Fréttablaðið - 21.02.2004, Side 28
28 21. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
FINGRAFÖR HEILANS
„Aðferðin er hávísindaleg og hefur
ekkert með tilfinningar að gera, hvort
sem viðkomandi svitnar eður ei. Tækn-
in byggir á aðferð sem skynjar einung-
is hvort tilteknar upplýsingar er að
finna í heila viðfangsefnisins,“ segir dr.
Farwell. „Tæknin byggir ekki á hug-
lægri túlkun viðbrögðum þess er
gengst undir prófið.
Umdeild tækni:
Fingraför
heilans
Umdeild tækni, sem skynjarheilabylgjur, gæti verið
síðasta hálmstrá manns sem
dæmdur hefur verið til dauða í
Oklahoma í Bandaríkjunum.
Tæknin, sem kölluð er
„brain fingerprint“ eða „fingra-
för heilans“ hefur þegar verið
reynd af bandarísku alríkislög-
reglunni, FBI.
Dr. Larry Farwell er hönn-
uður hinnar umdeildu tækni og
stofnandi Brain Fingerprinting
rannsóknarstöðvarinnar. Að-
ferð hans felst í því að bandi
með skynjurum er komið fyrir
á höfði viðfangsefnisins.
Skynjararnir eiga að nema
bylgjur sem heilinn sendir frá
sér, til dæmis ef meintum
glæpamanni eru sýndar mynd-
ir af morðstaðnum eða ef lög-
reglumenn FBI eru spurðir út í
dulmálslykil sem þeir einir
þekkja.
Þessari nýju tækni hefur
verið líkt við lygamælinn sem
oft hefur verið notaður í morð-
rannsóknum vestanhafs. En
ólíkt lygamælinum liggur ná-
kvæmni „brain fingerprint“ í
því að skynja rafræn skilaboð
sem heilinn sendir frá sér, svo
kallaðar „p300 bylgjur“, áður
en viðfangsefnið getur haft
áhrif á niðurstöðuna.
Fyrir nokkru síðan reyndi
dr. Farwell tæknina á Jimmy
Ray Slaughter í hámarksörygg-
isgæslufangelsi í Oklahoma.
Slaughter var dæmdur fyrir að
myrða fyrrverandi unnustu
sína og ellefu mánaða dóttur
þeirra fyrir nokkru. Glæpurinn
var framinn í húsi sem Slaught-
er þekkir vel til. Að sögn dr.
Farwell voru niðurstöðurnar
óyggjandi.
„Jimmy Ray Slaughter vissi
ekki hvar morðin voru framin í
húsinu; hann vissi ekki hvar lík
unnustu hans fyrrverandi lá né
hvað var á fötum hennar þegar
hún lést – sem er lykilatriði í
þessu máli,“ sagði dr. Farwell.
Kjötkveðjuhátíð og safari
Um þessar mundir myndi ég faratil Rio de Janeiro,“ segir Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson prófess-
or. „Nú um helgina hófst þar kjöt-
kveðjuhátíðin fræga, einhver mesta
skrautsýning í heimi. Ég hef einu
sinni verið á slíkri hátíð þar í borg,
og það var afar skemmtilegt. Þetta
er fallegasta borgarstæði í heimi,
tilvalið til útivistar og líkamsrækt-
ar, strandlífið í Copacabana og Ipa-
nema fjörugt og nóg af notalegum
útiveitingastöðum nálægt strönd-
inni, þar sem teygja má þjóðar-
drykk Brasilíumanna, caipirinha.
Af einu glasi komast menn í gott
skap, eftir tvö dansa þeir samba og
eftir þrjú tala þeir portúgölsku
reiprennandi. Ekkert lag nær að
lýsa andrúmsloftinu í Rio betur en
bossa nova lagið Stúlkan frá Ipa-
nema. Það er beint flug frá Heat-
hrow-flugvelli til Rio á hverjum
degi, tæpir ellefu tímar, nóg til að
lesa eina eða tvær lipurlega sam-
settar ævisögur eða skáldsögur. Rio
er ekki eins hættuleg borg og af er
látið, þótt auðvitað verði ferðamenn
að hafa fulla gát á.
Ég myndi líka nefna safariferð til
Suður-Afríku. Þar var ég í Mala
Mala árið 1987, skammt frá Kruger-
þjóðgarðinum, og það var ógleyman-
leg lífsreynsla, með ljónum, fílum,
gíröffum og öðrum dýrum, sem við
lásum um stóreyg í bernsku. Þriðji
staðurinn, sem ég á góðar minningar
frá, er Bali í Indónesíu, en þangað er
að vísu ekki eins einfalt að ferðast
og til Rio og Jóhannesarborgar. Ég á
hins vegar eftir að skoða Galapagos-
eyjuna undan strönd Ekvador, þar
sem Darwin stundaði rannsóknir
sínar, og Rifið mikla við Drottning-
arland, Queensland, í Ástralíu, sigla
um Amasón fljót og fara til Nepal og
Víetnam. Ég
geymi mér
þetta til betri
tíma. Við
þurfum að
geta hlakk-
að til ein-
hvers.“ ■
SMS-Private er heiti á nýrriklámsíðu sem opnuð hefur ver-
ið á Netinu. Síðan er að öllu leyti í
eigu Íslendinga en þeir stefna á
alþjóðlegan markað með nýtt
kerfi sem notað er til að greiða
fyrir þjónustuna.
