Fréttablaðið - 31.01.2004, Page 33

Fréttablaðið - 31.01.2004, Page 33
ÚTSALA Kringlan • Skóhöllin, Firði • Glerártorg, Akureyri 20-70%afsláttur enn meiri afsláttur Dömustígvél áður frá kr. 8.990, nú kr. 2.990 -50% loðfóðraðir kuldaskór ...og fleiri frábær tilboð! LAUGARDAGUR 31. janúar 2004 Læknar og hjúkrunarfræ›ingar bjó›a gestum mælingu á bló›flr‡stingi og flyngdarstu›li. Andlitsmálning fyrir börnin Trú›ar breg›a á leik Velkomin í Heilsugæsluna Salahverfi Opi› hús og fjölskylduhátí› í dag kl. 13 - 17 Salavegi 2, 2. hæ›, 201 Kópavogi, sími 590 3900 Lína langsokkur 13:00 Lína langsokkur og Tommi vinur hennar koma í heimsókn 14:00 Malika - sigurvegarar í söngvakeppni ÍTK 2003 14:30 Skólakór Kársness undir stjórn fiórunnar Björnsdóttur 15:30 Malika - sigurvegarar í söngvakeppni ÍTK 2003 16:30 Lína langsokkur og Tommi vinur hennar Skráning fleirra sem óska eftir a› ver›a skjólstæ›ingar Heilsugæslunnar Salahverfi stendur yfir. Nú er tækifæri› fyrir flá sem ekki eru skrá›ir hjá heilsugæslu a› skrá sig. Veri› velkomin. Þetta er líklega ein merkileg-asta Súpermannsaga síðustu ára. Eins og flestir vita hefur Súpermann verið táknmynd bandarískra ofurhetja frá því að hann var skapaður á fimmta ára- tugi síðustu aldar. Hingað til hef- ur Súpermann svifið um í litum bandaríska fánans og jafnvel tek- ið þátt í pólitískum átökum lands síns í sögunum. Red Son fjallar um það hvað hefði gerst ef flaug Súpermanns hefði lent í Úkraínu í stað Kansas. Sagan hefst þegar Súpermann er orðinn fullorðinn og orðinn eitt helsta áróðursvopn Stalíns fyrir því að kommúnisminn virki. Hann verður fljótlega yfirmaður sov- éska kommúnistaflokksins og breiðir út boðskapinn til heims- byggðarinnar. Sjálfur sér hann svo til þess að halda frið og spekt í ríki sínu, sem fer ört stækkandi þar sem fleiri og fleiri þjóðir vilja sameinast því. Slys eru auk þess engin þar sem Súpermann bjargar því sem bjarga þarf. Það verður þjóðarvitneskja að Súpermann heyri og sjái allt og skemmtileg ógn „stóra bróður“ myndast í kommúnistaútópíunni. Bandaríkin eru að sjálfsögðu eina ríkið sem lætur ekki undan kommúnismanum en þar plottar Lex Luthor gegn sovéska Súper- manninum sem hann telur að líti á sig sem guð. Fléttan er virkilega vel spunn- in og gaman að sjá hvernig þekkt- ar persónur myndasagnanna eru settar í nýjar aðstæður. Birgir Örn Steinarsson Ofurkommún- istinn Umfjöllunmyndasaga SUPERMAN: Red Son Af einhverjum ástæðum hafaflestallar kvikmyndir Tims Burton annað hvort fengið frá- bæra dóma eða ömurlega. Svo virðist sem myndir hans séu svo ótengdar raunveruleikanum að þeir sem hafa ekki draumóragen- ið nái einfaldlega ekki að tengja. Fyrir mér er Burton snillingur, mikill hugsjónamaður og braut- ryðjandi í sköpun draumkenndra ævintýraheima. Hann hefur þó auðvitað misst brækurnar niður um sig eins og flestir, síðast með Apaplánetunni, sem er bara ágæt- is vídeóleigumynd. Það er því með miklum létti sem ég tilkynni ykkur að Big Fish er ein besta mynd Burtons frá upphafi. Ég á einfaldlega mjög erfitt með að gera upp á milli Sleepy Hollow og þessarar nýju. Big Fish segir mannlegri sögu en aðdáendur Burtons eiga að venjast. Meginkjarninn er sam- band föður og sonar þar sem son- urinn gerir örvæntingarfulla til- raun til þess að kynnast föður sín- um áður en hann fer yfir móðuna miklu. Pabbinn hefur alltaf verið mikill sögumaður og er sjálfur án undantekninga söguhetja sagna sinna. Sögurnar eru ótrúlegar, og þar fær ævintýramaðurinn Burton að njóta sín. Hins vegar kemur á óvart hvað honum tekst svo ágætlega til í mannlegri atriðunum. Big Fish er glæsilegt ævintýri. Hún fær þig til að hlæja, gráta og hrífast með. Hreinn unaður frá upphafi til enda. Fimm stjörnur! Birgir Örn Steinarsson Stórfiskurinn Burton Umfjöllunkvikmynd BIG FISH Leikstjóri: Tim Burton Aðalhlutverk: Ewan McGregor, Albert Finney GARDÍNAN GEFIN Kalli Bjarni, nýjasta poppstjarna landsins, gaf Hard Rock Café „gardínuna“ frægu á föstu- dag. Kalli var í jakkanum, sem vakti gífurlega athygli vegna munsturs síns, þegar hann vann Idol-keppnina og fer jakkinn því beina leið á þetta eina poppminjasafn borgarinnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.