Fréttablaðið - 25.03.2004, Qupperneq 2
2 25. mars 2004 FIMMTUDAGUR
„Lagalega séð er lagið einstakt.“
Sveinn Rúnar Sigurðsson er höfundur lagsins sem
verður framlag Íslands í Júróvisjón. Eins og venju-
lega telja einhverjir sig hafa heyrt svipað lag áður
og velta fyrir sér hvort það sé stolið eða stælt.
Spurningdagsins
Sveinn Rúnar, er þetta engu lagi líkt?
VIÐSKIPTI Æðstu stjórnendur KB
banka, Sigurður Einarsson
stjórnarformaður og Hreiðar
Már Sigurðsson, munu geta keypt
bréf í bankanum fyrir 1,2 millj-
arða á næstu fimm árum. Tillaga
þessa efnis verður lögð fyrir
hluthafa bankans á aðalfundi
hans á laugardag. Kaupréttirnir
eru með sölutryggingu að hluta
og er stjórnendum boðið að taka
lán í samræmi við almennar regl-
ur til að fjármagna kaupin. Um er
að ræða kauprétt á 812 þúsund
hlutum á ári næstu fimm ár.
Kaupgengið miðast við mark-
aðsvirði daginn sem rétturinn er
veittur.
Gengi bankans nú er 300 krón-
ur á hlut, en fyrri samningar sem
stjórnendur bankans drógu til
baka hljóðaði upp á gengið 156.
Gengið þá var sótt til 1. júní þeg-
ar Kaupþing og Búnaðarbanki
sameinuðust. Samhliða kauprétti
Sigurðar og Hreiðars Más fengu
aðrir lykilstarfsmenn kauprétt á
genginu 210. Hörð umræða varð í
samfélaginu vegna þessara
samninga og tók Davíð Oddsson
forsætisráðherra meðal annars
út innistæðu sína í bankanum.
Rekstur bankans hefur gengið
vel og gengi bréfa hans hækkað
mikið. Miðað við að núverandi
gengi borga þeir hvor um sig 586
milljón krónum meira fyrir bréf-
in en samkvæmt fyrri samning-
um. Ef miðað er við kaupréttar-
gengi annarra kaupenda, þá
borga Sigurður og Hreiðar 363
milljónum meira fyrir bréfin.
Fjöldi hluta sem þeir fá að
kaupa næstu fimm ár er rúmar
fjórar milljónir hluta. Það sem
þeim stóð til boða að kaupa í nóv-
ember voru um sex milljónir
hluta. Hefði fyrri kaupréttur gilt
væri verðmæti hans nú níu hund-
ruð milljónum meiri miðað við
gengi dagsins.
Þess ber að geta að framtíðar-
gengi KB banka liggur ekki fyr-
ir. Eignin er bundin næstu fimm
árin og því framtíðin ein sem
getur skorið úr um hagnað af
þessum samningum. Röksemdir
stjórnar bankans fyrir tillög-
unni er að stjórnendur og lykil-
starfsmenn ráði miklu um
áframhaldandi vöxt bankans og
verðmætaaukningu fyrir hlut-
hafa bankans.
haflidi@frettabladid.is
KÖNNUN Rúmlega 82% þjóðarinn-
ar telja að það hafi verið rangt
hjá ríkisstjórn Íslands að styðja
innrás Bandaríkjamanna í Írak
samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Tæplega 18%
telja að það hafi verið rétt. Þetta
miðast einungis við þá sem tóku
afstöðu.
Alls tóku 91,1% aðspurðra af-
stöðu til spurningarinnar. Ríf-
lega 5% segjast óákveðnir og
rúmlega 3% neituðu að svara.
Marktækur munur er á afstöðu
kynjanna. Um 25% karla telja
það hafa verið rétt af ríkis-
stjórninni að styðja innrásina
samanborið við aðeins 10%
kvenna. Ekki er marktækur
munur á afstöðu fólks með tilliti
til búsetu.
