Fréttablaðið - 31.01.2004, Síða 16
16 31. janúar 2004 LAUGARDAGUR
■ Andlát
■ Afmæli
Á þessum degi árið 1950 til-kynnti Harry S. Truman, þá-
verandi forseti Bandaríkjanna, að
verið væri að vinna að þróun vetn-
issprengjunnar og þar með hófst
einn skuggalegasti kafli í vígbún-
aðarkapphlaupssögu stórveld-
anna.
Sovétmenn unnu einnig að gerð
slíkrar sprengju á þessum árum.
Rússar gerðu árangursríkar til-
raunasprengingar í ágúst 1953, ári
á eftir Bandaríkjamönnum.
Vetnissprengjan er þúsund
sinnum öflugri en eldri sprengjur
sem byggðu á úraníum- eða plút-
óníumgrunni og þegar Banda-
ríkjamenn, Rússar og Bretar voru
komnir á kaf í þróun sprengjunn-
ar óttuðust menn að stríð með
þessum nýju tólum myndi hafa
heimsendi í för með sér enda
drepa þær ekki einungis í sjálfri
sprengingunni heldur einnig eftir
á með geislavirkni.
Dwight D. Eisenhower, fyrr-
um hershöfðingi og forseti
Bandaríkjanna, hafði þó ekki telj-
andi áhyggjur af þessu. „Það er
ekki hægt að heyja svona stríð.
Það eru einfaldlega ekki til nógu
margar jarðýtur til þess að
skrapa saman öllum líkunum af
götunum.“ ■
Elín Pálmadóttir blaðamaður er 77 ára.
Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur er 43
ára.
Guðrún Soffía Hansen lést miðvikudag-
inn 14. janúar. Útförin hefur farið fram.
Jónína Helga Einarsdóttir, Njarðargötu
3, Keflavík, lést þriðjudaginn 27. janúar.
Markús Sveinsson er látinn.
Siggeir Björnsson, fyrrverandi bóndi og
hreppstjóri frá Holti á Síðu lést fimmtu-
daginn 29. janúar.
10.30 Baldur Kristinsson, Foldahrauni
40d, Vestmannaeyjum, verður
jarðsunginn frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum.
11.00 Pétur J. Haraldsson, Hlíf 1, Ísa-
firði, verður jarðsunginn frá Ísa-
fjarðarkirkju.
13.30 Gunnlaugur Tryggvason, bóndi,
Þorsteinsstöðum í Svarfaðardal,
verður jarðsunginn frá Urðarkirkju.
14.00 Elísabet Kristjánsdóttir, Eyja-
hrauni 3, Vestmannaeyjum, verð-
ur jarðsungin frá Landakirkju.
14.00 Guðbjörg Aðalheiður Gunnars-
dóttir, Laugavöllum 5, Egilsstöð-
um, verður jarðsungin frá Egils-
staðakirkju.
14.00 Guðmundur Ámundason, bóndi,
Ásum, Gnúpverjahreppi, verður
jarðsunginn frá Stóra-Núpskirkju.
14.00 Ólafur Gíslason frá Hjarðar-
brekku, Grenigrund 14, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Oddakirkju.
14.00 Torfhildur Guðlaug Jóhannes-
dóttir, Hlíf 1, Ísafirði, verður jarð-
sungin frá Ísafjarðarkirkju.
SIGURÐUR PÉTUR HARÐARSON
Sigurður Pétur hefur verið ötull stuðnings-
maður Sophiu Hansen í baráttu hennar
fyrir því að hitta dætur sínar í Tyrklandi.
??? Hver?
Dagskrárstjóri á Stjörnunni FM 94,3 sem
leikur eingöngu íslenska tónlist.
??? Hvar?
Hjá Norðurljósum á Lynghálsinum.
??? Hvaðan?
Úr Reykjavík og á ættir að rekja meðal
annars til Húsavíkur, í Skagafjörðinn og í
Húnavatnssýslu.
??? Hvað?
