Fréttablaðið - 21.02.2004, Síða 48
48 21. febrúar 2004 LAUGARDAGURSkautahlaup
FÓTBOLTI Chelsea hefur möguleika á
að hefna fyrir 2-1 tapið gegn
Arsenal í bikarnum á dögunum en
að sama skapi fær Arsenal kjörið
tækifæri til að gera nánast út um
drauma Chelsea um enska meist-
aratitilinn.
„Ef við vinnum er bilið á milli
liðanna mjög lítið,“ segir Claudio
Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea,
sem er í þriðja sæti deildarinnar.
„Ef Arsenal vinnur verður staðan
nánast vonlaus fyrir okkur í meist-
arabaráttunni vegna þess að níu stig
eru of mikið.“
Spænski framherjinn Jose Ant-
onio Reyes, sem sló í gegn er hann
skoraði bæði mörkin gegn Chelsea,
verður væntanlega í framlínu
Arsenal ásamt Thierry Henry, sem
kemur aftur inn í liðið eftir meiðsli.
Liðið verður aftur á móti án þeirra
Gilberto Silva, Ashley Cole og Ray
Parlour, sem eru allir meiddir.
Chelsea hefur átt í mestu erfið-
leikum með Arsenal í gegnum tíðina.
Þeir bláu hafa ekki unnið „skytturn-
ar“ í heil fimm ár í deild og bikar, eða
síðan þeir burstuðu þær 5-0 í deildar-
bikarkeppninni í nóvember 1998.
Síðan þá hefur Chelsea tapað tíu
viðureignum liðanna og fimm sinn-
um hefur orðið jafntefli.
Chelsea hefur reyndar átt í ægi-
legum vandræðum með Arsenal síð-
an úrvalsdeildin var stofnuð og hef-
ur ekki náð að vinna í 16 deildar-
leikjum liðanna í röð. Chelsea hefur
tapað níu af viðureignunum og sjö
sinnum hefur orðið jafntefli. Síðustu
þrír heimaleikir Chelsea í deildinni
gegn nágrönnum sínum hafa endað
með jafntefli og í raun hafa þeir
ekki unnið þá heima í sjö síðustu
deildarleikjum. Síðasti sigur þeirra
gegn Arsenal á Stamford Bridge var
30. september 1995 þegar Mark
Hughes skoraði sigurmarkið.
Hollendingurinn Jimmy Floyd
Hasselbaink getur skráð nafn sitt í
sögubækurnar í dag með því að
skora sitt 100. mark í úrvalsdeild-
inni. Takist það verður hann þriðji
útlendingurinn sem nær því tak-
marki og fetar þar í fótspor Dwight
Yorke og Thierry Henry. Hassel-
baink hefur gengið vel á móti
Arsenal í gegnum tíðina og skorað
sex deildarmörk gegn liðinu.
Hvorki Damien Duff né Hernan
Crespo geta leikið með Chelsea í
dag auk þess sem Carlo Cudicini
verður líklega ekki á milli stang-
anna vegna nárameiðsla. Óvíst er
hvort Eiður Smári Guðjohnsen
verður í byrjunarliðinu, en hann
kom inn á sem varamaður gegn
Arsenal á Highbury. Ljóst er að
leikmenn Chelsea þurfa að taka á
öllu sem þeir eiga ætli þeir sér sig-
ur í leiknum, enda ekki annað hægt
ef stöðva á sigurgöngu Arsenal í úr-
valsdeildinni, sem samanstendur af
27 leikjum í röð án taps. ■
Roy Keane gefur eftir:
Vill aftur í
landsliðið
FÓTBOLTI Roy Keane, harðjaxlinn í
liði Manchester United, hefur gef-
ið kost á sér á ný í írska landslið-
ið. Hann segir að ákvörðunin um
endurkomu hans sé í höndum Bri-
ans Kerr, sem nýlega tók við
landsliðinu.
Keane var rekinn úr írska lands-
liðshópnum árið 2002, nokkrum
dögum fyrir fyrsta leik liðsins á
HM. Hafði hann meðal annars gagn-
rýnt Mick McCarthy þjálfara harð-
lega. Keane saknar þess að spila fót-
bolta á alþjóðavettvangi. „Hluti af
mér hefur alltaf sagt að ég hafi ekki
lokið mínu verki með landsliðinu,“
sagði hann. ■
■ ■ LEIKIR
12.15 KA og Grindavík í Boganum í
deildarbikarkeppni karla í fótbolta.
14.00 Breiðablik mætir Eyjamönnum í
Remax-deild karla í handbolta.
