson mætir í
dag til þess að svara fyrir ásak-
anir um kynferðislegt ofbeldi í
garð 13 ára pilts. Þetta er mikill
léttir fyrir popparann en mikið
áfall fyrir sjónvarpsstöðvar
sem bjuggust við gríðarlegu
áhorfi.
Jack White, karlleggur TheWhite Stripes, þarf að mæta
fyrir framan dómara 9. mars
næstkomandi til þess að svara
fyrir ásakanir um líkamsárás.
White lenti í slagsmálum við
söngvara sveitarinnar Von
Bondies og gaf honum allsvaka-
legt glóðarauga. White heldur
fram sakleysi sínu og segir að
um sjálfsvörn hafi verið að
ræða.
Rokksveitin Pixies hefur veriðbókuð á tónleikahátíðina
Coachella sem haldin er árlega í
Bandaríkjunum. Þar verður
sveitin aðalnúmerið ásamt Radio-
head og Kraftwerk. Hátíðin er
haldin í byrjun maí og því lítur
allt út fyrir að þetta verði fyrstu
tónleikar Pixies í 11 ár. Mikið
hefur verið skrifað um endur-
komu sveitarinnar og er hún
sögð vera að vinna að nýrri
breiðskífu.
Sjónvarp
IDOL
■ Í kvöld skýrist það hver vinnur Idol.
Verður það Kalli Bjarni,
Anna Katrín eða Jón?
THE SMITHS
„And if a double-decker bus
crashes into us
to die by your side
is such a heavenly way to die
and if a ten ton truck
kills the both of us
to die by your side
well the pleasure, the privilege is mine“
- Þessa undarlegu ástarjátningu Morrissey var að finna í
hinu frábæra lagi There Is a Light that Never Goes Out
með The Smiths. Tekið af plötunni The Queen Is Dead
frá árinu 1986.
Popptextinn
Ja, hérna. Seðill
fullur af lúðalið-
um! York City!
Hvað vitum við
eiginlega um
York City?
Liðið var
stofnað árið
1922, vann
einu sinni
Southport
9-1!
Unnu
Southport
9 - 1?
Já, 2. febrúar
1957! Arthur
Bottom Puttet
skoraði fimm
mörk! Eitt úr
vítaspyrnu!
Arthur
Bottom?
Árið 1957?
Ja, en maður
veit aldrei með
York, sko. Þeir
töpuðu 12-0 á
móti Chester, 1.
febrúar, ‘36!
Ég ætla að segja
þér svolítið....
ÞÚ ERT VEIK-
UR MAÐUR!
MJÖG VEIKUR
MAÐUR!
Hey, Swansea er
hérna líka... Mér
líkar vel við þá...
Þeir töpuðu 8-0
fyrir Liverpool,
9. janúar árið
1990!
Alveg
satt!