Fréttablaðið - 14.02.2004, Síða 34
Í Bandaríkjunum er komin útævisaga Luciu Joyce, dóttur rit-
höfundarins James Joyce. Höf-
undurinn er Carol Loeb Schloss og
bókin nefnist Lucia Joyce: To
Dance in the Wake. Nokkur fjöl-
miðlaumfjöllun hefur þegar orðið
um bókina en þetta er ekki eina
athyglin sem Lucia Joyce fær því
í Bretlandi verður bráðlega frum-
sýnt leikrit um hana, Calico eftir
Michael Hastings.
Joyce átti tvö börn með eigin-
konu sinni Nóru, þau Giorgio og
Luciu. Hjónin voru á sífelldum
þvælingi um Evrópu með börnin,
sem voru oft skilin eftir ein og
fengu litla menntun, en lífið sner-
ist um skriftir heimilisföðurins.
Bæði börnin voru í ójafnvægi.
Giorgio var þjakaður af frægð og
snilligáfu föður síns. Hin hæfi-
leikamikla Lucia var andlega van-
heil og var vistuð á fjölmörgum
stofnunum frá því hún var tæp-
lega þrítug fram á dauðadag árið
1982. Schloss segir að ástæðan
fyrir andlegri vanheilsu Luciu
hafi verið sú ákvörðun fjölskyld-
unnar að hún gæfi upp á bátinn
helstu ástríðu sína, sem var nú-
tímadans. Lucia var listamaður af
lífi og sál. Þegar hún var svipt
þeirri skapandi túlkun sem gaf lífi
hennar gildi og var auk þess yfir-
gefin af mönnum sem hún elskaði
(föður sínum og Samuel Beckett)
hrundi tilvera hennar og geðveik-
in blossaði upp. Schloss segir að
Joyce hafi gert sér grein fyrir
þætti sínum í ástandi dóttur sinn-
ar og reynt að að sameina Luciu
og fjölskylduna, þrátt fyrir að eig-
inkona hans meinaði Luciu að-
gang að heimilinu og bróðir Luciu,
Giorgio, krefðist þess að Lucia
væri vistuð á stofnunum.
Kona í skugga snillinga
Í leikriti Michaels Hastings um
Luciu kemur rithöfundurinn og
Nóbelsverðlaunahafinn Samuel
Beckett nokkuð við sögu. Beckett
varð aðstoðarmaður Joyce í París
árið 1928. Hann var þá 22 ára
gamall og Lucia 21 árs. Svo virðist
sem Lucia hafi orðið ástfangin af
honum en óljóst er hvort ástar-
samband var á milli þeirra.
Hastings telur svo ekki hafa verið
en í leikritinu er Beckett látinn
ala á vonum Luciu um sameigin-
legt fjölskyldulíf.
Brenda Maddox, ævisagnarit-
ari Nóru, eiginkonu Joyce, telur
að Lucia hafi verið geðklofi og
ýmislegt í hegðan Luciu styður þá
kenningu. Shloss og Hastings
telja þó að svo hafi ekki verið,
heldur hafi umhverfið og þá ekki
síst karlmenn með snilligáfu brot-
ið hana niður. Schloss lagðist í
miklar rannsóknir á sjúkrasögu
Luciu og sakar aðra ævisagnahöf-
unda um að hafa tekið mark á
óáreiðanlegum heimildum.
Schloss segir að sálfræðingar og
sálkönnuðir (þar á meðal Carl
Gustav Jung) hafi notað Luciu
sem eins konar tilraunadýr við
ýmsar rannsóknir sínar. Jung
taldi að Lucia væri geðveik en það
gat Joyce ekki viðurkennt því
honum fannst að með því væri
hann að gefa í skyn að sjálfur
væri hann andlega vanheill.
Meðhöfundur að Finnegan’s
Wake
Schloss segir að Lucia hafi átt
mikinn þátt í ritun Finnegan’s
Wake og þau feðgin hafi læst sig
inni tímunum saman til að skapa í
sameiningu texta bókarinnar.
