Fréttablaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
FIMMTUDAGUR
STÓRLEIKUR Í STYKKISHÓLMI
Snæfell tekur á móti Njarðvík í undan-
úrslitum Intersport-deildar karla í körfu-
bolta klukkan 19.15. Á sama tíma fara
fram fjórir leikir í RE/MAX-deild kvenna í
handbolta: Fram - KA/Þór, Haukar - FH,
Valur - Grótta KR og Víkingur - ÍBV.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HLÝTT EN ÞUNGBÚIÐ Víða væta síst
þó á Austurlandi. Minnkandi úrkoma og
rofar heldur til síðdegis. Blástur hér og hvar
og einna mest á Vestfjörðum. Sjá síðu 6.
● páskaferðir ● pistill úr heimsferð
Getur ekki gert upp á milli
Grænlands og Japans
ferðir o.fl.
Páll Stefánsson:
▲
SÍÐUR 36 & 37
25. mars 2004 – 84. tölublað – 4. árgangur
● uppáhaldsflík landsliðsþjálfarans
Áhrif frá langömmu
og indjánum
tíska o.fl.
Pönkarar hanna:
▲
SÍÐUR 34 & 35
KJÖRIN RÝRNUÐU Nýr kaupréttur
stjórnenda er tveimur milljónum lægri að
nafnvirði en umdeildur réttur sem þeir
afsöluðu sér í nóvember. Sjá síðu 2
LOKAÐ Á KYNFERÐISGLÆPA-
MENN Unnið er hörðum höndum að
samhæfingu hugmynda um hvernig koma
megi í veg fyrir að óæskilegt fólk ráðist í
vinnu með börnum og unglingum. Sjá
síðu 4
ANDSTAÐA VIÐ STEFNU STJÓRN-
VALDA Rúmlega 82% þjóðarinnar telja
að það hafi verið rangt hjá ríkisstjórn Ís-
lands að styðja innrás Bandaríkjamanna í
Írak samkvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Sjá síðu 2
SKAUT HUND Hundaeigendur eru
felmtri slegnir eftir að bóndi og landeig-
andi í Garðabæ skaut til bana hreinræktað-
an boxer-hund. Hundaeigendur óttuðust
um líf sitt. Sjá síðu 6
WASHINGTON, AP Þjóðaröryggisráð-
gjafa Bills Clinton, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, og yfirmann banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA,
greinir á um hvort leyniþjónustan
hafi fengið skýrt umboð til að ráða
Osama bin Laden af dögum.
George Tenet, yfirmaður CIA,
sagði í gær að leyniþjónustumenn
hefðu ekki talið sig hafa leyfi til að
bana bin Laden þó þeir kæmust í
tæri við hann. Þetta sagði hann í
vitnaleiðslu frammi fyrir nefnd
sem kannar viðbúnað bandarískra
stjórnvalda við hryðjuverkum
fyrir árásirnar 11. september 2001.
Þessu hafnaði Sandy Berger, fyrr-
verandi þjóðaröryggisráðgjafi
Clintons. „Ef það ríkti einhver vafi
um þetta innan leyniþjónustunnar
var því aldrei komið á framfæri,
hvorki við mig né forsetann. Ef
beðið hefði verið um frekari heim-
ildir efast ég ekki um að þær hefðu
verið veittar samstundis.“
Í kjölfarið var ákveðið að
treysta á Afgana til að vinna verk-
ið og segir nefndin að það hafi
dregið úr möguleikum á að bin
Laden næðist eða yrði ráðinn af
dögum.
Donald Rumsfeld hafði áður
sagt við yfirheyrslur að óvíst væri
að handtaka eða víg bin Ladens
hefði komið í veg fyrir árásirnar
11. september þar sem þeir sem
framkvæmdu þær hefðu þegar
verið byrjaðir á undirbúningi sín-
um. ■
UMFERÐARSLYS
Önnur bifreiðin kastaðist á hús á horni Lönguhlíðar og Barmahlíðar. Engan í húsinu sakaði.
LÍKFUNDARMÁLIÐ Sakborningarnir
þrír í líkfundarmálinu eru lausir
úr gæsluvarðhaldi og farnir frá
Litla-Hrauni. Hæstiréttur úr-
skurðaði í gær að lögreglunni
bæri að láta þá Grétar Sigurðar-
son, Jónas Inga Ragnarsson og
Tomas Malakauskas lausa en í síð-
ustu viku úrskurðaði Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur mennina, sem
hafa setið í varðhaldi frá 21. febr-
úar, í gæsluvarðhald til 30. apríl.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður Jónasar Inga, segir úr-
skurð Hæstaréttar ekki koma á
óvart.