14.00 Víkingar og Fram eigast við í Vík-
inni í Remax-deild kvenna í handbolta.
15.00 Keflavík og KR eigast við í Kefla-
vík í 1. deild kvenna í körfubolta.
15.00 Stjarnan og Grótta KR í Ásgarði í
Remax-deild kvenna í handbolta.
15.15 Völsungar mætir Hetti í Power-
ade-mótinu í fótbolta.
16.00 Selfyssingar taka á móti Þórsur-
um í Remax-deild karla í handbolta.
16.30 Fram leikur við Hauka í Framhús-
inu í Remax-úrvalsdeild karla í hand-
bolta.
17.00 Stjarnan tekur á móti Gróttu/KR í
Ásgarði í Remax-úrvalsdeild karla í
handbolta.
17.00 Haukar taka á móti Val á Ásvöll-
um í Remax-deild kvenna í handbolta.
17.15 Grindavík tekur á móti ÍS í 1.
deild kvenna í körfubolta.
19.15 Keflavík mætir KFÍ í Intersport-
deildinni í körfubolta.
hvað?hvar?hvenær?
18 19 20 21 22 23 24
FEBRÚAR
Laugardagur
BARÁTTA
Sol Campbell í harðri baráttu við Jimmy-
Floyd Hasselbaink í bikarleik Arsenal og
Chelsea á dögunum. Hasselbaink getur
skorað sitt 100. úrvalsdeildarmark í dag.
Án sigurs í fimm ár
Sjö leikir verða háðir í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lundúnafélögin Chelsea og Arsenal mætast í
toppslag umferðarinnar á Stamford Bridge.
LEIKIR DAGSINS
Chelsea-Arsenal
Manchester United-Leeds
Bolton-Manchester City
Charlton-Blackburn
Newcastle-Middlesbrough
Southampton-Everton
Wolves-Fulham
STAÐAN
L U J T Stig
Arsenal 25 18 7 0 61
Man. Utd. 25 18 2 5 56
Chelsea 25 17 4 4 55
Liverpool 25 10 8 7 38
Newcastle 25 9 11 5 38
Charlton 25 10 7 8 37
Aston Villa 25 10 6 9 36
Fulham 25 10 5 10 35
Birmingham 24 9 8 7 35
Bolton 25 8 10 7 34
Tottenham 25 10 3 12 33
Southampton 25 8 7 10 31
Middlesbrough 24 8 7 9 31
Blackburn 25 7 6 12 27
Everton 24 6 7 12 25
Man. City 25 5 9 11 24
Portsmouth 25 6 5 14 23
Leicester 25 4 9 12 21
Leeds 25 5 5 15 20
Wolves 25 4 8 13 20
HART SKAUTAÐ
Hin bandaríska Chris Witty skautaði hart í
1.000 metra skautahlaupi kvenna á
heimsbikarmóti í Þýskalandi í gær. Witty
vann hlaupið en á eftir henni komu landa
hennar Jennifer Rodrigez og Monique
Gabrecht-Enfeldt frá Þýskalandi.
AP
/M
YN
D
5 manna fjölskylda með smáhund
óskar eftiríbúð til leigu sem fyrst á
Rvk-svæðinu. S. 694 5993 Gunnar og
691 7668 Gerður.
Til sölu eða leigu falleg 3ja herb.
135m2 íbúð m. bílageymslu í hinu vin-
sæla hringhúsi í Garðabæ. Frábært út-
sýni. Upplýsingar í síma 565 0936 &
893 3475.
Hús á Spáni og margt fleira.
http://www.bonalba.com” Sendum
bæklinga. Umboðsmaður: Árni Björn
Guðjónsson. Skrifstofa: Síðumúli 35,
sími 662 5941.
Til sölu eða leigu Veitingahúsið og
skemmtistaðurinn að Aðalgötu 7 Sauð-
árkróki. Tilvalið tækifæri fyrir fjölskyldu
eða einstakling til að skapa sér sjálf-
stæðan atvinnurekstur. Tökum hús eða
bíla upp í útborgun ef um sölu er að
ræða. Uppl. í s. 892 6085.
****Bónstöð til sölu.**** Hef bónstöð
til sölu á góðum stað í góðu hverfi.
Miklir möguleikar fyrir duglegan aðila.
Möguleiki að skipta á bíl. Allar upplýs-
ingar í síma 820 3373.
