Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 6
6 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ Evrópa
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.75 0.41%
Sterlingspund 131.38 0.63%
Dönsk króna 11.73 -0.07%
Evra 87.3 -0.09%
Gengisvísitala krónu 123,36 0,24%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 259
Velta 2.080 milljónir
ICEX-15 2.717 -0,18%
Mestu viðskiptin
Bakkavör Group hf. 426.022
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 167.755
Straumur fjárfestingarbanki hf. 89.457
Mesta hækkun
Bakkavör Group hf. 2,14%
AFL fjárfestingarfélag hf. 1,72%
Tryggingamiðstöðin hf. 1,33%
Mesta lækkun
Fiskmarkaður Íslands hf -20,00%
Þormóður rammi-Sæberg hf. -5,41%
Straumur fjárfestingarbanki hf. -3,05%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 10.472,6 0,0%
Nasdaq * 2.044,7 -0,2%
FTSE 4.571,8 0,0%
DAX 4.125,8 0,5%
NK50 1.527,5 -0,0%
S&P * 1.138,9 -0,1%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Frá hvaða landi er elsta kona heims?
2Hvaða tónlistarhátíð verður kannskihaldin í Egilshöll eftir tvö ár?
3Hver hefur verið valinn besti leik-maður ensku úrvalsdeildarinnar í
fótbolta?
Svörin eru á bls. 30
NAUÐASAMNINGAR „Landsbankinn
er stærsti kröfuhafinn í fyrir-
tækið en þeir hafa gefið mér leyfi
til að spila úr því ef það hjálpar til
við að ná landi,“ segir Friðrik Þór
Friðriksson kvikmyndaleikstjóri,
en fyrirtæki hans Íslenska kvik-
myndasamsteypan er í greiðslu-
stöðvun. „Bankinn gengur ekki að
sínu að svo stöddu og við erum að
skoða þær leiðir sem færar eru á
þessari stundu.“
Heimildir blaðsins herma að
bankinn telji talsverð verðmæti í
fyrirtæki Friðriks og verið sé að
reyna að bjarga því sem bjargað
verður. Heildarskuldir Íslensku
kvikmyndasamsteypunnar nema
um hálfum milljarði króna en
samningaviðræður við Ríkis-
útvarpið um kaup á sýningarrétti
mynda fyrirtækisins sem vonir
stóðu til að gætu bjargað því frá
gjaldþroti gengu ekki eftir. Þær
viðræður hafa ekki verið teknar
upp aftur. ■
Ein mesta þvæla
Íslandssögunnar
Jón Ásgeir Jóhannesson ætlar í mál ef frumvarp um eignarhald á
fjölmiðlum verður að lögum. Hrein og klár eignaupptaka. Um 400
milljóna hagræðing í súginn og milljarða lán í uppnámi.
FJÖLMIÐLAR „Það er alveg ljóst að
ef þetta frumvarp verður að lög-
um förum við með þetta mál fyrir
dómstóla - alla leið,“ segir Jón Ás-
geir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, um frumvarp um eignar-
hald á fjölmiðlum sem þingflokk-
ar stjórnarflokkanna samþykktu í
gær og lagt verður fyrir þingið í
vikunni.
Jón Ásgeir segir að verði frum-
varpið að lögum á þingi verði far-
ið með það fyrir dómstóla daginn
eftir að það hafi verið samþykkt.
„Ef dómstólar munu ekki
dæma lögin ógild er stjórnarskrá-
in ekki í lagi.“
Jón Ásgeir segir alveg ljóst að
frumvarpið beinist gegn Norður-
ljósum.
„Forysta Sjálfstæðisflokksins
sættir sig greinilega ekki við eig-
endur Norðurljósa, það skín í
gegn. Þetta er hrein og klár eigna-
upptaka og það er verið að rýra
eignir okkar með þessu frum-
varpi.“
Jón Ásgeir segir að með frum-
varpinu sé verið að kippa stoðun-
um undan rekstri ljósvakamiðla.
