Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.02.2004, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 01.02.2004, Qupperneq 6
6 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR FRESTA FLUGI TIL BANDARÍKJ- ANNA Breska flugfélagið British Airways og franska flugfélagið Air France sögðust í gær hafa frestað flugi á nokkrum flugleið- um til Bandaríkjanna bæði í dag og á morgun af öryggisástæðum. Tilkynning flugfélaganna kom daginn eftir að bandarísk stjórn- völd sögðu nýjar upplýsingar benda til þess að hryðjuverka- menn gætu haft augastað á þess- um flugleiðum. UNGMENNI ELTU RÁÐHERRA Inn- anríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, sem lagt hefur ofuráherslu á lög og reglu, varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í gær þegar tugir reiðra ungmenna eltu hann og gerðu hróp að honum eftir að hann hafði heimsótt neðanjarðarlesta- stöð í París. Veistusvarið? 1Félag í meirihlutaeigu Björgólfs ThorsBjörgólfssonar er einn kjölfestufjár- festa í ríkissímafyrirtæki. Í hvaða landi? 2Hver er nýr fréttastjóri á Stöð 2 ogBylgjunni? 3Forsætisráðherra hefur ákveðið að ídag skuli flaggað við opinberar stofn- anir. Hvers vegna? Svörin eru á bls. 22 RÚV neitar að birta auglýsingu Skjás eins Skjár einn hefur beðið Samtök auglýsenda að gæta hagsmuna sinna eftir að Ríkisútvarpið neitaði að birta auglýsingu sem felur í sér ávarp til greiðenda afnotagjalda. AUGLÝSINGAR „Við förum mjög stíft eftir þeim reglum og lögum sem eru í gildi. Ef í auglýsingunum er ofbeldi eða ann- að sem ekki sam- rýmist reglum, eða samanburð- ur er þess eðlis að við teljum hann óréttmæt- an, þá birtum við ekki viðkomandi a u g l ý s i n g u . Þetta mat okkar er alltaf óháð því hver auglýsand- inn er, hvort það er keppinautur eða annar,“ sagði Þorsteinn Þor- steinsson, forstöðumaður mark- aðssviðs Ríkisútvarpsins. Forráðamenn Skjás eins hafa beðið Samtök auglýsenda að gæta réttar síns vegna þess að Ríkisút- varpið neitaði að birta auglýsingu sem í stóð: „Greiðendur afnota- gjalda athugið - Skjár einn er alltaf ókeypis. Skjár einn“. „Við viljum að RÚV birti þessa auglýsingu. Ef þeir halda fast við sitt þá viljum við láta á reyna á þeirra túlkun hjá samkepppnis- yfirvöldum. Tilgangurinn með auglýsingunni er að vekja athygli á því að við gefum það sem aðrir selja. Það er okkar viðskiptahug- mynd, að Skjár einn sé ókeypis. Það getur ekki talist ólöglegt,“ sagði Sverrir Agnarsson, auglýs- ingastjóri Skjás eins. „Okkar rök eru þau að þarna sé tekinn hluti úr þekktu ávarpi sem RÚV hefur eingöngu notað og við teljum tilganginn vera þann einan að hæða eða skapa villuhugmynd- ir. Með auglýsingunni sé verið að bera saman hluti sem eru ekki samanburðarhæfir. Við höfnuðum auglýsingunni vegna forskeytis- ins „greiðendur afnotagjalda“. Það er sitt hvað afnotagjöld og áskrift. Með áskrift greiðir við- komandi fyrir efni en fyrir afnot með afnotagjöldum,“ sagði Þor- steinn Þorsteinsson. „Það er enginn samanburður í þessari auglýsingu, því fer fjarri. En við viljum fá úrskurð í málinu. Við höfum hugsað okkur að birta þessa auglýsingu um hver mán- aðamót, um það leyti sem gíró- seðlar RÚV berast landsmönn- um,“ sagði Sverrir Agnarsson á Skjá einum. the@frettabladid.is RÁÐIST INN Í BETLEHEM Ísraelsk- ar hersveitir réðust inn í Bet- lehem í fyrradag og sprengdu í loft upp heimili Palestínu- manns sem gerði sjálfsmorðsárás í strætis- vagni