Stuðninur almennings við
stefnu íslenskra stjórnvalda í
málinu hefur minnkað töluvert á
einu ári. Í apríl í fyrra leiddi
skoðanakönnun Fréttablaðsins í
ljós að 28% fólks var fylgjandi
stefnu íslenskra stjórnvalda en
72% mótfallin henni.
Skoðanakönnunin var unnin á
föstudaginn. Hringt var í 800
manns, jafnt skipt milli kynja og
hlutfallslega eftir búsetu, og
þeir spurðir: „Var það rétt eða
röng ákvörðun hjá ríkisstjórn
Íslands að styðja innrásina í
Írak?“ Alls tóku 91,1% að-
spurðra afstöðu. ■
FRÁ STRANDSTAÐ
Baldvin Þorsteinsson er nú í Noregi þar
sem verið er að kanna skemmdir.
Strand Baldvins
Þorsteinssonar:
Sjópróf
hefjast í dag
STRAND Sjópróf vegna strands
fjölveiðiskipsins Baldvins Þor-
steinssonar í Meðallandsfjöru
fyrr í mánuðinum, hefjast í hér-
aðsdómi Norðurlands eystra í
dag. Sjóprófin áttu upphaflega að
hefjast síðastliðinn mánudag, en
þeim var frestað þar til allir skip-
verjar væru komnir til landsins.
Þeir komu frá Noregi í gær, en
eftir að skipinu var bjargað af
strandstað var það flutt þangað til
að kanna skemmdir. Aðalfundi
Samherja, útgerðarfélags Bald-
vins Þorsteinssonar, hefur verið
frestað til 29. apríl vegna óhapps-
ins. ■
EKIÐ Á BARN Á REIÐHJÓLI Ekið
var á níu ára gamla stúlku á reið-
hjóli við Fjölbrautarskóla Suður-
lands á Selfossi um klukkan eitt í
gær. Að sögn lögreglu var stúlk-
an með hjálm en talið er að hún
sé lærbrotin. Stúlkan var flutt á
slysadeild í Fossvogi.
BRAUTARSPOR SKOÐUÐ
Hótanir um að lestarteinar yrðu sprengdir í
loft upp urðu til þess að svipast var eftir
sprengjum víða um Frakkland.
Frakkland:
Sprengja á
lestarteinum
PARÍS, AP Starfsmaður frönsku
lestanna fann í gær sprengju sem
hafði verið grafin niður að hluta
við lestarteina. Stutt er síðan áður
óþekkt samtök sögðust hafa graf-
ið níu sprengjur við lestarteina í
Frakklandi og hótuðu því að
sprengja þær ef þau fengju ekki
greiddar háar fjárhæðir.
Sprengjan fannst við járn-
brautarsporin sem liggja frá Par-
ís til Basel í Sviss. Sprengju-
sérfræðingar grófu sprengjuna
upp og gerðu hana óvirka. ■
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
BROTIST INN Í FJÓRA BÍLA Til-
kynnt var um fjögur innbrot í
bíla í Hvömmunum í Kópavogi í
fyrrinótt. Þjófarnir brutu hliðar-
rúður og höfðu á brott með sér
hljómflutningstæki. Ekki er vitað
hverjir voru þarna að verki.
FLUTNINGABÍL EKIÐ Á HEST
Flutningabíl var ekið hest á við
Hala í Suðursveit í gærmorgun.
Bíllinn var ökufær en skemmdist
þó töluvert. Hesturinn hljóp á
brott og var hann ófundinn þegar
rætt var við lögregluna á Höfn
síðdegis í gær. Að sögn lögreglu
er lítið um girðingar á þessu
svæði og því algengt að hestar
gangi lausir við þjóðveginn.
Kjörin rýrnuðu um
níu hundruð milljónir
Nýr kaupréttur stjórnenda er tveimur milljónum lægri að nafnvirði en
umdeildur réttur sem þeir afsöluðu sér í nóvember. Nýr samningur
verður lagður fyrir hluthafafund á laugardag.
