Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 13

Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 13
FRIÐARGÆSLA Tveir Íslendingar eru komnir til Kabúl, höfuðborgar Afganistan, til að undirbúa yfir- töku íslensku friðargæslunnar á stjórn Kabúl-flugvallar. Hallgrím- ur Sigurðsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn, verður yfirmaður flugvallarins og stýrir um 500–600 manna liði frá um tuttugu þjóðlöndum. „Verkefnið gengur út á það að reka flugvöllinn og þjálfa heima- menn í öll störf á vellinum,“ segir Hallgrímur en hann heldur til Kabúl í kringum 20. maí. „Stefnt er að því að innan þriggja ára geti heimamenn tekið við stjórn flug- vallarins af Nató.“ Um fimmtán Íslendingar verða í Kabúl hverju sinni á vegum íslensku friðargæslunnar og munu þeir meðal annars sinna slökkvi- starfi og annast flugumsjón. Krist- ján Björgvinsson slökkviliðsmaður hélt til Afganistan fyrir um tveim- ur vikum en hann verður slökkvi- liðsstjóri á Kabúlflugvelli. Hallgrímur er nýkominn heim frá Kosovo en hann var yfirmaður flugvallarins í Pristina. Hann segir að verkefnið í Kabúl sé margfalt stærra en í Pristina og aðstæður öðruvísi. „Afganistan er meira hernaðarsvæði og mennt- unarstig heimamanna er mun lægra.“ Hallgrímur hlakkar þó til að hefjast handa og er bjartsýnn á að árangur náist. ■ ■ Evrópa 13ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2004 Íslendingar taka við yfirumsjón Kabúl-flugvallar: Stjórna fjölmennu liði frá tuttugu þjóðlöndum KANADÍSKIR HERMENN Í KABÚL Fjöldi erlendra hermanna er í Kabúl til að tryggja öryggi heimamanna og vinna að uppbyggingu. LEYSTUR ÚR HALDI Marokkósk- um manni sem handtekinn var vegna hryðjuverkanna í Madríd var í gær sleppt úr haldi vegna skorts á sönnunargögnum gegn honum. Bróður hans, sem einnig var handtekinn, var líka sleppt úr haldi en gert að koma fyrir dóm- ara einu sinni í viku og bannað að fara úr landi án leyfis dómstóla. FRJÓSAMUR NASHYRNINGUR DEYR Hvíti nashyrningurinn Kruger er dauður en hann komst í metabækur fyrir að geta tólf kálfa með sömu kvígunni. Hinn 35 ára Kruger var vinsæll meðal gesta í dýragarðinum í Edinborg í Skotlandi þar sem hann dvaldi um nær 30 ára skeið. Þetta voru þær aðgerðir sem snúa beint að sjúklingum. Aðgerðir lyfjaverðsnefndar Meðan heilbrigðisráðherra var að setja saman þessar aðgerð- ir ræddi lyfjaverðsnefnd stíft við lyfjahóp Félags íslenskra stór- kaupmanna, það er fulltrúa lyfja- heildsala. Um miðjan mánuðinn bárust svo þær fréttir úr þeim herbúðum, að náðst hefði sam- komulag um umtalsverða lækkun á álagningu lyfja í heildsölu. Var þar um að ræða um 300 milljónir króna. Í þessu sambandi voru nefnd þrjú mest seldu lyfin hér á landi, magalyf, hjartalyf og geð- lyf. Gert var ráð fyrir að álagning í smásölu myndi samhliða lækka um 200 milljónir. Þá tilkynnti lyfjaverðsnefnd heimila hækkun heildsöluverðs um allt að 20% á samheitalyfjum til að örva inn- flutning þeirra. Þá fór að kárna gamanið Mikið fjölmiðlastríð hófst milli fylkinga, enda ekki lítið í húfi, hvorki fyrir ríkisvaldið né við- skiptageirann. Útreikningar streymdu til fjöl- miðla úr herbúðunum til skiptis og útkoman sýndi ýmist himinháar hækkanir einstakra lyfjategunda til sjúklingahópa, eða afar hóf- stilltar verðbreytingar, allt eftir því hver það var sem leit silfrið. Þá riðu sjúklingasamtökin og fagaðilafélög á vaðið, hver á fæt- ur öðrum, og mótmæltu ráðslagi ráðherra hvað varðaði hjartalyf, geðlyf og fleiri. Þeir bentu á að lyf væri ekki sama og lyf. Svo ein- falt væri málið ekki. Fyrir hvern? Eftir sat hinn almenni lyfjanot- andi og vissi vart hvaðan á sig stóð veðrið. Menn spurðu sig, og spyrja enn, hvort heilbrigðisyfir- völd, lyfjaheildsalar og smásalar væru virkilega svo sjúklingavæn- ir að lækka álagningu, velja ódýr- ari en jafngóð lyf og berjast í hví- vetna fyrir hagsmunum sjúkra og fátækra. Og þar kemur að klemmunni, sem minnst var á í upphafi. Heildsalar lýstu því yfir, að for- sendur samkomulagsins við lyfja- verðsnefnd um lækkun álagning- ar lyfjaverðs væru brostnar með tilkomu viðmiðunarverðsins. Enda er það ljóst, að heildsalar missa stóran spón úr aski sínum ef ódýr samanburðarlyf fara að tröllríða markaðinum. Smásalar ruku upp til handa og fóta og kváðust nauðbeygðir til að af- nema sjúklingaafslætti á lyfjum, sem næmu um 500 milljónir króna á ári, vegna sömu ástæðna. Alls staðar var undirstrikað að verið væri að koma á fót tvöföldu kerfi þeirra sem efni hefðu á að borga meira fyrir lyfin og hinna efnaminni. Það er heilbrigðisráðherra að gera upp hug sinn. Ef hann stend- ur við viðmiðunarverðið er hætt við að af stað rúlli lítil þúfa sem getur endað hvernig sem er. Ef hann gerir það ekki, þarf hann að finna aðrar leiðir til að spara 450 milljónir króna. Biðleikurinn gæti orðið sá að fresta gildistöku viðmiðunarverðsins um einhvern tíma. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.