Fréttablaðið - 01.02.2004, Page 38
38 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
MISJAFN SAUÐUR Í MÖRGU FÉ
Þeir eru oft á tíðum æði skrautlegir stuðn-
ingsmenn liðanna í Afríkukeppninni í
knattspyrnu. Hér sést einn stuðningsmað-
ur nígeríska landsliðsins fyrir leikinn gegn
Suður Afríku í gær.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
29 30 31 1 2 3 4
FEBRÚAR
Sunnudagur
Undanúrslit EM í handbolta:
Þjóðverjar í úrslitaleikinn
HANDBOLTI Þjóðverjar tryggðu sér
sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í
handknattleik í Slóveníu í gær
með því að leggja Dani að velli,
22-20, í Tivoli-höllinni í Ljubljana í
undanúrslitum.
Þetta verður þriðji úrslitaleik-
ur Þjóðverja á undanförnum
þremur stórmótum en þeir töpuðu
fyrir Svíum í úrslitaleik EM fyrir
tveimur árum og fyrir Króötum á
HM í Portúgal í fyrra. Leikurinn
var gífurlega jafn allan tímann,
staðan var jöfn, 11-11, í hálfleik og
munurinn á liðunum var aldrei
meiri en tvö mörk. Lokamínútur
leiksins voru gífurlega spennandi.
Lars Krogh Jeppesen jafnaði met-
in, 20-20, fyrir Dani með þrumu-
skoti þegar rúmur fimm mínútur
voru eftir.
Hinn hávaxni Volker Zerbe
kom Þjóðverjum yfir, 21-20, þegar
fjórar mínútur voru eftir og
Daniel Stephan gulltryggði sigur
Þjóðverja alveg undir lokin.
Markverðir liðanna, Henning
Fritz hjá Þjóðverjum og Kasper
Hvidt hjá Dönum, fóru á kostum í
leiknum. Fritz varði nítján skot en
Hvidt varði sautján.
Lars Krogh Jeppesen var
markahæstur hjá Dönum með
fimm mörk, Lars Christiansen og
Michael Knudsen skoruðu fjögur
mörk hvor, Klavs Bruun Jörgen-
sen og Sören Stryger skoruðu
þrjú mörk hvor og Joachim Bold-
sen skoraði eitt mark.
Jan-Olaf Immel skoraði mest í
þýska liðinu, sjö mörk alls, Volker
Zerbe skoraði sex mörk, Steffan
Weber, Christian Schwarzer og
Heiko Grimm skoruðu tvö mörk
hver og Pascal Hens, Christian
Zeitz og Daniel Stephan skoruðu
eitt mark hver. ■
100 ár frá fæð-
ingu föður FH
Hallsteinn Hinriksson hefði orðið hundrað ára á morgun en
hann er af flestum talinn vera faðir Fimleikafélags Hafnarfjarðar.
AFMÆLI Þetta er mikið afmælisár í
Hafnarfirði því FH-ingar fagna
tveimur stórum afmælum á þessu
ári. Því fyrra fagna FH-ingar á
mánudaginn þegar 100 ár eru lið-
in frá fæðingu Hallsteins Hinriks-
sonar, sem stofnaði FH ásamt tíu
ungum fimleikadrengjum úr
Íþróttafélagi Hafnarfjarðar þann
15. október 1929.
Hallsteinn fæddist 2. febrúar
1904. Seinna stórafmælið á árinu
verður 75 ára afmæli félagsins og
ætla FH-ingar þá að gefa út bók
um sögu félagsins. Hallsteinn
Hinriksson er mesti áhrifamaður
FH frá upphafi og ekki aðeins fyr-
ir það að hann stofnaði félagið
heldur vegna þess að hann stóð í
fararbroddi í starfi félagsins allt
frá stofndegi til dauðadags en
Hallsteinn lést 19. október 1974.