Lucia hafi því verið meðhöfundur.
Schloss telur einnig að Lucia hafi
verið fyrirmynd að nokkrum
kvenpersónum í skáldsögum föð-
ur síns. Djarfasta kenningin sem
komið hefur fram um samband
feðginanna (og er ekki frá Schloss
komin) er sú að Lucia hafi átt í
ástarsambandi við föður sinn. „Ég
verð þér aldrei ótrú,“ sagði hún
eitt sinn við hann. Þeir sem hallast
að þessari kenningu benda á að í
Finnegan’s Wake er vikið að sifja-
spelli milli föður og dóttur. Annað
sem þykir styðja kenninguna er
að Stephen Joyce, sonur Giorgios
og sonarsonur Joyce, brenndi öll
bréf Joyce, þar á meðal fjölmörg
sem fóru milli hans og Luciu.
Hvað var hann að fela? spyrja
menn. Hugsanlega hneykslanlegt
fjölskylduleyndarmál. Úr því
fæst þó sennilega aldrei skorið.
Hvað um það, harmræn ævi Luciu
Joyce er í sviðsljósinu þessa
stundina.
kolla@frettabladid.is
■ Sagt og skrifað
34 14. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Djarfasta kenningin
sem komið hefur
fram um samband feðgin-
anna er sú að Lucia hafi átt í
ástarsambandi við föður
sinn. „Ég verð þér aldrei
ótrú,“ sagði hún eitt
sinn við hann.
,,
BÓK VIKUNNAR
The Emperor’s Last Island
eftir Juliu Blackburn
Þessi bók fjallar um eyjuna St.
Helenu sem var síðasti áfanga-
staður Napóleons í þessu lífi.
Napóleon er í forgrunni í bók sem
er einstaklega heillandi blanda af
mannkynssögu, ferðabók og per-
sónulegum minningum. Höfundi
tekst einstaklega vel að draga
upp sterka og lifandi mynd af
Napóleon. Bókin er skrifuð af inn-
sæi og innlifun en um leið af virð-
ingu fyrir staðreyndum.
■ Bækur
NÆSTU JÓL Í UNDIRBÚNINGI
Það er miður febrúar og því ersannarlega margt á huldu um
jólabækur þessa árs. Þó er víst
að höfundar sem frestuðu bók-
um sínum í fyrra munu vera
með í ár. Ólafur Jóhann Ólafs-
son, Bragi Ólafsson, Jón Atli
Jónasson og Gerður Kristný
munu senda frá sér skáldsögur
sem upphaflega áttu að koma út
fyrir síðustu jól. Huldar Breið-
fjörð frestaði ferðabók
sinni um Kína en hún
kemur út þetta árið.
Heyrst hefur að Stefán
Máni sé langt kominn
með skáldsögu sem
gerist í undirheimum
Reykjavíkur og Þórar-
inn Eldjárn mun vera á
góðu róli við ritun
sögulegrar skáldsögu
sem miklar vonir eru
bundnar við. Arnaldur
Indriðason er í góðum
málum því hann er víst
löngu búinn að skrifa
nýja spennusögu um
góðvin lesenda, Erlend
lögreglumann. Og Guðrún
Helgadóttir er að skrifa skáld-
sögu fyrir fullorðna. Víst er að
mun fleiri höfundar eiga eftir að
bætast við þennan ágæta hóp.
Óhætt ætti að vera að veðja á að
næstu jól verði prýðileg skáld-
sagnajól. Af þýddum verkum
sem þegar er vitað um er ástæða
til að minna á fyrsta bindi end-
urminninga Gabriel Garcia
Marquez sem fengið hefur frá-
bæra dóma og hina yndislegu
nýju Whitbread-verðlaunabók
Mark Haddon sem á frummálinu
heitir því langa nafni The Curi-
ous Incident of the Dog in the
Night-Time.
