Fréttablaðið - 31.01.2004, Síða 6
6 31. janúar 2004 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 69.65 0.23%
Sterlingspund 126.09 -0.63%
Dönsk króna 11.6 -0.63%
Evra 86.39 -0.66%
Gengisvísitala krónu 119,50 0,25%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 496
Velta 8.371 milljónir
ICEX-15 2.403 0,60%
Mestu viðskiptin
Nýherji hf. 458.450
Landsbanki Íslands hf. 430.566
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 409.73
Mesta hækkun
Guðmundur Runólfsson hf. 8,45%
Hraðfrystihúsið Gunnvör hf. 5,47%
Nýherji hf. 3,41%
Mesta lækkun
Og fjarskipti hf. -0,92%
Straumur Fjárfestingarbanki hf -0,82%
Hlutabréfamarkaðurinn hf. -0,75%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.470,5 -0,4%
Nasdaq* 2.066,4 -0,1%
FTSE 4.390,7 -0,5%
DAX 4.058,6 -0,9%
NK50 1.380,9 -0,2%
S&P* 1.130,2 -0,3%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Hvað heitir útvarpsstjóri BBC semsagði af sér vegna aukinnar gagnrýni í
kjölfar skýrslu Huttons lávarðar?
2Lokalota kjaraviðræðna Starfsgreina-sambandsins nálgast. Hvað heitir for-
maður sambandsins?
3Hvaða heimsfrægi soul-söngvari varhandtekinn á miðvikudag vegna
heimilisofbeldis?
Svörin eru á bls. 46
RÉTTINDAMÁL „Vinna vélstjóranna um
borð í þessum skipum breytist ekki og
þær hæfniskröfur sem til þeirra eru
gerðar eru þær sömu fyrir og eftir
breytingu. Þetta var vitað þegar
Sturla Böðvarsson setti reglugerðina
sem öll ósköpin markast af. Allt sem
ég sagði þessum einstaka ráðherra þá
hefur ræst,“ segir Helgi Laxdal, for-
maður Vélstjórafélags Íslands, á
heimasíðu félags síns vegna þess að
útgerðarfélög fjögurra fiskiskipa
hafa óskað eftir því við Siglingastofn-
un að afl aðalvéla fjögurra skipa verði
fært niður. Helgi segir eina tilgang út-
gerðanna vera þann að lækka laun
vélstjóranna og slaka á réttindakröf-
um og þar með öryggi sjómanna.
Hann skellir skuldinni á samgöngu-
ráðherra.
„Að mínu mati er hér aðeins um
byrjunina að ræða því um leið og út-
gerðarmenn almennt átta sig á þess-
um möguleikum munu þeir nýta sér
þá til þess að lækka laun vélstjór-
anna og draga úr réttindakröfum og
um leið öryggi skipa. Það er þó með
þetta eins og svo fjölmargt annað að
fátt er svo með öllu illt að ei boði
gott. Það góða er að með reglugerð-
inni er búið að skapa Siglingastofnun
ærin verkefni í stað þeirra sem er
verið að færa frá stofnuninni, verk-
efni sem felast í því að losa útgerðina
undan lögbundnum og umsömdum
skyldum sínum samkvæmt tilskipun
frá Sturlu Böðvarssyni,“ segir Helgi
Laxdal. ■
VEIÐAR „Það vantar rannsóknir á
því hver áhrif þessa veiðarfæris
eru í sjó,“ segir Sverrir Leósson,
útgerðarmaður nótaskipsins Súl-
unnar EA, um veiðar á loðnu og
síld í flotvörpur.
Raddir eru uppi um að veiðar
með flotvörpu stórskaði loðnu-
stofninn og síldarstofninn. Því er
haldið fram að flotvörpurnar taki
aðeins stærsta fiskinn en sá
smærri sleppi í gegnum
möskvana en hátt hlutfall drepist
vegna hreisturskemmda. Þessu til
stuðnings nefna menn að glöggt
megi sjá af afla flottrollsskipanna
þar sem vanti gjarnan smærri
loðnuna. Sverrir segir að þetta sé
mikið rætt manna á milli og sitt
sýnist hverjum. Hann vill að fiski-
fræðingar og veiðarfærasérfræð-
ingar rannsaki málið og skili nið-
urstöðum.
„Það er hlutverk fræðinganna
að skera úr um þetta mál. Menn
hafa verið að kasta þessu á milli
sín en það þarf að skoða þetta
vandlega,“ segir Sverrir.
Hann segir að gjörbreytt
mynstur sé á veiðum á loðnu og
síld frá því sem áður var þegar
nótaveiðar voru allsráðandi.
„Flotvörpurnar eru í sjó 24 tíma
í sólarhring og stærstu skipin eru
að í nánast öllum veðrum. Við meg-
um ekki skemma fyrir okkur og
því er nauðsynlegt að rannsaka
málið,“ segir Sverrir.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur og einn helsti sérfræð-
ingur Hafrannsóknastofnunar
hvað loðnu varðar, segist „per-
sónulega hafa efasemdir um veið-
ar á uppsjávarfiski í flotvörpu“.
