Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 16

Fréttablaðið - 27.04.2004, Page 16
Ástæða þess að ríkisstjórn DavíðsOddssonar setti ekki í fjölmiðla- frumvarp ákvæði um takmarkanir á eignaraðild að dagblaðaútgáfu er sú að engum stjórnvöldum í lýðræðis- samfélagi hefur dottið slíkt í hug síð- an slík samfélög fóru að mótast fyrir fáeinum hundruðum ára síðan. Rit- frelsi og tjáningarfrelsi eru undir- staða slíkra samfélaga. Stjórnvöld sem settu í lög takmarkandi ákvæði við því hverjir mættu gefa út dag- blöð væru því í raun að yfirgefa lýð- ræðisfyrirkomulagið eins og við þekkjum það á Vesturlöndum. Það eru því söguleg tíðindi að slíkar fyrirætlanir hafi verið á borðum rík- isstjórnar Davíðs þó að við það borð sitji blessunarlega nógu skynsamt fólk til að hafna slíku. Ástæða þess að stjórnvöld í lýð- ræðisríkjum hafa gert útvarps- og sjónvarpsrekstur leyfisskyldan er sú að til þess að útvarpa dagskrá þess- ara miðla þarf hver stöð að hafa til- tekið tíðnisvið. Og tíðnisviðin eru takmörkuð. Víðast hvar eru nothæf tíðnisvið takmarkaðri en eftirspurn- in. Af þeim sökum hefur þurft að skammta þau. Og stjórnvöld hafa beitt mismunandi reglum í mismun- andi löndum. Langflest hafa lagt áherslu á verndun minnihlutasjónar- miða og lítilla málsvæða eða til að tryggja aðgang margbreytilegrar og mismunandi menningar að þessari takmörkuðu auðlind. En það þekkjast einnig reglur sem eru sprottnar af öðrum sjónarmiðum – byggðar á fjöl- þættustu sjónarmiðum. Þessar regl- ur eru ekki settar til að stjórna því hverjir eiga eða reka fjölmiðla eða vernda fjölmiðla fyrir óæskilegum eigendum eða almenning fyrir vond- um fjölmiðlum. Þetta er reglugerða- verk byggt á þeirri staðreynd að það geta ekki allir sem vilja fengið út- hlutað tíðnisviðum. Stjórnvöld smíða sér því einhverjar reglur til að láta einhvers konar sanngirni ráða út- hlutun þeirra. Á Íslandi er enginn skortur á tíðnisviðum. Það er nóg af þeim fyrir þá sem vilja stofna útvarps- og sjón- varpsstöðvar. Það er því engin þörf fyrir flóknar reglur um úthlutun tíðnisviða og það er í raun ólýðræðis- legt að setja slíkar reglur, alveg á sama hátt og það er ólýðræðislegt að setja reglur um eignarhald dagblaða – eða annarra fjölmiðla sem búa ekki við tæknilegar takmarkanir. Við búum við kvóta í sjávarútvegi og sættum okkur við það. Við deilum hins vegar um þær reglur sem notað- ar eru við úthlutun hans. En hvernig myndi fólk bregðast við kvótakerfi í sjávarútvegi þótt nægur væri fiskur- inn í sjónum? Myndi það sætta sig við útskýringar stjórnvalda um að eðlilegt væri að stjórna því hverjir hefðu aðgang að greininni og að þau væru í raun að gera þetta fyrir rétt- lætis- og sanngirnissakir? Fólki myndi finnast slíkt kvótakerfi til- gangslaust og fráleitt – jafn fráleitt og nýjar reglur um takmarkanir á eignarhaldi í fjölmiðlum. ■ Skítkast, óhróður og rökleys-islágkúra.“ Þessi orð notar Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, til að lýsa þeim sem voga sér að gagnrýna flokk hans. Af ummælum hans að dæma í Fréttablaðinu sl. sunnudag er greinilegt að ég hef komið við snöggan blett í kviku flokksins, hér í blaðinu sl. fimmtudag, og hlýtur það að skýra þá augljósu vanstillingu sem einkenna skrif formannsins. Skautað fram hjá gagnrýni Í greininni hafði ég orð á þeirri gagnrýni sem komið hefur fram hjá fólki sem tilheyrir vinstri armi VG og álítur flokkinn stjórn- ast um of af háskólafólki í Reykja- vík úr efri og millistétt. Það er hinsvegar eftirtektarvert að í ýtarlegu svari þar sem formaður- inn fer mikinn og veður bókstaf- lega á súðum minnist hann ekki einu orði á tilefni minna skrifa; það er, gagnrýni eigin flokks- manna á forystu VG. Hann skaut- ar algerlega fram hjá þeirri gagn- rýni og tekur þess í stað til við að níða skóinn af boðbera tíðindanna. Sem hlýtur nú að teljast heldur ódýr afgreiðsla. Í grein minni benti ég á að eitt af því sem hugsanlega gæti skýrt óánægju almúgafólks í flokknum (hópurinn kennir sig sjálfur við almúga) sé að