Fréttablaðið - 21.02.2004, Side 38

Fréttablaðið - 21.02.2004, Side 38
38 21. febrúar 2004 LAUGARDAGUR Breska rokksveitin Placebohefur staðfest komu sína hingað til lands. Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalshöll og verður engin áfengissala, þannig að aldurstakmarkið er ekkert. „Jú, þeir eru að koma,“ stað- festir Ragnheiður Hansson, sem flytur sveitina hingað til lands. „Það gekk mjög vel að fá þá hing- að því þeir hafa mikinn áhuga fyrir því að koma.“ Ragnheiður er vön í tónleika- haldi og sá til að mynda til þess að tónlistarmennirnir Sting, Dav- id Bowie, Travis, Robbie Willi- ams og Elton John heimsóttu klakann. „Þeir ætla að vera hérna í fjóra daga og vilja skoða sig aðeins um,“ segir Ragnheiður. „Þeir stoppa nú yfirleitt ekki svona lengi á stöðum sem þeir heim- sækja á tónleikaferðum, þannig að þetta er voðalega gaman.“ Sá orðrómur hefur verið á kreiki að David Bowie sé á leið- inni til Íslands en Ragnheiður segir það vera bull. „Það myndi vera tengt mér ef hann væri að koma aftur. Ég væri alveg til í að fá hann til baka, en það er því miður ekkert til í því.“ Placebo hefur aldrei verið vin- sælli en nú. Síðasta breiðskífa sveitarinnar, Sleeping With Ghosts er mest selda plata hennar frá upphafi og hún hefur hrist slagarana fram úr erminni síðustu mánuði eins og ekkert sé auðveldara. Hér á landi hafa lög sveitarinnar verið í látlausri spil- un á X-inu og myndbönd hennar hafa verið áberandi á PoppTívi. Sleeping With Ghosts er fjórða breiðskífa Placebo og end- aði hún á flestum listum gagn- rýnenda yfir bestu plötur síðasta árs. Sveitin var stofnuð fyrir tíu árum síðan og hefur með tíð og tíma unnið sig upp í það að vera ein vinsælasta og virtasta rokk- sveit Breta. Upplýsingar varðandi miða- sölu og upphitunarhljómsveit verða birtar þegar nær dregur. ■ TÓNLIST Miðasala á tónleika bresku stúlknasveitarinnar Sugababes á Íslandi hefst á morgun í verslun- um Skífunnar í Smáralind, Kringl- unni og á Laugarvegi. Tónleikarn- ir fara fram í Laugardalshöll þann 8. apríl næstkomandi, sem er skír- dagur, þannig að tónleikagestir geta notað föstudaginn langa til þess að jafna sig eftir ósköpin. Verslanir Skífunnar opna klukkan 12 á sunnudag og þá hefst miðasalan. Einnig er búið að taka ákveðið magn miða frá fyrir landsbyggð- ina og verða þeir til sölu í fjórum útibúum Landsbankans frá mánu- deginum, á Akureyri, Egilsstöð- um, Akranesi og Selfossi. Ákveðið hefur verið að hiphopsveitin Skytturnar hiti upp. Þeir gáfu út hina baneitruðu plötu Illgresið fyrir jól í fyrra sem hlý- tur að teljast með betri plötum ársins. Ekkert aldurstakmark er á tón- leikana, engin áfengissala og ölv- un ekki liðin. Börnum 12 ára og yngri er skylt að vera í fylgd með fullorðnum. Miðaverð er 5.400 kr. í stúku og 4.400 kr. í stæði. ■ SUGABABES Verður í Laugardalshöll á skírdag, þann 8. apríl. Skytturnar hita upp Tónlist PLACEBO ■ Rokksveitin vinsæla heldur tónleika í Laugardalshöll þann 7. júlí næstkomandi. Placebo til Íslands PLACEBO Ætlar að stoppa á Íslandi í fjóra daga. Miðað við vinsældir sveitarinnar hér á landi síðustu mánuði verður örugglega fullt í Höllinni. Við erum eiginlega of duglegirvið að búa til lög. Það hefur að minnsta kosti aldrei verið vandamál hjá okkur,“ segir Kalli, söngvari hljómsveitarinnar Tenderfoot. „Hitt hefur frekar verið vandamál, að sigta úr það sem við viljum nota.