Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 8
8 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Pólitísk stýring Ríkisútvarpsins
„Ég hef ekki séð að það ríki sér-
stök hætta samfara því hvernig
fjölmiðlar hafa verið reknir hér á
landi undanfarin misseri og get
ekki dregið þá ályktun að verið sé
að misnota fjölmiðlana í umræð-
unni hér á landi. Það má frekar
draga þá ályktun að Ríkisútvarp-
inu sé stundum stýrt pólitískt.“
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins. Fréttablaðið 26. apríl.
Lætur ekki bugast
„Það gefur auga leið að menn
munu ekki hlaupa út úr fjölmiðla-
rekstri af því að Davíð segir það.“
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs. DV 26.
apríl.
Gott að láta sig dreyma
„Mig dreymir um þjóðfélag þar
sem foreldrar þurfa ekki að lifa í
ótta við fíkniefnasala.“
Baldur Ágústsson, fyrrverandi forstjóri öryggis-
þjónustunnar Vara. Morgunblaðið 26. apríl.
Orðrétt
DÝRAHALD „Við látum dýrin ekki líða
fyrir stjórnsýslu og ef við fréttum
að dýrum sem eru illa á sig komin
sinnum við því strax,“ segir Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir, en Sig-
urjón Þórðarson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, gagnrýnir að hér-
aðsdýralæknir hafi farið að Dals-
mynni til að athuga með ástand
dýra, þar sem það sé hlutverk Um-
hverfisstofnunar að hafa eftirlit
með búinu.
Halldór segir skýrslu héraðs-
dýralæknis hafa verið stílað á sig en
ekki á fólkið að Dalsmynni, þau hafi
hins vegar fengið afrit af skýrsl-
unni. Hann segir að í grein Magneu
Hilmarsdóttur sem birtist í Frétta-
blaðinu í febrúar hafi verið sagt frá
því að hundar á Dalsmynni væru
illa á sig komnir og einn þeirra eftir
keisaraskurð. Því hafi Gunnar Örn
Guðmundsson héraðsdýralæknir
farið og kannað málið þar sem það
sé skylda dýralækna.
„Gunnar komst að því að það
sem fram kom í grein Magneu átti
ekki við rök að styðjast. Ef ég hefði
áframsent skýrslu héraðsdýralækn-
is til fólksins á Dalsmynni þá hefði
það verið stjórnsýslubrot.“
Halldór segir enga dýralækna
starfa hjá Umhverfisstofnun og
þegar starfsmenn stofnunarinnar
fer til að athuga með dýr eigi þeir
að hafa héraðsdýralækni með sér í
för en það hafi ekki verið gert
þegar farið að Dalsmynni. ■
Sjaldséðir fuglar:
Hvítandarpar og fagurgæs
LAGAFRUMVARP „Þingvellir eru
óumdeilanlega kirkjueign,“ segir
séra Halldór Gunnarsson, sem
sæti á í kirkjuráði. Í frumvarpi til
laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum
eru Þingvellir taldir til ríkisjarða.
„Það liggur ljóst fyrir að þegar
Alþingi og ríkisstjórnin lýsa því
yfir að Þingvellir séu ríkisjörð þá
þurfa þau að sýna afsal fyrir jörð-
inni,“ segir Halldór.
Í ályktun sem send var nefnd-
arsviði Alþingis kemur fram að
kirkjuráð fagni tillögum um
stækkun þjóðgarðsins og frið-
lýsingu hans sem helgistaðar allra
Íslendinga. Kirkjuráð mótmælir
því hins vegar að í greinargerð
með frumvarpinu séu Þingvellir
taldir með ríkisjörðum, enda liggi
ekki fyrir formlegt afsal á Þing-
völlum og samkvæmt þinglýstum
eignarheimildum sé ótvírætt að
kirkjan fari með eignarheimild að
Þingvöllum.
„Árið 1928 þegar lögin um
Þingvelli voru sett þá er það orða-
lag fjórðu greinar að hið friðlýsta
land skuli vera undir vernd
Alþingis og ævinlega eign
íslensku þjóðarinnar. Þjóðkirkjan
hefur verið sátt við þetta orðalag
en það fór aldrei fram eignar-
nám,“ segir Halldór.
Árið 1997 var gengið frá samn-
ingum milli ríkis og kirkju um
kirkjujarðir en þá átti eftir að
semja sérstaklega um prests-
setrin. Nokkrum árum síðar fór
ríkisstjórnin fram á það við bisk-
up að ekki yrði skipaður prestur á
Þingvöllum þegar prestsembættið
losnaði. „Biskup varð við þessari
ósk í þeirri vissu að samkomulag
myndi nást milli ríkis og kirkju
um það með hvaða hætti Þingvell-
ir yrðu skilgreindir sem eign ís-
lensku þjóðarinnar.“ Halldór segir
að undanfarin tvö ár hafi verið
reynt að koma á viðræðum við rík-
ið um prestssetrin en það hafi ekki
tekist. „Það er ekki hægt að ná sátt
um málið ef ekki er talað saman.