forysta flokksins setur ekki endilega kjör þeirra lægst settu á oddinn. Ég tók dæmi úr viðtali við Katrínu Jakobs- dóttur, þegar hún var kjörin vara- formaður flokksins, en þá sagði hún aðspurð að brýnast af öllu í íslenskum stjórnmálum væri að breyta orðræðunni. Mér þótti merkilegt að leiðtogi félags- hyggjuaflanna á Íslandi teldi það brýnna en að bæta kjör alþýðunn- ar. Í greininni benti ég á að kannski séu það slík ummæli sem valda því að vinstri armur flokks- ins telur forystuna úr takti gengna við almenna flokksmenn og sé komin heldur hátt upp í hinn akademíska fílabeinsturn. Karlremba Steingríms Nú skil ég svo sem að Stein- grími svíði þessi gagnrýni eigin flokksmanna og get líka alveg skilið að hann kjósi fremur að taka gremju sína út á mér í stað þess að takast á við gagnrýni eig- in flokksmanna. Það er auðvitað miklu auðveldara. En ég fæ hinsvegar alls ekki skilið hvað í ósköpunum gefur honum tilefni til að saka mig um karlrembu, eins og hann gerir í grein sinni, þótt ég hafi leyft mér að gagnrýna varaformann flokks- ins og það vilji svo til að hún er kvenkyns. Ég sé ekki að kyn henn- ar komi málinu nokkurn skapaðan hlut við. Enn síður fæ ég nokkurn botn í þá einkunn formannsins að ég hafi lagst alveg sérstaklega lágt þegar ég tók það fram í grein- inni að ég tel Katrínu Jakobsdótt- ur að öðru leyti vera stórefnilegan stjórnmálamann en hún er sann- arlega ein fremsta vonarstjarna flokksins. Getur verið að for- maðurinn sé kominn svo djúpt ofan í sínar pólitísku skotgrafir að hann telji óhugsandi að fólki sé hrósað þvert á flokkslínur og taki allt slíkt sem merki um kaldhæðni og pólitískt háð? Hlýt ég að biðja formanninn um að skýra þessi ummæli sín betur út fyrir mér og lesendum. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um aðgangstakmarkanir að fjölmiðlum. 16 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Talsmönnum markaðslausna ogeinstaklingsfrelsis er gjarnan gerð upp sú skoðun að telja að peningar séu það eina mikilvæga í lífinu. Talsmenn ríkisþvingaðrar tekjujöfnunar og ríkisrekstrar, í m.a. heilbrigðis-, velferðar- og menntamálum, segja í sama mund að fyrir þá skipti lífskjör hinna fátækustu mestu máli og jafnvel meira máli en fyrir þá sem tala fyrir einkaframtaki og takmörk- uðu ríkisvaldi. Svokallaðir græn- ingjar taka í sama streng og telja að með hertu taki ríkisvaldsins á öllu sem spillir eða breytir um- hverfinu sé verið að vinna á upp- byggilegan hátt gegn mengun og eyðileggingu á náttúrunni. Þegar betur er að gáð stenst slíkt tal hins vegar enga skoðun. Ekki bara peningaspursmál Vinstrivillurnar eru margar og gjarnan byggðar á miklum mis- skilningi. Þegar hægrimenn boða breytingar sem miða að því að há- marka auðsköpun er yfirleitt inni- falið ótal margt annað sem gjarn- an er í takt við yfirlýstan boðskap vinstrimanna. Hvað fátæka varð- ar er alveg ljóst að mikil ríkis- umsvif eru ekki lykillinn að bættri velferð þeirra. Í hagkerf- um takmarkaðra ríkisafskipta eru ráðstöfunartekjur þeirra fátæk- ustu margfaldar á við ráðstöfun- artekjur þeirra fátækustu í hag- kerfum mikilla ríkisafskipta. Lífslíkur aukast einnig þegar rík- ið leyfir markaðinum að vinna sína vinnu, og hið sama má segja um menntastig, mannréttindi, að- gengi að menntun og heilbrigðis- þjónustu og svona má lengi telja. Umhverfi auðugra ríkja batnar einnig þegar auðsköpun er mikil því um leið og brýnasta brauð- stritið er að baki bendir allt til að hreinsun þess og bætt umgengni við það sé næst á dagskrá. Vantrúin er rík Vantrú vinstrimanna á hinum frjálsa markaði er ekki ný af nál- inni. Sú vantrú á hins vegar sjaldnast við rök að styðjast. Íbú- ar vestrænna ríkja fóru á sínum tíma þá leið að binda mjög hendur ríkisins, t.d. með stjórnarskrám sem vernduðu frelsi einstaklinga til orða og athafna. Sú aðgerð hef- ur skilað miklum árangri. Fátækt er ekki til komin vegna skorts á ríkisafskiptum. Hún er heldur ekki til komin vegna svokallaðrar misskiptingar auðs. Fátækt kem- ur fyrst og fremst í