“ Tenderfoot verður með tónleika á Grand Rokk í kvöld, en á þriðju- daginn heldur hún af landi brott í tónleikaferð til Bandaríkjanna. „Það voru einhverjir Ameríkan- ar sem sáu okkur á Airwaves og báðu okkur að kíkja út og spila. Við ætlum að leika á sex tónleikum í New York.“ Hljómsveitin Tenderfoot spilar ljúfa melódíska tónlist með áhrif- um frá bandarískri sveitatónlist og jafnvel djassi. Þeir spila eingöngu á akústísk hljóðfæri og hafa það býsna notalegt þegar þeir æfa sig, sem alltaf er heima í stofu hjá Konna gítarleikara. Upphaf hljómsveitarinnar má rekja til haustsins 2002. „Við byrjuðum tveir, ég og Konni gítarleikari. Síðan bættist Grímsi við á trommur þá um haust- ið, og svo kom Helgi bassaleikari inn síðastliðið vor.“ Þeir hafa haldið þeirri venju að flytja eingöngu frumsamið efni, og að sjálfsögðu verður fyrst og fremst þeirra eigið efni á boðstól- um á tónleikunum í kvöld. „Reyndar ætlum við að breyta aðeins út af vananum á Grand Rokk og tökum eitt Bjarkarlag. Við flytj- um það í okkar útsetningu, og það ætti að geta orðið svolítið gaman.“ Auk þess lofar Kalli að tónleika- gestir í kvöld fái að heyra fjögur eða fimm ný lög. Það er Siggi Ármann sem ætlar að hita upp fyrir þá, en hann hefur stundum hitað upp fyrir Sigur Rós. „Hann er mikill snillingur og verður bara einn með gítarinn sinn.“ ■ HLJÓMSVEITIN TENDERFOOT Spilar á Grand Rokk í kvöld, en heldur síðan til Bandaríkjanna í næstu viku. Popptextinn „But still you’ll never get it right ‘cos when you’re laid in bed at night watching roaches climb the wall If you call your dad he could stop it all. You’ll never live like common people You’ll never do what common people do You’ll never fail like common people You’ll never watch your life slide out of view, and dance and drink and screw because there’s nothing else to do.“ - Jarvis Cocker, söngvari Pulp, virðist viss um það að ríka fólkið nái aldrei að lifa eins og millistéttarfólkið í Bretlandi, eins og kemur glögglega fram í hinum frábæra texta Common People. PULP Samkvæmt heimasíðu banda-rísku rokksveitarinnar Incubus mun sveitin heimsækja landið heim þann 11. júní næst- komandi. Þar kemur fram að Incubus muni halda tónleika hér ásamt bresku sveitinni Hundred Reas- ons sem heimsótti okkur nýverið og hélt tónleika á Gauknum ásamt Mínus. Incubus gaf nýverið út sína fimmtu breiðskífu, Crow Left of the Murder, en eldri plötur sveit- arinnar hafa átt nokkrum vin- sældum að fagna hér á landi. Sveitin var stofnuð árið 1991 og skapaði sér í fyrstu nafn í þunga- rokksgeiranum en hefur með tíð og tíma nálgast meginstrauminn óðfluga. Ekki er vitað á hvaða stað sveitin mun spila. ■ Incubus á klakann? ■ Tónleikar ■ Tónlist Fyrst Grand Rokk, síðan New York INCUBUS Bandaríska rokksveitin Incubus hefur bætt Íslandi við sem væntanlegum tónleikastað á tónleikaferð. Koma sveitarinnar hefur þó ekki fengist staðfest.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.