Fréttablaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 4
4 25. mars 2004 FIMMTUDAGUR
Var rétt af DV að birta yfirheyrslur
sakborninga í líkfundarmálinu?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu til útlanda um páskana?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
55%
45%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Miðausturlönd
Dæmdir fyrir tollasvik:
Sögðu rússafisk
vera íslenskan
DÓMSMÁL Þrír menn voru í gær
dæmdir til greiðslu samtals sex
milljóna króna sektar í ríkissjóð
auk ellefu hundruð þúsund króna
málskostnaðar fyrir að hafa fram-
vísað röngu upprunavottorði fyrir
fisk sem seldur var sem íslenskur
inn á Evrópska efnahagssvæðið.
Brotin áttu sér stað á árunum
1998 og 1999 og var heildarverð-
mæti afurðanna talið að lágmarki
fimmtíu og sjö milljónir króna.
Fiskurinn var seldur í gegnum
fiskvinnslufyrirtæki á Íslandi og
sagður vera íslenskur en var í
raun frá Alaska og Rússlandi. Ís-
lenskt upprunavottorð tryggir
sérstök viðskiptakjör fyrir afurð-
irnar samkvæmt EES-samningn-
um.
Héraðsdómur telur ekki að
mennirnir hafi beitt vísvitandi
blekkingum heldur hafi verið um
lögfræðilegan vafa um skilgrein-
ingu á uppruna að ræða. Taldist
þetta mönnunum til málsbóta og
voru þeir því ekki dæmdir fyrir
brot á hegningarlögum. Mennirn-
ir voru hins vegar dæmdir fyrir
brot á tollalögum og sagði í niður-
stöðu dómsins að gáleysi dugi til
sakfellingar þótt brotin hafi ekki
verið framin með vilja. ■
Samstarf gegn
barnaníðingum
Menntamálaráðuneytið og fulltrúar frjálsra félagasamtaka og sveitarfélaga vinna nú hörðum höndum að
samhæfingu hugmynda um hvernig koma megi í veg fyrir að óæskilegt fólk ráðist í vinnu með börnum og
unglingum. Er þetta í framhaldi af máli meints barnaníðings sem sóttist í að starfa með börnum.
FÉLAGSMÁL Menntamálaráðuneytið
brá við skjótt eftir að upp komst um
mann sem iðkaði barnaklám á netinu
og hefur hann nú verið ákærður.
Honum hafði meðal annars tekist að
koma sér í starf hjá KFUM og við
fermingarfræðslu hjá sóknarpresti.
Strax í vikunni eftir að uppvíst
varð um iðju mannsins kallaði ráðu-
neytið fulltrúa nokkurra æskulýðs-
samtaka á sinn fund til að móta und-
irbúning að verkefni til að koma í veg
fyrir afskipti fólks af þessu tagi af
börnum og unglingum. Í framhaldi af
þessu hélt ráðuneytið fund með
æskulýðsráði ríkisins og forstjóra
Barnaverndarstofu þar sem lagðar
voru frekari línur. Ákveðið var í
framhaldinu að kalla saman fulltrúa
æskulýðssamtaka og sveitarfélaga.
Þeir hafa starfað saman, meðal ann-
ars að samhæfðum hugmyndum um
vinnureglur hjá frjálsum félagasam-
tökum og stofnunum um málefni
barna og unglinga. Þær eiga að miða
að forvarnarvinnu og fræðslu, en
jafnframt hvernig sporna megi við
því að fólk sem er að reyna að kom-
ast í samband við börn og unglinga
geti ráðið sig í vinnu þeim tengdri.
Þeir sem standa að þessum vinnu-
hópi eru meðal annarra þjóðkirkjan,
Ungmennafélag Íslands, skátahreyf-
ingin, KFUM og ÍTR.
Á vordögum stendur æskulýðs-
ráð ríkisins síðan fyrir vinnufundi,
þar sem ofangreindur starfshópur
mun leggja fram hugmyndir sínar
sem eru afrakstur samstarfsins í
vetur.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
varð svo mál meints barnaníðings á
Patreksfirði til að herða enn á því
starfi sem nú er í gangi. Sá maður
sótti einnig í að vinna með börnum og
unglingum.
„Það er mikið samstarf í gangi
milli sveitarfélaganna sem eru að
vinna á þessum vettvangi svo og
hinna frjálsu félagasamtaka,“ sagði
Soffía Pálsdóttir, æskulýðsfulltrúi
hjá íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur. „Það slær miklum óhug
á fólk við svona tíðindi. Ég tel að mik-
ilvæg vörn í svona málum sé vönduð
ráðningarviðtöl.“
„Þetta er mjög gott framtak hjá
menntamálaráðuneytinu, sveitar-
félögunum og frjálsu félagasamtök-
unum,“ sagði Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu. „Þetta
er að mínu mati mjög dýrmætt for-
varnarstarf sem þarna fer fram,
bæði að vekja vitund um þetta við-
fangsefni og hins vegar haldgóðar
upplýsingar um hvernig heppilegast
sé að bregðast við.“
jss@frettabladid.is
RÆTT VIÐ SYRGJENDUR
Juan Carlos konungur ræðir við ættingja
nokkurra þeirra sem létust í
hryðjuverkunum í Madríd.
