Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 2
2 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
„Nei, það held ég ekki.“
Gísli Vilhjálmsson tannlæknir hefur þróað nýjar
aðferðir við að rétta tennur í fólki.
Spurningdagsins
Gísli, er þessi nýja aðferð mikið á
milli tannanna á fólki?
■ Lögreglufréttir
FJÖLMIÐLAFRUMVARP „Fjölmiðla-
frumvarpinu er beint gegn sam-
þjöppun í fjölmiðlum. Verið er að
semja lög vegna þess að ástandið
á fjölmiðlamarkaði er orðið óvið-
unandi. Stjórnvöld í landinu telja
að samþjöppun á fjölmiðlamark-
aði sé ekki æskileg“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra eftir
þingfundi um fjölmiðlafrumvarp-
ið í gær.
Aðspurður sagði hann að frum-
varpinu væri ekki beint sérstak-
lega gegn Norðurljósum, móður-
félagi Fréttar og Íslenska út-
varpsfélagsins.
„Nei, frumvarpið er almennt.
Þið verðið að átta ykkur á því að
frumvarp sem verður að lögum
gildir í áratugi eða lengur ef því
er ekki breytt. Það er margt sem
breytist,“ sagði forsætisráðherra.
„Hins vegar mætti maður ætla
þegar maður horfir á öll þessi
fyrirtæki Norðurljósa og hvernig
þau haga sér í fréttaflutningi, með
stríðsfyrirsagnir, árásir og gaura-
gang, [...] að fréttamenn á þessum
fjölmiðlum hafi ekkert frelsi. Það
er algjörlega og eingöngu gengið
erinda eigendanna,“ sagði Davíð.
Þegar hann var spurður að því
hvort hann væri að halda því
fram að blaðamenn sem starfa
fyrir fjölmiðla Norðurljósa væru
ekki að fara eftir eigin siðferðis-
reglum sagði hann: „Það má vel
vera að þeir geri það. Þá virðist
það vera þannig að það séu ná-
kvæmlega sömu reglurnar og
eigendanna.“
Forsætisráðherra sagði að al-
gjör sátt hafi verið í þingflokkn-
um um málið og enginn hafi verið
á móti frumvarpinu. Það hafi tals-
verðar breytingar verið gerðar á
því frá því hann lagði fram fyrstu
drög.
Hann staðfesti að ætlunin væri
að afgreiða frumvarpið fyrir
þinglok og sagðist búast við því að
fresta þyrfti til þess þinglokum.
Fyrrum aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, Hreinn Loftsson,
stjórnarformaður Baugs, hefur
tilkynnt að hann hafi sagt sig úr
Sjálfstæðisflokknum vegna máls-
ins. Aðspurður um það sagði Dav-
íð að honum þætti lakara að missa
hann úr flokknum.
„Það er með minn flokk eins og
aðra flokka að menn eru þar al-
gjörlega á eigin ábyrgð og sam-
kvæmt eigin ákvörðun. Í mínum
flokki hefur það verið svo að
menn ganga í og úr flokknum
svona þrír til fjórir í viku, en mér
finnst auðvitað sárt að Hreinn
skuli frekar kjósa að vera í Baugi
en Sjálfstæðisflokknum,“ sagði
Davíð.
sda@frettabladid.is
FLUTNINGAR UNDIRBÚNIR
Suður-kóreskir Rauðakrossmenn undirbúa
sendingu hjálpargagna til Norður-Kóreu.
Sprengingin í Kóreu:
Enn skortir
hjálpargögn
NORÐUR-KÓREA, AP Norður-kóresk
stjórnvöld eru treg til að hleypa
birgðalestum með hjálpargögn
frá Suður-Kóreu yfir landamærin
en ellefu vörubílar frá Kína,
hlaðnir hjálpargögnum, komu í
gær til Ryongchon þar sem meira
en 1.300 manns slösuðust í gríðar-
legri sprengingu síðasta fimmtu-
dag. Embættismenn frá báðum
Kóreuríkjum funda í dag um
hvernig megi flytja hjálpargögn
norður yfir landamærin.
