Fréttablaðið - 31.01.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.01.2004, Blaðsíða 12
Með samruna Fréttar og Norður-ljósa verður til fjárhagslega sterkt og öflugt fjölmiðla- og afþrey- ingarfyrirtæki sem getur – ef vel er að verki staðið – náð að efla fjölmiðl- un á Íslandi. Innan vébanda félagsins er elsta einkarekna útvarpsstöð landsins, elsta einkarekna sjón- varpsstöðin og bæði elsta og mest lesna dagblað landsins. Þarna eru samankomnir þeir miðlar sem hafa verið í forystu fyrir frjálsri og óháðri fjölmiðlun án afskipta stjórn- málaflokka eða ríkisvaldsins. Þessi saga leggur hinu nýja félagi ákveðn- ar skyldur á herðar. Það verður að sýna að það eru aðrir en ríkisvaldið hæfari til reksturs fjölmiðla og að í því opna og lýðræðislega samfélagi sem við viljum byggja upp á Íslandi sé nauðsynlegt að fjölmiðlar þróist frá þeim flokkspólitíska klafa sem þeir voru bundnir við seinni helming síðustu aldar. Saga íslenskra fjölmiðla er að mörgu leyti saga barnings og fjár- hagslegra vandræða. Að útgáfufé- lagi Morgunblaðsins og Ríkisút- varpsins slepptu hafa flest fjölmiðla- fyrirtæki lengst af verið rekin á veikum grunni og þurft reglulega að ganga í gegnum fjárhagslega endur- skipulagningu. Í hvert sinn sem harnar í dalnum í samfélaginu hafa eitt eða fleiri fjölmiðlafyrirtæki gef- ið upp öndina. Samruni Fréttar og Norðurljósa er alvarleg tilraun til að styrkja undirstöður miðla félagsins svo þeir geti byggt sig upp til lengri tíma. Erfiðleikar í fjölmiðlarekstri á undanförnum áratugum eiga ekki rót sína í minnkandi eftirspurn. Þvert á móti má halda því fram að eftirspurn eftir góðri fjölmiðlun fari vaxandi. Fréttir hafa ætíð verið eftirsóttasta vara í heimi og fólk ver sífellt meiri tíma til afþreyingar – og þar með til notkunar á fjölmiðlum. Fjölmiðlaumhverfið á Íslandi var lengst af hluti flókins samspils stjórnmála og ríkisvalds. Tilraunir margra frumherja til að byggja upp fjölmiðla utan þessa kerfis enduðu flestar í uppgjöf. En dropinn holar steininn. Með árunum hefur fjöl- miðlun á Íslandi breyst. Allur þorri almennings hefur hafnað fréttum sem litaðar eru af flokkspólitískum hagsmunum. Það sem áður var regl- an er nú orðið undantekning. Þeir fjölmiðlar sem ætla sér langlífi verða að aðlaga sig að hinu nýja um- hverfi. En vegna sérstöðu íslensks sam- félags á síðustu öld er saga frjálsrar fjölmiðlunar skemmri á Íslandi en víðast hvar í nágrannalöndunum. Ís- lenskir fjölmiðlar geta ekki byggt jafn mikið á mótuðum hefðum og kollegar þeirra í nágrannalöndunum. Svipmót íslenkra fjölmiðla er því í meiri mótun en víðast hvar annars staðar. Það gerir starf þeirra sem vinna við fjölmiðla meira spennandi og í því felast líka tækifæri fyrir fyr- irtæki sem vill taka forystu í mótun sjálfstæðra og öflugra fjölmiðla. ■ Umræðan um samþjöppuneignarhalds í fjölmiðlum hef- ur verið mikil en ekki að sama skapi markviss. Þar er blandað saman því markmiði að almenn- ingur hafi aðgang að óhlutdræg- um upplýsingum annars vegar og samkeppnissjónarmiðum hins vegar. Áhyggjur af eignarhaldi fjöl- miðla eru ekki nýjar. Með tilkomu útvarpsins var kominn fram svo öflugur miðill að víðast hvar var stofnað til opinbers útvarps- rekstrar til að tryggja óhlut- drægni. Tilvist Ríkisútvarpsins styðst við þessi sígildu rök. Á Ís- landi hefur fréttastofa Útvarps enda verið hið gullna viðmið sem blöð og aðrir fjölmiðlar hafa mát- að sig við. Er Ríkisútvarpið sjálfstætt? Í umræðu undanfarinna vikna hefur þó merkilega lítið verið rætt um hvernig styrkja megi sjálfstæði RÚV gagnvart stjórn- lyndum stjórn- völdum hvort sem litið er til þáttastjórnunar eða mannaráðn- inga. Einhver r ó t t æ k a s t a lausnin fælist líklega í því að ú t v a r p s s t j ó r i væri kosinn í beinum kosning- um. Enn hafa heldur ekki ver- ið færð sann- færandi rök fyr- ir því að sérstök samkeppnislög þurfi á fjölmiðlasviðinu. Til að tryggja óhlutdrægni væri miklu nær að greina alla þá áhrifaaðila sem freistast geta til að hlutast til um fréttaflutning