Fréttablaðið - 01.02.2004, Qupperneq 41
41SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004
KÖRFUBOLTI Grindavík vann sinn
fjórða leik í röð í 1. deild kvenna í
körfuknattleik þegar liðið vann
auðveldan tuttugu stiga sigur á
KR, 84-64, í Grindavík í gær.
Grindavík hafði yfirhöndina allan
leikinn og leiddi í hálfleik, 42-28.
Kesha Tardy átti skínandi góð-
an leik í liði Grindavíkur, skoraði
25 stig og tók 9 fráköst. Petr-
únella Skúladóttir skoraði 13 stig
líkt og Guðrún Ósk Guðmunds-
dóttir en Guðrún tók einnig 8 frá-
köst. Ólöf Helga Pálsdóttir skor-
aði 12 stig, gaf 12 stoðsendingar
og tók 8 fráköst. Katie Wolf var
best hjá KR-stúlkum, skoraði 24
stig og tók 10 fráköst, Hildur Sig-
urðardóttir skoraði 13 stig og gaf
6 stoðsendingar og þær Lilja
Oddsdóttir og Tinna Sigmunds-
dóttir skoruðu 7 stig en Lilja tók
einnig 11 fráköst.
Keflavík tryggði stöðu sína á
toppi 1. deildar kvenna í
körfuknattleik þegar liðið vann
öruggan sigur á grönnum sínum í
Njarðvík, 87-62. Staðan í hálfleik
var, 39-30, Keflavíkurstúlkum í
vil en í þriðja leikhluta gerðu þær
út um leikinn með því að vinna
hann með ellefu stiga mun.
Birna Valgarðsdóttir, sem leik-
ið hefur sérlega vel í Keflavíkur-
liðinu að undanförnu, var stiga-
hæst með 26 stig og tók jafnframt
10 fráköst. Erla Reynisdóttir
skoraði 14 stig og gaf 7 stoðsend-
ingar, Anna María Sveinsdóttir
skoraði 10 stig og tók 10 fráköst
og Erla Þorsteinsdóttir skoraði 9
stig og 7 fráköst.
Andrea Gaines, spilandi þjálf-
ari Njarðvíkurliðsins, var stiga-
hæst þar á bæ með 17 stig og tók
jafnframt 13 fráköst. Auður Jóns-
dóttir skoraði 14 stig, Guðrún Ó.
Karlsdóttir skoraði 8 stig og Sæ-
unn Sæmundsdóttir skoraði sjö
stig.
Keflavík hefur nú sex stiga
forystu á toppi deildarinnar en
KR og ÍS koma næst á eftir
Keflavík. ■
1. deild kvenna í körfuknattleik:
Fjórir Grindavíkursigrar í röð
KESHA TARDY
Kesha Tardy átti góðan leik í liði Grindavíkru gegn KR í gær og skoraði 25 stig og tók 9
fráköst. Grindavík hefur nú unnið fjóra leiki í röð í deildinni.
FÓTBOLTI Sænska liðið Örgryte bar
sigur úr býtum á Iceland Express-
mótinu í knattspyrnu sem Kefl-
víkingar stóðu fyrir og lauk í gær
í Egilshöllinni. Örgryte bar sigur-
orð af ÍA, 3-1, í úrslitaleik en liðið
vann KR, 2-1, á föstudagskvöldið í
Egilshöll.
Eric Gustavsson kom Örgryte
yfir í úrslitaleiknum strax á 2.
mínútu en pólski framherjinn
Dawid Banaczek, sem er til
reynslu hjá ÍA þessa dagana, jafn-
aði metin á 51. mínútu. Christian
Hemberg kom Örgryte yfir eftir
klukkutíma leik og það var síðan
Eric Johannesson sem gulltryggði
sigurinn í leiknum fimm mínútum
fyrir leikslok og sigur í mótinu
sjálfu.
Finninn Jukka Ikäläinen, þjálf-
ari Örgryte, var sáttur í leikslok
og sagði við Fréttablaðið að þetta
mót hefði verið virkilega góð æf-
ing fyrir hans menn. „Hraðinn
var mikill í leiknum í dag og ég
hafði áhyggjur af því að mínir
menn myndu ekki halda út allan
leikinn en sem betur fer gerðu
þeir það,“ sagði Ikäläinen.
Jón Pétur Róbertsson, fram-
kvæmdastjóri Keflavíkur, sem
hafði veg og vanda að skipulagn-
ingu mótsins sagði að það hefði
tekist afskaplega vel og að Kefl-
víkingar væru strax farnir að
undirbúa svipað mót að ári liðnu,
þá jafnvel stærra með fleiri er-
lendum og íslenskum liðum. „Ég
hefði samt viljað sjá fleiri áhor-
fendur á þessum leikjum,“ sagði
Jón Pétur.
Keflavík vann KR, 6-0, í leik
um þriðja sætið í gær og tefldi KR
nánast fram öðrum flokki sínum í
leiknum.
Hörður Sveinsson, Hólmar
Rúnarsson, Haraldur Guðmunds-
son, Zoran Ljubicic, Magnús Þor-
steinsson og Sigurður Markús
Grétarsson skoruðu mörk Kefl-
víkinga sem réðu lögum og lofum
í leiknum eins og lokatölur gefa til
kynna. ■
Örgryte sterkast
Vann ÍA, 3-1, í úrslitaleik Iceland Express-mótsins í gær
ÍSLENDINGAR MEÐ BIKARINN
Íslendingarnir í liði Örgryte, Atli Sveinn Þórarinsson og Jóhann B. Guðmundsson, sjást
hér með bikarinn sem liðið fékk fyrir sigur á Iceland Express-mótinu.