Fréttablaðið - 24.01.2004, Qupperneq 20
Á hverju ári koma fram nýjar ís-lenskar stjörnur sem lands-
menn vonast til að auki hróður
lands og þjóðar um allan heim.
Þessar stjörnur koma úr misjöfnum
áttum; íþróttum, kvikmyndum, tón-
list eða jafnvel viðskiptaheiminum,
og er hampað sem kóngafólki. Þótt
þær geti verið afar umdeildar
hreykja Íslendingar sér af þeim
hvar og hvenær sem tækifæri gefst
til.
Framundan eru Ólympíuleikar,
Óskarsverðlaun og hvers kyns upp-
ákomur og þá er ekki að spyrja –
stjörnurnar sem við bindum vonir
við verða þar fremstar í flokki og
munu ábyggilega láta að sér kveða.
Íslenskar íþróttastjörnur
Íslenskum íþróttastjörnum hef-
ur fjölgað til muna síðustu ár. Sjald-
an eða aldrei hafa jafn margir Ís-
lendingar leikið í atvinnumanna-
deildum í öðrum löndum; í hand-
bolta, fótbolta eða jafnvel körfu-
bolta.
Árangur Íslands á alþjóðamótum
í handbolta hefur verið góður síð-
ustu ár, þar á meðal fjórða sæti á
Evrópumóti og sjöunda sæti á
heimsmeistaramóti. Í ár mun virki-
lega reyna á landsliðið með þátttöku
á Evrópumótinu í Slóveníu og
Ólympíuleikunum í Aþenu í ágúst.
Ólafur Stefánsson, leikmaður
hjá Ciudad Real, er einn besti hand-
boltamaður heims og skærasta
stjarna landsliðsins. Það mun sann-
arlega reyna á hann á mótunum sem
framundan eru og nánast hægt að
gefa sér það að hann verði með
markahæstu mönnum og í kjölfarið
valinn í heimsúrvalið. Ólafur er
sannarlega vonarstjarna Íslands.
Ungir og efnilegir
Þótt kröfurnar til Ólafs séu mikl-
ar má búast við að
aðrir leikmenn
muni láta til sín
taka á stórmót-
unum tveimur.
Þar á meðal er Guðjón Valur Sig-
urðsson sem er á leið að verða einn
besti handknattleiksmaður lands-
ins. Fáir standast Guðjóni snúning-
inn þegar að hraðupphlaupum kem-
ur og hann er iðinn við að skora.
Guðjón Valur á eftir að verða með
bestu leikmönnum landsliðsins í ár
og væntanlega taka við stjörnuhlut-
verkinu af Ólafi.
Annar leikmaður sem á eftir að
láta ljós sitt skína á komandi mótum
er hinn ungi og bráðefnilegi leik-
stjórnandi Snorri Steinn Guðjóns-
son sem leikur með Grosswallstadt
í Þýskalandi.
Snorri Steinn, sem er uppalinn
Valsari, hefur sýnt það í síðustu
leikjum að hann er tilbúinn í alvöru
verkefni og á eftir að gegna stóru
hlutverki með landsliðinu.
Enginn eins og Eiður
Hafa verður í huga að hand-
bolti er ekki viðlíka vinsæl íþrótt
og fótbolti eða körfubolti í heim-
inum. Fyrir vikið munu hand-
boltastjörnunar ekki ná sömu
frægð og aðrar sem gera það gott
í öðrum greinum.
Eiður Smári Guðjohnsen er
frægasti íþróttamaður sem Ís-
land hefur alið af sér. Landsliðs-
fyrirliðinn hefur staðið sig vel í
stjörnuprýddu liði Chelsea.
Frægðarsól Eiðs Smára er hvergi
nærri farin að dala og ef eitthvað
er á hún eftir að aukast á kom-
andi árum, ekki síst ef Chelsea
nær að vinna einhverja titla.
Eiður Smári verður einnig í
eldlínunni þegar undankeppni
heimsmeistaramótsins hefst í
haust en hann gegnir lykil-
hlutverki í landsliðinu. Án
hans er landsliðið eins og bý-
fluga án broddsins.
Hermann Hreiðarsson
er annar leikmaður sem
kemur til með að láta að
sér kveða á árinu. Fáir
menn eru jafn harðir af
sér og Eyjapeyinn
sem lætur ekki
stærðarskurði á
höfði aftra sér frá
því að leika. Her-
mann hefur staðið
sig vel með
Charlton og má búast við að hann
eigi eftir að blómstra þegar líða
fer á mót enda Charlton komið
liða mest á óvart í ensku deild-
inni.
Einn í Ameríku
Jón Arnór Stefánsson, bróðir
Ólafs Stefánssonar handknatt-
leiksmanns, er ein af vonar-
stjörnum Íslands. Hann er annar
Íslendingurinn sem gerir samn-
ing við lið í bandarísku at-
vinnumannadeildinni
en þar leika aðeins
bestu körfuknatt-
l e i k s m e n n
heims.
Jón Arnór
hefur ekki
enn fengið
að spreyta
sig með
Dallas Ma-
vericks og
litlar líkur
á að svo
verði á
þ e s s u
keppnistímabili. Ef Jón Arnór
heldur hins vegar áfram að bæta
sig eins og undanfarin ár má bú-
ast við að hann fái að spreyta sig
á næsta tímabili sem hefst í októ-
ber.
Á barmi heimsfrægðar
Á hverju ári berast fréttir af
íslenskum hljómsveitum sem
hafa skrifað undir stóra samn-
inga í útlöndum og flestir telja
vera á barmi heimsfrægðar.
Fáum hefur þó tekist að
komast á toppinn að
Björk Guðmundsdótt-
ur undanskilinni.
Þeir sérfræðing-
ar sem Fréttablaðið
leitaði til sáu ekki
margar verðandi
stjörnur í kortun-
um. Svo virðist
vera að þær ís-
lensku sveitir
sem veki hvað
mesta athygli séu
jaðarsveitir á
borð við Sigur
Rós og Múm,
sem laða að-
eins að sér
takmark-
a ð a n
20 22. janúar 2004 LAUGARDAGUR
á gátt um
Nú er tækifærið til að láta sína villtustu bíladrauma rætast. Komdu og
reynsluaktu nýjum glæsilegum *Avensis. Veglegir vetrarpakkar að
verðmæti 125.000 krónur fylgja fyrstu 8 beinskiptu RAV4 sem seljast. Í
markaði jeppamannsins í Arctic Trucks verður frumsýndur nýr 38 tommu
*LandCruiser með sérstakri túrista breytingu. Skoðaðu *Yamaha
vélsleðana og *Yamaha vélhjólin og líka 38 tommu *Hilux bílana sem
eru á tilboðsverði. Lexus *RX300 og Lexus IS200 verða líka í öndvegi og hægt
verður að eignast þá á sérlega góðum kjörum. Í *Toyota Betri
Það verður allt opið upp á gátt hjá okkur á Nýbýlaveginum um helgina
Heimsfrægum Íslendingum fjölgar með hverju ári. Árið í ár verður að vonum viðburðaríkt og allar líkur á að
íslenskum stjörnum muni fjölga. En hverjir eru það sem eru líklegir til að slá í gegn úti í hinum stóra heimi?
Vonarstjörnur Íslands
*
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04