Fréttablaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 14
14 14. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
GENGIÐ TIL BÆNA
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna,
mætti í gær til bænahalds í bænum
Ramallah á vesturbakka Jórdanár. Arafat er
í strangri gæslu Ísrelsmanna og er ferða-
frelsi hans takmarkað.
Hannes Sigurgeirsson skrifar:
Ég á tvö börn. Frá náttúrunnarhendi eru þau næstum fullkom-
in, þó ekki alveg. Dóttir mín er
með sjóngalla, þannig að það er
mikill munur á sjóninni milli
augna. Þess vegna þarf hún að nota
gleraugu. Hún er ekkert mjög hrif-
in af því að nota þau og fór því til
augnlæknis til að athuga með
laseraðgerð til að leiðrétta sjónina.
Það var ekkert vandamál, reyndar
ekki víst að hún losnaði alveg við
að þurfa gleraugu. Ýmislegt gat
líka komið upp á í sambandi við
þessa aðgerð, sem sagt alls ekki
hættulaus. Kostnaðurinn um 300
þúsund, en af því að munurinn
milli augnanna var þetta mikill
ætlaði Tryggingastofnun að borga
brúsann, nema tæp 30 þúsund sem
dóttir mín átti sjálf að borga. Þetta
þótti mér mjög rausnarlegt hjá
stofnuninni. En stelpan hætti við
aðgerðina, vegna hugsanlegra
aukaverkana.
Sonur minn aftur á móti fædd-
ist þannig, að efri gómurinn í hon-
um er sirka einu til einu og hálfu
númeri of lítill eins og tannréttar-
inn orðaði það. Samdóma álit tann-
læknis og tannréttara var, að
þarna væri ekki hægt að komast
hjá að grípa inn í sköpunarverk
almættisins. Kostnaður við þetta
var fyrirfram áætlaður 4–500 þús-
und. Tryggingastofnun ríkisins
borgar hlut í þessu – 150 þúsund.
Þetta finnst mér alls ekki eins
rausnarlegt og í sambandi við
augnaðgerðina, og ekki hægt að
fara neina aðra leið eins og með
gleraugnanotkun.
Þarna finnst mér að Trygginga-
stofnun ætti að greina á milli þess
sem verður að gera (tannréttingin)
og þess sem væri gaman að gera,
en er ekki bráðnauðsynlegt (laser-
aðgerðin).
Jafnaldri stráksins og leikfélagi
flutti til Danmerkur fyrir
nokkrum árum. Hann er líka í
tannréttingum. Hann þarf ekki að
borga neitt fyrir það. Þannig mun
þessum málum háttað víðar.
Hvað er í gangi þarna? Ég skil
ekki hvers vegna Tryggingastofn-
un greiðir „pjattaðgerðir“ næstum
að fullu en óhjákvæmilegar lækn-
isaðgerðir ekki einu sinni að hálfu.
Er einhver sem getur útskýrt það
fyrir mér og ef til vill fleirum? ■
Nú í upphafi árs bárust fréttiraf því að Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra hefði nýtt
frumvarp í höndunum sem hann
hygðist snara í snöggheitum í
gegnum Alþingi.
Frumvarpinu er
ætlað að verða að
lögum um fulln-
ustu refsinga. Í
fyrstu þóttu mér
þetta góð tíðindi
enda liggur mikið
við að koma ís-
lenskum fangelsis-
málum úr þeim
forarpytti sem þau
hafa verið í. Ég
gerði ráð fyrir því
að ætlunin væri að
færa íslensk fang-
elsi nær nútíman-
um og sú stefna tekin upp sem
aðrar siðmenntaðar þjóðir hafa
gert. Vongóður hóf ég lesturinn en
þurfti ekki að lesa lengi þegar ég
áttaði mig á því hvers kyns var.
Frumvarpið er skelfingin ein. Það
er uppfullt af heift og hatri, boð-
beri brostinna vona og fyrirheit
um fordómafulla fangavist. Það
mun skila niðurlægðum og bitrum
afbrotamönnum út í þjóðfélagið.