eða umfjöllun. Þar eru auglýsendur eða kostend- ur ekki síður verðugt umfjöllun- arefni en eigendur, og valdamiklir stjórnmálamenn ekki síður en við- skiptablokkir. Á fjölmiðlasviðinu er líklega mest um vert að tryggja rit- stjórnarlegt sjálfstæði. Liður í því er að gera skýra grein fyrir þeim eignar-, fjármagns- og hagsmunatengslum sem til stað- ar eru og slá upp múr til varnar fagmennsku fréttamanna. Færa má gild rök fyrir því að þetta geri fjölmiðlar og blaðamenn best á eigin forsendum með siðanefndum eða stofnun embættis umboðsmanns fjöl- miðla sem gæti hagsmuna al- mennings gegn missögnum og misbeitingu. Fjármál stjórnmálaflokka Hvað sem fjölmiðlum líður hníga sumpart sömu og raunar enn ríkari rök til þess að fjárhags- leg tengsl einstaklinga og fyrir- tækja við stjórnmálaflokka séu opin bók. Þótt fjölmiðlar geti ver- ið skoðanamyndandi gerist það eðli málsins samkvæmt fyrir opn- um tjöldum. Með fjárhagslegan stuðning við stjórnmálaflokka má hins vegar fara eins og manns- morð. Í þessu ljósi er nýfenginn áhugi á lögum um eignarhald á fjölmiðlum því miður aðeins enn eitt dæmið um ósamkvæmni og tilviljanakennda afstöðu ríkis- valds sem beitir lögum til að skak- ka leik í stað þess að setja almenn- ar leikreglur. Nema þá að hinir nýkristnu lagasetningarpostular láti jafnframt af varðstöðu sinni um að Ísland dagi uppi sem eina landið í Evrópu án reglna um fjár- mál stjórnmálaflokka. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um samruna Fréttar og Norðurljósa. 12 31. janúar 2004 LAUGARDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Smáborgarar samtímans eigaþað sameiginlegt með brodd- borgurum, sem réðu fram að heimsstyrjöldinni síðari, að þeim finnst gaman að borða. Sá er mun- urinn, að smáborgarar samtímans borða ekki til að fitna, eins og for- verar þeirra, heldur stunda þá af- þreyingu að megrast á mat eða halda línunum og státa af flötum maga eftir fínlegt át. Borgarar fortíðarinnar átu til að fitna og sýna að þeir hefðu efni á að háma í sig. Að vera belgmik- ill bar vott um hreysti og þor. Þetta átti jafnt við um karla og konur. Þeir höfðu þó venjulega yf- irburði í holdarfarinu. Enginn var maður með mönnum, ekki einu sinni í búðarholu, nema hann skartaði kúluvömb, helst með úr- keðju vasa á milli. Alfeitustu kon- ur sóttust aftur á móti eftir að fá tvo vembla á bringuna og kölluð mömmu ding-a-dong. Hvað er mest gaman að gera Að fara út að borða hefur alltaf verið ríkur þáttur í lífi borgara og smáborgara, helst saman í hóp sem fer um með lystarmiklum hljóðum. Þetta er gert til að sýna sig. Ekki má fara fram hjá neinum að þarna er efnafólk á ferð sem fer glatt til matar síns. Á fyrri hluta liðinnar aldar fóru engir út að borða nema borgarar. Flestir aðrir áttu varla fyrir mat og slöpruðu í mesta lagi í sig súpu eða kekkjaða grautinn heima. Í fjölmiðlum nútímans er hægt að greina á viðtölum af hvaða stétt fólk er við að fá góðu spurninguna: Hvað finnst þér mest gaman að gera þér til skemmtunar? Að fara út til að borða góðan maaat! Maður heyrir jafnvel lang- dregna nýsmáborgaralega seim- inn í gegnum hið ritaða mál. Mikill munur er á látæði stór- borgara fyrri tíma og smáborgara nútímans á góðum veitingahús- um. Til dæmis er komið úr tísku að karlmenn séu með stóra vindla. Konur ganga ekki með hatta og slör. En jafnt fyrr og nú reka þær upp hljóð meðan á borðhaldi stendur, rokur, hvin eða skræki. Áður var algengt að þær skelltu á lær. Þau voru ekkert smásmíði. Það gutlaði í lausa holdinu. Nú láta konur nægja að reka upp korr, viðhafnarlega útgáfu á píku- skrækjum og róa gjarna framan í viðmælandann og sýna upp í sig. Erfðirnar ríkar Það að láta hvína í tálknunum, eins og þorpskonur gerðu í gillum, er alveg úr sögunni. Stétta- einkenni í hvini kvenna eru horf- in. Karlmenn reka aftur á móti ennþá upp hinar sígildu yfirburð- arlegu karlarokur. Smáborgarar af karlkyni sýna ekki beinlínis upp í sig við rokur. Áður huldu stórborgarar munninn í vindlareyk. Nú reykir enginn á