Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 1
● aðdáendur sjóði saman lög
David Bowie:
▲
SÍÐA 22
Efnir til
samkeppni
● í erfiðum málum
Micheal Jackson:
▲
SÍÐA 25
Skiptir um
lögmenn
● í úrslit í handboltanum
Heimir Ríkharðsson:
▲
SÍÐA 20
Spáir í IR
og Haukum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
ÞRIÐJUDAGUR
VALUR MÆTIR ÍR Tveir leikir verða í
undaúrslitum Remax-deildar karla í
handbolta klukkan 19.15. Haukar taka á
móti KA og Valsmenn fá ÍR-inga í heim-
sókn. Einn leikur verður í úrslitakeppni
Remax-deildar kvenna. FH sækir ÍBV
heim klukkan 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VAXANDI ÚRKOMA SÍÐDEGIS víða
umland síst þó austantil. Bjart allra austast
en þykknar upp er líður á daginn. Nokkuð
milt á landinu. Sjá síðu 6.
27. apríl 2004 – 114. tölublað – 4. árgangur
ÁSTANDIÐ
ÓVIÐUNDANDI
Forsætisráðherra segir
að samþjöppun á
fjölmiðlamarkaðnum
hafi skapað óviðunandi
ástand. Sjá síðu 2
LANDSBANKINN TIL AÐSTOÐAR
Landsbankinn stærsti kröfuhafi í Íslensku
kvikmyndasamsteypunni leggur nú hönd á
bagga til að forða fyrirtækinu frá gjaldþroti.
Heildarskuldir Íslensku kvikmyndasam-
steypunnar nema um hálfum milljarði
króna. Sjá síðu 6
DEILT UM ÞINGVELLI Kirkjuráð mót-
mælir því að Þingvellir séu taldir til ríkis-
jarða í frumvarpi til laga um þjóðgarðinn.
Kirkjan hefur ítrekað óskað eftir viðræðum
við ríkisvaldið um eignarhald. Sjá síðu 8
AUKIÐ TRAUST Fréttablaðið er mest
lesna dagblað landsins og sá fjölmiðill sem
flestir nota á hverjum degi. Þeim sem
treysta blaðinu hefur því fjölgað um 19
prósent. Sjá síðu 10
Sævar Lúðvíksson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Aldrei latur á
æfingum
● heilsa
53%66%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
JÓRDANÍA, AP Jórdönsk stjórnvöld
segja að hryðjuverkahópur sem
þau brutu upp hafi ætlað sér að
myrða allt að 80.000 manns í efna-
vopnaárásum á skotmörk í Amm-
an, höfuðborg Jórdaníu.
Jórdanska ríkissjónvarpið sýndi í
gær upptökur af forsprakka hóps-
ins þar sem hann viðurkennir
tengsl við Abu-Musab al-Zarqawi
og kveðst hafa þegið andvirði 12,5
milljóna króna af honum við fjár-
mögnun fyrirhugaðra árása.
Bandaríkjamenn segja al-
Zarqawi náinn samstarfsmann
Osama bin Ladens og hafa heitið
andvirði rúmra 700 milljóna
króna fyrir handtöku hans.
„Ég hef heitið Abu-Musab holl-
ustu og því að hlýða honum,“ sagði
leiðtogi hryðjuverkahópsins, Azmi
al-Jayousi, í einu þeirra myndskeiða
sem voru sýnd í sjónvarpinu. Að
auki voru sýndar myndir af honum
og níu félögum hans en fjórir þeirra
eru sagðir hafa fallið í bardaga við
öryggislögregluna. Mennirnir voru
handteknir í tveimur aðgerðum, í
þessum og síðasta mánuði. Þá fund-
ust efni til efnavopnagerðar og
segja stjórnvöld að það hefði dugað
til að bana minnst 20.000 manns. ■
FYLGST MEÐ ÚTSENDINGUNNI
Margir Jórdanar fylgdust spenntir með 20
mínútna langri upptökunni þar sem for-
sprakki hryðjuverkamanna játar sök.
Komið í veg fyrir efnavopnaárásir hryðjuverkamanna í höfuðborg Jórdaníu:
Hugðust myrða tugþúsundir
Halda á Araratfjall:
Vilja mynda
örk Nóa
WASHINGTON, AP Bandarískir og
tyrkneskir menn vonast til að
færa sönnur á að örk Nóa, þeirr-
ar er getið er í Biblíunni, sé að
finna á Araratfjalli í Tyrklandi.
Þeir telja örkina hafa komið í ljós
þegar snjór á fjallinu bráðnaði í
hitunum miklu í Evrópu á síðasta
ári og hyggjast ná myndum af
henni í sumar.
