Fréttablaðið - 27.04.2004, Side 4
4 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Bera stjórnmálamenn alltaf hag
borgaranna fyrir brjósti?
Spurning dagsins í dag:
Er nauðsynlegt að samþykkja frum-
varp um eignarhald á fjölmiðlum á
þessu þingi?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
10%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
■ Lögreglufréttir
■ Asía
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ Frumvarp for-
sætisráðherra um eignarhald á fjöl-
miðlum var samþykkt í þingflokk-
um ríkisstjórnarflokkana í gær.
Þingflokksfundirnir stóðu í aðeins
um eina klukkustund. Lögin hafa í
för með sér að leysa þarf upp Norð-
urljós og fyrirtækið getur ekki fylgt
eftir áformum sínum um að fara á
almennan hlutabréfamarkað.
Lagafrumvarp forsætisráð-
herra leggur til breytingar á út-
varpslögum annars vegar og sam-
keppnislögum hins vegar. Sam-
kvæmt þeim breytingum sem
lagðar eru til geta fyrirtæki sem
starfrækja útvarp eða sjónvarp
ekki verið í meira en 25% eigu
fyrirtækis sem er í óskyldum
rekstri. Skiptir þá engu hvort við-
komandi fyrirtæki, sem hug hefði
á að fjárfesta í útvarpi eða sjón-
varpi, hafi markaðsráðandi stöðu
á markaði.
Frumvarpið bannar einnig að
aðili sem gefur út dagblað fái
heimild til að reka útvarp eða
sjónvarp. Þetta ákvæði hefur í för
með sér að kljúfa þarf Norðurljós
hf. Lögin segja að við mat á því
hvort fyrirtæki hafi markaðsráð-
andi stöðu skuli óska eftir áliti
Samkeppnisstofnunar.
Önnur grein frumvarpsins er
stutt. Hún kveður á um að í sam-
keppnislög skuli sett fyrirmæli til
Samkeppnisstofnunar um að veita
Útvarpsréttarnefnd álit sitt á því
hvort fyrirtæki teljist markaðs-
ráðandi. Frumvarpið er lagt fram
af forsætisráðherra en ekki
menntamálaráðherra sökum þess
að í því eru lagðar til breytingar á
lögum sem heyra undir verksvið
fleiri en eins ráðherra.
Samkvæmt frumvarpinu fá
fyrirtæki á fjölmiðlamarkaði tvö
ár til að aðlaga sig nýjum lögum.
Eftir þann tíma verður útvarps-
réttarnefnd heimilt að afturkalla
útvarpsleyfi til stöðva sem ekki
falla að lögunum.
Þegar efnisatriði frumvarpsins
voru reifuð fyrir Þorbirni Brodda-
syni, prófessor í félagsfræði og
kennara í
f j ö l m i ð l a -
fræði við Há-
skóla Íslands,
sagði hann að
þau kunni að
hindra mögu-
leika fólks á
að stofna
f j ö l m i ð l a ,
sérstaklega
með hliðsjón
af því hversu
smár mark-
aður hinn ís-
lenski sé.
Hann telur hins vegar eðlilegt að
gjalda varhug við sterkri stöðu
Baugs bæði á matvöru- og fjölmiðla-
markaði en hugsanlega ætti að beita
öðrum úrræðum ef vilji sé til þess að
draga úr þeim.
thkjart@frettabladid.is
Össur Skarphéðinsson:
Ekki byggt á
skýrslu
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ „Mér finnst
forsætisráðherra mjög einbeittur í
þeim vilja að koma þessu máli í
gegn með ofbeldi ef með þarf,“ seg-
ir Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingar-
innar, um
frumvarp um
lög um eignar-
hald á fjölmiðl-
um. Hann segir
þ j ö s n a l e g
v i n n u b r ö g ð
einkenna ríkis-
stjórnina og
það eigi einnig
við um störf
hennar á Al-
þingi. Össur
segist ekki enn
hafa hitt þann
mann sem vilji taka í gegn með
hraði lög sem hefta atvinnufrelsi.
Þingflokkur Samfylkingarinnar
ræddi fjölmiðlaskýrsluna á þing-
flokksfundi í gær.