kjölfarið á fækkun tækifæra sem aftur er oftast til komin vegna mikilla um- svifa hins opinbera. Úrval osta, fjöldi lækna og verð á lambakjöti eru dæmi um þætti sem ríkið læt- ur sig mjög varða á Íslandi í dag með þeim afleiðingum að þeir fá- tæku njóta verri kjara en þeir annars þyrftu að njóta. Þetta meg- um við gjarnan hafa í huga þegar við hugleiðum hlutverk ríkisins, sem í raun ætti fyrst og fremst að snúast um að vernda einstaklinga gegn ofbeldi og valdníðslu og tryggja eignarrétt þeirra með lög- reglu og dómstólum. Auðsköpun fátækum mikil- vægust Efnað fólk sem á til hnífs og skeiðar og hefur þak yfir höfuðið er ekki sá hópur sem þarf hvað mest á auknum tekjum að halda. Auðvitað vilja allir geta keypt ferskari ávexti, þykkari peysur, sérhæfðari læknisþjónustu og rúmbetri bíla og leggja hart að sér til að svo megi verða. Fyrir þá fá- tækustu er lífsbaráttan hins veg- ar spurning um að eiga eitthvað í sig og á. Það að hámarka mögu- leika hagkerfis til að stækka og dafna má í raun líkja við áhrif flóðs á bátana í höfninni – þegar hækkar í sjónum lyftast þeir allir hærra. Þegar auðsköpun er sett á oddinn batna lífskjör þeirra verst settu mest í þeim skilningi að brýnasta brauðstritið verður minna áhyggjuefni. Þeir tekju- hærri kaupa nýjan bíl og ferskari appelsínur, en þeir fátækustu kaupa sinn fyrsta bíl og sína einu ávexti. Það er kjarni málsins og ástæða þess að við eigum að berj- ast af fullum krafti fyrir hagkerfi tækifæra, takmarkaðs ríkisvalds, lögverndaðs eignarréttar, gegn- særrar stjórnsýslu og lögbundins jafnréttis gagnvart lögum. Þeir sem halda öðru fram eiga bágt með að rökstyðja sinn málflutning og án röksemda er venjan sú að hirða lítt um boðskapinn. ■ Dapurleg lagasetning Yfirvofandi lagasetning er mikið stílbrot á þeirri stefnu sem ríkis- stjórnir Davíðs Oddssonar hafa markað frá árinu 1991. Hún lýsir ekki mikilli trú ráðamanna á hinn frjálsa markað. Hún er ekki til marks um að landsstjórnin sé í höndum manna sem hafa að leið- arljósi frelsi einstaklingsins til orðs og æðis. Það er dapurlegt þegar stjórnmálaflokkur sem á síðustu árum hefur leyst íslenskt þjóðfélag úr viðjum hafta og ríkis- afskipta, skuli standa á bak við slíka lagasetningu. Þar fyrir utan verður það að telj- ast afar óheppilegt að lögunum sé einkum beint gegn ákveðnu fyrir- tæki sem forsætisráðherra hefur ítrekað lýst sem andsnúnu sér. RITSTJÓRN Á DEIGLAN.COM Engum treystandi Hverjir eiga og mega eiga fjöl- miðla á Íslandi? Einu sinni áttu stjórnmálaflokkarnir blöðin og þá mátti enginn annar en ríkið reka útvarp og sjónvarp. Einn grunn- tónninn í skýrslu fjölmiðla- nefndarinnar er að í raun sé eng- um treystandi til að reka fjöl- miðla nema ríkinu. Alls konar skorður þurfi að setja þegar einkaaðilar eiga í hlut. EGILL HELGASON Á STRIK.IS Siðareglur DV Í DV hafa þeir siðapostular, sem rita forystugreinar í blaðið, býsnast yfir því, sem ég sagði um Sigurð Líndal hér á vefsíðu minni í síðasta pistli mínum, þegar ég velti því upp, að söguþekking hans á 20. öldinni virtist ekki mikil, þegar hann teldi mig hafa svipaða afstöðu til Hæstaréttar og Jónas frá Hriflu. Ég ætla ekki að árétta hér álit mitt á þeim siðareglum, sem ráða ferðinni á DV. Ég læt orð blaðsins og ávítur mér í léttu rúmi liggja, enda eru skilin milli uppspuna og stað- reynda að engu orðin í blaðinu undir hinni nýju ritstjórn þess. BJÖRN BJARNASON Á BJORN.IS Umræðan GEIR ÁGÚSTSSON ■ verkfræðinemi og stjórnarmaður í Frjálshyggjufélaginu, skrifar um peninga, fátækt og auð. Andsvar EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON ■ bregst við grein Steingríms J. Sigfússonar um Vinstri græna. Einblínt á auðsköpunina ■ Af netinu Komið við snöggan blett Kvóti í allsnægtum TOGSTREITA Greinarhöfundur telur að óánægju gæti innan VG vegna þess að flokksforystan setji ekki kjör hinna lægst settu á oddinn. FÁTÆKT Greinarhöfundur segir að mikil ríkisumsvif séu ekki lykillinn að bættum hag fátækra.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.