Jarðfræðingar hafa sagt að
þrátt fyrir sannanir um flóð í
Mesópótamíu fyrir margt löngu
sé útilokað að skip hafi komið að
landi jafn hátt og Araratfjall ligg-
ur en það nær hæst í 5.346 metra
yfir sjávarmál. ■
Le Pen illa tekið:
Heilsað með
eggjakasti
ENGLAND, AP Rúmlega hundrað
manns mótmæltu heimsókn Jean-
Marie Le Pen, leiðtoga franska
Þjóðarflokksins,
til Englands á
sunnudaginn.
Öfga hægri-
maðurinn Le Pen
var í Englandi til
að sækja fund
Breska þjóðar-
flokksins (BNP),
en þegar hann mætti á fundinn var
eggjum og rusli fleygt í áttina að
honum. Þá voru hrópuð slagorð:
„Svartir og hvítir sameinast og
berjast. BNP er nasistaflokkur.“
Le Pen furðaði sig á mótmæl-
unum og sagðist hafa gengið óá-
reittur í nýlegum heimsóknum
sínum til Írak, Tyrklands,
Indónesíu og Malasíu. Á blaða-
mannafundi ítrekaði hann þá
skoðun sína að helsta ógnin við
Evrópu væru innflytjendur. ■
LJÚFT LÍF Í LAUGINNI Sólarblíðan lék við íbúa á höfuðborgarsvæðinu í gær þar á meðal þessar þrjár stúlkur sem létu fara vel um sig í
Sundlaug Kópavogs í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
77 prósent á móti
Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir mikla andstöðu við frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum.
Þingmaður Framsóknarflokksins segir niðurstöðuna í samræmi við afstöðu sína.
SKOÐANAKÖNNUN Ríflega 77 pró-
sent þjóðarinnar eru andvíg frum-
varpi ríkisstjórnarinnar um eign-
arhald á fjölmiðlum samkvæmt
skoðanakönnun Fréttablaðsins
sem gerð var í gærkvöldi. Tæp-
lega 23 prósent segjast fylgjandi
frumvarpinu.
„Mér finnst þetta mjög athygl-
isvert,“ segir Kristinn H. Gunn-
arsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins. „Ég tel að niðurstaðan
þýði það einfaldlega að almenn-
ingur sé andvígur lagasetningu að
svo komnu máli og að það þurfi
vandaða umræðu um þetta. Ég
fagna þessu að mörgu leyti, þetta
er í samræmi við mína afstöðu.“
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, segir nið-
urstöðuna ekki koma á óvart.
„Þetta sýnir að almenningur
lætur stjórnast af málefnalegri
hvötum en forysta ríkisstjórnar-
innar,“ segir Össur. „Þessi afger-
andi munur staðfestir að
formenn Sjálfstæðis-
flokks og Framsókn-
arflokks hafa algjör-
lega orðið viðskila
við eigin þjóð í
þessu máli.“
Sigríður Anna
Þórðardóttir, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins, efast um að
fólk hafi í raun for-
sendur til að svara
svona könnun.
„Ég efast um að
almenningur hafi séð skýrsluna
eða frumvarpið,“ segir Sigríður
Anna. „Þess vegna er mjög var-
legt að draga einhverjar ályktan-
ir af könnun eins og þessari.
Fólk er í raun aðeins að draga
ályktanir um það sem fram hef-
ur komið í fjölmiðlum og
margt af því sem þar
hefur verið staðhæft
er ekki rétt.“
Ögmundur Jónas-
son, þingflokksfor-
maður Vinstri-
grænna, segir greini-
legt að fólk vilji ekki
neina frávinnu í þessu
máli.
„Ég túlka það svo
því ég gef mér að
menn séu ekki búnir
að fara í rækilega
ofan í þetta,“ segir Ögmundur.
„Menn vilja ekki svona hraða af-
greiðslu á þessu og leggjast þess
vegna gegn því af mörgum ástæð-
um, annars vegar gegn frumvarp-
inu sem slíku og hins vegar gegn
vinnubrögðunum.“
Magnús Þór Hafsteinsson, for-
maður þingflokks Frjálslynda-
flokksins, segir niðurstöðuna ekki
koma á óvart.
„Málsmeðferðin er öll búin að
vera með ólíkindum. Það er því
ekki skrýtið þó fólk rísi upp gegn
frumvarpi sem ríkisstjórnin ætlar
greinilega að troða í gegn um Al-
þingi og ofan í þjóðina.“
Úrtakið í könnuninni var 800
manns. Það skiptist jafnt milli
kynja og hlutfallslega eftir kjör-
dæmum. Rúmlega 23% sögðust
óákveðnir eða neituðu að svara.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða
andvígur frumvarpi Davíðs
Oddssonar um takmarkanir á
eignarhaldi fjölmiðla? ■
77,3%
22,7%
NIÐURSTAÐA KÖNNUNAR
Mikill meirihluti þjóðarinnar er á
móti frumvarpi um fjölmiðla.