Til sölu ca 500 fm atvinnuhúsnæði í
Dugguvogi. Nýtist undir skrifstofur, íbúð
og fl. Einnig 170 fm húsnæði við Skúla-
götu fyrir verslun eða skrifstofu. Uppl. í
síma 846 1948.
Úrvals góð heilsárshús á góðu verði.
Gólfefnaval, s. 517-8000. gunn-
ar@golfefnaval.is
RB-hús Akranesi, Sumarhús til sölu.
Til sölu og sýnis hús i Hafnarskógi,
Borgarfirði. Grunnflötur hússins er
53m2. Lofthæð í borðstofu/stofu/eld-
húsi er 5,27m. Á efri hæð er eitt stórt
rými 30 fm. sem nýta má undir sjón-
varpshol eða annað. Tilbúinn að utan
og fulleinangraður að innan. Stórkost-
legt útsýni. Áhvílandi 3,4 millj. sumar-
húsalán. RB-hús framleiðir sumarhús til
flutnings. Vönduð vinnubrögð, góð
þjónusta, gott verð. Fáið sendar uppl.
með því að senda tölvupóst á midba-
er@simnet.is eða hringið í síma 698
4747
Sumarbústaður m. heitum potti til
leigu í nágr. Flúða. Uppl. í s. 486 6683
Guðbjörg, 486 6510 Kristín.
Sumarhúsalóðir til sölu eða leigu.
Smíðum einnig sumarhús. Sýningar-
hús á staðnum. S. 892 4605.
Lager eða iðnaðarhúsnæði óskast
til leigu, ca 150 fm. Undir heild-
sölulager. Helst með innkeyrsludyr-
um. Uppl. í síma 894 1204.
100 fm. iðnaðarhúsnæði til sölu/
leigu. Ath. skipti. S. 893 4595/
g@vortex.is
Til leigu 426 ferm. skrifstofu og
lagerhúsn. í Gilsbúð Garðabæ, má
skipta i minni einingar. Tvennar inn-
keyrsludyr, tölvulagnir. Laust frá 1.
maí. S. 696 8110.
Óska eftir húsnæði, hentugu undir
þvottavélaviðgerðir. Innkeyrsludyr.
Uppl. í s. 848 2574.
Grandagarður Rvík 101. Til leigu
240 fm verslunar/þjónustuhúsn. 1.
hæð 120 fm rými+salerni og inn-
keyrsludyr. 2. hæð 120 fm sem skipt-
ist í 5 herbergi+kaffiaðstæðu, salerni
og tvær skjalageymslur. Sími 898
9241 og 552 9241.
Til leigu bílskúr. Leigist aðeins sem
geymsla. Uppl. í síma 663 7595.
Óska eftir stórum bílskúr til leigu.
Helst í Múlahverfi. Svör sendist FBL
merkt “123”.
Íbúð til leigu í Barcelona-Menorca
vetrar- eða sumarfrí. Sími 899 5863.
Gisting í stúdíóíbúð fyrir 2-4. Leigist
í 1 nótt eða fleiri. Uppl. í símum 555
2712/822 1941.
Vilt þú vinna heima og byggja upp vaxandi
aukatekjur? Þjálfun í boði 7-10 klst. í viku.
Halldóra Bjarna hjúkrunarfræðingur, sími
861 4019 www.heilsuvorur.is/tindar
Viltu Læra Netviðskipti? Skráðu þig þá á
www.netvidskipti.com og ég mun hafa sam-
band.
JVJ verktakar óska eftir að ráða vana véla-
menn á beltagröfu og hjólaskóflu. Einnig
starfsmenn vana röralögnum. Uppl. gefur
verkstjóri 893 8213 og á skrifstofutíma, 555
4016.
Nonnabiti óskar eftir starfskrafti,
reyklausum. Uppl. í s. 899 1670 & 551
2312.
Starfsmaður óskast á Sólbaðsstofuna
Smart Grensásvegi 7. Kvöld- og dagvaktir.
Yngri en 20 ára koma ekki til greina. Um-
sóknareyðublöð á staðnum.
Nuddari óskast til starfa hjá Kínversku nátt-
úrulækningum, Skólavörðustíg 16. Uppl.
veitir Sigrún í síma 862 0822.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
(VST). Óskar eftir aðstoðarmanneskju í
mötuneyti. Vinnutími 10:30-14:30 virka
daga. Nánari uppl. veitir starfmannastjóri í
síma 569 5000 eða 861 6641, ea@vst.is.