í Jerúsalem á fimmtudag- inn. Fjöldi meintra vígamanna var handtekinn. Búist hafði verið við mun harðari hefndaraðgerðum vegna árásarinnar sem kostaði tíu Ísraela lífið. Hamas-samtökin hafa lýst ábyrgðinni á hendur sér. HAMAS BEITIR NÝJUM AÐFERÐUM Sheik Ahmed Yassin, leiðtogi Hamas, segir að samtökin ætli að leggja allt í sölurnar til að ræna ísraelsk- um hermönnunum og nota þá til að þvinga Ísraela til að láta palestínska fanga lausa úr haldi. Á fimmtudaginn slepptu Ísraelar á fimmta hund- rað arabískum föngum í skiptum fyrir ísraelskan kaupsýslumann og lík fjögurra hermanna. JIHAD-LEIÐTOGI SKOTINN TIL BANA Ísraelskar hersveitir skutu til bana Jihad Suwaiti, einn af leiðtogum samtakanna Íslamskt Jihad, skammt frá borginni Hebr- on á Vesturbakkanum í gær. Að sögn hersins skaut Suwaiti að her- mönnum þegar þeir ætluðu að handtaka hann og var hann því skotinn til bana. FIMMTÍU MISSTU HEIMILI SÍN Yfir fimmtíu manns misstu heim- ili sín þegar ísraelskar her- sveitir jöfnuðu við jörðu sex byggingar í þorpinu Silwad á Vesturbakk- anum í gær. Herinn eyðilagði meðal annars fjögurra hæða íbúðablokk þar sem nokkrir liðsmenn Hamas héldu eitt sinn til. Bakkavör Group: 2,8 milljarða hagnaður ATHAFNALÍF Hagnaður Bakkavarar Group fyrir skatta og fjár- magnsliði á árinu 2003 nam ríflega 2,8 milljörðum króna. Að teknu til- liti til skatta og afskrifta var hagn- aðurinn 1.708 milljónir. Rekstrar- niðurstaðan á árinu er mjög áþekk því sem greiningardeildir bank- anna höfðu gert ráð fyrir. Í ársreikningi segir meðal ann- ars að sala í Bretlandi hafi aukist um 30% á milli desember 2002 og desember 2003. Áfram er gert ráð fyrir töluverðum vexti í rekstri félagsins og ákvað stjórnin því að greiða hluthöfum ekki út arð. ■ Verslun & Varahlutir Grjóthálsi 1 • Sími: 575-1240 • www.bl.is WOLFRACE ÁLFELGUR Vörumerki þekkt fyrir einstök gæði í öllum stærðum og gerðum sjá vöruúrval á www.wolfrace.co.uk HEILSUGÆSLA Ný heilsugæsla í Salahverfi í Kópavogi var form- lega opnuð í gær. Þetta er einka- rekin heilsugæsla og var rekstur- inn boðinn út, en tekið var tilboði Nýsis hf. og félagsins Salus ehf. sem er í eigu læknanna Hauks Valdimarssonar og Böðvars Arnar Sigurjónssonar. Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra opnaði stöðina og sagði að hún hefði mikla þýðingu fyrir bæjarfélagið. Íbúar Linda-, Sala- og Vatnsendahverfa njóta for- gangs á heilsugæslustöðinni, sem mun þó einnig þjóna öðrum íbúum Kópavogs og nágrannasvæða. „Við sjáum fram á að geta full- nægt þörfinni fyrir heilsugæslu- þjónustu í Kópavogi. Hún á að geta þjónað allt að 12 þúsund manns,“ segir Haukur Valdimarsson. ■ GLÆSILEG HEILSUGÆSLA Í KÓPAVOGI Heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, opnaði formlega nýja heilsugæslustöð í Sala- hverfi í Kópavogi í gær. Stöðin á að geta fullnægt þörfinni fyrir heilsugæsluþjónustu í bæjarfélaginu. Ný heilsugæsla í Kópavogi: Þjónar 12 þús- und manns ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON Forstöðumaður markaðssviðs RÚV telur til- gang auglýsingarinnar að hæða eða skapa villuhugmyndir. SVERRIR AGNARSSON Auglýsingastjóri Skjás eins segir tilganginn að vekja athygli á því að Skjár einn gefi það sem aðrir selja. „Við höfum hugsað okkur að birta þessa auglýs- ingu um hver mánaðamót, um það leyti sem gíró- seðlar RÚV berast lands- mönnum. ■ Ísrael■ Evrópa FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.