NÝIR SAMNINGAR
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, og Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri
munu með fyrirvara um samþykki aðalfundar, gera nýja kaupréttarsamninga um kaup í
bankanum. Upphæðin frá síðasta samningi hefur lækkað, auk þess
sem gengi kaupréttarins er mun hærra en í fyrri samningi.
Nafnverð Nafnverð
kaupréttar kaupréttar
nú í nóvember
4.060.000 6.090.000
Kaupgengi gamla samningsins 156 633.360.000 950.040.000
Kaupgengi annarra stjórnenda KB banka 210 852.600.000 1.278.900.000
Kaupgengi í gær 300 1.218.000.000 1.827.000.000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
FJÖGURRA BÍLA ÁREKSTUR Fjög-
urra bíla aftanákeyrsla varð á þjóð-
veginum milli Egilstaða og Fellabæj-
ar síðdegis á þriðjudag. Engin slys
urðu á fólki en einn bíllinn var óöku-
fær og var hann dreginn í burtu.
ELDUR KVIKNAÐI Í RAFMAGNS-
KASSA Slökkvilið var kallað á vett-
vang þegar eldur kviknaði í raf-
magnskassa skammt frá höfninni í
Keflavík á þriðjudagskvöld. Raf-
magnslaust varð í hluta bæjarins í
kjölfarið.
ELDUR KVIKNAÐI Í BÍL Eldur kom
upp í vélarrými bifreiðar á þjóðveg-
inum undir Ingólfsfjalli á þriðjudag.
Slökkvilið Árborgar var kallað á stað-
inn og gekk greiðlega að ráða niður-
lögum eldsins. Tveir menn voru í
bílnum og komust þeir klakklaust út.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins um innrásina í Írak:
Mikil andstaða við stefnu stjórnvalda
RÖNG
ÁKVÖRÐUN
82,4%
VAR ÞAÐ RÉTT EÐA RÖNG ÁKVÖRÐ-
UN HJÁ RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS AÐ
STYÐJA INNRÁSINA Í ÍRAK?
RÉTT
ÁKVÖRÐUN
17,6%
■ Lögreglufréttir
Arnar Jensson segir það blasa við að þremenningarnir verði ákærðir:
Kanna tengsl við
glæpastarfsemi erlendis
LÍKFUNDARMÁLIÐ Lögreglan er að
kanna hvort líkfundarmálið tengist
skipulagðri glæpastarfsemi í Lit-
háen eða annars staðar í heiminum,
að sögn Arnars Jenssonar, aðstoð-
aryfirlögregluþjóns hjá Ríkislög-
reglustjóra.
„Við erum í samstarfi við al-
þjóðlegar lögreglustofnanir og Lit-
háa en engar handtökuskipanir
hafa verið gefnar út erlendis vegna
málsins,“ segir Arnar.
Arnar staðfestir að grunur leiki
á að fleiri Íslendingar tengist
dreifingu á fíkniefnum frá Litháen
en segir að enn hafi engir verið
yfirheyrðir.
„Það getur einnig reynst erfitt
að upplýsa þennan þátt vegna um-
fjöllunar fjölmiðla en það sem
varðar dauða mannsins og meðferð
á líkinu teljum við mjög vel upp-
lýst.“
Enginn sem nafngreindur er í
þeim skýrslum sem birtar hafa
verið í fjölmiðlum hefur haft sam-
band við lögreglu.
Arnar segir að líkfundarmálið
sé ekki á leið til saksóknara á
næstu dögum.
„Við erum að bíða eftir ýmsum
gögnum að utan og frá tækni-
mönnum,“ segir Arnar. „Við eig-
um von á niðurstöðum eftir eina
til tvær vikur og svo verðum við
að sjá hvert angarnir leiða okkur.
Mér finnst það blasa við að þre-
menningarnir verði ákærðir en ég
get ekki svarað því hvort fleiri
verða ákærðir.“ ■
ARNAR JENSSON
Arnar segir að líkfundarmálið sé ekki á leið
til saksóknara á næstu dögum.