Einnig á heimasíðu www.vst.is
Vanan kranamann vantar á 40-tonna skip-
skrana, á 10 daga fresti einn dag í senn. Gæti
einnig verið fullt starf í boði. Sækið um á gar-
dlist.is
Vantar strax duglegan Íslending/útlending
til að þrífa fyrir veika konu á svæði 105, 2 í
viku eftir skóla eða meira. Aðeins ábyrgir og
traustir aðilar undir 20 ára aldri koma til
greina. 500 kr. á tímann. S. 562 1585, 846
3816.
24 ára, áreiðanleg og stundvís kona
óskar eftir hlutastarfi. Allt kemur til
greina. Er vön símsvörun, barnagæslu,
þrifum ofl. Uppl. í s. 868 0890.
Húsasmiður á miðjum aldri óskar eft-
ir atvinnu. Vanur útivinnu ásamt mörgu
öðru. S. 694 3155.
31 árs maður óskar eftir vinnu. Er
með meirapróf og vélavarðaréttindi. S.
845 4238.
BÍLSKÚRSALA. Allt á að seljast erum að
flytja erlendis. Opið hús í Drápuhlíð 17,
kjallara, eftir kl. 12 laugard. og sunnud.
www.adamogeva.is - Nýjar DVD
myndir frá 1500 kr. Unaðstæki, sleipi-
efni og undirföt. Adam og Eva, Hafnar-
stræti 106, Akureyri, sími 461 3031 og
Kjarni Mosfellsbær, sími 517 1773.
Karlmaður um sextugt óskar eftir
kynnum við konu á líkum aldri. Svar
merk “Félagi” sendist FBL
(smaar@frettabladid.is).
Speeddater.is-Stefnumótakvöld. Frá-
bær kvöldstund fyrir einhleypa á aldrin-
um 40-55 ára þriðjudaginn 24. feb.
Skráning á speeddater.is eða í s. 864
6002. Næsta kvöld er 09/03 (aldur 55-
67).
● einkamál
Scrapbooking vörur
Opið hús hjá Ísey.is Sunnudaginn
22.02. Kl. 11 - 17 Súðarvogi 7, önn-
ur hæð til vinstri. Sýnikennsla og
kynning á Scrapbooking
Nánari upplýsingar í síma 891
6304.
● tilkynningar
/Tilkynningar
Vertu áskrifandi að
breska lottóinu
og skapaðu tekjur um leið.
88 raðir í viku og hægt er að
spila frítt!
Skráðu þig núna!
www.lottoland.net
● viðskiptatækifæri
● atvinna óskast
● atvinna í boði
/Atvinna
● gisting
● bílskúr
● atvinnuhúsnæði● sumarbústaðir
● fasteignir
● húsnæði til sölu
Damon Johnson:
Leikur gegn Real á morgun
KÖRFUBOLTI Körfuknattleikskappinn
Damon Johnson gekk í byrjun mán-
aðarins til liðs við spánska félagið
C.B. Murcia. Johnson hefur leikið á
Spáni frá því í fyrra, fyrst með 3.
deildarfélaginu C.B. Aracena Ponts
og með 2. deildarfélaginu Cáceres
frá því í haust.
Johnson hefur leikið tvo leiki
með Murcia en á morgun leikur fé-
lagið gegn Real Madrid. Murcia er
neðst í deildinni og hefur unnið sex
af 24 leikjum sínum í vetur en Real
er í fimmta sæti.
Murcia tapaði 91-73 á heimavelli
fyrir Ricoh Manresa fyrir tveimur
vikum. Johnson var í byrjunarliðinu
og lék í 29 mínútur. Hann skoraði
tólf stig, sex með tveggja stiga skot-
um og sex með þriggja stiga skot-
um. Skotnýtingin var 50% í báðum
tilvikum. Johnson tók einnig tvö
fráköst í vörninni, fékk þrjár villur,
stal þremur boltum en tapaði fjór-
um. Spánverjinn Ferran López var
stigahæstur Murcia-manna í leikn-
um með fimmtán stig en Banda-
ríkjamaðurinn Brent Scott skoraði
tólf eins og Johnson.
Fyrir viku tapaði Murcia 89-70
fyrir Jabones Pardo Fuenlabrada á
útivelli. Johnson lék í 27 mínútur og
skoraði ellefu stig, fjögur með
tveggja stiga skotum og hitti úr sjö
af tíu vítaskotum. Hann tók einnig
fjögur fráköst og fékk fjórar villur.
Spánverjinn José Luis Galilea var
stigahæstur með fimmtán stig og
Brent Scott skoraði fjórtán. ■
DAMON JOHNSON
Leikur með C.B. Murcia í efstu deildinni á
Spáni.