Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 40
FÓTBOLTI Það er ýmislegt búið að
ganga á í herbúðum Englands-
meistara Manchester United í
vikunni en það virtist ekki hafa
nein áhrif á liðið þegar það mætti
Southampton á Old Trafford.
Franski framherjinn Louis Saha,
s e m
var að
s p i l a
s i n n
f y r s t a
leik fyrir
félagið síðan
hann kom til
liðsins frá
Fulham fyrir 12,5
milljónir punda, sló
heldur betur í gegn
strax í sínum fyrsta leik og
það tók hann aðeins átján
mínútur að skora sitt fyrsta
mark fyrir félagið. Saha skoraði
þá beint úr aukaspyrnu, sem hafði
reyndar viðkomu í varnarmanni
Southampton. Hann var síðan
aftur á ferðinni á 37. mínútu en þá
náði finnski markvörðurinn Antti
Niemi ekki að halda þrumuskoti
hans sem datt fyrir fætur Paul
Scholes. Hann þakkaði gott boð og
skoraði af öryggi. Kevin Phillips
minnkaði muninn fyrir Sout-
hampton strax í næstu sókn og
hann jafnaði síðan metin í byrjun
síðari hálfleiks. Hollenski marka-
hrókurinn Ruud Van Nistelrooy,
sem skrifaði undir nýjan fimm
ára samning við Manchester
United á föstudaginn, tryggði
liðinu síðan sigurinn á 61. mínútu
og toppsætið í það minnsta þar til
seinni partinn í dag þegar
Arsenal tekur á móti Man-
chester City.
Stóð sig vel
Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester Uni-
ted, var mjög sáttur í leikslok og
hrósaði Louis Saha og Ruud Van
Nistelrooy sérstaklega.
„Saha stóð sig mjög vel í
leiknum og ég var mjög sáttur við
framlag hans í leiknum. Ég tók
hann út af því að hann var orðinn
þreyttur enda ekki vanur svona
hraðri knattspyrnu. Við þurfum
að vinna meira í því að mynda
skilning á milli hans og Van
Nistelrooy en ég hef ekki nokkra
trú á öðru en að það komi með
tímanum. Það mikilvægasta fyrir
okkur er að við höfum fengið leik-
mann sem gerir það að verkum að
við þurfum ekki að treysta á Ruud
einan til að bera uppi sók-
narleikinn. Ef þeir halda áfram að
spila eins og þeir gerðu í dag þá
verðum við í fínu lagi,“ sagði
Ferguson.
Leikurinn líkastur farsa
Gordon Strachan, knattspyr-
nustjóri Southampton, var
gífurlega ósáttur eftir leikinn og
lýsti honum sem farsa.
„Van Nistelrooy var rang-
stæður þegar hann skoraði þriðja
markið og ef dómarinn ætlar að
halda öðru fram þá veit ég ekki
hvað. Dómarinn var hlæjandi og
reitandi af sér brandara fyrir
leikinn og var greinlega ekkert að
einbeita sér að verkefninu sem
hann átti fyrir höndum. Hann ætti
að útskýra það,“ sagði foksillur
Gordon Strachan eftir leikinn á
Old Trafford.
Vassell vaknaður
Enski landsliðsframherjinn
Darius Vassell virðist vera vak-
naður til lífsins eftir mjög dapra
leiki framan af tímabilinu. Hann
skoraði tvö mörk fyrir Aston Villa
sem tók Leicester í bakaríið, 5–0,
á heimavelli þeirra síðarnefndu.
Peter Crouch, sem hefur heldur
ekki verið iðinn við kolann síðan
hann kom frá Portsmouth fyrir
metfé skoraði einnig tvö mörk í
leiknum, hans fyrstu í tuttugu
mánuði en með sigrinum komst
Aston Villa upp í ellefta sæti deil-
darinnar sem er það
hæsta sem liðið hefur
komist á þessu tíma-
bili undir stjórn
D a v i d
O’Learys.
