Fréttablaðið - 24.01.2004, Side 2
DÆMDUR FYRIR MARGVÍSLEG
BROT Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær rúmlega þrítugan
mann til níu mánaða óskilorðs-
bundinnar fangelsisvistar fyrir
innbrot, þjófnað og fíkniefnabrot
á síðasta ári. Ekki var um mikil
verðmæti að ræða en maðurinn á
að baki langan sakaferil. Frá
átján ára aldri hefur maðurinn
hlotið níu dóma fyrir hegningar-
lagabrot.
2 24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
„Ég kem ekki nálægt þessu en
hvað heldur þú?“
Kristinn Friðriksson er þjálfari Tindastóls í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Félagið fékk á sig sekt
fyrir að borga leikmönnum sínum hærri laun en
leyfilegt er.
Spurningdagsins
Kristinn, klikkaði samlagningin?
■ Dómsmál
Ólöglegar uppsagnir
segja háskólamenn
Bandalag háskólamanna vill að stjórnendur Landspítala dragi tilkynn-
ingar um fyrirhugaðar uppsagnir og aðrar aðgerðir skriflega til baka.
HEILBRIGÐISMÁL Forsvarsmenn
Bandalags háskólamanna og að-
ildarfélaga hafa tilkynnt fulltrú-
um Landspítala-háskólasjúkra-
húss að það sé „ótímabært og
ólögmætt“ að grípa til aðgerða á
borð við fyrirhugaðar hópupp-
sagnir áður en ljóst sé hvort LSH
geti gripið til annarra og vægari
aðgerða eftir að sjónarmið og til-
lögur félaganna hafi komist til
skila. Jafnframt er þess krafist
að LSH dragi skriflega til baka
einstaklingsbundnar tilkynning-
ar um áformaðar uppsagnir eða
aðrar aðgerðir gagnvart starfs-
mönnum, áður en lengra sé hald-
ið. Fulltrúar BHM tilkynntu
þetta á samráðsfundi með full-
trúum LSH í gær.
Í ahugasemdum BHM kemur
fram að aðildarfélögin telja það
ekki samrýmast lögunum að
áður en félagslegu samráði sé
lokið sé einstaklingum kynnt
munnlega og með bréfum að
fyrirhugað sé að grípa til tiltek-
inna aðgerða gagnvart þeim. Við-
urkennt sé að afleiðingar slíkrar
tilkynningar gagnvart einstök-
um starfsmönnum geti ekki að-
eins verið sálrænar og félagsleg-
ar, heldur einnig þær að einstak-
lingar telji sig knúna til þess að
segja sjálfir upp störfum.
Í greinargerð sem fulltrúar
BHM afhentu á samráðsfundi
með LSH í gær segir að hlutaðeig-
andi aðildarfélög BHM hafi ekki
fengið upplýsingar um rekstur
LSH sem ekki séu aðgengilegar í
fjárlögum. LSH sé skylt að láta
vegna samráðsins í té „allar upp-
lýsingar sem máli skipta um
fyrirhugaðar uppsagnir“.
Með tilliti til þess muni hlut-
aðeigandi aðildarfélög BHM
kveða sér til aðstoðar sérfræð-
inga KPMG-ráðgjafar til þessa
verkefnis á sinn kostnað, meðan
á samráðinu stendur. Hafi fyrir-
tækið þegar tekið þetta að sér og
ætti að geta lokið því á fáum dög-
um ef tiltækar upplýsingar fáist.
Muni tilkvaddir sérfræðingar
KPMG-ráðgjafar í samráði við
BHM og fulltrúa LSH í samráðs-
ferlinu aðstoða aðildarfélög
BHM við að gera sameiginlegar
tillögur.
Erna Einarsdóttir, sviðsstjóri
starfsmannamála á Landspítala-
háskólasjúkrahúsi, sagði að bréfi
BHM yrði svarað um helgina.
