Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 30
Suður-Afríka er fallegt land ogmargt áhugavert fyrir ferða-
mann að skoða og upplifa. Tíu ár
eru síðan fyrstu kosningar voru
haldnar í landinu eftir að aðskiln-
aðarstefnan var afnumin. Síðan þá
hefur ANC, flokkur Nelsons Mand-
ela, verið við völdin. Suður-Afríka
er ríkara en öll önnur lönd í Afríku
sunnan Sahara og auðveldara að
ferðast þar um en víða annars stað-
ar; samgöngur eru t.d. góðar og
túrismi mjög þróaður. Fyrir Íslend-
ing er mjög ódýrt að borða og gista
í Suður-Afríku sem er vitaskuld
kostur. Glæpir eru hins vegar tíðir
í landinu og því nauðsynlegt að
sýna varkárni á ferðalagi um land-
ið.
Tvær stærstu borgir Suður-Afr-
íku, Jóhannesarborg og Höfðaborg,
voru sóttar heim í ferðalagi blaða-
manns Fréttablaðsins. Þær eru
báðar áhugaverðar heim að sækja
– en ólíkar mjög. Báðar bjóða þær
upp á mjög áhugaverðar skoðunar-
ferðir sem gefa manni tækifæri til
að komast í návígi við blóði drifna
sögu landsins.
Rétt fyrir utan Höfðaborg er
eyjan Robben Island þar sem póli-
tískir fangar voru í haldi, þeirra
frægastur að sjálfsögðu Nelson
Mandela. Fangelsinu hefur verið
breytt í safn og skoðunarferðin er
sú áhrifamesta safnaferð sem und-
irrituð hefur farið í, ekki síst vegna
þess að leiðsögumaðurinn um fang-
elsið og sögu þess var fyrrum póli-
tískur fangi.
Í Jóhannesarborg er ekki hægt
að sleppa skoðunarferð um Soweto,
stærsta svertingjahverfi Jóhann-
esarborgar. Hingað sópuðu yfir-
völd aðskilnaðarstefnunnar svert-
ingjum, best þótti að þeir byggju
sem lengst frá borginni sjálfri. Hér
bjó Nelson Mandela áður en hann
var hnepptur í fangelsi, hér var
miðstöð baráttunnar gegn aðskiln-
aðarhreyfingunni. Hverfið er gríð- arlega stórt og raunar gríðarlega
fjölbreytt. Ekki er mælt með öðru
en að ferðamenn skoði hverfið í
skoðunarferð. Langbest er að fara í
slíka ferð í fámennum hópi. Undir-
rituð getur mælt með Dinaka-
ferðaskrifstofunni sem skipulegg-
ur slíkar ferðir. Hún hefst í
Motswaledi-hverfinu í Soweto sem
er einn af fátækari hlutunum, ekk-
ert holræsahverfi og rennandi vatn
af skornum skammti. Skoðunar-
ferðinni lýkur í Wandi's Place veit-
ingastaðnum sem býður upp á
hefðbundið afrískt hlaðborð fyrir
50 rönd (um 600 kr.). Stúdenta-
mótmælin 1976 sem voru vendi-
punktur í baráttunni gegn aðskiln-
aðarstefnunni eru rauður þráður í
ferðinni. Safnið í Soweto er nefnt
eftir fyrsta fórnarlambi lögregl-
unnar í óeirðunum sem þeim fyl-
gdu, Hector Pieterson. Það er af-
skaplega áhugavert safn sem auk
þess að fjalla um mótmælin segir
frá sögu Suður-Afríku aðskilnaðar-
stefnunnar.
Ýmislegt fleira er að sjá í Jó-
hannesarborg, undirrituð mælir til
dæmis með Melville-hverfinu sem
minnir eilítið á Notting Hill í
London, þar eru líflegir barir og
skemmtilegt götulíf. Íbúarnir þar
hafa tekið afnám aðskilnaðar-
stefnunnar alvarlega og fólk af öll-
um kynþáttum býr þar saman í sátt
og samlyndi.