Hjálparstarfsmenn segja mik-
inn skort á hjálpartækjum og
þrýsta á um að þau berist skjótt.
Fjöldi ríkja hefur boðið fram að-
stoð, þeirra á meðal Japan, Rúss-
land, Ástralía og Bandaríkin. ■
HJÖRLEIFUR ÞÓRARINSSON
Vonast til að deilendur nái saman í dag.
Deilan um lyfjaverð:
Ná jafnvel
saman í dag
LYFJAMÁL Hjörleifur Þórarinsson,
framkvæmdastjóri GSK á Íslandi,
sem fundaði með Jóni Kristjáns-
syni heilbrigðisráðherra í gær-
kvöldi fyrir hönd lyfjahóps Félags
íslenskra stórkaupmanna, segist
vona að lyfjaheildsalar og stjórn-
völd nái saman í dag um lausn á
deilu þeirra um lyfjaverð og
skipulag lyfsölu.
Enginn fundur hefur verið
ákveðinn en lyfjasalar og heil-
brigðisráðherra verða í sambandi
í dag eftir að hafa farið yfir tillög-
ur sem þeir eru að vinna með í von
um að leysa deiluna sem hefur ris-
ið milli þeirra um lyfjaverð til rík-
isins annars vegar og hugmyndir
ráðherra um viðmiðunarverð og
áherslu á samheitalyf. Hjörleifur
vildi ekki segja í hverju tillögurn-
ar væru fólgnar. ■INNBROT Í DÝRASPÍTALANN Brot-
ist var inn í Dýraspítalann í Víði-
dal um helgina og stolið þaðan
peningum. Talið er að ránsfeng-
urinn hafi verið um fimmtán þús-
und. Þjófarnir spenntu upp
glugga til að komast inn í húsið.
Tilkynnt var um innbrotið á
sunnudagskvöld en ekki er vitað
hverjir voru þarna að verki.
ÚTKEYRSLUBIFREIÐ PIZZA 67
STOLIÐ Útkeyrslubifreið veitinga-
staðarins Pizza 67 á Ísafirði var
stolið síðdegis á föstudag. Bíllinn
fannst í fyrrinótt fyrir utan hús á
Hólmavík. Lögreglan á Ísafirði
rannsakar málið í samstarfi við
lögregluna á Hólmavík.
Efnahagsmál:
Hallar á
Evrópuríki
SVISS, AP Fæst aðildarríki Evrópu-
sambandsins eru samkeppnisfær
við Bandaríkin og ekki er útlit fyrir
að Evrópusambandið verði helsta
efnahagsveldi heims fyrir lok ára-
tugarins eins og forystumenn þess
stefna að. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu World Economic Forum.
Augusto Lopez-Claros, aðalhag-
fræðingur WEF, segir að Evrópuríki
verði að flýta umbótum í efnahags-
málum ef þau vilja etja kappi við
Bandaríkin á jafnréttisgrundvelli.
Norðurlöndin í ESB, Danmörk,
Finnland og Svíþjóð, standa betur
en Bandaríkin en öll önnur aðildar-
ríki sambandsins verr. ■
DAVÍÐ ODDSSON FORSÆTISRÁÐHERRA AÐ LOKNUM ÞINGFLOKKSFUNDI
„Hins vegar mætti maður ætla þegar maður horfir á öll þessi fyrirtæki Norðurljósa og
hvernig þau haga sér í fréttaflutningi, með stríðsfyrirsagnir, árásir og gauragang, [...] að
fréttamenn á þessum fjölmiðlum hafi ekkert frelsi. Það er algjörlega og eingöngu gengið
erinda eigendanna.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
RÍKISÚTVARPIÐ Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra telja
að nema eigi afnotagjöld af Ríkis-
útvarpinu. Þetta kom fram að
loknum þingflokkafundum um
fjölmiðlafrumvarpið í gær.
„Ég er ekkert sérstaklega sátt-
ur við stöðu ríkisútvarpsins. Ég
tel að ríkisútvarpið sé á margan
hátt heldur veikt og ég tel að við
þurfum að eiga öflugt ríkisútvarp.