„Skýrslan er að mörgu leyti
vönduð og greinargóð. Bent er á
þrjú meginatriði. Í fyrsta lagi telja
höfundar rétt að sett verði lög um
eignarhald. Í öðru leyti er bent á
gildi þess að setja reglur um sjálf-
stæði ritstjórnar. Þriðja atriðið er
að skýrsluhöfundar mæla með því
að lögin séu ekki afturvirk. Ekkert
þessara atriða má sjá í frumvarpi
forsætisráðherra. Því er það rangt
sem hann heldur fram að frumvarp-
ið sé byggt á skýrslunni heldur
gengur það þvert gegn meginmark-
miðum,“ segir Össur. ■
– hefur þú séð DV í dag?
Ræsisstjóri
nasisti á austur-
vígstöðvunum
ÓK Á GANGBRAUTARLJÓS OG
STAKK AF Ekið var á gangbrautar-
ljós á Selfossi á sunnudagskvöld-
ið. Að sögn lögreglu var að líkind-
um um framúrakstur að ræða.
Ökumaðurinn stakk af en iðraðist
síðan og gaf sig fram við lögreglu
í gærmorgun. Bíllinn er ökufær
en töluvert skemmdur. Umferðar-
ljósið er að líkindum ónýtt.
SJÖ TEKNIR FYRIR HRAÐAKSTUR
Lögreglan á Dalvík tók sjö öku-
menn fyrir of hraðan akstur á
veginum sem liggur inn í kaup-
staðinn síðdegis á sunnudag.
Fimmtíu kílómetra hámarkshraði
er á þessum vegarkafla en öku-
mennirnir voru á allt að níutíu
kílómetra hraða. Að sögn lögreglu
eru menn alltof seinir að hægja á
sér þegar þeir aka að kaupstaðn-
um þrátt fyrir skýrar merkingar.
90%
ÍRAK, AP „Án heimilis verður þú vand-
ræðaseggur, skemmdarvargur eða
jafnvel hryðjuverkamaður,“ sagði
Saad al Zubaidi, sem fer með upp-
byggingar- og húsnæðismál í írösku
stjórnsýslunni, þegar hann kom til
London til að fá fyrirtæki til að fjár-
festa í enduruppbyggingu Íraks.
Al Zubaidi sagði að þó uppbygg-
ing olíuiðnaðarins væri eitt mikil-
vægasta verkefnið fyrir efnahag
Íraks í framtíðinni væri mikilvæg-
asta verkefnið í dag að byggja upp
heimili. „Það að hafa þak yfir höfuð-
ið er grundvallarforsenda fyrir því
að telja sig hluta af þjóðfélagi,“
sagði Zubaidi. Hann og sjö aðrir
íraskir framámenn kynntu hug-
myndir sínar á ráðstefnu sem full-
trúar hundruð fyrirtækja sóttu.
Þrír bandarískir hermenn létust
í gær, tveir þeirra þegar bygging í
Bagdad sprakk í loft upp en her-
námsstjórnin taldi að þar væri unn-
ið að gerð efnavopna.
Al-Arabiya sjónvarpsstöðin sýndi
í gær myndskeið af þremur ítölskum
gíslum. Þeir sem halda þeim segjast
myrða þá eftir fimm daga ef ítalskur
almenningur mótmælir ekki stefnu
stjórnar sinnar í Írak. ■
VÍGI BANDARÍKJAMANNA FAGNAÐ
Ráðherra uppbyggingarmála í Írak segir
húsnæðisleysi auka á andstöðu
almennings við hernámsstjórnina og
framkvæmdastjórn heimamanna.
Írakar biðja umheiminn um hjálp við uppbyggingu:
Þurfum þak yfir höfuðið
Hjúkrunarfræðingar:
Hugmyndir
til lausnar
KJARAMÁL Hjúkrunarfræðingar á
skurðsviði Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss munu hitta stjórnendur
spítalans í dag. Hjúkrunarfræðing-
arnir munu þá leggja fram sínar hug-
myndir til lausnar þeirri kjaradeilu
sem uppi er. Á fundinum verður jafn-
framt farið yfir stöðu mála, en alls
hafa 22 af 25 hjúkrunarfræðingum
sagt upp störfum vegna óánægju
með breytingar á vaktakerfi.
Elín Ýrr Halldórsdóttir hjúkrun-
arfræðingur sagði í gær að hjúkrun-
arfræðingarnir hefðu verið að fara
yfir tillögur sem fram hefðu komið í
umræðum þeirra og stjórnenda fyrir
helgina. ■
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ Ekki er úti-
lokað að frumvarp um lög um eign-
arhald á fjölmiðlum muni taka
breytingum áður en það verður gert
að lögum, að sögn Halldórs Ás-
grímssonar, formanns Framsóknar-
flokksins. Frumvarpið var sam-
þykkt í stjórnarflokkunum í gær og
verður lagt fyrir Alþingi í vikunni.
