Fréttablaðið - 15.04.2004, Side 13
13FIMMTUDAGUR 15. apríl 2004
ÚTSÖLUSTA‹IR
Spennandi MÁNAÐARTILBOÐ
Úrval LJÓSA Á TILBOÐI í apríl
Halogenkastari KOS. 3x50w,
hvítur / burstað stál / burstað messing.
Tilboðsverð: 4.990,-
Halogenkastari KOS. 4x50w,
hvítur / burstað stál / burstað messing.
Tilboðsverð: 7.970,-
Halogenkastari KOS. 2x50w,
hvítur / burstað stál / burstað messing.
Tilboðsverð: 3.930,-
Halogenkastari KOS. 2x50w,
hvítur / burstað stál / burstað messing.
Tilboðsverð: 3.930,-
Útilampi DANZIG.
60w, hvítur.
Tilboðsverð: 1.990,-
Ármúla 24 • S: 585 2800
KLAKKUR, Vík / BYMO, Mosfellsbæ / FOSSRAF, Selfossi / GEISLI, Vestmannaeyjum / GUÐNI E. HALLGRÍMSSON, Grundarfirði / HS.RAF, Eskifirði / KH.BLÖNDUÓSI
KAUPF.HVAMMSTANGA / KAUPF.VOPNFIRÐINGA / LÓNIÐ, Höfn / BLÓMSTURVELLIR, Hellissandi / RAFBÚÐ RÓ, Keflavík / RAFBÚÐIN ÁLFASKEIÐI, Hafnarfirði
RAFALDA, Neskaupsstað / RAFBÆR, Siglufirði / RAFLAMPAR, Akureyri / ÖRYGGI, Húsavík / RAFMAR, Reyðarfirði / RAFSJÁ, Sauðárkróki / STRAUMUR, Ísafirði
SVEINN GUÐMUNDSSON, Egilsstöðum / RAFLOST, Djúpavogi www.rafkaup.is
ze
to
r
Halogenkastari KOS. 50w,
hvítur / burstað stál / burstað messing.
Tilboðsverð: 1.960,-
Halogenkastari SELECT.
60w, stál.
Tilboðsverð: 2.490,-
Halogenkastari REEF.2x50w, stál.
Tilboðsverð: 3.940,-
Halogenkastari REEF.4x50w, stál.
Tilboðsverð: 7.980,-
Halogenkastari SELECT. 4x60w, stál.
Tilboðsverð: 9.760,-
Ljósakróna ROYAL.
3x40w, beis / gyllt.
Tilboðsverð: 5.970,-
Ljósakróna Santana.
5x40w, messing / gler.
Tilboðsverð: 7.960,-
Loftljós RICARDA.
messing burstað / eik.
Tilboðsverð: 2.490,-
Halogenkastari SELECT. 2x60w, stál.
Tilboðsverð: 4.880,-
Gólflampi UP2.Með upp og lesljósi.
Tilboðsverð: 5.985,-
SÖFNUN „Ég hef reynt að vekja at-
hygli á að þó ekki sé það lífsspurs-
mál fyrir börn að komast í sumar-
búðir er það eitt af því sem mörg
börn í landinu njóta og hafa bæði
gagn og gaman af,“ segir Árni
Johnsen en Fjölskylduhjálp Ís-
lands hefur fengið hann í lið með
sér og farið af stað með söfnun til
að gefa börnum frá efnalitlum
fjölskyldum kost á því að komast í
sumarbúðir.
Árni segir þau leita eftir stuðn-
ingi til fyrirtækja, starfsmanna-
félaga og einstaklinga. Hægt er að
leggja inn á reikning númer 0546-
26-6609 í Íslandsbanka í Garðabæ
eða hringja í söfnunarsímann 901
5050 en 500 krónur gjaldfærast við
hverja hringingu. „Það væri ekki
slæmt uppeldisatriði að foreldrar
barna í landinu, sem flest hafa það
allþokkalegt, ræddu þessi mál við
börn sín og létu þau hringja inn
styrkinn.“ Stefnt er að því að geta
gefið á milli 300 til 600 börnum frá
efnalitlum fjölskyldum kost á því
að fara í sumarbúðir. ■
Hlúa að íslenskum börnum:
Gefa börnum kost
á sumarbúðadvöl
CHIRAC OG RASMUSSEN
Jacques Chirac Frakklandsforseti ræðir við
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, fyrir utan Elysee-höll í París.