Hef engan tíma fyrir áhugamál, alltaf í
vinnunni eða að sinna þeim sem á
hjálp þurfa að halda.
??? Hvernig?
Lífið er svo fjölbreytt að það er ekki
hægt að benda á eina sérstaka aðferð
við að veita þeim styrk sem á þurfa að
halda.
??? Hvers vegna?
Þannig öðlast maður dýrmæta reynslu
og getur einnig glatt þá sem á hjálp
þurfa að halda. Þetta gefur lífinu veru-
legt gildi.
??? Hvenær?
Hvenær sem er, helst allaf.
■ Persónan
JUSTIN TIMBERLAKE
Söngvari og fyrrverandi kærasti sjálfrar
Britneyjar Spears er 23 ára í dag.
31. janúar
■ Þetta gerðist
1606 Guy Fawkes, sem var fundinn
sekur um landráð gegn James I
Englandskonungi er tekinn af
lífi.
1865 Robert E. Lee hershöfðingi
verður æðsti yfirmaður herafla
Suðurríkjasambandsins.
1944 Bandarískar hersveitir ráðast til
atlögu við kóraleyjuna Kwaja-
lein og Marshall-eyjar í seinni
heimsstyrjöldinni.
1949 Fyrsta sápuóperan sem sýnd er
í sjónvarpi, These Are My
Children, hefur göngu sína hjá
NBC.
1958 Bandaríkjamenn blanda sér í
geimkapphlaupið þegar þeir
koma gervihnettinum Explorer
One út í geim.
1971 Bandarísku geimfararnir Alan B.
Shepard, Edgar Mitchell og Stu-
art Roosa halda af stað til
tunglsins í Apollo 14.
1990 McDonald’s opnar fyrsta skyndi-
bitastað sinn í Moskvu.
VETNISSPRENGJAN
Þessi alræmdi sveppur hefur haldið vöku
fyrir mörgum jarðarbúanum síðustu ára-
tugi enda þótti vetnissprengjan boða fátt
annað en heimsendi.
Ný ógn
KALDA STRÍÐIÐ VIÐ FROSTMARK
■ Bandaríkjamenn byrja að þróa vetnis-
sprengju og vígbúnaðarkapphlaupið fer á
fulla ferð.
31. janúar
1950
Hafmeyjar
og hönnun
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
50% afsláttur
af öllum vörum
Ein besta vinkona mín var aðkoma í heimsókn til mín hing-
að til Danmerkur og við ætlum í
afmælisdekur. Við förum í and-
litsbað, nudd og fleira,“ segir
Marín Manda Magnúsdóttir fata-
hönnuður, sem er 25 ára í dag. „Í
kvöld held ég stórveislu og er
búin að bjóða rúmlega 30 manns.
Helmingurinn verður Danir og
hinir Íslendingar. Fyrir utan vin-
konu mína sem kom út eru marg-
ar af mínum bestu vinkonum
fluttar hingað til Danmerkur. Hér
hef ég kynnst nýju fólki, en gömlu
vinirnir eru alltaf til staðar.“
Það verður kvikmyndaþema í
veislu Marínar Möndu og kvik-
myndin sem hún valdi er
Mermaids, sem skartar Cher í
aðalhlutverki. „Ég verð með sam-
lokur og snittur sem verða stungn-
ar út eins og hjörtu og stjörnur.
Þetta verður algjör pæjuveisla,
svona Mermaids-kokteilfest.“
Marín á ekki í vandræðum með
að rifja upp skemmtilegt afmæli,
þó úr mörgum sé að velja. „Þegar
ég var um það bil átján ára hélt ég
mjög skemmtilegt afmæli heima
hjá foreldrum mínum. Við áttum
karókítæki niðri í kjallara sem
pabbi hafði keypt í Japan og allar
veislur sem við héldum enduðu á
því að fólk tróð upp. Afmælið mitt
var ekkert öðruvísi og allir voru
farnir að syngja eftir mætti áður
en við fórum í bæinn að dansa.
