Fréttablaðið - 02.05.2004, Side 6
6 2. maí 2004 SUNNUDAGURVeistusvarið?
1Hversu margar þjóðir gengu í Evrópu-sambandið í gær?
2Hvaða frægi sænski knattspyrnumað-ur hefur ákveðið að leika með lands-
liðinu á nýjan leik?
3Hvaða bandaríska sjónvarpsstöðsýndi fyrst myndir af pyntingum á
íröskum föngum?
Svörin eru á bls. 34
Steingrímur J.
Sérhagsmunir
Íslands myndu týnast
EVRÓPA „Innganga 10
þjóða í Evrópusamband-
ið nú breytir engu um
sérstöðu og hagsmuni
okkar Íslendinga,“ segir
Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri
grænna.
Hann telur vissulega
mega færa rök fyrir því
að við verðum enn ein-
angraðri en bendir á að
mörg óleyst vandamál
tengist stækkuninni.
„Það er verið að draga
úr áhrifum smærri ríkja
og framkvæma breyting-
ar sem gera sambandið að
ýmsu leyti meira frá-
hrindandi en það var. Það
er stærra bákn og sér-
hagsmunir Íslands munu
týnast þar enn frekar en
áður. Mitt mat á stöðunni
er því óbreytt. Við eigum
að rækta góð tengsl við
önnur Evrópuríki á öðr-
um grunni en þeim að
ganga í Evrópusam-
bandið. Þau mál eru í
ágætis horfi og það er
ekkert sem kallar á óða-
got í þeim efnum,“ segir
Steingrímur. ■
Össur Skarphéðinsson:
Glaður fyrir hönd álfunnar
EVRÓPA „Ég er glaður fyrir hönd
þeirra ríkja sem eru að ganga inn í
Evrópusambandið og fyrir hönd álf-
unnar,“ segir Össur Skarphéðins-
son, formaður Samfylkingarinnar.
Hann álítur stækkun sambands-
ins draga úr líkum á átökum eins og
þeim sem hafa einkennt sögu álf-
unnar og auka hagsæld í Evrópu
allri. Kvíðir því hins vegar að hún
ýti Íslendingum út á jaðar Evrópu
og dragi úr möguleikum okkar til
að standast samkeppni. Niðurstaða
hans á þessum tímamótum er því sú
að við eigum að taka ákvörðun um
að sækja um aðild að sambandinu í
fullri alvöru og freista inngöngu.
„Íslendingar hafa alltaf náð öfl-
ugri samstöðu með öðrum smáríkj-
um og innan sambandsins myndum
við vinna í nánu samráði við önnur
Norðurlönd og Eystrasaltsríkin.
Samanlagt hafa þau meira vægi en
stærstu ríki Evrópu,“ segir Össur. ■
Vonast ekki
eftir kraftaverki
Um tvö þúsund Pólverjar eru búsettir hér á landi. Fréttablaðið ræddi við Szymon Kuran, fiðlu-
leikara og tónskáld, og spurði um skoðanir hans á inngöngu Póllands í Evrópusambandið.
EVRÓPA Szymon Kuran, sem er
fæddur í Póllandi en hefur ís-
lenskan ríkisborgararétt, vonar
að inngangan í ESB verði góð
reynsla fyrir Pólland.
„Ég hef voða lítið talað við Pól-
verja sem búa á Íslandi. Ég held
að það sé langbest að bíða í smá
stund og sjá til hvernig þetta
verður í raunveruleikanum,“ seg-
ir Szymon. „Ég held samt að þetta
hafi verið nauðsynlegt miðað við
hvernig þróunin hefur verið í Evr-
ópu og í heiminum.“
Foreldrar Szymons búa í Pól-
landi eins og systir hans.
