Fréttablaðið - 25.03.2004, Page 36

Fréttablaðið - 25.03.2004, Page 36
til London og Kaupmannahafnar frá 1. apríl Tvisvar á dag ferðir o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Síðasta utanlandsferð? Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Spennandi ævint‡rafer›ir til allra heimsálfa me› Encounter, Dragoman, Contiki, Intrepid, Imaginative Traveller, Tucan o.fl. Allar nánari upplýsingar liggja frammi á skrifstofu okkar eða á www.exit.is. 22. - 29. júní s: 570 2790www.sveit.is í faðmi alpafjalla gönguferð KYNNTU ÞÉR SÉRFERÐIR FERÐAÞJÓNUSTU BÆNDA Eftirminnilegasta ferð Páls Stefánssonar ljósmyndara: Getur ekki gert upp á milli Grænlands og Japan Fyrir utan ferðina niður fæð-ingarveg móður minnar sumarið ‘58 eru mér minnis- stæðastar ferðir mínar til Japan og Grænlands,“ segir ljósmynd- arinn sífljúgandi Páll Stefáns- son hjá Iceland Review, en Páll hefur einu sinni heimsótt land hinnar rísandi sólar en farið einar tuttugu ferðir til frænda vorra í Grænlandi. „Þessi lönd eru mér bæði mjög hugleikin og ég get engan veginn gert upp á milli þeirra, svo ég segi jafn- tefli milli Grænlands og Japan. Tókýó heillar mig ofboðslega enda mesta menningarborg heims og stærsta borg veraldar. Grænland er svo strjálbýlasta land heims og þessar andstæður höfða sterkt til mín,“ segir Páll, sem jafnan fer utan minnst einu sinni í mánuði og oftar en ekki til framandi slóða. „Það sem gerir ferðir eftirminnilegar er fyrst og fremst fólkið og á báð- um þessum stöðum hef ég heill- ast af fólkinu sem á það ekki bara sameiginlegt að vera ská- eygt, heldur er áberandi glatt, gestrisið og með sterkar menn- ingarrætur sem standa traust- um fótum í samfélögum sem víst eru sannarlega ólík inn- byrðis. Ég hef lengi dáðst að matarmenningu þessara þjóða, sem og hugsunarhætti og aðlög- unarhæfni. Í Tókýó búa 32 milljónir íbúa á pínulitlum land- skika, en í Grænlandi býr fá- menn þjóð í risastóru og óbyggi- legu landi með grimm náttúru- öflin vofandi yfir sér. Báðar þjóðirnar aðlagast þessum að- stæðum með glöðu geði, jafn öfgafullar sem þær nú eru. Og í Tókýó fara íbúarnir leiðar sinn- ar í holum ofan í jörðinni í há- tæknivæddum lestum, en á Grænlandi fer það um á hunda- sleðum um ísi lagt landið. Mér finnst það algjörlega ómót- stæðilegt.“ thordis@frettabladid.is PÁLL STEFÁNSSON LJÓSMYNDARI Dáist að aðlögunarhæfni mannfólksins og sterkum andstæðum. LANDMANNAHELLIR UM HELG- INA Um næstu helgi, 26.-28. mars, efnir Útivist til göngu- skíðaferðar í samvinnu við jeppa- deild í Landmannahelli. Ekið er í Hólaskóg og gist þar fyrstu nótt- ina. Næsta dag verður haldið í Landmannahelli. Skíðafólk setur á sig skíðin og heldur af stað en betur búnir jeppar leggja til at- lögu við snjó og ófærur. Um kvöldið verður sameiginlegt grill, söngur og gaman. Svipuð leið verður farin til baka. Brottför annað kvöld kl. 19 frá skrifstofu Útivistar, Laugavegi 178. MYNDASÝNING FJALLALEIÐSÖGU- MANNA Í kvöld verður mynda- sýning um klifur og fjalla- mennsku á Íslandi. Ívar F. Finn- bogason og jafnvel fleiri leið- sögumenn Íslenskra fjallaleið- sögumanna munu sýna valdar myndir. Myndasýningin verður í sal Ísalp að Skútuvogi 1g, klifur- húsinu, og hefst klukkan 20.30. ■ Um landið Ég fór 6. ágúst í fyrra til Spánar. Það var fínasta ferð. THELMA HRUND KRISTJÁNSDÓTTIR.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.