„Efnið á síðunni er ekki gróf-
ara en það sem er hægt að nálgast
í bókabúðum,“ segir talsmaður
SMS-Private.com í samtali við
Fréttablaðið. Á síðunni er varað
við því að hún innihaldi gróft kyn-
ferðismyndefni sem aðeins er
ætlað fólki átján ára og eldri.
SMS-private.com tekur þó ekki
ábyrgð á þeim sem villa á sér
heimildir. Foreldrum er boðið að
gera viðeigandi ráðstafanir með
því að læsa ákveðnum lénum og
koma þannig í veg fyrir að börn
komist inn á síðuna.
Greitt með smáskilaboðum
Sennilega eru fleiri klámsíður á
Netinu en hægt er að festa tölu á.
Greiða þarf fyrir aðgang að flest-
um þeirra og er venjan þá sú að
gefa þarf upp kreditkortanúmer.
SMS-private hyggst fara nýjar
leiðir við að rukka notendur fyrir
klámefnið en það verður gert með
smáskilaboðum (SMS).
„Upphaflega hugmyndin með
síðunni var að geta rukkað fyrir
þjónustu án þess að notendur þurfi
að gefa upp kreditkortanúmer.
Fólk hefur verið hrætt við að gefa
upp kortanúmer á Netinu og það er
að ganga af mörgum svona síðum
dauðum,“ segir talsmaðurinn.
Notendur SMS-private.com
senda SMS-skilaboð, með stafa-
kóða, í þjónustunúmer og fá þá
sent um hæl staðfestingakóða sem
veitir þeim aðgang að síðunni.
Smáskilaboðin gjaldfærast á síma-
reikning notanda.
„Það kemur ekki fram á síma-
reikningum hverslags þjónustu er
verið að kaupa. Viðkomandi gæti
þess vegna verið að kaupa skjá-
mynd í símann sinn,“ segir tals-
maðurinn en fyrir hvert smáskila-
boð greiðast 199 krónur.
Stefna á alþjóðamarkað
Að sögn talsmannsins er SMS-
Private.com alþjóðlegt fyrirtæki
með höfuðstöðvar í Nevada-ríki í
Bandaríkjunum. Fyrirtækið býð-
ur Íslendingum jafnt sem útlend-
ingum um allan heim aðgang að
síðunni. Efnishluti síðunnar er
vistaður erlendis.
„Það er hægt að kaupa aðgang
að flestum klámsíðum sem eru á
Netinu, þó notendur séu búsettir á
Íslandi,“ sagði forsvarsmaður
fyrirtækisins. „Við erum samt
ekki talsmenn kláms sem slíkir.“
Klámsíðan opnaði rétt fyrir
helgi og svo virðist sem hún sé
eingöngu stíluð á íslenskan mark-
að. Að minnsta kosti er hún öll á
íslensku og aðeins boðið upp á ís-
lensk þjónustunúmer. Það mun
hinsvegar breytast á næstu dög-
um.
„Við ákváðum að hafa síðuna á
íslensku á meðan við erum að
prófa hana en á næstunni bætast
fleiri lönd við, svo sem Noregur,
Danmörk, Svíþjóð, Bandaríkin og
Bretland, svo eitthvað sé nefnt.
Hugmyndin er að selja kerfið er-
lendis en við erum að prófa hvort
það virkar áður en farið verður á
fullu í alþjóðlega markaðssetn-
ingu. Einnig er gott að mæla
áhuga fólks fyrir síðunni á Íslandi
og viðbrögð þess,“ segir talsmað-
urinn.
Að sögn hans hefur orðið mikil
þróun á SMS-markaði víða um
heim. Markaðurinn á Íslandi er
þar mjög framarlega og því tilval-
inn til prufu. „Það er ekkert
leyndarmál að við lítum stórum
augum út í heim og markaðurinn á
Íslandi er góð byrjun.“
kristjan@frettabladid.is
ÍSLENSK KLÁMSÍÐA
Nokrir Íslendingar hafa opnað nýja klám-
síðu á slóðinni www.sms-private.com/.
Þeir segjast stefna á alþjóðlegan markað.
Nokkrir einstaklingar hér á landi hafa opnað nýja heimasíðu með klámefni fyrir fullorðna. Á henni er boðið
upp á þónokkrar nýjungar í þeim bransa og einstaklingarnir hyggja á stóra hluti.
Íslendingar opna nýja
tegund af klámsíðu
HANNES HÓLMSTEINN
GISSURARSON
„Ég myndi líka nefna safariferð til Suður-
Afríku. Þar var ég í Mala Mala árið 1987,
skammt frá Kruger-þjóðgarðinum, og
það var ógleymanleg lífsreynsla, með
ljónum, fílum, gíröffum og öðrum dýr-
um, sem við lásum um stóreyg í bern-
sku.“
RÍÓ
„Þetta er fallegasta borgarstæði í heimi,“
segir Hannes Hólmsteinn, „tilvalið til úti-
vistar og líkamsræktar, strandlífið í
Copacabana og Ipanema fjörugt og nóg af
notalegum útiveitingastöðum nálægt
ströndinni.“
■ Næsta stopp