Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 14
14 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
■ Andlát
■ Afmæli
Sumarið 1816 komu alræmdustuuppreisnarseggir og tvö höfuð-
skáld bresku rómantíkunnar, Lord
Byron og Percy Shelley, saman í
Sviss og dvöldu við Genfarvatn
ásamt Mary, eiginkonu Shelleys,
stjúpsystur hennar Claire Godwin
og John Polidori. Þessi skrautlega
samkoma gat af sér tvær lífseig-
ustu sögupersónur hryllingsbók-
menntanna, þá Drakúla greifa og
óskapnað dr. Frankensteins.
Sagan segir að í rigningu og
leiðindum þann 16. júní hafi Byron
stungið upp á því að allir viðstadd-
ir segðu draugasögur sem yrðu
færðar á blað. Shelley skrifaði eitt-
hvað ómerkilegt, Byron byrjaði á
broti úr sögu og Polidori skrifaði
upphafið að „The Vampyre“ og
flestir eru sammála um að aðalper-
sónu sína hafi hann byggt á Byron
sem er þá fyrirmyndin að hinum
ódauðlega Drakúla.
Hin 19 ára gamla Mary var í
óstuði þetta kvöld en daginn eftir
skaut harmsaga Frankensteins upp
kollinum hjá henni. Hún lauk við
söguna í maí 1817 og hún var gefin
út 1. janúar 1818.
Shelley drukknaði fjórum árum
síðar, 1822, og Byron dó af völdum
hitasóttar í Grikklandi árið 1824.
Mary Shelley lést svo 53 ára gömul
árið 1851 en forynjurnar sem þetta
fólk skóp sumarið 1816 lifa góðu
lífi enn þann dag í dag. ■
Drífa Hjartardóttir alþingiskona
er 54 ára.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir borgarfulltrúi
er 48 ára.
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður
vinstri grænna, er 28 ára.
Atli Snæbjörnsson lést miðvikudaginn
28. janúar.
Elín Þórdís Björnsdóttir lést föstudag-
inn 30. janúar.
G. Hrefna Kristinsdóttir Pullen lést á
heimili sínu í Panama City í Flórída
fimmtudaginn 22. janúar. Útförin hefur
farið fram.
Guðmundur Óskar Guðmundsson bif-
vélavirki, Austurbergi 28, Reykjavík, lést
mánudaginn 26. janúar.
Mér finnst mjög gott að veraeinn á afmælisdaginn,“ segir
Birgir Örn Thoroddsen eða Bibbi
Curver fjöllistamaður sem er 28
ára í dag. „Stundum hef ég reynt
að skoða eitthvað og gera eitthvað
sem ég hef ekki gert áður.“
Á táningsárunum segir Bibbi
að vinir hans hafi komið saman og
horft á teiknimyndir um hundinn
Droopy. „Ég hætti svo með það
þegar ég var tvítugur og fór þá í
að vera einn með sjálfum mér og
upplifa mig. Mér hefur alltaf
fundist þetta vera sérstæðari dag-
ar en aðrir dagar því maður er svo
næmur á afmælisdaginn.“
Þennan afmælidag ætlar Bibbi
að njóta menningar. „Ég byrja
daginn á að fara í sund og í heita
pottinn. Svo borða ég hádegismat,
eitthvað rólegt. Eftir mat ætla í
Gerðasafn í Kópavogi að sjá
Carnegie Arts Award og mig lang-
ar líka til að fara á flúxussýning-
una í Listasafni Íslands. Í dag er
fyrirlestur hjá Gunnari J. Árna-
syni í tengslum við sýningu Ólafs
Elíassonar í Listasafni Reykjavík-
ur. Þar vinn ég sem tæknimaður
og þarf því að mæta til vinnu en
mig langar líka að fara og hlusta á
hann. Í kvöld fer ég og borða með
fjölskyldunni. Pabbi er vanur
matreiðslumaður og ég þori að
veðja að það verði fínn afmælis-
matur. Þetta er það eina sem ég
ætla að gera með öðru fólki þenn-
an dag því eftir matinn fer ég í bíó
að sjá Heim farfuglanna. Mér
finnst æðislegt að fara einn í bíó
því þá getur maður verið í sínum
eigin heimi og enginn að trufla
mann.“ Síðan bætir hann við „ég
er ekki venjulega svona mikill
menningarsnobbari en þetta hittir
ágætlega á þennan dag.
Það afmæli Bibba sem honum
finnst virkilega eftirminnilegt er
frá því hann varð 25 ára. „Ég fór í
kínverskt nudd og keypti mér
kung fu galla. Svo fór ég einn á
Holtið í gallanum og var bara einn
í salnum. Með matnum drakk ég
endalaust af lítilli kók, því um leið
og ein var búin kom þjónninn með
nýja. Svo fór ég í bíó.“ ■
Afmæli
BIRGIR ÖRN THORODDSEN
ER 28 ÁRA
■ nýtur menningar í friði á
afmælidaginn.
BRANDON LEE
Leikari og sonur karatehetjunnar Bruce
Lee fæddist á þessum degi árið 1965.