Þangað til gæti hún ekki tjáð
sig um málið að öðru leyti en því
að staðan hefði ekkert breyst.
jss@frettabladid.is
Ráðherra tekur jákvætt í byggingu hjúkrunarheimilis í Vesturbænum:
Kostar milljarð tilbúið
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráðherra
hefur tekið jákvætt í hugmynd
borgaryfirvalda og bæjaryfirvalda
um að reisa 90 rýma hjúkrunar-
heimili á Lýsislóðinni við Eiðs-
granda.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
og Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, áttu fund
með Jóni Kristjánssyni heilbrigðis-
ráðherra í síðustu viku þar sem þeir
kynntu honum hugmyndina. Jón-
mundur segir að allir þeir sem kom-
ið hafi að málinu séu sammála um
að hjúkrunarheimili á Lýsislóðinni
sé mjög áhugaverður kostur. Brýn
þörf sé fyrir hjúkrunarrými og nú
gefist tækifæri til að bæta úr því.
Hann segist binda vonir við það
að samkomulag náist við ríkið á
grundvelli viljayfirlýsingar um
málið frá árinu 2002. Áætlaður
kostnaður við byggingu heimilisins
sé um einn milljarður króna. Sam-
kvæmt viljayfirlýsingunni myndi
ríkið greiða 70% af stofnkostnaðin-
um og sveitarfélögin 30%. Rekstur-
inn yrði síðan alfarið í höndum
ríkisins.
Ef allt gengur að óskum og sam-
komulag næst ættu framkvæmdir
að geta hafist í loks ársins eða byrj-
un þess næsta. Áætlaður byggingar-
tími er um 14 til 16 mánuðir.
Íslenskir aðalverktakar eiga lóð-
ina. Jónmundur segir forsvarsmenn
fyrirtækisins hafa tekið vel í hug-
myndina. ■
KANNABISPLANTA
Lögreglan fann 35 kannabisplöntur á
heimili prestsins auk poka með unnu
maríjúana.
Kaþólskur prestur:
Ræktaði
maríjúana
OHIO, AP Lögreglan í Ohio í Banda-
ríkjunum handtók kaþólskan
prest fyrir að rækta maríjúana á
heimili sínu.
Séra Richard A. Arko, sem er
fertugur, hefur verið ákærður
fyrir að rækta ólöglegar kanna-
bisplöntur. Lögreglan gerði hús-
leit í prestsbústaðnum og lagði
hald á 35 plöntur sem voru allt að
1,2 metrar á hæð. Í herberginu
sem plönturnar fundust í voru
einnig sérstök rafmagnsljós, loft-
hreinsikerfi og leiðbeiningabæk-
ur um ræktun maríjúana.
Félagi prestsins var einnig
handtekinn og ákærður fyrir að
dreifa efninu. Báðir mennirnir
hafa verið látnir lausir gegn
tryggingu en þeir eiga yfir höfði
sér allt að eins árs fangelsi verði
þeir fundnir sekir. ■
Í BAGDAD
Tvær íraskar stúlkur horfa út um brotinn
glugga á húsi við hliðina á höfuðstöðvum
bandaríska hernámsliðsins í Bagdad.
Bandarísk skoðanakönnun:
Meirihluti
styður stríðið
BANDARÍKIN Mikill meirihluti
Bandaríkjamanna er enn á þeirri
skoðun að það hafi verið rétt
ákvörðun að fara í stríð gegn Írak,
ef marka má niðurstöður nýrrar
skoðanakönnunar. Ánægja lands-
manna með framgang mála í Írak
hefur aukist á undanförnum mán-
uðum.
Um tveir þriðju aðspurðra álíta
að Bandaríkin hafi gert rétt í því
að gera innrás í Írak. 89% kjós-
enda repúblikana eru á þessari
skoðun en 42% kjósenda demó-
krata.
Yfir sjötíu prósent aðspurðra
telja að hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna í Írak gangi vel eða
mjög vel. Aðeins 24% þjóðarinnar
eru ósátt við ástand mála við
Persaflóa en í október voru það
36%. ■
Stakk tvo menn:
Fékk átta
mánaða
dóm
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær rúmlega tví-
tugan mann til átta mánaða skil-
orðsbundinnar fangelsisvistar
fyrir lífshættulegar líkamsárásir
á tvo menn í Austurstræti í mars
árið 2002.
Annan mannanna stakk hann
þrisvar en hinn manninn tvisvar.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
stungið mennina en kvaðst hafa
gert það í sjálfsvörn. Dómnum
þótti hins vegar ljóst að ákærði
hefði verið upphafsmaður átak-
anna. ■
Forstjóri Öryggismið-
stöðvarinnar:
Hætti að
eigin ósk
STARFSLOK Bergsteinn R. Ísleifs-
son, framkvæmdastjóri Öryggis-
miðstöðvar Íslands, hefur að eigin
ósk látið af störfum hjá fyrirtæk-
inu.
