Fréttablaðið - 21.02.2004, Page 4
4 21. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Nást kjarasamningar án verkfalla?
Spurning dagsins í dag:
Hvað finnst þér um aðskilnaðarmúrinn
sem Ísraelar eru að reisa í Jerúsalem?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
53%
47%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Skrifað undir kaupsamning:
Olíufélagið Skeljungur selt
VIÐSKIPTI Gengið var frá samning-
um um kaup á Skeljungi í gær.
Fyrirtækið er alfarið í eigu Stein-
hóla, sem KB banki eignaðist að
fullu þegar Burðarás og Sjóvá-Al-
mennar ákváðu að nýta sölurétt
sinn í félaginu. Kaupendur eru
eignarhaldsfélag í eigu Pálma
Haraldssonar og Jóhannesar
Kristinssonar. Pálmi segir stefnt
að því að reka félagið í óbreyttri
mynd. „Þetta hefur verið strangt
samningaferli og ég er mjög
ánægður með niðurstöðuna. Það
er ekki á hverjum degi sem tæki-
færi gefst til að kaupa jafn gott
félag og Skeljung.“
Kaupin eru með fyrirvara um
áreiðanleikakönnun. Pálmi segir
kaupverðið trúnaðarmál. Í bókum
KB banka voru Steinhólar metnir
á 3,5 milljarða. Markmið bankans
var að ná 500 milljónum króna í
söluhagnað. Bankinn innleysti
töluverðan gengishagnað við yfir-
töku Steinhóla á Skeljungi. Félag-
inu fylgja skuldir upp á um það bil
átta milljarða. Umfang kaupa og
skulda Skeljungs er því um tólf
milljarðar króna.
Örvar Kjærnested hjá KB
banka segir bankann ánægðan
með söluna og kaupendurna.
„Bankinn eignaðist Steinhóla að
fullu í lok janúar og því tókst að
klára söluna á 20 dögum.“ ■
Málshöfðun BHM gegn stjórnendum LSH:
Beðið frekari útfærslu
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum meðal
annars að bíða eftir útfærslu
breytinga á tveimur sviðum á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi
áður en ákvörðun verður tekin um
málshöfðun á hendur spítalan-
um,“ sagði Halldóra Friðjónsdótt-
ir, formaður Bandalags háskóla-
manna, um hugsanlega málssókn
vegna hópuppsagna. Hún sagði að
beðið yrði að öllum líkindum til
næstu mánaðamóta með ákvarð-
anatökuna.
Halldóra sagði að forsvars-
menn BHM myndu ræða við
stjórnendur spítalans um nýja
skýrslu KPMG um mat á sparn-
aðaraðgerðunum.
Um ummæli Magnúsar Péturs-
sonar, forstjóra LSH, í Fréttablað-
inu í gær þess efnis að ofangreind
skýrsla segði að spítalinn hefði
staðið býsna vel að aðhaldsað-
gerðunum, sagði Halldóra: „Hver
finnur það sem hann vill finna í
skýrslunni. En við teljum að hún
styðji líka okkar málflutning, þar
sem við segjum að kannski hefði
átt að byrja á því að athuga allar
aðrar leiðir áður en farið var í
starfsmannamálin, því það er útlit
fyrir að sú leið komi til með að
hafa áhrif á þjónustu við sjúk-
linga. Við sjáum ekki betur en að
það sé aldeilis gefinn ádráttur um
það í skýrslunni, að æskilegt hefði
verið að athuga aðrar leiðir.“ ■
Halldór efast um
kostnaðaraukningu
Sitjandi iðnaðarráðherra telur ekki að ný orkulög hafi í för með sér
hækkun á raforkuverði. Borgarstjóri hefur trú á að breytingar verði
gerðar til að koma til móts við áhyggjur borgaryfirvalda.