Eymd og óhamingja
Hið nýja frumvarp getur ekki
verið vandlega ígrundið. Fangar
eru fólk, rétt eins og þeir sem
semja frumvarpið, þótt það beri
ekki með sér að svo sé. Eftir því
sem ég best veit ríkir eymd og
óhamingja í fangelsum landsins
rétt eins og annars staðar í sam-
félaginu þar sem ríkisvaldið lokar
augunum. Föngum er haldið fjarri
fjölskyldum sínum og ekki er hug-
að að því að viðhalda tengslum
þeirra. Engin meðferðarúrræði
virðast vera fyrir hendi þrátt fyrir
að orsök fangavistar sé oftast
áfengis- og fíkniefnaneysla. Engin
markmið eru sjáanleg. Einungis er
vaðið áfram í blindni og menn
virðast trúa því að einhver önnur
mannleg lögmál gildi innan veggja
fangelsa en utan. Eftir langa vist
er föngum loks sleppt lausum og
þá á skyndilega allt að vera í lagi
með þá. Það þarf enga stórkostlega
skynsemi til að sjá að sú hugsun er
fjarstaða. Hver trúir því að menn
geti verið hættulegir í mörg ár en
svo skyndilega meinlausir á einu
andartaki við það eitt að stíga út
fyrir eitthvert hlið. Nei, þá er nú
miklu hagkvæmara að aðlaga
fanga að þjóðfélaginu og fjölskyld-
um sínum og byggja upp markmið
sem ýta undir að nýir og betri
menn stígi út um hliðið.
Almenningur lokar augun-
um
Afbrot verða eðlilega ekki liðin
og við þeim þarf að bregðast. Hið
nýja frumvarp er hins vegar ekki
leiðin. Það er engin ástæða til þess
að valda meiri skemmdum en þeg-
ar eru orðnar. Hefndin má ekki
vera aðalatriðið og hærra verði
keypt en efni leyfa. Almenningur
vill lítið af þessum málaflokki vita
og telur hann ágætlega geymdan
sem lengst í fjarska handan heiða.
Vandamálið hverfur samt ekkert,
alveg sama hversu fast fólk
klemmir aftur augun. Fangar
skila sér aftur út á götu! Þá er of
seint að huga að því að kannski
hefði átt að haga málum öðruvísi.
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra virðist ætla að kasta
þessum málaflokki í hendurnar á
Fangelsismálastofnun. Hann virð-
ist ætla að ganga sama veg og for-
veri hans, Sólveig Pétursdóttir. Á
sama tíma er Birni umhugað um
öryggi borgaranna. hið nýja fang-
elsisfrumvarp ber þá umhyggju
hins vegar engan veginn með sér.
Það boðar enn harðara kerfi en
verið hefur, kerfi eins og það sem
áður þekktist í Bandaríkjunum.
Afkvæmi þess skila sér út á
götu þar sem árangurinn verður
mældur. Þann árangur held ég að
enginn vilji heyra um í sínu hver-
fi. Ég vil miklu fremur fá fanga í
hverfið mitt sem hefur að ein-
hverju að snúa og á sér markmið
og vonir um nýtt líf í stað þess að
fá niðurlægðan og einmana mann
sem hefur verið einangraður í að-
gerðar- og tilgangsleysi.
Öryggi borgaranna
Fangar geta ekki látið sér af-
brot sín um kenningu verða nema
þeim sé gert mögulegt að snúa við
blaðinu. Í mínum huga snýst mál-
ið ekki um það hvort fangavist
eigi að snúast um refsingu og
hefnd eða betrun. Það er einfald-
lega skylda ríkisvaldsins að betra
fanga með öllum ráðum. Öðruvísi
verður ekki unnið að öryggi borg-
aranna. Á meðan fangavist varir á
að viðhalda og efla fjölskyldu-
tengsl fanga. Það ber einnig að
leggja megináhersluna á að takast
á við fíkniefnavandann með þeim
ráðum sem viðurkennt er að gagn-
ist. Það gilda sömu lögmál í fang-
elsum og annars staðar.
Það er kominn tími til að Ís-
lendingar velti þessum mála-
flokki fyrir sér að fullri alvöru.
Íslendingar vilja tilheyra sið-
menntaðri og hamingjusamri
þjóð. Það er því ekki seinna
vænna að leggja feluleikinn í
fangelsismálum til hliðar. Hinu
nýja frumvarpi ber skilyrðislaust
að hafna og velja föngum greið-
færari leið til mannabyggða. ■
Lykilatriði í því að efla þjónustuvið borgarana og vinna á
skrifræðisbákninu, sem hefur
vaðið uppi og margfaldast í ríkis-
stjórnartíð Davíðs Oddssonar, er
að efla verulega opinbera raf-
ræna þjónustu, bæði hjá ríki og
sveitarfélögum. Ísland er eftir-
bátur annarra þjóða í þessu efni
en margt gott er að gerast. Ekki
síst á sveitarstjórnarstiginu. Af
því tilefni tók ég málið upp á Al-
þingi á dögunum við iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Ísland í 14. sæti
Á dögunum beindi ég fyrir-
spurn til viðskiptaráðherra um op-
inbera rafræna þjónustu og spunn-
ust í kjölfarið ágætar umræður
um málið. Ráðherra tók undir mik-
ilvægi málsins. „Í starfi mínu sem
iðnaðar- og viðskiptaráðherra hef
ég lagt áherslu á að stuðla að raf-
rænum viðskiptum og rafrænni
þjónustu, meðal annars með því að
búa þeim hagstætt lagalegt um-
hverfi. Í því sambandi tel ég mikil-
vægt að lagaákvæði á þessu sviði
séu skýr og að ekki verði settar
íþyngjandi sérreglur á sviði raf-
rænna viðskipta og rafrænnar
þjónustu nema brýna nauðsyn beri
til,“ sagði Valgerður (heimild
ræðuritun Alþingis).