„Þetta hékk á brúninni í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur,“ segir
Sveinn Andri. „Við verjendurnir
töldum að sakargiftir í málinu
væru ekki nægjanlegar til þess að
um gæti verið að ræða almanna-
hagsmuni og ég geri ráð fyrir að
Hæstiréttur hafi komist að þeirri
niðurstöðu.“
Sveinn Andri heyrði í Jónasi
Inga eftir að úrskurðurinn var
kveðinn upp.
„Hann sagðist vera mjög sátt-
ur,“ segir Sveinn Andri.
Arnar Jensson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn hjá Ríkislögreglu-
stjóra, segir að krafa lögreglu um
áframhaldandi gæsluvarðhald
hafi verið byggð á ákvæðum laga
um almannahagsmuni. „Úrskurð-
ur Hæstaréttar hefur engin áhrif
á rannsókn málsins því mennirnir
voru ekki í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknarhagsmuna. Við reikn-
uðum alveg eins með því að svona
færi.“
Arnar segist hafa meiri
áhyggjur af umfjöllun fjölmiðla
sem birt hafa lögregluskýrslur
um málið.
„Við óttumst það að umfjöllun
fjölmiðla muni hafa þau áhrif að
sá þáttur málsins sem snertir
tengsl við fíkniefnaheiminn í
Litháen verði ekki upplýstur því í
þeim gögnum sem hafa birst
koma fram viðkvæmar upplýsing-
ar, þar á meðal nafn á grunuðum
manni í Litháen.“
Sjá nánar bls. 2, 10 og 12
brynhildur@frettabladid.is
trausti@frettabladid.is
Þrír fluttir á slysadeild:
Bíll kastaðist
á húsvegg
UMFERÐSLYS Bíll kastaðist á hús-
vegg eftir árekstur á mótum
Lönguhlíðar og Barmahlíðar í
Reykjavík síðdegis í gær. Þrír
voru fluttir á slysadeild en meiðsl
þeirra eru ekki talin alvarleg.
Töluverðar skemmdir urðu á hús-
inu.
Bifreið var ekið suður Löngu-
hlíð og beygt austur í átt að
Barmahlíð í veg fyrir bíl sem var
á leið norður Lönguhlíðina. Við
áreksturinn kastaðist önnur bif-
reiðin á hús á horninu með þeim
afleiðingum að rúður í húsinu
brotnuðu og bíllinn stórkemmdist.
Ökumenn beggja bifreiðanna og
farþegi í annarri þeirra voru flutt-
ir með minniháttar meiðsli á
slysadeild Landspítalans. Tvö
börn voru í annarri bifreiðinni en
þau sakaði ekki.
Bílarnir skemmdust töluvert
og voru fluttir á brott með krana-
bíl. ■
Kvikmyndir 50
Tónlist 40
Leikhús 40
Myndlist 40
Íþróttir 46
Sjónvarp 52
Lausir úr varðhaldi
Hæstiréttur úrskurðaði í gær að þrír sakborningar í líkfundarmálinu skyldu leystir úr haldi.
Lögregla segir þetta ekki hafa áhrif á rannsókn málsins en hefur meiri áhyggjur
af fjölmiðlaumfjölluninni um það.
Fylgir
Fréttablaðinuí dag
Yfirmann CIA og fyrrum þjóðaröryggisráðgjafa greinir á um víg bin Ladens:
Deilt um heimild til dráps
YFIRMAÐUR LEYNIÞJÓNUSTUNNAR
Segir að heimild til að ráða Osama bin
Laden af dögum hafi skort.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
JÓNAS INGI RAGNARSSON
Jónas Ingi segist vera mjög
sáttur eftir að hafa verið leyst-
ur úr haldi lögreglu.
Viðræður Starfsgreina-
sambandsins við ríkið:
Félögin huga
að verkföllum
KJARAMÁL Ágreiningur er um mörg
atriði í viðræðum Starfsgreina-
sambandsins og ríkisins. „Það er
ekki hægt að festa hendur á neitt
eitt,“ segir Halldór Björnsson,
formaður Starfsgreinasambands-
ins. Lífeyrissjóðsmál eru þó talin
vega þungt í deilunni.
Formenn aðildarfélaga Starfs-
greinasambandsins funduðu í gær
og var niðurstaðan sú að hver um
sig mun halda heim í hérað og
taka þar afstöðu til þess hvort
boðað verði til verkfalla. „Eins og
þetta lítur út núna, þá er allt í
hnút,“ segir Halldór. ■