Markalaust
í grannaslag
Liverpool og
Everton skildu jöfn
á Anfield Road í leik
þar sem Liverpool var
mun betri aðilinn og
aðeins hetjuleg framgan-
ga Nigels Martyns, mark-
varðar Everton, kom í veg
fyrir sigur liðsins. Þessi tvö
töpuðu stig geta reynst
Liverpool dýrkeypt því að
þeir misstu af gullnu tæk-
ifæri til að komast nær
Charlton í fjórða sæti deil-
darinnar en Charlton tapaði
óvænt fyrir Bolton á
heimavelli, 2–1.
Newcastle klúðraði líka
möguleikanum á því að nál-
gast Charlton en liðið missti
unnin leik gegn Birmingham
niður í jafntefli á síðustu mínú-
tu leiksins. ■
40 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
FLJÚGÐU HÆRRA
Austurríski brettakappinn Florian Mauser
leikur hér listir sínar á brettamóti í Ólymp-
íugarðinum í München.
MICHAEL SCHUMACHER
Michael Schumacher er sáttur við nýja
Ferrari-bílinn sem hann ók í fyrsta sinn um
helgina og setti brautarmet.
Snjóbretti
Slóvenar lögðu Króata á EM í handbolta:
Öruggir til Aþenu sem
og í úrslitaleik EM
HANDBOLTI Það var þjóðhátíðar-
stemning í Ljubljana í Slóveníu í
gær þegar Slóvenar lögðu heims-
meistara Króata, 27-25, í leik lið-
anna í undanúrslitum Evrópu-
mótsins í handknattleik.
Þar með komst liðið í úrslita-
leikinn þar sem það mætir Þjóð-
verjum í dag en sigurinn tryggði
Slóvenum einnig sæti á Ólympíu-
leikunum í Aþenu í sumar. Slóven-
ar höfðu tögl og haldir allan leik-
inn og leiddu með tveimur mörk-
um, 15-13, í hálfleik. Króatar
komust aldrei yfir í síðari hálfleik
og það ætlaði allt vitlaust að verða
þegar Bostjan Ficko skoraði 27.
og síðasta mark Slóvena níu sek-
úndum fyrir leikslok. Vid Kavt-
icnik var markahæstur hjá Sló-
venum með sex mörk, Renato Vu-
grinec skoraði fimm mörk, Tomaz
Tomsic skoraði fjögur mörk, áður-
nefndur Ficko skoraði þrjú mörk
og Beno Lapajne varði fjórtán
skot í marki Slóvena. Mirza
Dzomba var markahæstur hjá
Króötum með tólf mörk, Ivano
Balic skoraði fimm mörk og Niksa
Kaleb skoraði þrjú mörk. ■
SIGRINUM FAGNAÐ
Slóvenski markvörðurinn Beno Lapajne fagnar hér ásamt félögum sínum eftir að sigurinn
gegn Króötum var í höfn í gær.
STÓRKOSTLEGUR SAHA
Franski framherjinn Louis Saha
skoraði eitt mark og lagði upp
eitt í sínum fyrsta leik með
Manchester United.
Louis Saha kom, sá og
sigraði á Old Trafford
Skoraði eitt og lagði upp annað í sínum fyrsta leik með Manchester United í sigri gegn
Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Manchester United-Southampton 3-2
1-0 Louis Saha (18.), 2-0 Paul Scholes
(37.), 2-1 Kevin Phillips (38.), 2-2 Kevin
Phillips (53.), 3-2 Ruud Van Nistelrooy
(61.).
Birmingham-Newcastle 1-1
0-1 Gary Speed (37.), 1-1 Stern John
(90.).
Charlton-Bolton 1-2
0-1 Henrik Pedersen (1.), 1-1 Jonathan
Johansson (12.), 1-2 Kevin Nolan (78.)
Fulham-Tottenham 2-1
0-1 Robbie Keane, víti (18.), 1-1 Steed
Malbranque, víti (45.), 2-1 Brian McBride
(67.)