framabraut. Reyndar má enn sjá leifar af reyk, en aðeins hjá mönn- um af lágstéttinni. Þótt þeir hafi komist í háa stöðu, leynist í þeim ögn af forfeðrunum sem lágu útaf heima á dívaninum og reyktu, væri engin törn hjá þeim. Stundum sjást líka á fínum veitingahúsum konur sem eru leifar af því sem var kallað stóð- meragerð. Þótt þær gangi ekki lengur í opnum peysum eru erfð- irnar svo ríkar að þegar þær kom- ast í geðshræringu yfir krabba- súpu, grípa þær í boðangana á kjólunum, eins og formæðurnar í peysurnar, til að hylja ímynduð brjóstin. Í samfélagi okkar er helsta skemmtun velmegunarfólks, að fara út með sínum líkum og éta sér og öðrum til afþreyingar, en án þess að maturinn komi beinlín- is niður á holdinu, heldur miklu fremur á klósettinu. ■ Hringa- myndun launþegans Jón V. Viðarsson skrifar: Hvernig er hægt að ætlast tilþess að fólkið sem er á lægstu laununum, til dæmis verslunar- fólk, geti átt launin sín í heilan mánuð? Yfirleitt er fólkið orðið blankt eftir tvær til þrjár vikur og þarf að bíða í örvæntingu eftir næstu útborgun. Bankarnir stórgræða á þessu þar sem fólkið þarf endalaust að vera að taka yfirdráttarlán til þess að komast í vinnu eða kaupa sér mat og fleira. Í mörgum tilfellum kemst fólk ekki til vinnu og skráir sig veikt. Margir þurfa að leita til félags- þjónustunnar til þess að fá styrki og félagsvandamálið eykst hjá þessu fólki. Nú er svo komið að Háskólabíó er yfirfullt af fólki sem er að læra sálfræði og ekki veitir af! Á hinum Norðurlöndunum tíðkast ekki þetta fyrirkomulag heldur fær fólkið útborgað á tveggja vikna fresti og á þá pening í miðjum mánuði og það kemur sér vel bæði fyrir kaupmenn sem aðra að þetta fólk geti verslað í miðjum mánuði eins og aðrir, sem er að sjálfsögðu lágmarkskrafa þessa fólks. Bankarnir fitna og fitna á meðan fólkið hefur það verra og verra í þjóðfélaginu. Það væri mikil kjarabót fyrir þetta fólk að losna við yfirdráttarvexti og alls konar óþægindi vegna þessa. Stöndum saman gott fólk sem erum á mánaðarlaunum og notum tækifærið og förum fram á 22 út- borganir á ári í stað 12 og höfum betra líf. ■ ■ Bréf til blaðsins ■ Leiðrétting ■ Af Netinu Eignarhald og óhlutdrægni Öflugt fjölmiðlafyrirtæki „Hvað sem fjölmiðlum líður hníga enn ríkari rök til þess að fjárhagsleg tengsl ein- staklinga og fyrirtækja við stjórnmála- flokka séu opin bók. „Í samfélagi okkar er helsta skemmtun velmegunar- fólks, að fara út með sínum líkum og éta sér og öðrum til afþreying- ar, en án þess að mat- urinn komi beinlínis nið- ur á holdinu, heldur miklu fremur á klósettinu. Í frétt um offramleiðslu ákjúklingakjöti í blaðinu í gær brengluðust tölur. Í stað þess að tala um birgðir í tugum tonna var fjallað um þær í tugþúsundum tonna. Þannig urðu 30 tonn að 30 þúsund tonnum. Um leið komust ekki til skila tölur um eðlilegar birgðir kjúklingabúa. Þær eru að mati Matthíasar Hannesar Guð- mundssonar hjá Reykjagarði í kringum 450 tonn, sem er u.þ.b. mánaðarsala. Telur hann ofsagt að farga þurfi 300 tonnum af kjúklingakjöti. ■ Um daginnog veginn GUÐBERGUR BERGSSON ■ skrifar um mataræði. BELGMIKILL Að vera belgmikill bar vott um hreysti og þor. Þetta átti jafnt við um karla og konur. Persónuleikabrestur í Idol stjörnuleit „Eftir að hafa eytt hálfu ári í að reyna að ná fyrsta sæti hlýtur það að vera merki um alvarleg- an persónuleikabrest að fagna þegar þú tapar. Nær lagi hefði verið að strunsa foxillur af sviði og sverja þess dýran eið að hvíl- ast ekki fyrr en tekist hefði að koma höggi á sigurvegarann. Auk þess sem það hefði verið miklu betra sjónvarpsefni!“ - HALLDÓR BENJAMÍN ÞORBERGSSON Á WWW.DEIGLAN.COM. DAGUR B. EGGERTSSON ■ borgarfulltrúi skrifar um áhyggjur af sam- þjöppun á eignar- haldi fjölmiðla. Skoðundagsins BLAÐAMENN AÐ STÖRFUM „Óhlutdrægni tryggja fjölmiðlar og blaðamenn best á eigin forsendum með stofnun embættis umboðsmanns fjölmiðla sem gæti hagsmuna almennings gegn missögnum og misbeitingu.“ Át sem afþreying

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.