Ævi Hallsteins og starf FH var
samtvinnað hvern einasta dag
sem hann lifði og honum var
félagið og íþróttaæska bæjarins
einkar hjartfólgin. Þeir sem minn-
ast Hallsteins þykir gaman að tala
um hversu mikla áherslu hann
lagði á prúðmannalega og virðu-
lega framkomu. Frábært dæmi
um það er að hann mætti alltaf til
starfa, hvort sem það var við
íþróttakennslu í Barnaskóla Hafn-
arfjarðar eða í þjálfun á vegum
FH, íklæddur jakkafötum, skyrtu
og með bindi. Stíll Hallsteins var
einfaldur í orði, stundvísi, agi og
snyrtimennska, en það þurfti góð-
an læriföður með smitandi áhuga
og ótrúlega seiglu til halda hópn-
um saman til að ná þeim frábæra
árangri sem íþróttalið og íþrótta-
menn félagsins náðu undir hans
stjórn. Hafnarfjarðarbær varð
líka mikill íþróttabær ekki síst
fyrir tilstuðlan FH sem varð strax
mjög áberandi í íþróttalífi lands-
manna.
Fyrst keppti félagið í fimleik-
um pilta og stúlkna en síðar í
frjálsum íþróttum þar Hallsteinn
sjálfur var mikill afreksmaður og
meðal annars fyrsti Íslandsmeist-
ari félagsins þegar hann vann
stangarstökk á Íslandsmeistara-
mótinu 1935. Mesta brautryðj-
andastarf Hallsteins á landsvísu
var þó örugglega að innleiða
handboltann hér á landi en hingað
bar hann íþróttina frá Danmörku
þar sem hann hafði stundað nám.
Hallsteinn hefur löngum verið
kallaður faðir handknattleiksins
bæði hér á landi sem og í Hafnar-
firði en undir hans stjórn varð FH
afar sigursælt og vann fjölmarga
Íslandsmeistaratitla á árunum
eftir 1954.
Hallsteinn var auk þess fyrsti
landsliðsþjálfarinn sem fór með Ís-
land á stórmót en hann stjórnaði ís-
lenska landsliðinu á HM í Austur-
Þýskalandi 1958 og HM 1961 í Vest-
ur-Þýskalandi. Það var heldur ekki
nóg með að hann sjálfur hefði tekið
virkan þátt í leik og starfi félagsins
heldur urðu öll börnin hans fjögur
Ingvar, Örn, Sylvía og Geir öll
afreksfólk á vegum félagsins og
barnabarn hans Logi Geirsson, er í
dag aðalmaðurinn í liði FH og ann-
ar af markahæstu mönnum Íslands-
mótsins, eitthvað sem Geir sjálfur
afrekaði margoft á sínum ferli.
FH-ingar sýna með þessari hátíð
sinni í Kaplakrika á mánudaginn að
þeir leggja ofurkapp á að viðhalda
þeim anda sem var byggður upp í
félaginu undir stjórn Hallsteins á
fyrstu árum félagsins og þarna
verður virðuleg minningarstund
um einstakan foringja félagsins. ■
HALLSTEINN HINRIKSSON, FAÐIR FH
Hallsteinn Hinriksson er mesti áhrifamaður
FH frá upphafi. Ekki aðeins fyrir þær sakir
að hann stofnaði félagið heldur einkum
vegna þess að hann stóð í fararbroddi í
starfi félagsins allt frá stofndegi
til dauðadags.
LOGI GEIRSSON
Logi Geirsson, barnabarn Hallsteins Hinrikssonar er bjartasta von FH í handknattleiknum í dag.
ÞJÓÐVERJAR Í ÚRSLIT
Daniel Stephan, leikstjórnandi Þjóðverja,
fagnar hér eftir að Þjóðverjar lögðu Dani í
gær og tryggðu sér sæti í úrslitaleik EM.
Íþróttamaður
Reykjavíkur 2003:
Karen Björk
varð fyrir
valinu
VIÐURKENNING Dansarinn Karen
Björk Björgvinsdóttir úr ÍR var
valinn Íþróttamaður Reykjavíkur
árið 2003 á föstudagskvöldið.
Karen Björk varð heimsmeistari í
10 samkvæmisdönsum ásamt
eiginmanni sínum og dansfélaga
Adam Reeve en þau sigruðu ein-
nig á Opna ástralska meistara-
mótinu í sígildum samkvæmis-
dönsum.
Karen og Adam urðu í öðru
sæti á alþjóðlegu opnu dans-
keppninni Universal Cup en
Karen fékk 150 þúsund króna
styrk frá Íþróttabandalagi
Reykjavíkur auk farandbikars.