Danski ráðherrann fór í eins dags heim-
sókn til Frakklands til að funda með þar-
lendum ráðamönnum um nýja stjórnar-
skrá Evrópusambandsins, samband Evrópu
og Bandaríkjanna og ástandið í Írak.
Íþróttafulltrúar:
Átta félög
vilja styrk
BORGARRÁÐ Íþrótta- og tómstunda-
ráði Reykjavíkur hafa borist
beiðnir um styrk frá átta íþróttafé-
lögum vegna ráðningar á íþrótta-
fulltrúum, að því er fram kom á
borgarráðsfundi á þriðjudag.
Árið 2001 var gerður samning-
ur við þrjú íþróttafélög í Reykja-
vík vegna tilraunaverkefnis um
ráðningu íþróttafulltrúa. Félögin
eru Fram, Víkingur og Fylkir en
ÍTR styrkir félögin og starfs-
mennirnir eru á vegum félaganna.
Ekki liggja fyrir fjárveitingar
um frekari styrki en ÍTR vinnur
nú að stefnumótun vegna mála-
flokksins í heild sinni þar sem
fjallað verður um störf íþrótta-
fulltrúa.
Fulltrúar Sjálfstæðismanna ít-
rekuðu þá skoðun sína að það sé
forgangsmál að tryggt verði að
íþróttafulltrúar starfi hjá íþrótta-
félögunum í borginni. ■
Concorde:
Greiddi
15 milljónir
fyrir nef
BRETLAND Ítalskur karlmaður
greiddi rúmar fimmtán milljónir
íslenskra króna fyrir nef af
Concorde-þotu á uppboði í
Englandi. Nefið var eitt af þrem-
ur til sölu en minjagripir um
Concorde hafa rokið út síðan
hætt var að fljúga vélunum
hljóðfráu í fyrra. Ítalinn ætlar
að stilla nefinu upp í stofunni
heima hjá sér.
Fimm hinna sjö Concorde-
véla British Airways hafa þegar
verið sendar á söfn í Bretlandi
og víðs vegar um heiminn. Önn-
ur þeirra sem eftir eru mun
verða áfram á Heathrow og hin
síðasta verður flutt á flugsögu-
safnið í Edinborg. ■
VATNASKÓGUR
Fjölskylduhjálp Íslands hefur hafið söfnun
til að gefa börnum frá efnalitlum fjölskyld-
um færi á að komast í sumarbúðir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Gjaldfrír leikskóli:
Kostar 7,5
milljarða á ári
ALÞINGI Leikskólamál eru ekki á
forræði ríkisins heldur sveitar-
félaga, sagði Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra í svari við fyrirspurn Ágústs
Ólafs Ágústsssonar, Samfylking-
unni, um leikskólagjöld. Ágúst
Ólafur taldi það skjóta skökku við
að gjöld í leikskóla væru hærri en á
öðrum skólastigum.
Ráðherra gat þess einnig að hún
teldi ekki efnahagslegar forsendur
fyrir því að ríkið tæki að sér að sjá
fyrir gjaldfrjálsri leikskólaþjón-
ustu og nefndi að kostnaður við
slíkt myndi nema allt að sjö og
hálfum milljarði króna á ári. ■
NEF CONCORDE-ÞOTU
Ítali greiddi 15 milljónir fyrir að fá að hafa
nef Concorde-þotu í stofunni hjá sér.
■ Kanada
SELVEIÐUNUM LOKIÐ Í KANADA
Kanadamenn hafa hætt einhverj-
um umfangsmestu selveiðum til
margra ára, tveimur dögum eftr
að veiðarnar hófust. Talið er að
selfangarar á Nýfundnalandi hafi
drepið tæplega 250 þúsund seli á
þessum tveimur dögum. Starfs-
menn sjávarútvegsráðuneytisins
staðfestu að leyfilegum kvóta
hefði verið náð með formlegri
talningu hræja í gærmorgun.