Fórnarlömb
hryðjuverkanna í Madrid:
Látinna
minnst
MADRÍD, AP Um 1.500 manns voru
viðstaddir minningarathöfn um
fórnarlömb sprengjuárásanna í
Madríd 11. mars sem haldin var í
gær. Þeirra á meðal voru Juan
Carlos konungur, Sofia drottning,
spænskir stjórnmálamenn og
þjóðhöfðingjar og ráðamenn víðs
vegar að og var Geir H. Haarde
fjármálaráðherra fulltrúi Íslands.
Ekki voru allir aðstandendur
hinna látnu sáttir við veru nokkra
stjórnmálamanna. „Aznar, ég
kalla þig til ábyrgðar fyrir dauða
sonar míns,“ kallaði maður einn
til spænska forsætisráðherrans
skömmu áður en athöfnin hófst.
„Við höfum grátið, og við höf-
um grátið saman,“ sagði Antonio
Rouco Varela kardínáli þegar
hann ávarpaði viðstadda.
Eftir athöfnina ræddu konung-
ur, drottning og börn þeirra við
nokkra aðstandenda og reyndu að
hugga þá. ■
TÓLF ÁRA MEÐ SPRENGJUR Ísra-
elskir hermenn stöðvuðu tólf ára
palestínskan dreng við vegar-
tálma á Vesturbakkanum í gær
en drengurinn bar sprengjubelti
um sig miðjan. Óljóst var hvort
drengurinn var að flytja beltið
milli staða eða átti að sprengja
sig í loft upp.
ÞORSKUR SAGÐUR ÍSLENSKUR
Fiskurinn sem seldur var sem íslenskur var frá Alaska og Rússlandi.
BARNAKLÁM
Meintur barnaklámsmaður leiddur inn í lögreglubíl af lögreglumanni. Búist er við að
dómur falli í máli mannsins í dag.
TVÖ NÝLEG MEINT BARNANÍÐINGSMÁL
HÉRAÐSDÓMUR RÍKISSAKSÓKNARI
Barnaklámsmaður Barnaníðingur á Patreksfirði
Störf Störf
Sjálfboðaliði hjá KFUM Lögreglumaður
Fermingarfræðsla Umsjón með félagsmiðstöð
Útvarpsmaður Húsvörður í grunnskóla
Starfsmaður tollsins Forvarnarstarf barna
Sturtuvörður í leikfimihúsi
Klámefni við húsleit
Á fjórða hundrað myndbanda
Um 200 geisladiskar
Tvær tölvur með miklu af barnaklámi
Meint fórnarlömb Meint fórnarlömb
Sex drengir Sex drengir
LAUNAMÁL Í launakönnun á vegum
Kópavogsbæjar kemur fram að
óútskýrður launamunur kynjanna
meðal starfsmanna bæjarins er
fimm prósent en átta prósent þeg-
ar grunnskólakennarar eru ekki
taldir með.
Gunnar Birgisson, formaður
bæjarráðs, segir að í könnuninni
komi fram að launamunur sé
minni hjá Kópavogsbæ en hjá ná-
g r a n n a s v e i t a r f é l ö g u n u m .
„Reykjavík, sem hefur gumað sig
af því að vera höfuðborg jafnrétt-
is á landinu, býr við mestan launa-
mun kynjanna. Enda eru þar við
lýði mestu umræðupólitíkusar
landsins og meira talað en minna
framkvæmt,“ segir Gunnar.
Í fréttatilkynningu frá Sam-
fylkingunni í Kópavogi segir að
grípa þurfi til markvissra að-
gerða til þess að draga úr launa-
muninum en heildarlaun kvenna
hjá Kópavogsbæ nema 76 prósent
af heildarlaunum karla.
„Könnunin sýnir að konur og
karlar sem vinna hjá Kópavogs-
bæ búa ekki við sömu launakjör
þrátt fyrir yfirlýsta stefnu bæjar-
ins um launajafnrétti,“ segir í til-
kynningu Samfylkingarinnar. ■
Gunnar I. Birgisson sáttur við launakönnun hjá Kópavogsbæ:
Reykjavík er ekki
höfuðborg jafnréttis
GUNNAR I. BIRGISSON
Formaður bæjarráðs segir launa-
muninn vera minni en í ná-
grannasveitarfélögunum.