Þegar við komum heim aftur
heyrðum við einhver gól niðri í
kjallara. Þá hafði einn vinur bróð-
ur míns verið einn alla nóttina í
karókí og tók ekki einu sinni eftir
því að við höfðum farið.“
Marín er flutt til kóngsins
Köbenhavn og segist ekki vera á
leið heim aftur þó hún sakni
alltaf Íslands, nema bara í heim-
sókn. Enda eru spennandi verk-
efni fram undan hjá henni í fata-
hönnun. „Ég er að byrja í mars í
lítilli design-búð sem heitir
Soulmate hérna í Kaupmanna-
höfn og verð með flíkur sem ég
hef sjálf saumað. Nú fyrir jól var
ég með nokkrar flíkur í Retro en
það ræðst á næstu mánuðum
hvort það fer meira þangað eða
hvort ég einbeiti mér að erlend-
um markaði. Ég er að komast í ný
verkefni sem gefa af sér ný tæki-
færi og það verður að sjá til
hvernig það þróast.“ ■
Skálatún fagnar tímamótum
Skálatúnsheimilið í Mosfellsbæheldur upp á hálfrar aldar af-
mæli sitt í dag. Í Skálatúni er vist-
heimili og vinnustofa fyrir
þroskaheft börn á vegum Bind-
indissamtakanna IOGT og Styrkt-
arfélags vangefinna. Heimilis-
menn eru nú 44 og hefur aðbúnað-
ur þeirra bæst til muna frá því
starfsemin hófst í gamla bónda-
bænum.
Í tilefni afmælisins verður opið
hús frá 10 til 14 í vinnustofu
Skálatúns þar sem heimilisfólk
sýnir vinnu sína. „Þetta verður
sölusýning og sýnd bæði pökkun
og handverk,“ segir Kristbjörg
Richter, deildarstjóri vinnustofu.
„Hér er mikil áhersla lögð á vefn-
að og svo annað handverk og fólk
verður að vefa og sauma á staðn-
um.“ Jafnframt er verið að fagna
20 ára afmæli vinnustofunnar í
þessu húsnæði á þessum tímamót-
um. „Hér er fólk á breiðum aldri,
allt frá 22 ára til 69 ára. Þetta er
allt fólk sem býr á staðnum og
hefur jafnvel unnið hér áratugum
saman.“ Klukkan 14.30 verður svo
boðið til kaffiveislu í Hlégarði í
Mosfellsbæ. ■
■ Jarðarfarir
Námskeið i svæðameðferð
Á námskeiðinu lærir þú grunnþekkingu og
aðferðafræði i svæðameðferð.
Námskeiðið verður haldið á Flughóteli í Keflavik
Konur: 23.02.04 og 10. 05.04
Menn: 24.02.04 og 11. 05.04
Skráning á námskeið í síma 421 6158 eftir kl. 19.oo
Birgitta Jónsdóttir Klasen, nátturulæknir
Opið hús
SKÁLATÚNSHEIMILIÐ
■ í Mosfellsbæ er 50 ára. Ráðist hefur
verið í mikla uppbyggingu á síðastliðnum
áratug.
FÓLK AÐ VINNU Í SKÁLATÚNI
„Undanfarin tíu ár höfum við byggt fjögur ný hús og einbeitt okkur að því að bæta að-
búnað heimilismanna,“ segir Kristján Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Skálatúns. „Við erum
mjög hreykin af því sem við höfum gert og viljum því bjóða gestum að koma og skoða.“
Afmæli
MARÍN MANDA MAGNÚSDÓTTIR
■ er 25 ára. Dagurinn fer í dekur og end-
ar á mikilli veislu.
MARÍN MANDA MAGNÚSDÓTTIR
Uppáhaldshönnuðir hennar eru Dolce & Gabbana og ítalski hönnuðurinn Patrizia Pete.
Sjálf segist hún vera mjög kvenleg í sinni hönnun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R