Þetta er fjórða árið í röð sem
kvennmaður fer með sigur af
hólmi í kjöri Íþróttamanns
Reykjavíkur og það þarf að fara
aftur til ársins 1999 til að finna
karlkyns sigurvegara en þá varð
Þormóður Egilsson, fyrirliði
meistaraflokks KR í knattspyrnu,
fyrir valinu. ■
LEIKIR
13.15 Höttur mætir Þór í Bogan-
um í Powerade-mótinu í knatt-
spyrnu.
15.15 Tindastóll mætir Völsungi í
Boganum í Powerade-mótinu í
knattspyrnu.
19.00 ÍR mætir Leikni í Egilshöll í
A-riðli Reykjavíkurmóts karla í
knattspyrnu.
19.15 Haukar leikur við Grindavík
á Ásvöllum í INTERSPORT-deild-
inni í körfubolta.
19.15 Njarðvík leikur við Hamar í
Njarðvík í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 KFÍ og Þór Þ. keppa á Ísa-
firði í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 Tindastóll leikur við KR á
Sauðárkróki í INTERSPORT-deild-
inni í körfubolta.
19.15 Breiðablik leikur við ÍR í
Smáranum í INTERSPORT-deild-
inni í körfubolta.
19.15 Snæfell leikur við Keflavík í
Stykkishólmi í INTERSPORT-deild-
inni í körfubolta.
21.00 KR mætir Þrótti í Egilshöll í
A-riðli Reykjavíkurmóts karla í
knattspyrnu.
SJÓNVARP
11.20 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Frakka og
Rússa um fimmta sætið á EM.
12.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn. Guðni Bergsson og Heimir
Karlsson fara yfir leiki laugardags-
ins í ensku úrvalsdeildinni.
13.45 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Blackburn og
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
13.50 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Dana og
Króata um þriðja sætið á EM.
15.30 Markaregn á RÚV. Sýnt frá
mörkum helgarinnar í þýsku 1.
deildinni í knattspyrnu.
15.50 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Arsenal og
Manchester City í ensku úrvals-
deildinni.
16.20 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá úrslitaleik Þjóðverja
og Slóvena á EM.
17.50 NBA-deildin á Sýn. Bein út-
sending frá leik Toronto Raptors
og Los Angeles Lakers í NBA-
deildinni.
21.45 Helgarsportið á RÚV. Stiklað
á stóru í íþróttum helgarinnar.
22.20 NFL-deildin á Sýn. Leiðin að
Ofurskálinni. Farið yfir tímabilið
hjá liðunum tveimur sem mætast
í leiknum um Ofurskálina.
23.10 NFL-deildin á Sýn. Bein út-
sending frá leik New England
Patriots og Carolina Panthers
um Ofurskálina í NFL-deildinni.
Afríkukeppnin í
knattspyrnu:
Öruggt hjá
Nígeríu
FÓTBOLTI Nígeríumenn unnu
öruggan og auðveldan sigur á
Suður Afríkumönnum, 4–0, í
Afríkukeppninni í knattspyrnu í
gær en keppnin fer fram í Túnis.
Það var varnarmaðurinn
Joseph Yobo, sem leikur með
enska úrvalsdeildarliðinu Ever-
ton, sem skoraði fyrsta markið
eftir mistök Emile Baron, mark-
varðar Suður Afríku. Jay Jay
Okocha, fyrirliði Nígeríu, skoraði
síðan annað markið úr vítaspyrnu
en markið var jafnramt 1000.
markið í Afríkukeppninni frá
upphafi.
Varamaðurinn Osaze Odem-
wingie bætti síðan við tveimur
mörkum á síðustu tíu mínútum
leiksins og gulltryggði glæstan
sigur Nígeríumanna. Jay Jay
Okocha lék sinn fyrsta leik með
Nígeríumönnum í keppninni og
var allt annað að sjá til liðsins
með tilkomu kappans. ■
RE/MAX-deild kvenna:
Enn sigur
hjá ÍBV
HANDBOLTI ÍBV komst á topp
RE/MAX-deildar kvenna í hand-
knattleik í gær þegar liðið bar sig-
urorð af Stjörnunni, 37–29, í leik
liðanna í Garðbæ. Fram og
Grótta/KR skildu jöfn, 23–23, í
Íþróttahúsi Fram og Víkingur
beið lægri hlut fyrir FH, 26–21, í
Víkinni. Að lokum unnu
Haukastúlkur sigur á KA/Þór,
37–33. ■