Fréttablaðið - 14.02.2004, Síða 8
8 14. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
■ Bandaríkin
■ Asía
Orðrétt
SKÓLAMÁL Samkvæmt nýrri skóla-
stefnu bæjarstjórnar Kópavogs
er stefnt að því að færa skóla-
stjóra grunnskólanna milli skóla
eftir að þeir hafa verið í starfi við
sama skóla í ákveðinn tíma.
Þannig er reynt að viðhalda
ferskleika í stjórnun skólanna og
nýta sterkustu hliðar skólastjórn-
enda til hins ýtrasta.
Bæjarstjórn samþykkti í vik-
unni stefnumótun skólanefndar
sem verið hefur í smíðum undan-
farin misseri. Þar er áherslan
lögð á nemandann sem miðpunkt
skólastarfsins og að stjórnun
skólans og aðbúnaður stuðli að
velferð og námsárangri sérhvers
nemanda. Hinir ýmsu þættir
stefnumótunarinnar hafa þessa
áherslu sem þungamiðju en þess-
ir þættir eru kennsluhættir, að-
búnaður nemenda og starfsfólks,
stjórnun skólanna, skipulag
skólastarfs, skólahúsnæði,
starfsmannastefna, heimili og
skóli, dægradvöl, skólahverfi og
þjónusta fræðsluskrifstofu
Kópavogs.
Kópavogur hefur verið í for-
ystu þeirrar hreyfingar að
grunnskólarnir séu reknir sem
sjálfstæðar einingar með fjárlög
sem ákvarðast af nemendafjölda.
Í samræmi við þá reglu er skóla-
stjórum heimilt að taka við nem-
endum úr öðrum skólahverfum
en þeirra eigin og fylgja fjárveit-
ingar nemandanum á milli skóla.
Skólastjórar eru einnig frjálsir
að því að ráðstafa hugsanlegum
afgangi af fjárveitingum á þann
hátt sem þeir telja að nýtist best í
þágu skólastarfsins og nemend-
anna. ■
Vanskil minnka á ný
Mjög dró úr vanskilum einstaklinga á síðsta ársfjórðungi ársins 2003. Fyrirtækin eru
einnig skilvísari. Ásta S. Helgadóttir segir að aukin umræða um fjármál sé farin að skila
sér í því að fólk grípi fyrr í taumana þegar fjármál stefni í óefni.
EFNAHAGSMÁL Samkvæmt tölum frá
Fjármálaeftirlitinu minnkuðu van-
skil útlána hjá innlánsstofnunum á
milli áranna 2002 og 2003. Í árslok
2002 námu vanskil 3,5 prósent af
heildarútlánum en sambærileg tala
um síðustu áramót var 3,1 prósent.
Í frétt frá Fjármálaleftirlitinu
kemur fram að hlutfall vanskila
hafi ekki verið lægra síðan á fyrri
hluta ársins 2001.
Í fréttinni segir að hafa beri í
huga að útlán jukust mjög verulega
á árinu 2003 og hafi það haft áhrif
til lækkunar vanskila sem hlutfalls
af heildarútlánum.
Töluverður munur er á vanskil-
um fyrirtækja og einstaklinga en
vanskil hjá báðum skuldarahópum
hafa farið minnkandi sem hlutfall
af heildarútlánum þótt heildarupp-
hæð vanskila hafi hækkað hjá fyr-
irtækjum. Hjá einstaklingum lækk-
aði upphæð vanskila á milli þriðja
og fjórða ársfjórðungs á síðasta ári.
Á tímabilinu frá lokum árs 2000
til ársloka 2003 voru vanskil ein-
staklinga í hámarki við lok þriðja
ársfjórðungs ársins 2002 þegar 6,98
prósent allra útlána voru í vanskil-
um. Þá voru vanskil fyrirtækja
einnig í hámarki.
Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafastofu um fjármál
heimilanna, telur að betri skil ein-
staklinga megi rekja til þess að fólk
hafi breytt skuldum sínum. „Það er
líka farið að koma meira til móts
við fólk og fræðslan hefur aukist
þannig að fólk er orðið meðvitaðra
um að grípa fyrr inn í og gera eitt-
hvað,“ segir Ásta.