RAFORKUMÁL Sífellt fleiri mótmæli
berast vegna niðurstöðu svokallaðr-
ar nítján manna nefndar um breyt-
ingar á raforkulögum. Forsvars-
menn orkuveitna á Suðurnesjum og
höfuðborgarsvæðinu hafa lýst því
yfir að óbreyttar tillögur nefndar-
innar hefðu í för með sér mjög
verulega hækkun raforkuverðs á
þeim svæðum.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
segir að frumkvæði borgarinnar
hafi greinilega haft töluvert að
segja og segist hafa „bjargfasta
trú“ á því að breytingar verði gerð-
ar í samræmi við óskir borgarráðs.
„Formaður borgarráðs átti fund
með sitjandi iðnaðarráðherra, Hall-
dóri Ásgrímssyni, og undirtektir
hans voru góðar að taka málið upp í
ljósi okkar ábendinga. Við erum
mjög ánægð með það.“
Halldór Ásgrímsson segist hins
vegar ekki sjá að ný raforkulög
komi til með að hafa í för með sér
hækkun á raforkuverði. „Ég hef
rætt við mjög marga aðila út af
þessu máli með tilliti til þess að það
kom okkur í ríkisstjórninni algjör-
lega á óvart að það væri þörf á ein-
hverjum gífurlegum verðhækkun-
um af þessu tilefni. Það er ekki að
myndast nýr kostnaður í raforku-
kerfinu sem neinu nemur vegna
þessa,“ segir Halldór.
Hann segist hafa sannfærst um
að ekki sé ástæða til að hafa áhyggj-
ur af kostnaði vegna þessara breyt-
inga. „Það er gert ráð fyrir að nýtt
fyrirtæki í eigu orkufyrirtækjanna
í landinu verði stofnað um flutning-
inn og það á eftir að meta stofn-
mannvirkin til hins nýja fyrirtæk-
is,“ segir Halldór.
Þá segir Halldór að við stofnun
fyrirtækis um dreifinguna sé gert
ráð fyrir ákveðinni arðsemi í
rekstrinum. „Ef það er nýr kostn-
aður hlýtur að myndast hagnaður
þar á móti og það er ekkert sem
skyldar viðkomandi orkufyrirtæki
til að hækka verð af þeim sökum.
Þar að auki verður í þessu nýja fyr-
irkomulagi miklu strangara eftir-
litskerfi með orkufyrirtækjum,
þannig að ég á von á því að það að-
hald komi til með að reynast neyt-
endum vel.“
Um jöfnun á raforkuverði segir
Halldór að búið sé að einangra fé-
lagslegan kostnað og hann sé áætl-
aður um tvö hundruð milljónir
króna. „Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvernig það verður
leyst. Það er tvennt sem kemur til
greina; það er að leggja það ofan á
orkureikning landsmanna eða
greiða það sem sérstakan lið á fjár-
lögum með sambærilegum hætti og
stuðning til húshitunar í landinu.
Þetta eru atriði sem ríkisstjórn og
þingflokkar munu fjalla um í fram-
haldi af þessari niðurstöðu,“ segir
Halldór.
thkjart@frettabladid.is
Gyðingahatur í Bretlandi:
Árásum
fjölgar
LUNDÚNIR, AP Árásum á gyðinga í
Bretlandi fjölgaði um sjö pró-
sent frá árinu 2002 til 2003, sam-
kvæmt tölum breskra gyðinga-
samtaka.
Samtökin telja að þessa aukn-
ingu megi rekja til stríðsins í
Írak og aukinnar spennu í deilu
Ísraela og Palestínumanna.
Alls voru 375 árásir á
gyðinga tilkynntar til samtak-
anna á síðasta ári.
Alvarlegasta atvikið átti sér
stað í maí þegar yfir 400 leg-
steinar voru vanhelgaðir í
kirkjugarði í austurhluta Lund-
úna. ■
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON
Ástþór vill sjá til þess að ríkisráðsfundir
verði ekki haldnir án forsetans.