ALMENNINGUR SÁTTUR VIÐ
VERÐLAG Á BÓKUM
Nýleg könnun sem Gallup gerðifyrir Félag íslenskra bókaút-
gefenda um jólabókakaup lands-
manna leiðir margt athyglisvert í
ljós. Samkvæmt henni virðist
bókagagnrýni ekki skipta ýkja
miklu máli þegar kemur að bóka-
kaupum en 7,4 prósent aðspurðra
sögðu hana hafa mest áhrif á
bókaval sitt. Einungis 8,7 prósent
sögðu skipta mestu máli hver höf-
undur bókarinnar væri. Mestu
skipti við bókaval að sá sem átti
að fá bókina hafði óskað sér
hennar en 27 prósent völdu bók til
kaupa samkvæmt þessu. Stundum
heyrist sagt að auglýsingar skipti
litlu um sölu bóka en 13 prósent
aðspurðra sögðust þó hafa valið
bækur vegna auglýsinga. Kaup-
endur kvarta ekki undan verði á
bókum því 67,1 prósent aðspurðra
sögðu verðlagningu á bókum vera
sanngjarna meðan aðeins 15,3
prósent voru ósátt við verðlag.
40,1 prósent fékk enga bók í jóla-
gjöf.
ÞÓRARINN ELDJÁRN
Vinnur að sögulegri skáldsögu sem búist er við að
komi út fyrir jólin.
LUCIA JOYCE
Ævi hinnar ógæfusömu dóttur James Joyce eru gerð skil í nýrri ævisögu og leikriti.
Dóttir James Joyce var hæfileikarík listakona sem fékk ekki að njóta sín. Í nýrri ævisögu og leikriti er ævi
hennar loksins gerð skil.
Lucia Joyce
í sviðsljósinu
Metsölulisti Bókabúða
Máls og menningar,
Eymundssonar og
Pennans
ALLAR BÆKUR
1. Orð í gleði. Karl
Sigurbjörnsson
2. Öxin og jörðin
- tilboðsverð.
Ólafur Gunnarsson
3. Lífshættir fugla
- útsölubók.
David Attenborough
4. Bókin um viskuna og kærleikann -
útsölubók. Dalai Lama
5. Einhvers konar ég - tilboðsverð.
Þráinn Bertelsson
6. Fiskiveisla fiskihatarans
- tilboðsverð. Gunnar Helgi Kristinsson
7. Einkalíf plantna - útsölubók.
David Attenborough
8. Líf með þunglyndi.
Dr. Robert Buckman & Anne Charlish
9. Bókin um bjórinn - útsölubók.
Roger Protz
10. Sonja de Zorrilla - útsölubók.
Reynir Traustason
SKÁLDVERK
- INNBUNDNAR
BÆKUR
1. Öxin og jörðin
- tilboðsverð.
Ólafur Gunnarsson
2. Ilmurinn - útsölu-
bók. Patrick Suskind
3. Plateró og ég
- útsölubók. Juan Ramón Jiménez
4. Glæpur og refsing - útsölubók.
Fjodor Dostojevski
5. Endurfundir - útsölubók.
Mary Higgins Clark
6. Djöflarnir - útsölubók.
Fjodor Dostojevski
7. Blinda - útsölubók. Jose Saramago
8. Alkemistinn - útsölubók.
Paulo Coelho
9. Í leit að glötuðum tíma
- útsölubók. Macel Proust
10. Frá ljósi til ljóss - útsölubók.
Vigdís Grímsdóttir
SKÁLDVERK
- KILJUR
1. Kaldaljós.
Vigdís Grímsdóttir
2. Mýrin.
Arnaldur Indriðason
3. Brennu-Njáls saga
með skýringum.
Mál og menning
4. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxnes
5. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
6. Djöflaeyjan. Einar Kárason
7. Röddin. Arnaldur Indriðason
8. Ár hérans. Arto Paasilinna
9. Synir duftsdins. Arnaldur Indriðason
10. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU DAGANA 04.02.-10.02.
2004 Í BÓKABÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR, EYMUNDS-
SONAR OG PENNANS.