Halldór sagðist eiga von á því að
þingmenn greiddu atkvæði með
frumvarpinu eftir eðlilega umfjöll-
un
Halldór segist ekki taka undir
það sjónarmið að frumvarpið muni
kippa fótunum undan fjölmiðlasam-
steypunni Norðurljósum.
„Það liggur fyrir að Norðurljós
þarf að aðskilja ákveðinn rekstur og
ég vænti þess að það verði þeim til-
tölulega léttbært,“ sagði hann.
Hann sagðist ekki telja að frum-
varpið hefði í för með sér eignar-
uppnám eigenda Norðurljósa.
„Mér finnst eðlilegt að dagblöð
séu aðskilin frá sjónvarps- og út-
varpsrekstri til þess að tryggja
megi fjölbreytni í fjölmiðlarekstri,“
sagði Halldór.
„Þetta snertir alla fjölmiðla sem
eru á þessum markaði að einhverju
leyti en það snertir ekki dagblöð.
Það er ekkert komið inn á rekstur
dagblaða í þessu sambandi, ein-
göngu fjölmiðla sem reka útvarp og
sjónvarp og eru með leyfi frá ríkinu
til þess,“ sagði hann.
Aðspurður um hvers vegna
þyrfti að setja lög um eignarhald á
fjölmiðlum einmitt nú sagði hann að
þetta ástand hafi vissulega blasað
við í nokkuð langan tíma.
„En ég held að það sé uppi meiri
samþjöppun á þessum markaði en
við höfum oft séð áður og það er
eðlilegt að það sé tekið á því,“ sagði
Halldór. ■
Rekstur Norðurljósa
verður ólöglegur
Stjórnarflokkarnir hafa samþykkt frumvarp sem gerir það að verkum að
leysa þarf Norðurljós upp. Ekkert félag má eiga meira en fjórðung í sjón-
varps- eða útvarpsfyrirtæki. Ekki má eiga bæði dagblað og ljósvakamiðil.
AF ÞINGFLOKKSFUNDI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna samþykktu fjölmiðlafrumvarp forsætisráðherra á fundum sínum í gær. Á myndinni eru Guðmundur
Hallvarðsson, Davíð Oddsson, Sigríður Anna Þórðardóttir og Sigurður Kári Kristjánsson.
FRUMVARP
FORSÆTISRÁÐHERRA
Frumvarpið er aðeins
tvær greinar og lýtur fyrst
og fremst að úthlutun
leyfa til rekstrar útvarps-
og sjónvarpsstöðva.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Utanríkisráðherra segir fjölmiðlafrumvarpið
ekki kippa fótunum undan Norðurljósum.
Kolbrún Halldórsdóttir:
Þörf á meiri
umræðu
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ „Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að
við erum að móta framtíðina á
fjölmiðlamarkaðinum. Því þarf að
taka góðan tíma í umræður um
þetta frumvarp,“ segir Kolbrún
Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna.
„Allt samfélagið ætti að fá að
taka þátt í umræðum um þetta
mál. Hvers vegna þessi flýtir? Er
húsið að brenna?“ spyr hún.
Kolbrún segir að rétt væri að
fara í umræður um skýrsluna og
frumvarpið á Alþingi í vor.
„Svo mætti málið fara í al-
menna umræðu í sumar og fjalla
ætti um það á næsta þingi,“ segir
hún.
Hún segist hlynnt því að sett
verði lög sem geri skylt að skýra
frá eignarhaldi á fjölmiðlum og að
hún sé hlynnt dreifðu eignarhaldi.
„Þetta eru viðamiklar ákvarðan-
ir sem þarf að vanda og mega ekki
fara fram í flýti,“ segir hún. ■
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
„Frumvarpið byggist
ekki á skýrslunni
heldur gengur gegn
meginmarkmiðum.“
Halldór Ásgrímsson:
Útilokar ekki breyt-
ingar á frumvarpi
33 LÉTUST Sextán börn og sautján
fullorðnir létust þegar þorp í
Kirgisistan fór á kaf eftir að aur-
skriður féllu á það. Tólf til viðbótar
særðust. Aurskriður eru algengar í
Kirgisistan, sem er fjalllendi að níu
tíundu hlutum. Fyrr í mánuðinum
létust fimm börn þegar aurskriða
féll á þau í suðurhluta landsins.