„Ef það er hægt að taka eignir
af mönnum á þennan hátt koðnar
allt niður. Atvinnulífið getur ekki
verið að fjárfesta fyrir milljarða
króna ef það getur átt á að hættu
að lagaumhverfinu sem það
starfar eftir verði breytt eftir
duttlungum einhverra ákveðinna
stjórnmálamanna. Eins og
Björgólfur (Guðmundsson) orð-
aði það í ræðu sinni á viðskipta-
þingi þá gengur ekki að breyta
reglunum í miðjum leik. Það er
ekki hægt að bjóða atvinnulífinu
upp á þessi vinnubrögð. Hver
mun þora að fjárfesta í fjölmiðl-
um ef þetta gengur eftir? Það
mun enginn setja peningana sína
út í rekstur sem á yfir sér að lög-
um verði breytt eftir hentisemi
stjórnmálamanna. Ég sé heldur
ekki fram á að lánastofnanir
vilji lána fjölmiðlum sem sí-
fellt hafa þessa ógn yfir sér.
Að stjórnvöld skuli síðan
leyfa sér að setja þetta
frumvarp fram með þeim
hætti að verið sé að auka
frelsi á fjölmiðlamarkaði er
náttúrlega einhver mesta
þvæla sem komið hefur
fram í Íslandssögunni.“
Jón Ásgeir segir að
Fréttablaðið og DV hefðu
aldrei verið sameinuð
Stöð 2 undir merkjum
Norðurljósa ef þetta hefði
legið fyrir. Um 400 millj-
óna króna hagræðing
myndi fara í súginn ef
frumvarpið yrði að lögum
og milljarða lán Landsbank-
ans til Norðurljósa yrði í
uppnámi. Hann segist ekki
botna í þeim látum að reyna
að koma frumvarpinu í
gegn á yfirstandandi
þingi.
„Ég hefði viljað sjá
dýpri umræðu og þá bara
styttri aðlögunarfrest.“
trausti@frettabladid.is
Handtaka á skemmtistað:
Tekinn með
exi og hnífa
LÖGREGLUMÁL Dyraverðir á veit-
ingastað í miðborg Reykjavíkur
óskuðu eftir aðstoð lögreglu aðfara-
nótt laugardags vegna manns sem
grunaður var um að vera með vopn
á sér inni á staðnum. Annar gestur á
staðnum hafði séð vopnin og gert
dyravörðunum viðvart.
Þegar lögreglan kom á staðinn
kom í ljós að maðurinn var með eina
exi, þrjá hnífa og skrúfjárn innan-
klæða. Einnig fannst í fórum hans
lítilræði af fíkniefnum. Maðurinn
var vistaður í fangageymslu um
nóttina og yfirheyrður að morgni.
Málið er í rannsókn hjá sér-
refsilagadeild lögreglunnar. ■
EFTIRLIT Á FLUGVELLI
Mörg Evrópuríki og samtök flugmanna
hafa lýst andstöðu við vopnaða
lögreglumenn í farþegaþotum.
Bandaríkin gefa eftir:
Fluglöggur
ekki nauðsyn
BRUSSEL, AP Bandarísk stjórnvöld
tilkynntu embættismönnum
Evrópusambandsins í gær að þau
myndu ekki gera kröfu um að
vopnaðir lögreglumenn yrðu um
borð í farþegaþotum á leið milli
Bandaríkjanna og Evrópu-
sambandsins ef Evrópuríki höfn-
uðu slíkum tillögum.
Asa Hutchinson, sem fer með
öryggismál í samgöngum á vett-
vangi Bandaríkjastjórnar, sagði
þarlend stjórnvöld telja vopnaða
lögreglumenn fæla hryðjuverka-
menn frá því að ræna flugvélum
en að þau gerðu ekki veru þeirra í
flugvélum að skilyrði fyrir því að
flugvélar fengju að fljúga til
Bandaríkjanna. ■
TÍMAMÖRK Á STJÓRNARSKRÁ
Utanríkisráðherrar aðildarríkja
Evrópusambandsins ræða drög
að stjórnarskrá sambandsins á
fundi sem hefst um miðjan næsta
mánuð. Þá á að freista þess að ná
samkomulagi um deiluefni,
einkum atkvæðavægi aðildar-
ríkja.
Til viðbótar koma veltutengdir Vildarpunktar kortsins
Tvöfaldir
Vildarpunktar
til 1. maí
Fosshótel Lind, Rauðarárstíg 18, Rvk
Hótel Keflavík, Vatnsnesvegi 12-14
Hótel Frón, Laugavegi 22b, Rvk
Gisting
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
24
12
5
0
4/
20
04
Íslenska kvikmyndasamsteypan:
Landsbankinn til aðstoðar
FRIÐRIK ÞÓR
Stærsti kröfuhafi í
fyrirtæki hans leggur
nú hönd á bagga til
bjargar enda Friðrik
með mörg járn í eld-
inum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA