Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 13

Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 13
13SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004 Mataræði og annað æði 21. janúar voru birtar niðurstöð-ur könnunar á mataræði Ís- lendinga þar sem kemur í ljós að ungt fólk neytir sykurs í óhófi, lif- ir helst á pitsum og fúlsar við fisk. Þetta ætti ekki koma neinum á óvart sem veit hvernig plebbakynslóðin lítur út. Það er skelfileg reynsla að ganga fram hjá Háskóla Íslands eða Mennta- skólanum í Reykjavík og horfa á akfeit ungmenni kjaga hjá. Stelp- urnar vagga eins og hænur, strák- arnir eru þungstígir sem fílar. Þau eru föl í framan af innisetum, andlitin alsett gosbólum og hárið líkast stríði. Sennilega fær hárið ekki rétta næringu og verður svona ljótt fyrir vikið. Nú er alkunna að fiskmeti er gott fyrir hjartað og sennilega heilann líka. Margt bendir til þess að börn sem neyta fiskmetis í rík- um mæli verði greindari fyrir vikið. Fiskifælni plebbakynslóð- arinnar kann að vera skýringin á því hversu andlaust unga fólkið er. Þessi kynslóð er fræg að endemum fyrir bókfælni og fá- fræði. Hún er líka illræmd fyrir ofbeldishneigð og kann skýring- arinnar á þeirri hneigð líka að vera að leita í mataræði. Rann- sóknir víða um lönd benda til þess að mikið draslfæðu- og sykurát auki ofbeldishneigð. Rangt matar- æði veldur ofbeldisæði! Ekki bæt- ir þetta át heilsu manna, hinir of- urfeitu unglingar dagsins í dag verða sykursýki- og hjartasjúk- lingar framtíðarinnar. Þessi kyn- slóð verður baggi á þjóðarbúinu, bæði vegna þessa og eins vegna andleysis síns. Í upplýsingarsam- félaginu kostar heimska peninga, menn þurfa að geta hugsað til að fóta sig í slíku samfélagi. Í ofan á lag kostar aukið ofbeldi stórfé, það er Skafti litli skattgreiðandi og Nanna neytandi sem þurfa að borga brúsann. Þessi óheillvænlega þróun er tvímælalaust bein og óbein afleið- ing af ameríkaníseringu Íslend- inga. Ameríkanísering er ekki bara spurning um menningu og móðurmál heldur beinharða pen- inga. Það er fjárhagstap af amerí- kaniseringu. Eigum við að senda Könunum reikninginn? ■ Umræðan STEFÁN SNÆVARR ■ skrifar um mataræði. Flestir eru eflaust nokkuð undr-andi á því hversu deilurnar um kvótakerfið eru orðnar langdregn- ar. Aðalástæðan fyrir því er kjark- leysi. Eins og forstjórar útgerða hafa ítrekað bent á er núverandi kvóta- kerfi mjög óhagkvæmt fyrirbæri og í raun aðeins tímabundin lausn. Því fylgir óþarfa óvissa sem felst í því að hægt er að innkalla kvótann án fyrirvara. Sú óvissa veldur tölu- verðu óhagræði og kemur í veg fyr- ir annars hagkvæma langtímafjár- festingu. Líkja má því aðstæðum út- gerðarmanna við húsnæðisaðstæð- ur hústökumanna í hjalli sem tafist hefur að rífa. Þeim er hægt að vísa á dyr hvenær sem er ólíkt húseig- endum eða leigjendum. Þeir sjá því lítinn tilgang í að þrífa og viðhalda hjallinum. Óhagræðing núverandi ástands Leiðirnar til að eyða óvissunni eru þrátt fyrir það vel þekktar: upp- boð á kvótum (fyrningarleið) eða eignarkvótar. Stór hluti landsmanna úr öllum stjórnmálaflokkum hefur um nokkra hríð barist fyrir fyrningar- leið. Lögð hafa verið fram laga- frumvörp málinu til stuðnings og er hún á stefnuskrá tveggja stjórn- málaflokka. Einnig nýtur leiðin mikils stuðnings meðal óháðra sér- fræðinga en þeim er fulljóst óhag- ræði núverandi ástands. Stuðningsmenn eignarkvóta hafa einnig verið duglegir við að færa rök fyrir sínum málstað. Í þeirra huga er allt annað en endan- leg afhending kvótans til núverandi handhafa helber sósíalismi og eignaupptaka. En þrátt fyrir stóru orðin og þrátt fyrir að þeir séu í rík- isstjórn hafa þeir ekki verið reiðu- búnir að koma hugsjónum sínum í framkvæmd. Ekki verið reiðubúnir að gera það sem til þarf og afhenda verðmætustu auðlind landsmanna hluthöfum í útgerðum. Leiðin að því markmiði er þekkt. Afnema þarf það ákvæði í stjórnarskránni sem tryggir landsmönnum lágmarks jafnrétti og breyta lögum um stjórn fiskveiða. Í framhaldi þarf svo að kjósa um gjörninginn. Atvinnugrein þjóðarinnar í óvissu Í aðgerðarleysi þeirra hljóma stóru orðin um sósíalisma og eign- arupptöku því ansi innihaldslítil og efi læðist að manni um ágæti eign- arkvóta þegar ekki er kjarkur til að berjast fyrir honum. Vonandi ná mennirnir þó að safna kjarki og láta verkin tala. Vonandi leggja þeir sitt af mörkum til að stuðla að uppgjöri milli þess- ara tveggja valkosta og ljúka þannig helsta deilumáli íslensku þjóðarinnar seinustu tvo áratugi. Undirstöðuatvinnugrein þjóðar- innar bíður í óvissu. ■ GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON ■ skrifar um kvótann UmræðanKjarkleysi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.