Bergsteinn var einn af stofn-
endum Öryggismiðstöðvar Ís-
lands árið 1995 og framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins frá upphafi.
Hann lagði mikið af mörkum við
uppbyggingu Öryggismiðstöðvar-
innar og var frumkvöðull varð-
andi stefnumótun og tæknileg
málefni fyrirtækisins. ■
Straumur hagnast:
Græddi fjóra
milljarða
VIÐSKIPTI Fjárfestingarbankinn
Straumur hagnaðist um 3,8 millj-
arða króna eftir skatta á árinu
2003. Arðsemi eigin fjár var 39%
samanborið við 10,9% árið áður.
„Árið 2003 einkenndist af mikl-
um breytingum á rekstri og um-
hverfi Straums Fjárfestingar-
banka. Félagið sótti um starfs-
leyfi sem fjárfestingarbanki og
stækkaði með yfirtöku á Brú fjár-
festingum og Framtaki fjárfest-
ingarbanka. Fjárhagsleg staða
Straums er nú sterkari en nokkru
sinni fyrr, sem gefur bankanum
mikil tækifæri til enn frekari
vaxtar,“ segir Þórður Már Jóhann-
esson, framkvæmdastjóri félags-
ins, í fréttatilkynningu. ■
Eldur í brúðkaupsveislu:
Tugir brúðkaupsgesta brunnu inni
INDLAND, AP Að minnsta kosti 45
brúðkaupsgestir létu lífið þegar eld-
ur kom upp í veisluskála á sunnan-
verðu Indlandi. Á meðal þeirra sem
létust voru brúðguminn og sex ung
börn. Brúðurin og um sextíu brúð-
kaupsgestir voru flutt á sjúkrahús
vegna brunasára, reykeitrunar og
annarra áverka.
Talið er að skammhlaup hafi
valdið því að eldur kviknaði í strá-
þaki veisluskálans. Þakið féll yfir
brúðkaupsgestina, sem ruddust nið-
ur þröngan stiga. Fjöldi manna
tróðst undir en aðrir brenndust eða
köfnuðu af völdum reyksins. Brúð-
urin liggur á sjúkrahúsi með mjög
alvarlega áverka.
Yfirvöld í fylkinu Tamil Nadu
segja að fjölskyldur þeirra sem lét-
ust muni fá sem svarar tæpum
80.000 íslenskum krónum í bætur
og þeir sem slösuðust á bilinu 9.000
til 23.000 krónur.
Brúðkaupið fór fram í bænum
Srirangam í Tamil Nadu, í veislu-
skála sem reistur var við hliðina á
frægu hindúahofi. ■
BYGGINGARLÓÐIN
Fyrirhugað hjúkrunarheimili yrði á lóðinni
á horni Grandavegar og Eiðsgranda, þar
sem lýsistankarnir eru.
ÖRVÆNTING
Aðstandendur þeirra sem létust mættu í líkhúsið í Trichirappalli til að bera kennsl á líkin.
RÆTT UM NIÐURSKURÐ
Launþegasamtök og verkalýðsfélög ræddu fyrr í mánuðinum fyrirhugaðar uppsagnir við
trúnaðarmenn starfsmanna á Landspítala-háskólasjúkrahúsi.
Lokun bráðamóttöku
Mótmælt
hástöfum
HJARTASJÚKDÓMAR Landssamtök
hjartasjúklinga og stjórn Hjarta-
sjúkdómafélags íslenskra lækna
lýsa áhyggjum af því að stjórn
Landspítala-háskólasjúkrahúss hef-
ur ákveðið að loka bráðamótttöku
fyrir hjartasjúklinga um helgar.
„Ljóst er að þau áform sem kynnt
hafa verið eru stórt skref aftur á
bak og ógn við öryggi hjarta-
skjúklinga,“ segir í yfirlýsingu
Landssamtaka hjartasjúklinga.
Í yfirlýsingu Hjartasjúkdóma-
félagsins segir að dýrmætur tími
geti tapast vegna breytinganna og
slíkt geti leitt til lífshættulegra
fylgikvilla. ■