Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 14
27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
5.999kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
4.999kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
4.999 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
28. apr. – 3. maí
GRÍMSEYJAR
3.299 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
Börn, 2ja– 12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.833 kr. aðra leiðina.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
44
49
04
/2
00
4
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
3.299
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
Ólíkar reglur
eftir löndum
Fjölmiðlalög eiga að stuðla að uppbyggingu eignarhalds á fjölmiðla-
markaði sem eflir tjáningarfrelsi og tryggir fjölbreytni. Fæst lönd hafa
strangar reglur um eignarhald fyrirtækja í óskyldum rekstri.
FJÖLMIÐLASKÝRSLA Í skýrslu nefndar
um eignarhald á fjölmiðlum er sér-
stök umfjöllun um réttarstöðu fjöl-
miðla í öðrum löndum. Fjallað er
um fjölmiðlalög í Noregi, Dan-
mörku, Finnlandi, Svíþjóð, Bret-
landi og víðar. Fram kemur að lög
um fjölmiðla eru mismunandi
eftir löndum. Mesta frelsið er ef til
vill í Bretlandi, þar sem eignar-
hald á fjölmiðlum er afar frjálst.
Ný lög um fjölmiðla voru sam-
þykkt í Bretlandi í fyrra. Sænska
menntamálaráðuneytið lagði fram
frumvarp til laga um eignarhald á
fjölmiðlum en það náði ekki fram
að ganga.
Noregur
Fjölmiðlalög eiga að stuðla að
uppbyggingu eignarhalds á fjöl-
miðlamarkaði sem eflir tjáningar-
frelsi og tryggir fjölbreytni í fjöl-
miðlum. Komið var á fót sérstakri
stofnun sem fylgist með eignar-
haldi. Hefur hún leyfi til að grípa
inn í viðskipti með fjölmiðlafyrir-
tæki ef þau leiða til þess að eitt fyr-
irtæki hafi eða muni öðlast verulega
eignarhlutdeild á fjölmiðlamarkaði.
Ekki sérstakar reglur um lárétt
eignatengsl.
Danmörk
Engar takmarkanir um eignar-
hald á dagblöðum. Fyrirtæki í
óskyldum rekstri mega ekki eiga
ráðandi hlut í félagi sem hefur leyfi
til að reka sjónvarp eða útvarp. Þeir
sem hafa útvarpsleyfi verða að hafa
þann rekstur sem sitt eina markmið.
Engar takmarkanir á láréttum
eignatengslum eða eignarhaldi
útlendinga.
Finnland
Engar takmarkanir um eignar-
hald á dagblöðum. Engar beinar tak-
markanir varðandi eignarhald fyrir-
tækja í sjónvarps- og útvarps-
rekstri. Þó er lögð áhersla á að með
veitingu útvarpsleyfa sé það hindr-
að að eignasamþjöppun í fjölmiðlun
ógni tjáningarfrelsi. Ef hlutafjár-
eign breytist í fyrirtækjum með út-
varpsleyfi fellur leyfið niður. Engar
takmarkanir á láréttu eignarhaldi
eða eignarhaldi útlendinga.
Svíþjóð
Engar takmarkanir gilda um
eignarhald á dagblöðum í Svíþjóð
aðrar en almenn samkeppnislög.
Sænska menntamálaráðuneytið
lagði fram frumvarp að lögum um
eignarhald á fjölmiðlum sem náði
ekki fram að ganga. Útlendingar
innan EES geta átt eignarhlut í dag-
blaðaútgáfum.
Bretland
Sett voru ný lög um fjölmiðla og
samskipti í Bretlandi í júlí 2003. Þar
var samþykkt að dagblaðaútgáfa og
rekstur sjónvarpsstöðva fari saman
að vissu marki. Sá sem ræður yfir
meira en tveimur tíundu hluta af
upplagi dagblaða getur átt tvo
tíundu hluta í sjónvarpsstöð.
sda@frettabladid.is
SKÝRSLA NEFNDAR UM EIGNARHALD FJÖLMIÐLA
Fram kemur að lög um fjölmiðla eru mismunandi eftir löndum. Mesta frelsið er ef til vill í Bretlandi, þar sem eignarhald á fjölmiðlum er
afar frjálst, en ný lög voru sett þar í fyrra.
DÆMI UM LÁRÉTT EIGNARHALD FJÖLMIÐLA Í BRETLANDI
Daily Mail og General Trust – fjölmiðlafyrirtæki með stærsta hluti í eigu Lord
Rothermere. Eiga dagblöðin Daily Mail, Mail on Sunday, Evening Standard og Metro.
Reka að auki útvarpsstöðvar.
News International – hluti af News Corp., sem Rupert Murdoch á stærstan hluta í.
Gefur út dagblöðin The Sun, The Times, News of the World og The Sunday Times.
BskyB – er að mestu í eigu Rupert Murdoch. Fyrirtækið rekur gervihnattasjónvarps-
stöðvar svo sem Sky News og fleiri.
Guardian Trust – Gefur út dagblaðið The Guardian og sunnudagsblaðið The
Observer. Fyrirtækið rekur einnig útvarpsstöðvar.
EMAP – á útvarpsstöðvar og gefur út fjölda tímarita.
Pearson – á Financial Times og framleiðslufyrirtæki sjónvarpsefnis að auki.
Íslenskur fiskifræðingur fundar með danskri þingnefnd:
Sóknardagakerfi Fær-
eyinga vekur áhuga
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Reynslan af sókn-
ardagakerfi Færeyinga hefur verið
það góð að aðrar þjóðir en Íslend-
ingar eru farnar að taka eftir svo
um munar,“ segir Jón Kristjánsson
fiskifræðingur, en hann hefur verið
boðaður fyrir danska þingnefnd á
miðvikudaginn kemur til að útlista
kosti kerfisins fyrir Dönunum. Jón
hefur um hríð starfað í Færeyjum
og verið dyggur stuðningsmaður
sóknardagakerfisins þar.
„Danir eru að reka sig á það að
kerfi Evrópusambandsins er að
ganga að sjávarútvegi dauðum og
að grípa verður til aðgerða. Sömu
sögu er að segja af Bretum og Írum,
en gríðarleg óánægja er með núver-
andi kerfi í þessum löndum.“
Í Færeyjum fær hver skipa-
flokkur úthlutað allt að 300 sóknar-
daga ár hvert og heimilt er að
skipta þeim innan hvers flokks en
ekki milli flokka. Minnstu bátarnir
fá úthlutað nálægt eyjunum en
frystitogurum er gert að fara út
fyrir landhelgi til að fiska.
„Aðalatriðið er það að allir mega
koma með allt sem þeir veiða að
landi og engin hámörk á þeim
tegundum sem veiða má hvern dag.
Engu er hent og aflinn er raunveru-
legur mælikvarði á lífið í sjónum en
ekki áætlanir fjölda fræðinga sem
sífellt hafa rangt fyrir sér.“ ■
FISKVEIÐAR
Danir hafa fengið sig fullsadda af fiskveiði-
reglum Evrópusambandsins og vilja skoða
aðrar leiðir.