ég tel að það sé rétt að breyta af-
notagjaldakerfinu og afnema það,
og það er atriði sem við þurfum að
taka á,“ sagði Halldór Ásgríms-
son.
Davíð Oddsson sagðist sam-
mála Halldóri um að afnema ætti
afnotagjöld.
„Ég hef lengi talið að við ætt-
um að finna annan flöt á því, en
við höfum ekki fundið hann. Það
hefur lengi verið í umræðunni, og
mér finnst vænt um það ef Fram-
sóknarflokkurinn er kominn inn á
þá skoðun að við ættum að breyta
þar til,“ sagði forsætisráðherra.
Hann sagði að engar breyting-
ar um fyrirkomulag afnotagjald-
anna hefðu verið samþykktar enn,
þótt það hafi verið rætt margoft
milli stjórnarflokkanna.
Hann sagðist jafnframt sáttur
við stöðu Ríkisútvarpsins þótt
„auðvitað megi bæta þar eins og
annars staðar“. ■
Davíð og Halldór um ríkisútvarpið:
Afnema þarf afnotagjöld
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
„Ég er ekkert sérstaklega sáttur við stöðu
ríkisútvarpsins. Ég tel að ríkisútvarpið sé
á margan hátt heldur veikt og ég tel að
við þurfum að eiga öflugt ríkisútvarp. ég
tel að það sé rétt að breyta afnotagjalda-
kerfinu og afnema það.“ FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
SA SEMUR VIÐ MATVÍS Samtök at-
vinnulífsins og Matvæla- og veit-
ingasamband Íslands, Matvís,
hafa undirritað nýjan kjarasamn-
ing sem gildir til ársloka ársins
2007. Frá þessu er greint á heima-
síðu Samtaka atvinnulífsins. Þar
kemur einnig fram að almennar
launahækkanir séu hinar sömu og
í fyrri samningum Samtaka at-
vinnulífsins við samtök launþega.
Kauptaxtar voru færðir nær
greiddum launum auk þess sem
sérstaklega var samið um hækkun
á launum til nemenda í greininni.
Óviðunandi ástand
Forsætisráðherra segir að samþjöppun á fjölmiðlamarkaðinum hafi
skapað óviðunandi ástand. Fréttamenn Norðurljósasamsteypunnar hafi
ekkert frelsi. Þeir gangi allir erinda eigenda sinna.
FJÖLMIÐLAFRUMVARP „Aðalfundur
Blaðamannafélags Íslands lýsir
harðri andstöðu við frumvarp rík-
isstjórnarinnar um eignarhald á
fjölmiðlum, en verði það að lögum
munu strangari reglur gilda um
slíkt eignarhald hér á landi en í
flestum viðmiðunarlöndum okk-
ar.“ Kemur þetta fram í ályktun
sem var einróma samþykkt á aðal-
fundi félagsins í gærkvöld.
„Með frumvarpinu er starf
hundruða manna sett í uppnám og
lífsviðurværi þúsunda í óvissu.
Blaðamannafélagið hvetur alþing-
ismenn til að taka málið til ítar-
legrar skoðunar, ábyrgð þeirra er
mikil, enda getur frumvarpið, ef
það verður að lögum, leitt til þess
að fjöldi manna missi vinnu sína.
Frumvarpið, eins og það liggur
fyrir, er til þess fallið að draga úr
mætti frjálsra fjölmiðla á Íslandi
og skerða möguleika þeirra til
framþróunar. Það veikir þessa
fjölmiðla fjárhagslega, sem leiðir
til þess að þeir verði vanmáttugri
í gagnrýnni umfjöllun um málefni
samfélagsins og síður líklegri til
að veita valdhöfum nauðsynlegt
aðhald,“ segir einnig í ályktun-
inni. ■
Blaðamannafélag Íslands:
Frumvarp dregur
úr mætti fjölmiðla
RÓBERT MARSHALL
Formaður Blaðamannafélags Íslands. Fé-
lagsmenn lýstu andstöðu við fjölmiðla-
frumvarp stjórnarinnar á aðalfundi félags-
ins sem fór fram í gærkvöldi.
■ Kjaramál