Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2004, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 31.01.2004, Qupperneq 47
Þessi hátíð hefur aldrei veriðeins stór og núna,“ segir Kjart- an Ólafsson, tónskáld og formað- ur Tónskáldafélags Íslands. Hann hefur, eins og gjarnan áður, haldið utan um skipulagningu Myrkra músíkdaga, sem hefjast á morgun og standa yfir í ellefu daga. „Þarna koma fram margir af helstu hljóðfæraleikurum lands- ins og áhugi bæði almennings og hljóðfæraleikara fer ört vaxandi.“ Í fyrra sóttu tæplega tvö þús- und manns tónleika á hátíðinni, og höfðu tónleikagestir aldrei fyrr verið jafn margir. „Í ár verða frumflutt á annan tug verka, og hafa þau aldrei ver- ið fleiri. Nú er líka svo komið að við getum ekki komið öllum þeim atriðum á dagskrá sem óskað hef- ur verið eftir,“ segir Kjartan. Flutningur nokkurra verka verð- ur því að bíða til næsta árs, og reyndar er það svo að í ár eru flutt nokkur verk sem komust ekki að í fyrra. „Mönnum finnst alltaf gaman að fá að fylgjast með því þegar ís- lensk verk verða til og komast í nánari tengsl við nútíðina. En nú er þetta orðinn sjálfsagður hlutur, að ný tónlist verði til hér á landi og sé flutt á tónleikum. Þar eiga líka íslenskir hljóðfæraleikarar stóran hlut að máli því þeir hafa lagt sig fram um að flytja íslensk verk og koma þeim á framfæri.“ Myrkir músíkdagar hefjast að venju á tónleikum Kammersveit- ar Reykjavíkur, sem að þessu sinni eru um leið þrjátíu ára af- mælistónleikar sveitarinnar. Kammersveitin frumflytur verk eftir Hauk Tómasson og jafn- framt flytur hún stórt verk eftir Messiaen, sem aldrei áður hefur verið flutt hér á landi. Aðrir fastir liðir verða á sínum stað á Myrkum músíkdögum þetta árið, svo sem stórir tónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fimmtudaginn, og tónleikar Caput-hópsins eftir rúma viku. Einnig verða raftónleikar, blás- aratónleikar, söngtónleikar og flaututónleikar, svo nokkuð sé nefnt. ■ Gísli Guðlaugsson, 14 ára nem-andi úr Austurbæjarskóla, var ekki heima hjá sér þegar hringt var í hann frá Fréttablað- inu og honum tilkynnt að hann hefði verið valinn blaðberi mán- aðarins. Systir hans lét hann þó vita þegar hann kom heim til sín og hann fór í Smáralindina í gær að ná í Panasonic-ferðaspilarann sem hann fékk afhendan í BT. Gísli ber út á Þórsgötunni í miðbæ Reykjavíkur en sú gata hefur orð á sér fyrir að vera frekar erfið viðureignar. Gísli kvartar þó ekki enda reyndur í þessum bransa. „Ég vakna um klukkan sex á morgnana og byrja bera út,“ seg- ir Gísli nánast með sjóaratón í röddinni. „Ég er svona um 45 mínútur upp í klukkutíma með rúntinn. Ég held að þetta geti nú varla verið erfiðasta gatan í Reykjavík því í fyrrasumar bar ég út á Baldursgötu, Óðinsgötu og Týsgötu og það var miklu erfiðara. Það voru eiginlega bara bakhús.“ Þó svo að ritstjóri Fréttablaðs- ins búi á Þórsgötunni kippir Gísli sér ekkert upp við það. Hann fær bara blöðin sín á sama tíma og allir aðrir, eldsnemma á morgn- ana. Gísli segir blaðberalaunin vera fínan vasapening. Hann er svo skiljanlega ánægður með sig- urlaunin. „Ég hef gaman af rokki og svoleiðis,“ segir hann og þá vita allir hverju foreldrar hans geta átt von á næstu dagana. Fréttiraf fólki 47LAUGARDAGUR 31. janúar 2004 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 26. TBL. – 94. ÁRG. – [ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2004 ] VERÐ KR. 250 Sirrý og Gísli MarteinnAndlegir leiðtogaríslensku þjóðarinnar Bls. 24–25 OZ.COM Vonarstjarnansem hrapaði Bls. 20–21 Ólafur Sveinn vill gangasystkinum sínum íföðurstað eftir sviplegtfráfall beggja foreldra.Faðir hans lést afslysförum fyrir fimmárum en móðir hans léstfyrr í þessum mánuði.Ólafur sneri samstundisaftur til heimabyggðar-innar, ásamt unnustusinni, til að hefja nýtt lífsem höfuð fjölskyld-unnar – aðeins 24 ára aðaldri. Fyrir kaldhæðniörlaganna var líftrygg-ing móður hans ekki ígildi. Því leita þausystkinin eftir stuðningiþjóðarinnar allrar.Gengur systkinum sínum í föðurstað Blaðberi mánaðarins GÍSLI GUÐLAUGSSON ■ Telur það ekki eftir sér að bera Frétta- blaðið út í Þórsgötu þó hverfið sé torfært og þyki með þeim erfiðari. Tónlistarhátíð KJARTAN ÓLAFSSON ■ Myrkir músíkdagar hefjast í dag og hafa aldrei verið jafn fyrirferðarmiklir. Rokkari úr miðbænum GÍSLI GUÐLAUGSSON Blaðamaður mánaðarins ber út á Þórs- götunni sem er sögð erfið viðureignar. Hann kippir sér ekkert upp við það að vakna klukkan sex á morgnana. KJARTAN ÓLAFSSON Myrkir músíkdagar hefjast á morgun með daglegu tónleikahaldi í ellefu daga. Franska kvikmyndahátíðin í Há-skólabíói hefur farið af stað með miklum látum og það hefur verið uppselt alla vikuna á heim- ildarmyndina um Heim farfugl- anna. Tvær myndanna sem sýnd- ar eru á hátíðinni eru gerðar eftir skáldsögum sem komið hafa út í íslenskri þýðingu. Stupeur et tremlements (Undur og skjálfti) og L’adversaire, eða Óvinurinn, sem kom út árið 2002 og vakti mikla athygli en þar er sögð sönn saga manns sem myrðir foreldra sína, eiginkonu og tvö börn. Óvin- urinn rokseldist hér á landi og kom nýlega út í kilju en það er spurning hvort sannsöguleg mynd um hryllilegt sakamál nái að trekkja jafnvel og falleg mynd um heimshornaflakk farfugla. Íslensk tónlist í öndvegi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.