Hann segir ljóst að flotvarpan
kljúfi loðnutorfur og valdi usla.
„Flottrollið er nýjung í uppsjáv-
arveiðum. Það vinnur allt öðruvísi
en nótin og menn eru að draga veið-
arfærið fram og aftur í gegnum
torfurnar og fiskurinn hlýtur að
stressast miklu meira sem er eng-
um fiski hollt,“ segir Hjálmar.
Hann segir að ljóst sé að nótin
komi í flestum tilvikum upp með
þann fisk sem lokast inn.
„Réttarkerfið segir að menn
teljist saklausir uns sekt er sönn-
uð. Það hefur
ekkert sannast
varðandi flot-
vörpuna og
þyrfti að rann-
saka þetta frek-
ar með infra-
rauðri mynda-
vél. Þegar við
mynduðum þetta
seinast var ekki
hægt að skera úr
um það hvort
ljósið á mynda-
vélinni olli uslanum eða sjálft veið-
arfærið,“ segir Hjálmar.
rt@frettabladid.is
Dómsmálaráðherra:
Skipar tvo
dómara
DÓMSMÁL Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra hefur skipað Skúla
Magnússon, dósent við lagadeild
Háskóla Íslands, og Símon Sig-
valdason, skrifstofustjóra Hæsta-
réttar, í embætti héraðsdómara.
Skúli verður héraðsdómari í
Reykjavík en Símon mun fyrst um
sinn ekki eiga fast sæti við tiltek-
inn dómstól.
Sjö sóttu um stöðurnar tvær,
aðrir umsækjendur voru Arnfríð-
ur Einarsdóttir, Ásgeir Magnús-
son, Friðjón Örn Friðjónsson, Ind-
riði Þorkelsson og Sigrún Guð-
mundsdóttir. ■
FJÓRTÁN FÓRUST Í AURSKRIÐU
Fjórtán manns létust þegar aur-
skriða féll á þorp á eynni Java í
Indónesíu. Þrjú hús grófust undir
aurnum. Flestir þorpsbúarnir voru
í fastasvefni þegar skriðan féll.
ELDGOS Í INDÓNESÍU Einn maður
lést og um tuttugu slösuðust þeg-
ar eldgos hófst skyndilega í Ego-
fjalli á eynni Flores í Indónesíu.
Dökk aska mettaði loftið yfir
eynni og voru um 4000 manns
fluttir á brott frá heimilum sínum
í nágrenni fjallsins.
EFNAFRÆÐINGUR DÆMDUR TIL
DAUÐA Japanskur efnafræðingur
hefur verið dæmdur til dauða
fyrir að hafa haft yfirumsjón
með þróun taugagass sem notað
var í árás á neðanjarðarlestakerfi
Tókíó árið 1995. Alls hafa ellefu
meðlimir trúarreglunnar Aum
Shinrikyo verið dæmdir fyrir
aild að árásinni sem kostaði tólf
manns lífið.Aldarafmæli heima-
stjórnarinnar:
Flaggað á
morgun
FÁNADAGAR Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra hefur með skírskotun
til forsetaúrskurðar um fánadaga
og fánatíma, ákveðið að flaggað
skuli við opinberar stofnanir þeg-
ar 100 ár verða liðin frá stofnun
heimastjórnar á Íslandi, á morg-
un, sunnudaginn 1. febrúar.
Forsætisráðherra hvetur al-
menning til þess að minnast þess-
ara tímamóta á sama hátt. ■
HELGI LAXDAL
Telur að samgönguráðherra hafi staðið
fyrir lækkun launa vélstjóra og
minna öryggi fiskiskipa.
Formaður Vélstjórafélagsins harðorður:
Reglugerð Sturlu
vinnur gegn öryggi
LOÐNUVEIÐAR
Ekki er deilt um loðnuveiðar í nót en efasemdir eru uppi um flottrollið.
Fræðimaður efast
um flotvörpu
Útgerðarmaður nótaskips vill rannsóknir á meintri skaðsemi flotvörpu
við veiðar á loðnu og síld. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur tekur
undir með honum en segir að sanna verði sekt.
■ Asía
„Flotvörp-
urnar eru í
sjó 24 tíma í
sólarhring og
stærstu skipin
eru að í nán-
ast öllum
veðrum.
SVERRIR
LEÓSSON
Vill láta rannsaka
áhrif flotvörpu.
HJÁLMAR
VILHJÁLMSSON
Hefur efasemdir við
flotvörpuna en segir
að sanna verði sekt.
■ Lögreglufréttir
FÁNI FASTUR Í FÁNASTÖNG
Vaskir slökkviliðsmenn fóru til
að aðstoða fólk við að ná fána
niður úr fánastöng í gærmorgun.
Til stóð að draga fánann í hálfa
stöng en hann var dreginn alla
leið og ekki tókst að ná honum
niður fyrr en aðstoð slökkviliðs-
mannanna barst.
STAL SKJÁVARPA Brotist var í
Iðntæknistofnun í Keldnaholti í
gærmorgun og þaðan stolið
skjávarpa. Þjófurinn braut rúðu
til að komast inn. Málið er í rann-
sókn lögreglu.