Hún segir að ráðgjöf hafi aukist
í bönkunum auk þess sem inn-
heimtufyrirtæki hafi verið dugleg
að auglýsa og sýna fram á hversu
dýr vanskil geti verið. Hún telur að
umræða um fjármál hafi aukist og
fólk sé að verða meðvitaðra um þau
og það sé að skila sér í lægri van-
skilum hjá einstaklingum.
Ásta segir að ekki liggi enn fyr-
ir tölur frá Ráðgjafstofu um fjár-
mál heimilanna um fjölda skjól-
stæðinga í fyrra en sér sýnist að
það verði á svipuðum slóðum eins
og árið 2002 en það var metár.
thkjart@frettabladid.is
LÖGFRÆÐINGUR BÝÐUR SIG
FRAM Khieu Samphan, sem var
einn af helstu leið-
togum Rauðu Kh-
meranna í Kambó-
díu, segist hafa ráðið
alræmdan franskan
lögfræðing til að sjá
um málsvörn sína.
Samphan er ákærð-
ur fyrir þjóðarmorð.
Að sögn Samphan bauð Jacques
Verges fram aðstoð sína án endur-
gjalds. Á meðal fyrri skjólstæð-
inga Verges eru þekktir hryðju-
verkamenn og nasistaforingjar.
JARÐSPRENGJA VIÐ LÖGREGLU-
STÖÐ Tveir menn létust og sex
særðust þegar jarðsprengja
sprakk við lögreglustöð í austan-
verðu Afganistan. Jarðsprengjan
var fjarstýrð. Annar hinna látnu
var lögreglumaður. Yfirvöld telja
að talíbanar eða liðsmenn hryðju-
verkasamtakanna al-Kaída hafi
staðið á bak við árásina.
ÞJÓÐARSKÖMM Alríkisdómari
hefur fyrirskipað bandarískum
stjórnvöldum að veita 22.000
manns sem njóta hælis í Banda-
ríkjunum varanlegt landvistar-
leyfi og atvinnuréttindi. Hann
segir stjórnvöld hafa klúðrað því
að tryggja þeim sem hafa hæli
skjöl sem staðfesti að þeim sé
heimilt að vinna og að úr því
verði að bæta. Það væri í raun
þjóðarskömm.
Bæjarstjóri fagnar heimastjórnarhátíð alþýðu:
Vélsleði bæjarstjóra
nefndur eftir forseta
HÁTÍÐ „Ég mun að sjálfsögðu mæta
til þessa viðburðar. Ég fagna öllu
frumkvæði sem einstaklingar
sýna,“ segir Hall-
dór Halldórsson,
bæjarstjóri í Ísa-
fjarðarbæ, um þá
hátíð sem alþýðu-
menn á Ísafirði
hafa boðað í júlí í
sumar. Um er að
ræða áhugamenn
sem vilja bæta úr
hátíð sem haldin
var í janúar og
þeir telja að al-
menningur hafi
ekki átt kost á
þátttöku.
Bæjarstjórinn
segir þetta vera
rangt. Almenn-
ingur hafi átt
kost á að vera
viðstaddur vígslu
m i n n i s m e r k i s
um Hannes og
móttöku í boði
s ý s l u m a n n s .
„Það eina sem
ekki var opið
gestum var kvöldverðurinn sem
við héldum gestum, ráðherrum og
þingmönnum,“ segir Halldór.
Hann segir að margir viðburðir
tengdir afmæli heimastjórnar eigi
eftir að verða. Sýning tengd Hann-
esi Hafstein verði opnuð á sunnu-
dag. Þangað sem öllum sé boðið
rétt eins og til málþings sem haldið
verði 19. júní þar sem fjallað verði
um feminisma Hannesar Hafstein.
„Við erum aðeins búnir með
þriðjung af okkar hátíðarhöldum,“
segir hann.
