Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 39
31ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2004
Ársfundur
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður
haldinn fimmtudaginn 29. apríl n.k.
kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn á
Hótel Loftleiðum, Þingsal 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar
skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins.
2. Fyrirliggjandi tillögur til breytinga
á samþykktum sjóðsins.
Tillögur til breytinga á samþykktum
Lífeyrissjóðs bankamanna liggja frammi
á skrifstofu sjóðsins, Suðurlandsbraut 24,
sími 569 0900.
Einnig má nálgast tillögurnar á
vefsíðu sjóðsins www.lifbank.is
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Suðurlandsbraut 24 • 108 Reykjavík • Sími 569 0900
Fax 569 0909 • lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
FJÖR Í VINNUNNI
Að baki frægðinni liggja blóð, sviti og tár. Þau Gussi, Jónsi, Elma Lísa og Álfrún Helga eru
meðal þeirra sem sjást hér vinna fyrir frægðinni en æfingar á sumarsmellinum Fame eru
nú í fullum gangi.
Dr. Gunni er alltaf hress ábloggsíðunni sinni. Nú er
hann kominn með topp tíu lista
yfir þau atriði sem hann vill bæta
við fjölmiðlafrumvarpið. Í efsta
sæti trónir ósk hans um að bann-
að sé að spila sama lagið oftar en
einu sinni á dag, hvort sem er á
útvarps- eða sjónvarpsstöðvum.
Auk þess vill hann banna spilun-
arlista með öllu. Í þriðja lagi
megi útvarpsmenn aðeins einu
sinni í hverjum þætti upplýsa
fólk hvað klukkan er og greini-
lega er hann ekki hrifin af
„fyndnum fréttum af Netinu“,
sem hann vill einnig banna. Þeg-
ar kemur að sjónvarpi vill hann
að tryggt sé að alltaf sé eitthvað
áhorfanlegt á einhverri stöð, þó
ekki fleiri en einni í einu nema
öruggt sé að hann eigi tóma
vídeóspólu. Þá sé bannað að end-
ursýna bíómyndir oftar en
þrisvar nema hann hafi misst af
þeim. Hann vill að bannað verði
að bjóða upp á dagskrárefni með
„Oprah Winfret, Carrot Top, Ash-
ley Djödd og Randver Þorláks-
syni“ og að Gísli Marteinn megi
ekki fá sömu gestina oftar en
einu sinni á önn. Þá vill hann
skylda þáttastjórnendur kjafta-
þátta til að skjóta viðmælendur
séu þeir leiðinlegir eða vilji ekki
hætta að röfla og hindra þar með
framgang dagskrár. Að lokum
vill hann að Páll Benediktsson
haldi áfram með „Í brennidepli“
enda sé það eini almennilegi
fréttaþátturinn.
Frænkurnar Guðrún KristínEinarsdóttir og Ragna Sigrún
Kristjónsdóttir, sem eru nemend-
ur í níunda bekk Hlíðaskóla, hafa
auglýst nýstárlega þjónustu hér í
bæ. Um er að ræða aðstoð stúlkn-
anna við lausn á ýmsum vanda-
málum eða í það minnsta á flækj-
um. „Mér datt þetta nú bara í hug
þegar ég var að leysa jólaseríu-
flækjuna eftir áramótin,“ segir
Guðrún Kristín, sem er hug-
myndasmiður þjónustunnar. „Það
tók talsverðan tíma að leysa
flækjuna og eftir á talaði ég við
frænku mína. Við ákváðum að
setja upp auglýsingu þar sem við
bjóðumst til að leysa úr ýmiss
konar flækjum eins og hálsfesta-
flækjum, bandaflækjum eða jóla-
seríuflækjum.“
Stelpurnar geta státað af því að
hafa fengið eitt atvinnutilboð.
„Það var viðskiptavinur sem sagð-
ist hafa flækt fæturna sína við
borð á Kaffi List. Ég held hann
hafi hringt meira í gríni en alvöru
og þar sem við gátum ekki séð
okkur fært að mæta á svæðið
sendum við honum bara góða
strauma í staðinn.“
Guðrún segir það ekki svo dýrt
að fá lausn á sínum flækjum.
„Mér finnst mjög gaman að leysa
hnúta og þetta var gert meira í
gríni en í alvöru en að sjálfsögðu
metum við það eftir verkefnum
hversu dýr þjónustan er hverju
sinni,“ segir Guðrún sposk og má
kannski álykta sem svo að það sé
húmorinn sem leysi allar flækjur
eða í það minnsta vandamálin? ■
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Púertó Ríkó.
Evrópska MTV-tónlistar-
verðlaunahátíðin.
Thierry Henry.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4Fréttiraf fólki
Lárétt: 1fáki,5inn,6ma,7na,8man,
9fórn,10lá,12aga,13ala,15am,
16naut,18rótt.
Lóðrétt: 1finnland,2ána,3kn,
4mannamót,6marga,8móa,11ála,
14aur, 17tó.
Lárétt: 1 hesti, 5 stefna, 6 skóli, 7 átt,
8 ambátt, 9 offur, 10 hvíldist, 12 væta,
13 fæða, 15 sk.st., 16 tarfur, 18 kyrrt.
Lóðrétt: 1 þúsund vatna landið, 2 kind-
ina, 3 skáld, 4 samkoma, 6 ófáa, 8 sjást
óljóst, 11 fiska, 14 peningur, 17 unnin ull.
Lausn:
Þjónusta
FLÆKJULOSUN
■ Frænkur leysa hnúta.
GUÐRÚN KRISTÍN
Sérhæfir sig í að leysa úr ýmiss konar flækjum og hefur fengið frænku sína Rögnu
Sigrúnu til liðs við sig.
Leysa allar flækjur