Við vonum að það náist samkomu-
lag um Þingvelli vegna þess að
Þingvellir eru heilagur staður sem
þjóðin vill að sátt ríki um.“
bb@frettabladid.is
Fyrirtækjaþjónusta Blómavals
Plöntur gera vinnustaðinn heilsusamlegri, hlýlegri og fegurri.
Þær draga úr skaðlegum efnum í andrúmsloftinu og bæta rakastig í vistarverum.
Síðast en ekki síst prýða þær aðkomu að fyrirtækjum.
Við leggjum áherslu á:
• Grænar lausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir
• Reglulegar heimsóknir til viðskiptavina okkar
• Skreytingar við öll tækifæri
• Blómaáskrift
• Silkiblóm, þar sem þau henta
Allar upplýsingar í verslunum Blómavals og á blomaval.is
Blómstrandi fyrirtæki
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
43
54
04
/2
00
4
Sendiráðsstarfsmaður á
fljúgandi siglingu:
Setti hraða-
met í göngum
FRAKKLAND Starfsmaður í sendiráði
Qatar í Frakklandi var tekinn fyrir
að aka á þreföldum leyfilegum
hámarkshraða í göngum milli
Frakklands og Ítalíu.
Maðurinn, sem hefur ekki verið
nafngreindur, ók á 214 kílómetra
hraða í gegnum Mont Blanc göngin,
en leyfilegur hámarkshraði er 70.
Samkvæmt fréttastofu BBC setti
maðurinn hraðamet í göngunum en
sjálfvirkir mælar mæla hraða bíla
sem fara um þau. Sendiherra Qatar
hefur ekki viljað tjá sig um málið,
sem hefur verið sent til saksóknara
sem mun væntanlega gefa út ákæru
á hendur manninum.
Hraðatakmarkanir voru hertar í
göngunum eftir mannskætt slys þar
árið 1999. Þá fórust 39 manns þegar
það kviknaði í bíl í göngunum, sem
eru ellefu kílómetra löng. ■
FUGLAR Fagurgæs fannst í fyrsta
sinn á Íslandi um helgina. Vitað er
að gæsin yfirgaf vetrarstöðvar á
Bretlandseyjum fyrir fáeinum
dögum í hópi helsingja, að því er
fram kemur á vefnum Stafræn
fuglaljósmyndun. Fagurgæs er
lítil og afar skrautleg.
Hvítandarpar sást í Þingeyjar-
sýslum á sunnudag. Þetta er aðeins
í annað sinn sem hvítandarpar sést
hér á landi, en fundist hafa ellefu
stakir fuglar. Hvítendur eru smáar
fiskiendur, skyldar toppöndum og
gulöndum. Hugsanlegt er talið að
parið verpi hér á landi og því vilja
fuglaáhugamenn ekki gefa upp
nákvæma staðsetningu þess. ■
HVÍTÖND
Hvítandarpar sást í Þingeyjarsýslum um helgina.
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir:
Látum dýrin ekki líða fyrir stjórnsýslu
HALLDÓR RUNÓLFSSON
Halldór segir að starfsmenn
Umhverfisstofnunar eigi að hafa héraðs-
dýralækni með í för sé farið til að athuga
með ástand dýra.
Á ÞINGVÖLLUM
Kirkjuráð er ósátt við skilgreiningu á eignarhaldi Þingvalla í frumvarpi til laga um
þjóðgarðinn.
Kirkjan segist
eiga Þingvelli
Kirkjuráð mótmælir því að Þingvellir séu tald-
ir til ríkisjarða. Ítrekað óskað eftir viðræðum
við ríkisvaldið um eignarhald Þingvalla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Slys á árshátíð:
Maður á
batavegi
SLYS Maður sem slasaðist alvarlega
þegar lítil borðfallbyssa sprakk í
samkvæmi á laugardagskvöldið er
ekki lengur í lífshættu og hefur
hann verið útskrifaður af gjör-
gæsludeild Landspítalans.
Atvikið átti sér stað á árshátíð
samtakanna Round Table og Ladies
Circle í veislusalnum Versölum.
Hefð er fyrir því að hleypt sé af um
þrjátíu sentímetra langri borðfall-
byssu hlaðinni púðri og pappír á
árshátíð. Að þessu sinni sprakk
byssan með slíkum krafti að brot úr
henni lentu í tveimur gestum. Ann-
ar gestanna slasaðist alvarlega en
hinn fingurbrotnaði. ■