Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 17
17SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004
fjármálafyrirtækja í atvinnu-
starfsemi.“
Flugleiðir eru í ólíkri starfsemi
þeirrar kjarnastarfsemi sem þeir
Jón Helgi hafa unnið í. Kaupin á
Kaupási falla vel að rekstri
BYKO. Kaupás rekur smásölu-
verslanir og ýmis samlegðaráhrif
augljós milli fyrirtækjanna.
„Flugleiðir eru auðvitað allt öðru-
vísi, enda verður verkaskipting
okkar þannig að Jón Helgi mun
sinna smásölunni, en ég mun
beina kröftunum að fjárfesting-
unni í Flugleiðum. Þetta liggur
ekki saman. Annars vegar eru
menn í sínum grunnrekstri og
hins vegar að ávaxta peninga.“
Hannes segir að þeir telji rétt-
an tíma til að fjárfesta í Flugleið-
um. Að baki séu áföll eins og 11.
september og ytri skilyrði fyrir
reksturinn ágæt. „Það gefur
manni vonir um að framundan séu
eitt til þrjú ágæt ár. Það getur
skipt sköpum í rekstri eins og hjá
Flugleiðum. Fjármunamyndun er
mikil þegar vel gengur, eins og
það er að sama skapi mikið tap
þegar á móti blæs. Við erum að
veðja á gott gengi í rekstrinum á
næstu árum.“
Þurfum að skilja reksturinn
Flugleiðir eru í margþættri
starfsemi, allt frá rekstri flug-
véla niður í hestaleigur. Margir
þykjast sjá möguleika í því að
selja einingar frá félaginu. „Við
viljum ekkert útiloka í því efni.
Auðvitað eru ákveðin verðmæti í
heildinni. Menn þurfa í þessu
sem öðru að skoða mörkin.“
Hann bendir á að þegar Henry
Ford hóf bílaframleiðslu hafi stál
og gúmmí farið inn um annan
enda verksmiðjunnar og bíll
komið út um hinn. „Í dag eru
menn að kaupa hlutina og raða
þeim saman. Markaðurinn þró-
ast. Við þurfum fyrst að skilja
reksturinn síðan að reyna að átta
sig á því hvort sú uppsetning
sem er í dag hámarki arðsemina
af fyrirtækinu.“
Kaupin á Flugleiðum eru fjár-
festing, og Hannes og Jón Helgi
nálgast hana sem slíka. „Við
nálgumst þetta ekki út frá nein-
um öðrum lögmálum. Við gerum
okkur grein fyrir því að það geta
verið miklar sveiflur, þannig að
við teljum mikilvægt að setja
þetta upp sem langtímafjár-
festingu. Svo er alltaf spurningin
um skilgreiningu þess hvað sé
langur tími. Við erum ekki að
kaupa þessi bréf til að selja þau
fljótlega aftur. Hugsunin er sú að
arðsemin komi af rekstri fyrir-
tækisins. Við ætlum að vera
virkir hluthafar í félaginu.“
Flugleiðir eru mikilvægt fyr-
irtæki fyrir tengsl Íslendinga við
útlönd. Samfélagsábyrgð er eitt
þeirra hugtaka sem menn hafa
nefnt í sambandi við kjölfestu-
eign í félaginu. „Við hljótum að
horfa til þess að það þarf að um-
gangast félagið með gát. Flug-
leiðir eru lífæð fyrir þjóðina. Við
munum hugsa vel afleiðingar
þeirra ákvarðana sem við tökum.
Það þarf að huga að snertifletin-
um milli félagsins og þjóðarinn-
ar. Að sama skapi ætlum við
heldur ekki að sitja upp með
fjárfestingu sem ekki skilar
arði.“ Hannes segir með ólíkind-
um miðað við stærð þjóðarinnar
að við eigum svo stórt og öflugt
flugfélag. „Ég held ég hafi flogið
50 þúsund mílur innan Banda-
ríkjanna á síðasta ári. Flugsam-
göngur innan Bandaríkjanna eru
langt að baki flugsamgöngum Ís-
lendinga.“
Hannes segir þá skoða að fá
fleiri fjárfesta til að koma að fé-
laginu. Jón Ásgeir Jóhannesson
ræður ásamt fjölskyldi sinni um
21% í félaginu. Hann segir þá
Jón Ásgeir hafa ræðst við í síma.
„Við höfum ekki náð að hittast,
vegna þess að við höfum ekki
verið á landinu á sama tíma.“ Það
muni hins vegar verða fljótlega.
Miðað við að verkaskiptingin
milli Jóns Helga og Hannesar sé
sú að Hannes fylgist með Flug-
leiðum verður að teljast líklegt
að stjórnarformennska Flugleiða
verði hans hlutverk. Hann gefur
ekkert út á það. „Við munum
setjast niður með öðrum hluthöf-
um og mynda starfhæfa stjórn.“
haflidi@frettabladid.is
c a r n e g i e
a r t
awa r d
2 0 0 4
listasafn kópavogs
gerðarsafn, hamraborg 4, kópavogi
12. desember - 22. febrúar
opnunartímar: alla daga nema mánudaga kl. 11 - 17
leiðsögn: miðvikud. og fimmtud. kl. 12, laugard. og sunnud. kl. 15
Nina Roos, Untitled from Habit Suddenly Broken
Verið velkomin til málþings um íslenska nútímalist.
Laugardaginn 7. febrúar, 2004, kl. 11-14.30.
Í Salnum - Tónlistarhúsi Kópavogs,
Hamraborg 6, Kópavogi.
Þátttökugjald: 1000 kr. sem greiðist við skráningu
(léttur hádegisverður innifalinn).
Þeir sem ráðgera að taka þátt í málþinginu hafi
samband við Ásdísi Arnardóttur, asdisa@kopavogur.is,
síma 570 0440, í síðasta lagi þann 3. febrúar.
Aðgangur takmarkaður.
ein veglegustu myndlistarverðlaun í heimi.
sýning á verðlaunaverkunum stendur
nú yfir á íslandi
Þátttakendur:
Ulrika Levén, sýningarstjóri, Carnegie Art Award,
flytur inngang.
Halldór Björn Runólfsson, lektor við Listaháskóla Íslands og
dómnefndarmaður Carnegie Art Award.
Anders Kreuger, sýningarstjóri og kennari við
Royal College of Art, Lundúnum.
Lars Grambye, forstöðumaður Malmö Konsthall.
Þóroddur Bjarnason, myndlistargagnrýnandi á Morgunblaðinu,
ræðir við Steingrím Eyfjörð, myndlistarmann.
www.carnegieartaward.com
málþing 7. febrúar – „waste of money?”
ARÐUR OG ÁBYRGÐ
Flugleiðir eru lífæð fyrir þjóðina. Við munum hugsa vel afleiðingar þeirra ákvarðana sem
við tökum. Það þarf að huga að snertifletinum milli félagsins og þjóðarinnar. Að sama
skapi ætlum við heldur ekki að sitja upp með fjárfestingu sem ekki skilar arði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA