Fréttablaðið - 27.04.2004, Síða 28
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR „Ég hef aldrei
undirritað, samþykkt, séð eða vit-
að nokkuð um nokkra ávísun til
Balco,“ sagði frjálsíþróttakonan
Marion Jones. „Þetta er það eina
sem ég get sagt að þessu sinni.“
New York Times sagði frá því á
sunnudag að 7.350 dollarar hafi
verið greiddir af reikningi Jones
til Victor Conte, stofnanda Balco.
Conte er ákærður ásamt fjórum
öðrum fyrir að selja íþróttamönn-
um stera sem hann hafði þróað
svo þeir greindust ekki í hefð-
bundnum lyfjaprófum. Marion
Jones hefur ítrekað neitað því að
hafa notað lyf til að bæta árangur
sinn og að hafa átt nokkur sam-
skipti við Conte. Hún segist sann-
færð um að nafn hennar verði
hreinsað í náinni framtíð. ■
FÓTBOLTI „Baggio á skilið að leika í
Evrópumeistarakeppninni,“ segir í
leiðara ítalska íþróttadagblaðsins
Corriere dello Sport. „Ekki vegna
glæsilegs ferils heldur vegna þess
að hann hefur leikið vel og aðrir
sóknarmenn okkar hafa átt í vand-
ræðum.“ Alessandro Del Piero er
enn meiddur á kálfa og leikur
Antonio Cassano hefur ekki þótt
nógu stöðugur fyrir landsliðið.
Giovanni Trapattoni valdi
Roberto Baggio í leikmannahóp
Ítala sem leikur við Spánverja í
Genúa á morgun. Trapattoni efnir
þar fyrirheit frá í vetur þegar
hann sagðist vilja gefa Baggio
kveðjuleik með landsliðinu. Ekki
virðast allir Ítalir á því að kveðju-
leikur sé nóg því Baggio hefur
leikið vel í vetur. Corriere dello
Sport bauð fótboltaáhugamönnum
að segja sína skoðun og ekki stóð á
yfirlýsingunum. „Enginn Baggio,
engin Ítalía,“ sagði í einum skila-
boðanna.
„Baggio ber af öllum öðrum
leikmönnum á eftirstríðsárunum,“
sagði Gino Corioni, forseti
Brescia, sem fékk Baggio til
félagsins fyrir fjórum árum þegar
ekkert annað félag vildi ráða
hann. Baggio nýtur mikilla vin-
sælda í Brescia og er búist við að
fjöldi stuðningsmanna félagsins
verði meðal 35.000 áhorfenda í
Genúa á morgun.
„Hann lítur ekki á þetta sem
sýningu. Hann ætlar að gera sitt
besta til að sýna að hann sé í góðu
formi,“ sagði Gianni De Biasi
þjálfari Brescia. Og staðarblaðið í
Brescia bætti um betur: „Baggio
mætir á dansleikinn á miðviku-
dagskvöld til að sýna að hann get-
ur enn dansað“. ■
20 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
PORTO MEISTARI
Stuðningsmenn Porto fagna
19. meistaratitli félagsins.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
APRÍL
Þriðjudagur
Frakkinn ThierryHenry var út-
nefndur leikmaður
ársins af Samtök at-
vinnuknattspyrnumanna á Eng-
landi á sunnudag. Henry var
einnig leikmaður ársins í fyrra
og varð fyrstur til að hljóta
sæmdarheitið tvö ár í röð. Að-
eins tveir aðrir leikmenn hafa
tvisvar verið útnefndir leik-
menn ársins, Alan Shearer árin
1995 og 1997 og Mark Hughes
árin 1989 og 1991.
Norman Hunter, leikmaður
Leeds, var leikmaður ársins
1974, þegar Samtök atvinnu-
knattspyrnumanna stóðu fyrir
þessu vali í fyrsta sinn. Leeds
var Englandsmeistari þetta ár
en fimmtán sinnum hefur leik-
maður ársins leikið með meist-
araliðinu en sextán sinnum hef-
ur hann ekki komið úr röðum
Englandsmeistaranna. ■
„Yrði ekki hissa ef sömu lið
og í fyrra kepptu um titilinn“
Heimir Ríkarðsson telur breidd Hauka og sterkt byrjunarlið ÍR ráða úrslitum.
HANBOLTI Undanúrslitin í RE/MAX-
deild karla í handknattleik hefjast
í kvöld klukkan 19.15. Þá mætast
annars vegar Íslandsmeistarar
Hauka og bikarmeistarar KA á Ás-
völlum og hins vegar ÍR og Valur í
Austurbergi. Fréttablaðið sló á
þráðinn til Heimis Ríkarðssonar,
þjálfara Fram, og fékk hann til að
spá í viðureignirnar. „Ég hef á til-
finningunni að þessi einvígi bæði
verði mjög jöfn þótt þau komi lík-
lega til með að spilast nokkuð ólíkt.
Haukar og KA vilja spila mjög
hraðan handbolta og þau skora
gjarnan mjög mikið en hafa einnig
að undanförnu fengið á sig mikið
af mörkum. Þegar þau mættust í
lokaumferðinni í deildinni voru
skoruð sjötíu mörk og ég á von á að
svipað markaskor verði uppi á ten-
ingnum í þessu einvígi. Ég hef trú
á að Haukar klári þetta því þeir
eru með meiri breidd og þá tel ég
að heimavallarrétturinn kunni að
skipta sköpum. Ef hins vegar þeir
misstíga sig í leiknum í kvöld eru
þeir í mjög erfiðum málum. Hauk-
ar voru í vandræðum með varnar-
leikinn í leikjunum á móti ÍBV en
ef þeir koma til með að bæta hann
verða þeir illviðráðanlegir. KA er
með mjög sterkt sóknarlið en
breiddin er þeirra helsti veikleiki.“
Það er alveg á mörkunum að ég
treysti mér til að spá fyrir um
viðureignir ÍR og Vals,“ segir
Heimir og hlær. „Þetta verður
alveg svakalega jafnt og spenn-
andi. Valsarar koma líklega til með
að sakna Markúsar Mána og ef það
er raunin geta þeir lent í vandræð-
um. Það er hins vegar gríðarleg
seigla í þessu Valsliði og þeir hafa
meiri breidd en ÍR-ingarnir og ef
Bjarki kemur sterkur inn aukast
líkur þeirra. Þessi lið eru meiri
varnarlið en Haukar og KA og mun
minna skorað í flestum leikjum
þeirra. Það er svipað með ÍR-
ingana og KA, þeir eru ekki með
breiðan hóp en afar öflugt byrjun-
arlið sem erfitt getur verið að
hemja. Ég hef meiri trú á að ÍR-
ingar fari annað árið í röð fram hjá
Valsmönnum og í lokaúrslitin, ég
yrði það minnsta ekki mjög hissa
ef við sæjum sömu lið í lokaúrslit-
unum og í fyrra, Hauka og ÍR,“
sagði Heimir Ríkarðsson. ■
■ ■ LEIKIR
18.00 Valur keppir við Stjörnuna á
Leiknisvelli í deildabikarkeppni kvenna í
fótbolta.
19.15 Haukar og KA leika á Ásvöll-
um í undanúrslitum RE/MAX-deildar
karla í handbolta.
19.15 Valur mætir ÍR í Valsheimil-
inu í undanúrslitum RE/MAX-deildar
karla í handbolta.
19.15 ÍBV og FH keppa í Eyjum í
undanúrslitum RE/MAX-deildar kvenna í
handbolta.
20.00 KR leikur við Breiðablik á
Leiknisvelli í deildabikarkeppni kvenna í
fótbolta.
20.15 HK og Stjarnan keppa í
Hagaskóla í úrslitum Íslandsmóts karla í
blaki.
■ ■ SJÓNVARP
14.15 Trans World Sport á Stöð 2.
Íþróttir um allan heim.
18.10 Motorworld á Sýn. Kraft-
mikill þáttur um allt það nýjasta í heimi
akstursíþrótta.
18.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
19.00 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir um allan heim.
20.00 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik í undan-
úrslitum RE/MAX-deildar karla í hand-
bolta.
20.00 Meistaradeild UEFA á Sýn.
Fréttaþáttur um meistaradeild UEFA.
20.30 Fákar á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
22.30 Supercross (Texas Stadium)
á Sýn.
23.25 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir um allan heim.
Ensku bikarúrslitin:
Miðaklúður
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið (FA) hefur viðurkennt að
það hafi gert mistök þegar það út-
hlutaði Millwall og Manchester
United miðum á úrslitaleik bikar-
keppninnar í næsta mánuði.
Millwall fékk 7000 miðum færra
en United og þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir tókst þeim ekki að rétta
sinn hlut.
FA ber fyrir sig öryggisjónar-
miðum við úthlutun miða og
segist hafa tekið mið af ráðlegg-
ingum lögreglunnar í Suður-Wales.
FA lýsti því yfir að það muni í
framtíðinni hafa félögin sem leika
til úrslita með í ráðum við undir-
búning leiksins, jafnvel þó það sé
ekki í samræmi við hefð að félög
sæki fundi þar sem öryggismál á
úrslitaleikjum eru rædd. ■
■ Tala dagsins
31
Marion Jones:
Ég borgaði ekki Balco
ROBERTO BAGGIO
Leikur sinn síðasta landsleik annað kvöld, segir Tapattoni þjálfari. Margir Ítalir vilja
að hann fái fleiri tækifæri.
Ítalska fótboltalandsliðið:
Baggio fær kveðjuleik
HEIMIR RÍKARÐSSON
Hallast að sigri Hauka og ÍR.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R