Fréttablaðið - 21.02.2004, Side 20
20 21. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Guðrún Helgadóttir er
rödd skynseminnar að mati
Valgeirs Guðjónssonar:
Málsvari
lítilmagnans
Ég lét hugann reika um menn ogkonur og finnst gaman að
nefna konu sem ég hef alltaf haft
álit á,“ segir Valgeir Guðjónsson
tónlistarmaður þegar hann var
beðinn um að nefna mann að hans
skapi. „Það er Guðrún Helgadótt-
ir, rithöfundur og fyrrum alþing-
iskona. Mér hefur fundist hún
vera rödd skynseminnar á
skemmtilegan og oft óvæntan
hátt. Hún er ekki hávaxin en mjög
keik og hnarreist. Ég hef eigin-
lega ekki séð hana gefa hlut sinn
eftir fyrir fólk sem er bæði helm-
ingi stærri og breiðara.“
Valgeir segist vera vel mál-
kunnugur Guðrúnu enda varð
hann þeirrar ánægju aðnjótandi
að vinna með henni þegar hann
samdi tónlist við leikrit hennar
Skuggleik.
„Ég met mikils við hana hvað
hún er góður málsvari lítilmagn-
ans. Hvort sem það eru börn eða
aðrir sem minna mega sín. Í gegn-
um tíðina hefur hún talað máli
slíks fólks svo aðdáunarvert er,“
segir Valgeir. „Hún er hrein og
bein og hefur mjög skemmtilega
kímnigáfu fyrir utan það að hún
hefur skrifað frábærar bækur. Ef
svona kona er ekki maður að mínu
skapi þá veit ég ekki hvað.“ ■
Fólk er slegið miklum óhug út afþessu máli. Það er hræðilegt að
svona skyldi gerast hérna, að lík
hafi fundist sem gengið var frá eins
og raun bar vitni,“ segir Guðmund-
ur Bjarnason, bæjarstjóri í Fjarða-
byggð, spurður um andrúmsloftið á
Neskaupstað eftir að lík Vaidas
Jucevicius, hins þrítuga Litháa,
fannst illa leikið í höfninni í Norð-
firði fyrir um tveimur vikum.
Guðmundur segir óhug sér-
staklega hafa gripið um sig meðal
íbúa fyrst á eftir. „En eftir að það
kom í ljós að líkið var fullt af dópi
og viðkomandi líklega dáið af þess
völdum hefur andrúmsloftið
breyst talsvert,“ segir bæjarstjór-
inn og bætir við að fólk í Norðfirði
hafi almennt ekki verið gripið
ofsahræðslu. „En fólk var slegið
miklum óhug og það sem skiptir
okkur öllu máli er að þetta mál
upplýsist að fullu.“
Áfallahjálp ekki nauðsynleg
Þrátt fyrir óhuginn sem lík-
fundurinn olli taldi bæjarstjórn
ekki ástæðu til að fólki í Neskaup-
stað yrði veitt áfallahjálp. „Kafar-
inn hefur líklega fengið áfalla-
hjálp en það var ekki á okkar veg-
um,“ segir Guðmundur. Hann seg-
ir kirkjuna á staðnum þó hafa
staðið opna og megi búast við að
talsverður fjöldi fólks hafi leitað
þangað.
„Við erum vanir því hér á þess-
um stað að eiga við náttúruöflin
og þau hafa oft á tíðum verið okk-
ur óvægin,“ segir Guðmundur en
snjóflóð reið yfir Neskaupstað
árið 1974 og þá týndu tólf manns
lífi. „Það voru einnig miklir skip-
skaðar hér fyrr á árum og við vit-
um hvernig á að mæta því. En
gagnvart svona hlutum, sem gerð-
ir eru af mannavöldum, horfa
málin dálítið öðruvísi við,“ segir
Guðmundur.
Neikvæð ímynd
Bæjarstjórinn segir vissulega
slæmt að verða fyrir svona áfalli
en þó sé yfirbragð alls bæjarins í
ágætis lagi. Hann telur ekki að fólk
hafi veigrað sér við að fara út að
kvöldlagi í kjölfar líkfundarins.
Guðmundur viðurkennir fús-
lega að svona atvik dragi upp nei-
kvæða ímynd af bænum. „Það er
umhugsunarefni fyrir okkur hvað
atburðir eins og þessir, sem menn
ráða ekki við, draga upp neikvæða
ímynd. Þetta mál hefur líka feng-
ið óskaplega mikla umfjöllun í
fjölmiðlum og auðvitað er það nei-
kvætt fyrir staðinn. En hér eru
svo margir miklir og góðir hlutir
að gerast að við verðum að breyta
þessari ímynd.“
Guðmundur vill ekki leggja
mat sitt á fjölmiðlaumræðuna
sem skapast hefur í kringum lík-
fundinn. „Við lifum í mjög opnum
heimi og hér eru afkastamiklir
fjölmiðlar. Það hafa komið fram
tilgátur í fjölmiðlum sem hafa
ekki átt við rök að styðjast en við
þurfum að lifa með því á meðan
þetta gengur yfir.“
Rannsókn lögreglunnar er enn
í fullum gangi og hafa einhverjir
íbúar í Neskaupstað verið yfir-
heyrðir vegna málsins. „Það hefur
verið talað við fullt af fólki en ég
veit ekki hvort það séu einhver
vitni í málinu,“ segir Guðmundur
spurður út í rannsóknina. Hann
segist þó lítið vita um framgang
hennar.
Á líkinu fundust hátt í 400
grömm af fíkniefnum. Spurður
hvort hann viti til þess að fíkni-
efnaneysla hafi verið mikil í Nes-
kaupstað svarar Guðmundur:
„Hér hafa verið fíkniefni eins og
annars staðar en ekki meira en á
öðrum sambærilegum stöðum, án
þess þó að ég geti nokkuð fullyrt
um það,“ segir bæjarstjórinn. „Ég
vona nú að þetta mál upplýsist og
þá sjái fólk hvernig í öllu liggur.“
kristjan@frettabladid.is
Bæjarstjórinn á Neskaupstað segist vona að rannsókn líkfundarins ljúki fljótt og málið upplýsist að fullu.
Hann segir málið hafa neikvæð áhrif á ímynd staðarins.
Norðfirðingar slegnir óhug
Það er umhugsun-
arefni fyrir okkur
hvað atburðir eins og þess-
ir, sem menn ráða ekki við,
draga upp neikvæða ímynd.
,,
RANNSÓKN MÁLSINS
Rannsókn málsins er ekki lokið þó svo að tekist hafi
að bera kennsl á líkið í höfninni. Hér eru lögreglu-
menn við upphaf rannsóknarinnar.
Bæjarstjórinn segist vona að rannsókninni ljúki fljótt.
GUÐMUNDUR BJARNASON
Bæjarstjórinn í Neskaupstað segir Norðfirðinga slegna miklum óhug vegna líkfundarins í
bæjarfélaginu á dögunum.
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
Hún er maður að skapi Valgeirs Guðjóns-
sonar. Keik og hnarreist.
■ Maður að mínu skapi
VALGEIR GUÐJÓNSSON
Var þeirrar ánægju aðnjótandi að vinna
með Guðrúnu Helgadóttur.