Leeds-Middlesbrough 0-3
0-1 Boudewijn Zenden (53.), 0-2 Jos-
eph-Desire Job (77.), Michael Ricketts,
víti (89.).
Leicester-Aston Villa 0-5
0-1 Darius Vassell (50.), 0-2 Peter
Crouch (57.), 0-3 Darius Vassell (60.), 0-
4 Dion Dublin (64.), 0-5 Peter Crouch
(68.)
Liverpool-Everton 0-0
Portsmouth-Wolves 0-0
Staðan:
Man. Utd 23 17 2 4 43:17 53
Arsenal 22 15 7 0 42:14 52
Chelsea 22 14 4 4 40:17 46
Charlton 23 10 7 6 32:25 37
Liverpool 23 9 7 7 32:24 34
Newcastle 23 8 10 5 31:24 34
Fulham 23 10 4 9 36:33 34
Bolton 23 8 8 7 28:34 32
Birmingham 22 8 7 7 20:26 31
Southampton 23 8 6 9 23:21 30
Aston Villa 23 8 6 9 26:27 30
Middlesbrough 22 7 7 8 23:26 28
Tottenham 23 8 3 12 27:33 27
Everton 23 6 7 10 25:29 25
Man. City 22 5 8 9 31:33 23
Blackburn 22 6 5 11 32:36 23
Portsmouth 23 6 5 12 25:33 23
Leicester 23 4 8 11 31:43 20
Wolves 23 4 8 11 20:44 20
Leeds 23 4 5 14 19:47 17
Formúla 1:
Ferrari setur
brautarmet
FORMÚLA 1 Þýski ökuþórinn Mich-
ael Schumacher var í skýjunum
með nýja Ferrari-bílinn þegar
hann var prófaður í fyrsta sinn
um helgina. Schumacher setti
brautarmet á Fiorano-brautinni,
æfingabraut Ferrari, og sagðist
ekki hafa búist við því að bíllinn
myndi vera svona góður í byrjun.
„Þetta var frábær byrjun og án
nokkurra vandræða. Ég er mjög
sáttur. Við skulum hins vegar ekki
gleyma því að við erum að keppa
við mjög öfluga bíla á næsta ári
og mér sýnist sem bílarnir frá
bæði Williams og Renault séu
mjög öflugir. Við færumst nær
fullkomnuninni á hverju ári og ég
þakka öllum þeim sem hafa lagt
sál sína í þennan bíl. Ég hef trú á
því að þessi bíl geti komið okkur í
fremstu röð á næsta ári, á því er
enginn vafi,“ sagði Schumacher
við fjölmiðla í gær. ■
Enska úrvalsdeildin:
Rifrildið
hefur áhrif
FÓTBOLTI David Gill, stjórnarfor-
maður Manchester United segir
að rifrildið sem Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri liðsins, og John
Magnier, einn af stærstu hluthö-
fum félagsins, hafa átt í undanfar-
na daga, hafi haft áhrif á félagið.
Gill hefur varið Alex Ferguson
með kjafti og klóm í þessu rifrildi
en segir að Ferguson og Magnier
verði að sættast því að annars
verði félagið nánast óstarfhæft.
„Það er félaginu fyrir bestu að
það ríki þokkaleg sátt innan þess.
Öll innanbúðarrifrildi gera lítið
annað en grafa undan trúverðu-
gleika félagsins og því megum við
ekki við. Manchester United er
stærsta og besta félagslið í
Englandi og þótt víðar væri leitað
og það gerist ekki af tilviljun
einni saman. Hér vinna menn
saman að því markmiði að halda
Manchester United í fremstu röð
og ef menn eru ekki tilbúnir til að
gera það verður brugðist við því á
einhvern hátt,“ sagði Gill en
heimildir herma að hann sé við
það að gefast upp á ósættinu á
milli Ferguson og Magnier sem
náði hámarki í síðustu viku. ■