„Ég held að fjölskylda mín sé
dálítið tortryggin gagnvart
þessu,“ segir Szymon. „En ég held
að þau hafi svipaðar skoðanir og
ég. Þau ætla að bíða og sjá til en
vonast ekki eftir neinu krafta-
verki.“
Að sögn Szymons hefur margt
gott og margt slæmt gerst í Pól-
landi eftir fall kommúnismans
fyrir hálfum öðrum áratug. „Í
grófum dráttum má segja að þjóð-
félagið skiptist í tvo flokka. Ann-
ars vegar er það fólk sem á allt og
er áhrifamikið og hins vegar er
þarna fólk sem er fátækt. Fólkið
sem tilheyrir þeirri stétt er frekar
tortryggið. Á milli þessara stétta
kemur svo stórt gat og er milli-
stéttin hverfandi í Póllandi,“ segir
hann. Szymon játar að atvinnu-
leysi hafi farið versnandi í land-
inu en Pólverjar vonist að sjálf-
sögðu til að það breytist með inn-
göngunni í ESB.
Szymon heimsótti fjölskyldu
sína í Póllandi síðast í desember
en heimsækir hana líklega aftur í
sumar. Þá mun hann væntanlega
sjá með berum augum hvernig
ástandið verður og hvort eitthvað
hafi breyst.
Mikil fagnaðarlæti voru í Var-
sjá, höfuðborg Póllands, í gær til
að fagna áfanganum og voru göt-
urnar yfirfullar af fólki. „Nýr
kafli í sögu Póllands er að hefj-
ast,“ sagði Aleksander Kwasni-
ewski, forseti Póllands, himinlif-
andi. Eitthvað var þó um mót-
mæli, sem og í öðrum aðildar-
ríkjum. Óttast mótmælendur að
með inngöngunni sé Pólland að
gefa eftir fullveldi sitt, aðeins
fimmtán árum eftir að þjóðin
losnaði undan stjórn Sovétríkj-
anna. Einnig eru uppi áhyggjur
um að verðlag í landinu eigi eftir
að hækka upp úr öllu valdi og að
vestræn ríki muni nú hefja inn-
reið sína í samfélagið og auka
samkeppni gífurlega.
freyr@frettabladid.is
SIGFÚS BJARTMARSSON SKÁLD
Fylgist með fögnuði Eista.
Gleði hjá Eistum:
Rifja upp
söngva-
byltinguna
EVRÓPA Sigfús Bjartmarsson skáld
er staddur í Eistlandi, einu hinna
nýju Evrópusambandslanda.
„Það er létt yfir fólki hér,“
sagði hann þar sem hann sat við
ritstörf í hótelherbergi skammt
frá miðborg Tallinar. Sem dæmi
nefndi hann að í nálægum garði
væri eistneskt band að flytja göm-
ul Júróvisjonlög. Sumt væri þó
greinilega af diski.
„Menn hafa æft vel Waterloo,
Olsenbræðralagið og fleiri
norræn og þýsk lög. Eistar eru
vinir vina sinna.“
Í fyrrakvöld segir hann menn
hafa verið með áramótablístrur
og grímur að skemmta sér en að-
algleðin átti þó að vera í gær-
kvöldi meðal annars í stórum
garði í útjaðri borgarinnar. Fyrir
því er hefð á stórum stundum eins
og Sigfús lýsir.
„Þegar Eistar voru að berjast
fyrir sjálfstæði sínu söfnuðust
þeir þar saman sexhundruð þús-
und talsins og sungu þjóðlega
söngva. Þeir kalla það söngvabylt-
inguna. Þetta ætla þeir eitthvað að
rifja upp. Þorri þjóðarinnar gerir
sér vonir um að inngangan í
bandalagið verði henni til góðs en
gleðin er blandin hjá öðrum.“ ■
UNDIR REGNHLÍF ESB
Ung kona brosir undir regnhlíf Evrópusambandsins í pólsku borginni Slubice, sem er við
landamæri Þýskalands. Pólland er eitt tíu landa sem gekk í Evrópusambandið í fyrrakvöld.
SZYMON KURAN
Szymon telur að nauðsynlegt hafi verið fyrir
Pólland að ganga í Evrópusambandið.
AP
/M
YN
D
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
„Eigum að rækta góð
tengsl við önnur ríki án
þess að ganga í Evr-
ópusambandið.“
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
„Eigum að sækja um aðild í fullri alvöru.“