Halldór þvertekur fyrir að hafa
sýnt Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands og rakarasyni frá Ísa-
firði, óvirðingu með því að bjóða
honum ekki til formlegrar þátttöku
í heimastjórnarhátíðinni í janúar.
Hann segir vinarþel vera milli sín
og forsetans.
„Forsetinn hefur svo oft verið
hjá okkur og hann veit hversu vel-
kominn hann er. Hann hefur meira
að segja farið með mér um svæðið á
vélsleða mínum. Sleðinn er síðan
kallaður Forsetinn,“ segir Halldór. ■
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
Mætir á
heimstjórnarhátíð
í sumar.
ÓLAFUR RAGN-
AR GRÍMSSON
Var ekki boðið í
vetur en verður
boðið í sumar.
ÍSAFJRÖRÐUR
Áhugamenn fyrir vestan hafa undirbúið heimastjórnarhátíð alþýðunnar
sem haldin verður í júlí.
VANSKIL EINSTAKLINGA HJÁ LÁNASTOFNUNUM Í LOK HVERS ÁRSFJÓRÐUNGS
31.12. 00 31.3. 01 30.6. 01 30.9. 01 31.12. 01 31.3. 02 30.6. 02 30.9. 02 31.12. 02 31.3. 03 30.6. 03 30.9. 0331.12. 03
Vanskil í milljörðum 6,35 8,19 8,48 10,56 10,05 10,99 11,62 12,69 11.07 11,93 11,79 12,27 10,60
Hlutfall af útlánum (%) 3,62 4,72 4,81 5,83 5,59 5,99 6,39 6,98 6,14 6,37 6,39 6,51 5,51
VANSKIL FYRIRTÆKJA HJÁ LÁNASTOFNUNUM Í LOK HVERS ÁRSFJÓRÐUNGS
31.12. 00 31.3. 01 30.6. 01 30.9. 01 31.12. 01 31.3. 02 30.6. 02 30.9. 02 31.12. 02 31.3. 03 30.6. 03 30.9. 0331.12. 03
Vanskil í milljörðum 7,78 8,57 10,64 13,27 14,52 15,61 16,12 18,10 15,19 15,33 15,49 18,62 18,92
Hlutfall af útlánum (%) 1,73 1,82 2,04 2,55 2,74 2,80 2,90 3,19 2,68 2,61 2,40 2,69 2,52
ÁSTA S. HELGADÓTTIR
Forstöðumaður Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna telur aukna umfjöllun um fjármál
skila sér í minni vanskilum hjá einstaklingum.
Og enn deila vinirnir
„Jón Steinar hefur sennilega selt
sig of oft til þjónustu við vafsam-
an málstað til að hafa hugboð um
að venjulegt fólk hefur réttlætis-
kennd sem er hversdagsleg og
ekkert sérstakt rannsóknarefni.“
Páll Vilhjálmsson, Morgunblaðið 13. febrúar
Keflvísk karlhlunkamenning
„Skyldi það annars skipta máli í
þessu að næstum öll bíóin eru í eigu
karlhlunka frá Keflavík? Maður hef-
ur alltaf haft ákveðnar efasemdir
um smekkvísina í þeim bæ.“
Egill Helgason um dapurt myndaframboð
bíóhúsanna í Reykjavík. DV 13. febrúar.
Hin breiðu bök
„Það er eitthvað að siðferðiskennd
ríkisstjórnar sem gumar af fyrir-
huguðum skattalækkunum til
hinna efnameiri en heimtar sér-
skatt á gjafir látinna til líknar-
félaga, kirkna, annarra félaga og
opinberra stofnana eins og safna.“
Össur Skarphéðinsson
um erfðafjárksatt, Fréttablaðið 13. febrúar.
NÝ SKÓLASTEFNA
Ármann Kr. Ólafsson, formaður
skólanefndar Kópavogs, kynnti stefnu í
málefnum grunnskóla bæjarins á
dögunum. Hún felur meðal annars í sér að
skólastjórar verða fluttir milli skóla eftir
tiltekinn tíma á sama stað.
Ný skólastefna samþykkt í Kópavogi:
Skólastjórar fluttir milli skóla