Tilefnið var að fram kom á dög-
unum að Ísland stendur illa í sam-
anburði þjóðanna varðandi opin-
bera rafræna þjónustu. Þetta kem-
ur meðal annars fram í mati fyrir-
tækisins Cap Gemini Ernst &
Young. Fyrirtækið fjallar árlega
um stöðu þessara mála meðal
landa í Evrópusambandinu og
EFTA, og samkvæmt nýrri skýrslu
frá þessu ágæta fyrirtæki er Ís-
land í 14. sæti af 18 ríkjum. Svíar
eru fremstir, síðan koma Danir og
þá Írar. Íslendingar eru einungis í
14. sæti og því verulegir eftirbátar
fremstu Evrópuþjóða í opinberri
rafrænni þjónustu við borgara
landsins.
Rafræn þjónusta býður upp á
áður óþekkta möguleika á því að
minnka skrifræðið, bæta margfalt
þjónustu hins opinbera og ekki síst
að færa aðgengið að þjónustunni
nær fólkinu. Rafræn þjónusta og
rafrænir gagnagrunnar eru lykil-
atriði í þessu sambandi.
Framsækin sveitarfélög
Dæmi um framsækið og
spennandi verkefni á sviði raf-
rænnar stjórnsýslu er verkefnið
Sunnan 3. Að því standa sveitar-
félögin Árborg, Hveragerði og
Ölfus og fyrir skömmu undirrit-
uðu þau samning við Byggða-
stofnun um verkefnið „Sunnan 3 –
samstarf um rafrænt samfélag“.
Markmið Sunnan 3 verkefnis-
ins er að efla búsetuskilyrði á
starfssvæði sveitarfélaganna
með markvissri hagnýtingu upp-
lýsingatækni og fjarskipta, enn-
fremur að skapa þekkingarbrunn
sem hægt er að nýta við yfir-
færslu rafrænna stjórnsýsluhátta
til annarra byggðalaga á Íslandi.
Þar fara þessi þrjú sveitarfélög
fremst í flokki.
Verkefnið, Sunnan 3, hlaut
hæstu einkunn í áðurnefndri sam-
keppni um rafrænt samfélag. Í
niðurstöðu matsnefndar um verk-
efnið kemur meðal annars fram
að meginstyrkur séu víðtækar
áætlanir um beitingu upplýsinga-
og fjarskiptatækni til að ná fram
skilvirkari stjórnsýslu og hag-
ræðingu í rekstri sveitarfélag-
anna þriggja.
„Verkefnið skiptist í fjögur
undirverkefni sem ná til allra
íbúa þessara þriggja sveitar-
félaga, sem eru um 10.000 talsins.
1. Notendavænt þjónustutorg. 2.
Skrifstofuhótel. 3. Sameining í
netheimum – skilvirkari stjórn-
sýsla. 4. Ungir fræða hina eldri.“
Með þessu verkefni hafa sveitar-
félögin og sveitarstjórnir þeirra
stigið stórt tímamótaskref inn í
framtíðina og verður vonandi
öðrum sveitarfélögum og hinu op-
inbera hvatning að bylta raf-
rænni opinberri þjónustu veru-
lega. ■
■
Í mínum huga
snýst málið
ekki um það
hvort fangavist
eigi að snúast
um refsingu og
hefnd eða betr-
un. Það er ein-
faldlega skylda
ríkisvaldsins að
betra fanga
með öllum ráð-
um. Öðruvísi
verður ekki
unnið að öryggi
borgaranna.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru
númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt hér
í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna
á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. apríl 2004.
1. flokki 1991 – 49. útdráttur
3. flokki 1991 – 46. útdráttur
1. flokki 1992 – 45. útdráttur
2. flokki 1992 – 44. útdráttur
1. flokki 1993 – 40. útdráttur
3. flokki 1993 – 38. útdráttur
1. flokki 1994 – 37. útdráttur
1. flokki 1995 – 34. útdráttur
1. flokki 1996 – 31. útdráttur
3. flokki 1996 – 31. útdráttur
undur.is
Heift og hatur Umræðan
Umræðan
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
■
skrifar um kosti
rafrænnar þjónustu.
Bylting rafrænnar
þjónustu og Sunnan 3
Tannréttingar og laseraðgerð
■ Bréf til blaðsins
VÍÐIR ÞORGEIRSSON
■ skrifar um fangelsismál.