Fréttablaðið - 21.02.2004, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 21.02.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 23 30 9 01 .2 00 4 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 3 Snjallar lausnir Hvar er þvottapokinn minn og handklæðið? ANTONIUS hirsla, þessi samstæða 3.990,- Bakþankar REYNIS TRAUSTASONAR Þorpsaðall Líf í þorpi er gjarnan eins ogsmækkuð mynd af þjóðfélaginu í heild. Hvert byggðarlag á sinn kóng og sitt hirðfífl að ónefndum stöllurum og hirðmeyjum. Þeir sem vilja kynn- ast lífinu eins og það er í stað þess að lesa í línur í gegnum fjölmiðla ættu að setjast að í þorpi og fylgjast grannt með frystihússtjóra, oddvita, sveitarstjóra og héraðslækni. Þeir eru handhafar valdsins og elíta þorpsins sem þorpararnir líta gjarnan upp til af öfund og aðdáun í bland. SMÁBÆR úti á landi var einmitt með svona elítu sem myndgerðist í matarklúbbi sem kom saman og snæddi góðmeti einu sinni í mánuði og kneyfaði öl með. Til að sinna and- anum voru haldin kvæðakvöld endr- um og eins þar sem lesin voru upp tvö, þrjú ljóð þar til fólk sprakk á limminu og setti Abba á fóninn og drakk vodka af stút. Læknir þorps- ins, einstaklega vandaður í sínu fagi, var í innsta hring þorpsaðalsins líkt og sveitarstjórinn sem kunni öðrum mönnum betur að skipuleggja snjó- mokstur og fara með tölur. Þeir höfðu framan af vinsamlegt samráð um eitt og annað og í forföllum leysti læknirinn sveitarstjórann af og var þá handhafi sveitarstjóravalds. Eng- an þurfti til að leysa lækninn af. En svo syrti í álinn og friðurinn í þorp- inu varð sundur slitinn. SVEITARSTJÓRINN hafði síðla ljóðakvölds látið ósæmilega athuga- semd falla um lækninn. Óvinátta gaus upp og elítan klofnaði í fylking- ar. Framan af var loft í bænum ein- ungis lævi blandið en síðan versnaði ástandið. Samkoma í matarklúbbnum lenti í hreinu uppnámi eftir að sveit- arstjórinn fleygði sviðakjamma í andlit læknisins svo af hlaust skráma. Í vikunni á eftir barst það um þorpið með eldingarhraða að læknirinn væri búinn að hengja upp auglýsingu á stofu sinni með nöfnum flestra þorpsbúa. Tveir dálkar voru á plakatinu, annar með yfirskriftinni „Friðaðir fuglar“ en yfir hinum stóð „Fuglar sem má skjóta“. Nafn sveit- arstjórans var efst í þeim dálki en þar fyrir neðan röð bandamanna hans. Sagnaþulir þorpsins héldu vart vatni yfir þessum ósköpum og það var stöðug umferð til læknisins þar sem fólk fann sér minnsta tilefni til að reifa krankleika þótt það væri í raun að leita að nafni sínu á lista læknisins. Verst þótti að vera ekki nefndur á listanum. SKÆRURNAR milli fylkinga hér- aðslæknisins og sveitarstjórans urðu smám saman að styrjöld og náðu hámarki þegar læknirinn var eitt sinn á ferð á Willy’s-jeppa sín- um um aðalgötu þorpsins í sömu andrá og sveitarstjórinn var á göngu í gagnstæða átt. Læknirinn snarbeygði í átt að sveitarstjóran- um, sem náði á síðustu stundu að kasta sér yfir garðvegg og forðast jeppann. Sveitarstjórinn hætti og flutti suður. Þá lentu presturinn og læknirinn upp á kant.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.