Forsetakosningar:
Ástþór gerir
samning
KOSNINGAR „Ég ætla að kynna upp-
kast að því sem ég kalla forseta-
samning og gera samning við
kjósendur sem ég mun uppfylla
nái ég kjöri,“ segir Ástþór Magn-
ússon forsetaframbjóðandi.
Ástþór segir að hann vilji
stuðla að virkara lýðræði og leyfa
þjóðinni að taka virkari þátt í
veigamiklum ákvörðunum. Meðal
annars vill Ástþór sjá til þess að
ríkisráðsfundir verði ekki haldnir
án forsetans nema í neyð og þá í
gegnum fjarfundarbúnað. Upp-
kast að forsetasamningnum ætlar
Ástþór að kynna í kaffispjalli á
Sólon í Bankastræti klukkan þrjú
í dag. Tekið verður á móti hug-
myndum af innihaldi samningsins
í kaffispjalli og eins á vefsíðunni
www.forsetakosningar.is ■
SYRGJANDI HUGGAÐUR
Forseti Haítí sést hér hugga ættingja
lögreglumanns sem féll í uppreisninni.
Uppreisn:
Fólk flýr
frá Haítí
HAÍTÍ, AP Fleiri lögreglumenn flýðu
stöðvar sínar í gær þegar upp-
reisnarmenn á Haítí sóttu fram. Á
sama tíma var uppselt í öll flug
frá eyjunni þar sem erlendir rík-
isborgarar fóru að ráðum Banda-
ríkjastjórnar, sem hvatti þá til að
hverfa á brott meðan flugsam-
göngur væru enn í fullum gangi.
Guy Philippe, sem tók nýlega
við forystuhlutverki meðal upp-
reisnarmanna, boðaði árás á Cap-
Haitien þar sem hann var lög-
reglustjóri áður en hann flúði fyr-
ir þremur árum, sakaður um að
skipuleggja valdarán.
Jean-Bertrand Aristide forseti
sagðist fyrr deyja en að gefast
upp fyrir uppreisnarmönnum.
■ Evrópa
SVIPTUR ORÐU Maurice Papon,
sem fundinn var sekur um að
hjálpa til við að flytja gyðinga í
útrýmingarbúðir nasista, á nú á
hættu að verða dæmdur í allt að
eins árs fangelsi fyrir að bera
enn æðstu heiðursorðu franska
lýðveldisins. Hann var sviptur
henni með forsetatilskipun þegar
hann var dæmdur til fangavistar
fyrir samstarf við nasista.
ÞRIGGJA MILLJARÐA FÖLSUN
Listaverk sem Breska listasafnið
keypti á tæpa þrjá milljarða
króna og átti að
vera sextándu ald-
ar verk eftir Raf-
ael er fölsun, að
því er bandarískur
sérfræðingur sagði
breska dagblaðinu
The Times. James
Beck sagði safnið hafa greitt
metfjárhæð fyrir fölsun og
frammistöðu stjórnenda þess
vera hneyksli.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Telur ekki að fyrirhugaðar breytingar á raforkulögum muni orsaka hækkun á raforkuverði.
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
Segist hafa bjargfasta trú á því að gerðar
verði breytingar til þess að koma til móts
við athugasemdir borgarinnar.
HÓPUPPSAGNIR
BHM bíður með ákvörðun um málshöfðun
þar til öll kurl eru komin til grafar hvað
varðar kjarabreytingar hjá starfsfólki á
tveimur sviðum LSH í tengslum við að-
haldsaðgerðir á spítalanum.
■ Evrópa
FRAMSÆKIÐ OLÍUFÉLAG
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra víg-
ir vetnisstöð Skeljungs í fyrravor. Hræringar
í kringum félagið urðu til þess að KB banki
eignaðist fyrirtækið. Nýir eigendur koma
nú að félaginu.