Fréttablaðið - 05.03.2004, Síða 55
Góðgerðahljómsveitin Roðlaustog beinlaust hefur fært Slysa-
varnaskóla sjómanna rösklega
hálfa milljón að gjöf en þar er á
ferðinni söluhagnaður plötunnar
Brælublús sem kom út í nóvem-
ber. Afrakstur sölunnar rennur
annars vegar til björgunarsveita,
sem tóku að sér til að byrja með
sölu á diskinum, og hins vegar til
Slysavarnaskóla sjómanna, en
ágóðinn af símasölu rennur alfar-
ið til hans. Í það heila hafa um
4000 eintök selst af Brælublús,
þar af 2.600 stykki í símasölu.
Hljómsveitin er að mestu skip-
uð sjómönnum á frystitogaranum
Kleifabergi ÓF-2 og hefur haft
það yfirlýsta markmið að græða
ekki á tónlistarsköpun sinni. Leið-
arljósið hefur ávallt verið að ef
einhver ágóði yrði af hljómdiska-
útgáfu sveitarinnar rynni hann til
góðra málefna.
„Við munum áfram selja
Brælublús í símasölu enda eru
viðtökur mjög góðar og ágóðinn af
þeirri sölu mun áfram renna til
Slysavarnaskóla sjómanna. Við
erum mjög ánægðir með þann víð-
tæka stuðning sem útgáfa geisla-
diska okkar hefur fengið, það efl-
ir okkur í því að gera enn betur
næst og leita á ný mið í listsköpun
okkar,“ segir Björn Valur Gísla-
son, stýrimaður á Kleifaberginu
og talsmaður hljómsveitarinnar.
„Margir aðilar, einstaklingar,
fyrirtæki og stofnanir hafa stutt
vel við bakið á okkur og gert okk-
ur þannig mögulegt að styðja og
styrkja aðra. Kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir. Við í Roðlausu
og beinlausu höfum alla tíð stutt
eftir mætti við bakið á þeim sem
sinna björgunar- og öryggismál-
um sjómanna og höfum með að-
stoð almennings getað látið gott af
okkur leiða í þeim efnum.“ ■
Fréttiraf fólki
55FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Sigurður Ingi Jónsson
Í Úlfarsfell
Jan Petersen
Nú bjóðum við 10 stórar rósir
á 1790 kr.
frá föstudegi til föstudags
MIKIÐ ÚRVAL TIL FERMINGA
„RÓSADAGAR“
Blóm og Gjafir
Hamraborg
sími 564 3032
Árbæjarblóm
Hraunbæ 102
sími 567 3111
Útgáfa
ROÐLAUST OG BEINLAUST
■ Gengur vel að selja nýja diskinn sinn
og hefur ný látið Slysavarnaskóla
sjómanna njóta ágóðans.
Salan heldur síðan vitaskuld áfram.
Lárétt:
1 laun, 5 hraða, 6 fæði, 7 átt, 8 sjáðu til,
9 andlitskrem, 10 hlotnast, 12 öfug röð,
13 herma, 15 félag, 16 nag, 18 gegn.
Lóðrétt:
1 á hurð, 2 fiskur, 3 sólguð, 4 raðaði, 6
bílstjóri, 8 bý til, 11 hrópa, 14 útlim, 17
grastoppur.
Lausn:
Lárétt: 1 hýra,5asa,6el,7na,8sko,9
meik,10fæ,12mlk,13apa,15la,16
nart, 18móti.
Lóðrétt: 1handfang,2ýsa,3ra,4flokk-
aði,6ekill,9sem,11æpa,14arm,17tó.
1
7 8
9
10 11
13
16 17
18
14 15
12
2 3 4
5 6
Sigurður I. Jónsson, fulltrúiFrjálslynda flokksins í útvarps-
ráði, hefur sagt skilið við flokkinn
vegna uppsafnaðrar óánægju með
varaformanninn, Magnús Þór Haf-
steinsson. Í Frétta-
blaðinu í gær sagði
Sigurður að Magn-
ús hefði „farið
offari í árásum á
menn og stofnanir“
og málefnafátækt
hans hefði verið
landlæg. Það lítur því út fyrir að
skrif Magnúsar á stjórnmálaspjall-
þráðinn malefnin.com hafi verið
meðal þess sem setti Sigurð úr
jafnvægi en þar
talaði Magnús með-
al annars um að
bomba hina og
þessa pólitíska and-
stæðinga til and-
skotans. Málverjar
auglýstu í gær eft-
ir viðbrögðum frá Magnúsi en hann
hefur ekki látið mikið á sér kræla á
þessum vettvangi undanfarið. Í
gærkvöld hafði hann ekki látið í
sér heyra en félagi hans úr þing-
flokki frjálslyndra, Sigurjón Þórð-
arson, eða einhver sem skrifar
undir því nafni hefur blandað sér í
umræðuna og kvatt Sigurð: „Sig-
urður Ingi hefur sagt skilið við
okkur og skýrt frá sinni afstöðu.
Mér finnst miður að hann hafi tek-
ið þá ákvörðun og hef ekki mikið
um hana að segja en ég vil fyrst og
fremst þakka honum fyrir sam-
starfið í gegnum tíðina og óska
honum alls hins besta“.
Fyrir nokkru hóf göngu sína á Út-varpi Sögu þátturinn Nei ráð-
herra sem fjallar eins og nafnið
gefur til kynna um stjórnmál, en
áherslan er lögð á
hugmyndafræði
viðmælenda.
Fyrsti viðmæland-
inn í þættinum var
Hannes Hólm-
steinn Gissurarson
sem setti þar fram
þá kenningu sína um DV að fyrir-
sagnasmiðir þess blaðs gætu ekki
verið edrú þegar þeir væru að
störfum miðað við þær fyrirsagnir
sem hann hefði séð í blaðinu.
Næstur var íslenskufræðingurinn
Mörður Árnason sem vakti athygli
fyrir hversu mikið hann sletti á
frönsku. Í dag fer svo fimmti þátt-
urinn í loftið og sá fyrsti þar sem
ráðherra mætir í Nei ráðherra.
Þar er á ferðinni Björn Bjarnason
dóms- og kirkjumálaráðherra sem
gerir grein fyrir sinni hugmynda-
fræði.
Úrbeinuð og flökuð peningagjöf
HLJÓMSVEITIN ROÐLAUST OG BEINLAUST
Áhöfnin frá Ólafsfirði semur tónlist og gefur út diska sér til skemmtunar en allur ágóði
rennur til öryggismála sjómanna.