Suður-Afríka býður upp á ýmis-
legt fleira áhugavert fyrir ferða-
menn en Höfðaborg og Jóhannesar-
borg. Auðvelt er að finna fallegar
strendur og fyrir göngugarpa er af
nógu að taka. Kruger-þjóðgarðurinn
er að sjálfsögðu alveg frábær
skemmtun. Í honum er hægt að
dvelja í marga daga. Þónokkrir
gististaðir eru í garðinum og er bæði
hægt að aka um hann í eigin bíla-
leigubíl eða bóka sig í ferðir. Einnig
er hægt að fara í gönguferðir með
sérþjálfuðu starfsfólki garðsins.
sigridur@frettabladid.is
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Ferðast til Suður-Afríku:
Á slóðum Nelsons Mandela
Icelandic Hotel Selfoss . Eyrarvegi 2 . 800 Selfoss . selfoss@icelandichotels. is . www.icelandichotels. is
l á t t u o k k u r u m
skipulagið
við gerum tilboð í
aðrar
árshátíðir, ráðstefnur,
fundi &
uppákomur
HOTELSELFOSS
SÍMI 480 2500
Costa del Sol
Nýjasti áfangastaður Plúsferða er Costa del Sol áSpáni. Beint leiguflug með Lofleiðum-Icelandair.
Margir gististaðir eru í boði. Verð frá 54.942 á mann
í 14 nætur í íbúð á Santa Clara miðað við tvo full-
orðna og tvö börn 2ja–11 ára og 67.830 ef tveir ferð-
ast saman og gista í stúdíói. Innifalið er: flug, flug-
vallarskattar, gisting,10.000 kr. bókunarafsláttur,
akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk farar-
stjórn. ■
SUÐUR-AFRÍKA
Fjöldi íbúa: 43 milljónir
Höfuðborgir: Höfðaborg, Pretoria og
Bloemfontein
Tungumál: zulu, xhosa, afrikaans, pedi,
enska, tswana, sotho, tsonga, swati,
venda, ndebele
Mynt: rönd
SKEMMTILEGT Í
JÓHANNESARBORG
Melville-hverfið: Minnir á Notting Hill í
London; skemmtilegir barir og búðir
Sandton-verslunarmiðstöðin: Frábær-
ar verslanir og veitingahús í nýju og
öruggu hverfi
Museum Africa: Fróðlegt safn um sögu
og menningu Suður-Afríku
SKEMMTILEGT Í HÖFÐABORG
OG NÁGRENNI
Skoðunarferð um Góðravonarhöfða
Vínsmökkun í vínhéruðunum
Camp Bay: Góð veitingahús við fallega
strönd
Table Mountain: Frábært útsýni er af
einkennisfjalli Höfðaborgar
Longmarket str: Lífleg kaffihús og barir
TENGLAR SKOÐUNARFERÐA
Í Jóhannesarborg:
dinakatours@hotmail.com
Í Höfðaborg:
www.aquacycletours.co.za
FLUG TIL SUÐUR-AFRÍKU
Meðal flugfélaga sem fljúga til Suður-
Afríku frá Evrópu eru South African Air-
lines, British Airways og Air France.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni www.airports.co.za. Til-
valið er að skoða ferðabækur um land-
ið áður en haldið er af stað. Lonely
planet handbókin er mjög góð og er
allar upplýsingar, sem hver ferðamaður
þarf, að finna í henni.
SOWETO
Motswaledi er fátækasti hluti
þessa fræga hverfis.
SPEECH
Fyrrum fangi á Robbin Island
deilir sögu sinni með gestum.
HÖFÐABORG
Af Table Mountain er glæsilegt útsýni yfir Höfðaborg. Hægt er að fara upp fjallið í útsýnis-
lyftu, en einnig eru fjölmargar gönguleiðir upp á fjallið.
WATERFRONT
Nýbyggt bryggjuhverfi Höfðaborgar.