Hann lést af völdum voðaskots við gerð
kvikmyndarinnar The Crow árið 1993.
1. febrúar
■ Þetta gerðist
1946 Norski þingmaðurinn Trygve Lie er
valinn fyrsti aðalritari Sameinuðu
þjóðanna.
1966 Buster Keaton, einn þekktasti
gamanleikari þöglu myndanna,
deyr 69 ára að aldri.
1979 Fjölmiðlaerfinginn Patty Hearst
losnar úr fangelsi eftir að Jimmy
Carter, forseti Bandaríkjanna, gef
ur henni upp sakir fyrir bankarán.
1982 Sjónvarpsþátturinn Late Night
With David Letterman hefur
göngu sína hjá NBC sjónvarps
stöðinni.
1986 Dick James, tónlistarútgefandi Bítl-
anna á árunum 1962–1970 deyr í
London 58 ára gamall.
1994 Jeff Gillooly, fyrrum eiginmaður
skautadrottningarinnar Tonya
Harding, viðurkennir að hafa tekið
þátt í líkamsárás á keppinaut Tonya,
skautakonuna Nancy Kerrigan.
2003 Sjö manna áhöfn geimskutlunnar
Columbia frá NASA ferst þegar
flaugin springur yfir Texas 16 mín-
útum fyrir lendingu.
FRANKENSTEIN
Saga Mary Shelley um vísindamanninn
sem reyndi að sigrast á dauðanum virðist
höfða til lesenda á öllum tímum enda
skörp ádeila um þær skelfilegu afleiðingar
sem það getur haft í för með sér að
maðurinn fikti við sköpunarverkið.
MARY SHELLEY
■ Höfundur sígildu sögunnar um
Frankenstein fellur frá 53 ára gömul.
1. febrúar
1851
Menningarþema
þetta árið
Ástkær dóttir mín, systir okkar og mágkona
G. Hrefna Kristinsdóttir Pullen
f. 14. júní 1940
lést að heimili sínu í Panama City, Florida, þann
25. janúar sl. Útför hennar fór fram frá Heritage
Funeral Home Chapel. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Ágústa Gústafsdóttir
Friðrik Kristinsson Þórný Elísdóttir
Hlín Kristinsdóttir Hreinn Jónsson
Þórarinn Kristinsson Erla Ármannsdóttir
Hjördís Björg Kristinsdóttir Sigurður Hendriksson
Gústaf Kristinsson Gyða Maja Guðjónsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Þuríður Guðrún Ólafsdóttir
frá Króksfjarðarnesi,
tilheimilis að Hæðargarði 33, Reykjavík
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Ólafía B. Ólafsdóttir, Halldór Þ. Þórðarson,
Haraldur H. Sigurðsson,
Anna K. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Jón Sigurðsson, sem hafnaði íöðru sæti Idol - stjörnuleitar, er
ekki bara efnilegur söngvari held-
ur stendur hann sig líka vel í öskr-
unum og hefur verið einn hávær-
asti stuðningsmaður Safamýrar-
stórveldisins Fram á síðustu
árum. Stuðningsmannafélag liðs-
ins, FRAMherjar, gerðu Jón að
heiðursfélaga á dögunum, bæði
fyrir dyggan stuðning við liðið á
áhorfendapöllunum og ekki síður
fyrir að hafa mætt ítrekað í Idol-
útsendingar með Framtrefil um
hálsinn en Jón þykir þannig hafa
sýnt það fyrir framan tugþúsund-
ir landsmanna að hann er Fram-
ari, og stoltur af því.
Forseti FRAMherja, Auðun
Georg Ólafsson, og Stefán Páls-
son, áróðursmeistari félagsins, af-
hentu Jóni viðurkenningarskjal á
dögunum um leið og þeir lögðu á
ráðin um hvernig kraftar popp-
stjörnunnar megi nýtast félaginu
sem best á komandi mánuðum. ■
VASKIR FRAMHERJAR
Fimmhundraðkallinn Jón Sigurðsson þykir
ekki síður liðtækur á áhorfendapöllum
knattspyrnuvalla en á sviðinu í Smáralind.
Hann er stoltur Framari og hefur nú hlotið
sérstaka viðurkenningu fyrir úthaldið og
það að þora að ganga með Framtrefil.
Idol
JÓN SIGURÐSSON IDOLKEPPANDI
■ er orðinn heiðursfélagi í FRAMherj-
um, stuðningsmannaklúbbi blástakkanna
frá Safamýri.
Framarar eiga sitt ídol
Skapari Frankensteins deyr
BIRGIR ÖRN THORODDSEN
Kennir hljóðhönnun í Borgarholtsskóla og er með Einari Erni Benediktssyni í Ghostigital að semja tónlist fyrir Draugalestina sem frum-
sýnd verður í Borgarleikhúsinu um miðjan febrúar.
Foreldrar -
Sýnum ábyrgð
Áfengi má ekki selja, veita
eða afhenda ungmennum
undir 20 ára aldri.